Morgunblaðið - 04.05.2015, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Þrátt fyrir mikla uppbyggingu í
ferðaþjónustu og mikla fjölgun gisti-
rýma á Suðurlandi á undanförnu ári,
virðist ekkert lát á bókunum.
Elías Guðmundsson rekur bæði
Hótel Eddu í Vík og Icelandair Hótel
í Vík, ásamt Vilborgu Smáradóttur. Í
samtali við Morgunblaðið sagði hann
hótelin tvö samanlagt geta hýst 160-
170 manns. Herbergin í þeim séu af-
ar vel nýtt í sumar og júlí og ágúst
séu bókaðir að fullu.
,,Við erum með fullan mannafla
fram í október, sem hefur ekki gerst
áður. Það má segja að sumarið hjá
okkur hafi byrjað í lok apríl,“ segir
hann og bætir við að herbergjanýt-
ingin sé verulega góð sex mánuði á
ári.
,,Hótel Edda í Vík er eina Eddu-
hótelið sem er opið allan ársins hring
og það er klárlega þörf á því.“
Þrátt fyrir góða nýtingu í sumar sé
viðbúið að yfirvofandi verkföll muni
setja strik í reikninginn. Að lokum
bendir hann á að viðbúið sé að röskun
verði á starfsemi hótelanna vegna
verkfalla starfsfólks á næstu dögum.
Nauðsynlegt verði að minnka um-
svifin en óvíst sé fyrr en eftir á hvert
heildartapið verði. ,,Ljóst er að hver
dagur í verkfalli er skaði og ekkert
annað.“
Sveitahótelið Smyrlabjörg, um 30
kílómetra frá Jökulsárlóni, er með
gistingu fyrir 90 manns. Laufey
Helgadóttir rekur hótelið ásamt
eiginmanni sínum Sigurbirni Karls-
syni. Að hennar sögn hefur uppbygg-
ing og fjölgun gistirýma á svæðinu
haft þau áhrif að færri daga á ári sé
enga gistingu að fá. Áður fyrr hafi
gisting verið ófáanleg nokkrar vikur
á ári en núna sé aðeins um nokkra
daga að ræða. ,,Ég get fullyrt að frá
20. júní til 20. ágúst er mjög vel bók-
að í gistirýmum á svæðinu, þó ég geti
ekki fullyrt að það sé fullt á öllum
stöðum. Það er þó alls staðar vel bók-
að, eftir því sem ég best veit.“
Hún segir mjög vel ganga að bóka
gistingu fyrir sumarið á Hótel
Smyrlabjörgum, einnig fyrir næsta
sumar og í einhverjum tilvikum sé
verið að bóka gistingu fyrir 2017.
Hótelið er opið allt árið um kring
og er einnig mikið bókað yfir vetr-
artímann.
„Síðustu þrjú ár hefur vetrarnýt-
ingin tekið stakkaskiptum. Ég veit að
bæði hér í kring og í Suðursveit hefur
nýtingin á veturna verið mjög góð.
Það varð stökkbreyting á þessum
þremur árum.“ Þá kveðst hún finna
fyrir breytingum á haustin og vísar
m.a. til að ljósmyndarar komi í aukn-
um mæli yfir vetrartímann.
Laufey kveðst hafa áhyggjur af
verkföllum starfsfólks enda séu
næstu dagar fyrir löngu fullbókaðir.
Hún muni þó ekki vísa fólki frá.
Hverfi frá magntúrisma
Dagný Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu Suður-
lands, telur að ferðamenn muni dreif-
ast betur um landið þannig að
markverðar breytingar verði á álags-
stöðum. „Eins tel ég að ferðamenn
muni dveljast lengur á landinu í einu
og vera tilbúnir að ferðast lengra.“
Hún segir mikilvægt að hverfa frá
magntúrisma og að laða að ferða-
menn sem skilji eftir frekara fjár-
magn í landinu.
Vel bókað í hótel á Suðurlandi
Mikil fjölgun gistirýma á svæðinu virðist ekki metta eftirspurnina Verkföll starfsfólks gætu
sett strik í reikninginn Hótel Smyrlabjörg er byrjað að bóka gistingar fyrir sumarið 2017
Morgunblaðið/Ómar
Vík í Mýrdal er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins og vel gengur að bóka gistingu fyrir ferðamenn þar.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2015
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Iðnaðarmenn vinna um þessar mundir að
endurbótum á húsinu að Marbakka sem stend-
ur við Fossvoginn í vesturbæ Kópavogs. Þetta
er eitt elsta og sögufrægasta hús bæjarins,
reist af hjónunum Finnboga Rúti Valdimars-
syni og Huldu Jakobsdóttur, sem fluttu þangað
10. maí 1940, sama dag og Bretar hernámu Ís-
land.
Kópavogur var hluti af Seltjarnarnesi til árs-
ins 1955 en varð þá sjálfstætt sveitarfélag. Þá
varð Finnbogi Rútur bæjarstjóri og gegndi em-
bættinu til 1957 en þá tók Hulda kona hans við
og hafði starfið með höndum til ársins 1962.
Sagan fer í hringi
Það sem gerir endurbygginguna nú sér-
staklega í frásögur færandi, er að húseigandinn
er núverandi bæjarstjóri, Ármann Kr. Ólafs-
son. Og kona hans heitir einmitt Hulda. Sagan
fer alltaf í hringi, er stundum sagt og nú má
segja að Marbakki verði aftur nokkurs konar
bæjarbústaður Kópavogs, kaupstaðarins sem er
60 ára um þessar mundir. Afmælisdagur
bæjarins er 11. maí og á næstu
dögum verður tímamótanna
minnst með fjölbreyttri og
áhugaverðri dagskrá.
Húsin að Marbakkabraut 38
eru tvö, bæði liðlega 100 fer-
metrar að flatarmáli. Annað
var reist árið 1946, það eign-
uðust Ármann Kr. Ólafsson og Hulda Guðrún
Pálsdóttir, kona hans, árið 2004 og hafa leigt út
allar götur síðan. Eldra húsið, hinn eiginlega
Marbakka, eignuðust þau í maí á síðasta ári og
hafa iðnaðarmenn verið þar að störfum að und-
anförnu.
Upphaflega var ætlun Ármanns og fjölskyldu
að flytja inn í endurgert Marbakkahúsið þann
10. maí næstkomandi, réttum og sléttum 75 ár-
um á eftir frumbyggjunum. Það
tefst meðal annars sakir þess að
endurgerðin er tímafrek. Þannig
hefur húsið verið stækkað nokkr-
um sinnum í áranna rás og þess
sér stað í ýmsum stílbrigðum og
byggingarefnum. Hefur því þurft
að leysa úr ýmsum óvæntum þrautum og sitt-
hvað verður með öðrum svip en ráðgert var
samkvæmt teikningum. Eitt og annað var orðið
feyskið eða úr sér gengið, en annað vissulega
heillegt svo sem einangrun, gluggar og ýmsar
lagnir.
„Með endurgerð Marbakkahússins finnst
mér í raun að verið sé að sýna bænum og sögu
hans þá virðingu sem ber. Má þá einu gilda
hver hefði að þessu staðið,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson og heldur áfram:
Á sjálfum marbakkanum
„Sjálfum líður mér alltaf vel í gömlum húsum
og byggðin hér við Fossvoginn er í eftirlæti hjá
mér. Við fjölskyldan höfum verið í Kópavogi
frá 1996 og bjuggum nokkur fyrstu árin við
Huldubraut hér skammt frá og líkaði vel.
Fluttum síðan í Lindahverfið en snúum nú aft-
ur í vesturbæinn. Og sjálfur hef ég stundum
sagt í gamni að hér slái hjarta bæjarins. Hér
er upphafspunktur þéttbýlis í bænum, um-
hverfið er fallegt og gróið, héðan sést yfir víð-
feðmt svæði og beint neðan við húsið er fjaran,
marbakkinn sjálfur. Hér er gott að vera.“
Bæjarstjóri á ný á Marbakka
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bæjarstjórinn Ármann Kr. Ólafsson við húsið, þangað sem hann hyggst flytja með fjölskyldu sinni.
Ármann Kr. Ólafsson í Kópavogi gerir upp hús Finnboga Rúts og Huldu í
Kópavogi Miklar endurbætur gerðar Mér líður alltaf vel í gömlum húsum
Fjölbreytt
dagskrá í
Kópavogi, í
tilefni af 60
ára afmæli
bæjarins,
hefst nk. mið-
vikudag, 6.
maí. Þá verður
haldið jafnréttis-
málþing í Salnum og þar opnuð
sögusýning um frumkvöðla
meðal kvenna kvenna í Kópa-
vogi. Í framhaldinu eru viðburðir
í skólum, félagsmiðstöðvum
unglinga og eldri borgara, versl-
anir verða með sértilboð og svo
framvegis. Laugardaginn 9. maí
verður afmælisterta á boðum í
Smáralind og sunnudaginn 10.
maí verða stórtónleikar í Kórn-
um. Húsið verður opnað kl. 15
en skemmtunin er kl. 16. Þar
koma fram félagar úr Ríó tríó
ásamt Snorra Helgasyni, Dr.
Gunni, Sigtryggur Baldursson,
Stefán Hilmarsson, Guðrún
Gunnarsdóttir og Gissur Páll
Gissurarson og fleiri. Þá stýrir
Þórunn Björnsdóttir kór barna í
Kópavogi og Össur Geirsson
kemur fram með Skóla-
hljómsveit Kópavogs
Á hinum eiginlega afmæl-
isdegi bæjarins, 11. maí, verður
opnuð á Hálsatorgi sýning á
verkum barna á öllum leik-
skólum í Kópavogi. Hinn 16. maí
verður svo Menningarhátíð
Kópavogsbæjar og er þá áhuga-
verð dagskrá í menningar-
húsum, opið hús hjá listamönn-
um í Auðbrekku og fleira.
Sögusýning
og tónleikar
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Í AFMÆLISBÆNUM
Samkvæmt nýlegri skýrslu Ferða-
málastofu um ferðaþjónustu á Ís-
landi voru gistinætur erlendra
gesta um 4,4 milljónir árið 2014 og
hefur aukning þeirra verið að jafn-
aði 10,4% milli ára frá árinu 2000.
Tæplega 2,6 milljónum gistinótta
var eytt á höfuðborgarsvæðinu og
Suðurnesjum árið 2014 eða um
46,6% af heildargistinóttafjölda.
Ríflega helmingi (53,3%) gistinótta
eða um 2,9 milljónum talsins var
eytt í öðrum landshlutum.
Herbergjanýting jókst milli ára
2013-2014 alla mánuði ársins á höf-
uðborgarsvæðinu og nær alla mán-
uði á Suðurnesjum, Vesturlandi/
Vestfjörðum og Suðurlandi. Nýt-
ingin var mest í júlí og ágúst í öllum
landshlutum árin 2013 og 2014.
Þá heimsóttu 60,6% erlendra
ferðamanna Suðurland yfir sumarið
en 46,4% erlendra ferðamanna yfir
veturinn.
Um 60% sumargesta heimsækja Suðurland
FERÐAÞJÓNUSTA Á ÍSLANDI Í TÖLUM