Morgunblaðið - 04.05.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2015
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Láttu okkur
létta undir fyrir
næstu veislu
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
Serviettu- og
dúkaleiga
Gardínuhreinsun
Dúkaþvottur
Nicolás Maduro, forseti Venesúela,
tilkynnti á föstudag að lágmarkslaun
skyldu hækka um 30%. Maduro
greindi frá þessu á baráttudegi
verkalýðsins að viðstöddum herskara
rauðklæddra stuðningsmanna sósíal-
istaflokksins, og sagði hann hækk-
unina m.a. nauðsynlega vegna
ákvæða stjórnarskrárinnar.
Í 91. gr. stjórnarskrár landsins er
kveðið á um að ríkið tryggi starfs-
mönnum jafnt í opinbera geiranum
sem einkageiranum laun er duga fyr-
ir lágmarksframfærslu.
Spáir 7% samdrætti
Hagkerfi Venesúela hefur verið á
hraðri niðurleið undanfarin ár og
verulegur skortur á ýmsum lífsnauð-
synjum í landinu, sem býr að miklum
olíulindum en hefur verið undir stjórn
sósíalista svo árum skiptir. Að sögn
MarketWatch búast hagfræðingar
við því að verðbólga muni ná þriggja
stafa tölu á þessu ári. Undanfarið ár
hefur gjaldmiðillinn, bólivar, misst
75% af virði sínu. AGS spáir því að
hagkerfi landsins dragist saman um
7% á þessu ári.
Maduro hét því einnig á föstudag
að skipaðir yrðu eftirlitshópar sem
myndu fylgjast með starfsemi mat-
vælaframleiðenda og annarra einka-
rekinna framleiðslufyrirtækja sem
forsetinn hefur sakað um að spilla
fyrir hagkerfinu til að koma vinstri-
stjórninni frá völdum. Gagnrýnendur
stjórnvalda hafa bent á að sökina sé
frekar að finna í víðtækum afskiptum
yfirvalda sem meðal annars hafa falið
í sér að setja lögbundið hámarksverð
á fjölda neysluvara, en það er svo lágt
að það nær ekki að standa undir
framleiðslukostnaði. ai@mbl.is
AFP
Loforð Nicolás Maduro á 1. maí hátíðahöldum í Karakas. Venesúela glímir
við verðbólgu og vöruskort þrátt fyrir að vera auðugt af náttúruauðlindum.
Lágmarkslaun
hækka um 30%
í Venesúela
Búist við að verðbólgan fari
upp í þriggja stafa tölu á árinu
Metfjöldi hluthafa mætti á aðalfund
Berkshire Hathaway sem haldinn var
í Omaha, Nebraska, um helgina. Fin-
ancial Times segir andrúmsloftið hafa
verið hátíðlegt en fundurinn markaði
fimmtíu ára stjórnartíð Warrens
Buffetts hjá félaginu sem í dag er
metið á 309 milljarða dala og hefur á
að skipa 302.000 starfsmönnum. Er
Berkshire fimmta verðmætasta
hlutafélagið á heimsvísu, á eftir
ICBC, China Construction Bank,
Agricultural Bank of China og
JPMorgan Chase.
Sást vel að Buffett á sér marga eld-
heita aðdáendur en gestir aðalfund-
arins gátu m.a. keypt hvers kyns
minjagripi með ásýnd fjárfestingajöf-
ursins, allt frá tómatsósupakkningum
til stuttbuxna.
Vangaveltur um viðskiptahætti
Að sögn MarketWatch voru hlut-
hafar engu að síður beinskeyttir í
spurningum sínum til framkvæmda-
stjórans. Inntu hluthafar Buffett m.a.
eftir skýringum á nýlegri úttekt
Seattle Times á lánveitingum Clayton
Homes, dótturfyrirtækis Berkshire,
sem sakað er um svk. „predatory
lending“ þar sem lán eru veitt ein-
staklingum sem búast má við að geti
ekki staðið undir greiðslubyrðinni.
Einnig spurðu hluthafar krefjandi
spurninga um 3G Capital sem hefur
unnið með Berkshire að kaupum á
HJ.J. Heinz og Kraft Foods. Hefur
3G verið gagnrýnt fyrir harkalegar
niðurskurðaraðgerðir sem kostað
hafa ófá störf.
FT segir svör Buffetts sýna að
hann skammast sín ekki fyrir að vera
kapítalisti. Varðandi Clayton Homes
benti hann á að fyrirtækið þjónusti
einkum lágtekjufólk og þurfi því eðli
málsins samkvæmt að ákveða um lán-
veitingar til einstaklinga með lítið
lánshæfi. Varðandi 3G benti hann á að
hluti af því að reka fyrirtæki á skil-
virkan hátt sé að hafa ekki fleiri
starfsfmenn en þarf. „Við gætum haft
500 manns á aðalskrifstofunni okkar,“
sagði hann en á skrifstofunni starfa í
dag 25 manns.“
Gestir spurðu líka um mögulegan
arftaka leiðtogans en Buffett gaf ekk-
ert í skyn um hver væri líklegur til að
taka við. Hann svaraði þó að hann
myndi ekki vilja að næsti fram-
kvæmdastjóri yrði einhver sem hefði
eingöngu reynslu af fjárfestingasvið-
inu. ai@mbl.is
Hluthafar gefa
Buffett engin grið
Húllumhæ á árlegum aðalfundi Berkshire Hathaway
AFP
Harður Buffett fékkst ekki til að segja mikið um væntanlegan arftaka.
Í október greindi Wall Street
Journal frá því að hópur fjárfesta
frá Hong Kong og Abu Dhabi hefði
boðið jafnvirði 1,9 milljarða dala í
íþróttamerkið Reebok, sem Adidas
eignaðist fyrir átta árum.
Nú hefur Herbert Heiner, for-
stjóri Adidas, sagt að Reebok verði
ekki selt. Kom þetta fram í viðtali
sem birt var í vikuritinu Frankfurt-
er Allgemeine Sonntagszeitung,
sem birt var á sunnudag.
Hainer sagði sölu á Reebok varla
fræðilegan möguleika því fyrir-
tækin tvö hafa samtvinnast svo
rækilega.
Rekstur Reebok hefur þó gengið
illa undanfarin átta ár. Nú virðist
fyrirtækinu hafa tekist að snúa
dæminu við og þykja rekstrar-
horfur Reebok ágætar.
MarketWatch bendir á að þó Ree-
bok sé aftur farið að skila hagnaði
þá stendur eftir að merkið á erfitt
uppdráttar á Bandaríkjamarkaði
þar sem Reebok féll í fyrsta skipti
niður í 3. sæti á lista yfir vinsælustu
íþróttamerkin. ai@mbl.is
AFP
Heild Herbert Hainer, stjórnandi Adidas, segir fyrirtækin samtvinnuð.
Adidas vill ekki
selja Reebok
Sölutölur úr bandaríska bílageir-
anum sýna að neytendur eru farnir
að kaupa dýrari bíla en áður. Meðal-
bíllinn sem seldist í mánuðinum var
hundruðum dala dýrari en í sama
mánuði í fyrra, segir í Wall Street
Journal.
Er þess vænst að sala á fólksbílum
vestanhafs fari yfir sautján milljóna
bíla markið á árinu, í fyrsta skipti
síðan snemma á síðasta áratug.
Neytendur leita í auknum mæli í
bifreiðar í lúxusflokki og kaupa bíla
með meira af aukabúnaði. Þá hefur
sala á pallbílum og jeppum aukist,
og er sú þróun m.a. talin drifin
áfram af lækkandi eldsneytisverði.
ai@mbl.is
Bílasala vestanhafs er að glæðast
AFP
Útgjöld Neytendur velja dýrari bíla