Morgunblaðið - 04.05.2015, Page 40
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 124. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Af hverju leit Katrín svona vel út?
2. Lét handtaka 10 ára son sinn
3. Mayweather sigraði Pacquiao
4. Stórmeistarajafntefli í Serbíu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Evrópustofa og Bíó Paradís efna til
Evrópskrar kvikmyndahátíðar í sam-
starfi við Films on the Fringe og
bjóða brot af því besta í evrópskri
kvikmyndagerð í sex bæjum á land-
inu síðar í mánuðinum. Myndirnar
verða sýndar á Egilsstöðum 15. maí,
Höfn í Hornafirði hinn 16., Akranesi
19., Ísafirði 21., Akureyri 23. og Sel-
fossi 26. maí.
Evrópsk kvikmynda-
hátíð í sex bæjum
Sýning Lóu
Bjarkar, UNDRA-
LANDIÐ II, verður
opnuð í SÍM-
salnum, Hafnar-
stræti 16, kl. 17 til
19 í dag. Lóa sýnir
nýleg akrýl-
málverk unnin á
striga og myndir
unnar á pappír með vatnslitum og
blandaðri tækni.
Sýning Lóu Bjarkar
opnuð í SÍM-salnum
Jesper Pedersen, tónskáld og
hljóðlistamaður, verður í aðal-
hlutverki á tónleikum í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu miðvikudags-
kvöldið 6. maí klukk-
an 20 í tónleikaröð-
inni Jaðarberi.
Áheyrendur fá að
kynnast nýjustu
verkum Jespers
Pedersen í
hljóði og
mynd.
Verk Jespers Peder-
sen í Hafnarhúsinu
Á þriðjudag Norðaustlæg átt 5-10 m/s, en 10-15 við suðaustur-
ströndina. Skýjað að mestu og líkur á dálitlum éljum norðaustan-
og austanlands, en annars víða bjart og hiti 1 til 6 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 4-10 m/s. Dálítil él austantil, en
léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert og víða á Norðurlandi.
Hiti 1 til 7 stig, en um eða undir frostmarki fyrir norðan og austan.
VEÐUR
Samningaviðræður á milli
Helenu Sverrisdóttur,
fremstu körfuknatt-
leikskonu landsins, og
uppeldisfélags hennar
Hauka eru á lokametr-
unum. Hún verður að öllum
líkindum kynnt sem spil-
andi aðstoðarþjálfari liðs-
ins í vikunni. Haukar
munu þá einnig kynna
Ingvar Guðjónsson sem
nýjan aðalþjálfara liðsins.
»1
Helena spilandi
aðstoðarþjálfari
Stjarnan og Grótta mæt-
ast í fyrsta leik úr-
slitaeinvígisins um Ís-
landsmeistaratitil kvenna
í handknattleik á
Seltjarnarnesi
annað kvöld.
Stjarnan leikur
til úrslita þriðja
árið í röð en vann
titilinn síðast árið
2009. Grótta er í
fyrsta sinn
komin í úrslitin.
»8
Stjarnan og Grótta leika
um Íslandsmeistaratitil
Íslenska karlalandsliðið í handknatt-
leik skoraði þrjú síðustu mörkin, á
rúmum tveimur mínútum, gegn Serb-
íu í Nís í gær og tryggði sér þar með
afar mikilvægt 25:25-jafntefli gegn
heimamönnum í baráttunni um að
komast á Evrópumótið sem fram fer í
Póllandi í janúar á næsta ári. Ísland
og Serbía eru með 5 stig hvort en
Svartfjallaland efst með 6 stig. »2
Strákarnir kræktu í
dýrmætt stig í Serbíu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Það eru engin tímamörk á því hvað
maður getur verið lengi úti í sjónum.
Þetta reynir töluvert á og það spilar
talsvert inn í að maður finnur ekki
fyrir kulda – manni er frekar of heitt
ef eitthvað er,“ segir Bjarki Þorláks-
son, brimbrettakappi hjá surf.is.
Ekki er óalgeng sjón að sjá bíla
keyra með brimbretti á toppnum við
strendur landsins en Bjarki segir að
hópurinn sem stundi íþróttina sé um
50 manns en stöðugt fjölgar þeim
sem læra hvernig á að standa ölduna.
Bjarki og félagar reka brimbretta-
skóla, þann eina hér á landi, og sækja
um 100 manns námskeið hjá skól-
anum á hverju ári.
„Marga langar að prófa og við
fáum margar fyrirspurnir. En þar
sem við erum nú á Íslandi þá þurfa
aðstæður að vera þannig að það sé
hægt að fara með fólk út í sjó, veður
og vindar þurfa að spila saman. Síð-
asta sumar var t.d. ekki nógu gott
vegna aðstæðna.
Það kostar 16.900 krónur á nám-
skeiðið, þar sem allt er innifalið. Það
þarf ekki að eiga neitt nema góða
skapið,“ segir hann og bætir við að
sportið sé ekki mjög dýrt.
„Upphafskostnaður er um 200 þús-
und, fyrir bretti og galla. Það er
frjálst að fara í sjóinn hvar sem er og
það þarf ekki að borga aðgangseyri
ofan í. Þetta er auðvitað jaðarsport og
maður fer ekki á æfingar – þetta er
ákveðinn lífsstíll og snýst meira um að
hafa gaman af.“
Magnaðar öldur og landslag
Algengasti staðurinn fyrir brim-
bretti hér á landi er Þorlákshöfn en
hægt er að stunda íþróttina mun víð-
ar. Öldurnar hér við land þykja magn-
aðar og landslagið ekki síðra. Þó að
flestir tengi brimbretti við sól og sum-
ar þá er íþróttin stunduð hér á landi
jafnt í frosti og kulda sem hita og sól.
„Kjöraðstæður eru logn og öldur.
Við viljum ekki rokið. Við erum í svo-
kölluðum 6-5-4 blautbúningi. Hann er
6 mm þykkur að hluta til, 5 mm að
hluta og 4 mm að hluta, þetta eru
kallaðir vetrargallar erlendis. Flestir
nota þá árið um kring hér á landi. Svo
er hetta, vettlingar og skór en á
sumrin er hægt að sleppa hettunni og
hönskunum.
Það er kalt þegar farið er í gallann
og farið úr. En á meðan maður er úti í
sjónum þá finnur maður ekki fyrir
kulda.“
Stór nöfn hafa komið
Ísland er að verða þekkt sem brim-
brettaland og þarf ekki mikla leit á
leitarvefnum Google til að sjá marga
kunna brimbrettakappa reyna sig við
öldur Atlantshafsins. „Maður sem
heitir Ian Battrick hefur stundað
brimbretti hér í nokkur ár og er
búinn að senda margar mynd-
ir héðan í stór tímarit út um
allan heim. Ísland er að verða
þekktara sem brimbrettaland
með góðar aðstæður.“
Lítill vindur en stórar öldur
Brimbrettaíþróttin er ört vaxandi
Þeim fjölgar sem læra að standa ölduna
Ljósmynd/surf.is
Vaxandi áhugi Nemendur á brimbrettanámskeiði í Þorlákshöfn. Æfingin skiptir miklu máli í glímunni við öldurnar og sömuleiðis búnaðurinn.
Segja má að áfengisframleið-
andinn Jägermeister hafi komið
Íslandi á kortið sem brimbretta-
landi. Fyrirtækið gerði 60 sek-
úndna auglýsingu sem birtist í
Bretlandi fyrir nokkrum árum en
var bönnuð skömmu síðar. Þá
var hún sett á Youtube þar sem
hún sló í gegn.
Þá sagði Daily Mail einnig frá
málinu og birti fjölmargar mynd-
ir af ævintýraferð
þeirra Oli Adams, Owa-
in Davis, Richie Fitz-
gerald, David Blo-
unt og Ben
Skinner sem er at-
vinnumaður á
brimbretti.
Brimbretta-
landið Ísland
ERLENT BRIMBRETTAFÓLK