Morgunblaðið - 04.06.2015, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
Bæjarráð Vestmannaeyja tók á
dögunum afstöðu til erindis orlofs-
nefndar húsmæðra í Vestmanna-
eyjum um greiðslu vegna hús-
mæðraorlofs. Í fjárhagsáætlun
bæjarráðs var ekki gert ráð fyrir
greiðslu til nefndarinnar vegna or-
lofsins, en hún er bundin í lög um
húsmæðraorlof. Staðfest var á
bæjarráðsfundi þann 26. maí sl. að
ekki yrði af greiðslunni, en bæjar-
ráð telur að lög um húsmæðraorlof
stangist á við jafnréttislög og
grundvallarreglur stjórnskipunar-
innar.
Stefán Óskar Jónasson, bæjar-
ráðsfulltrúi Eyjalistans, gerði at-
hugasemd við afgreiðslu málsins og
sagðist hlynntur því að orlofs-
nefndin fengi styrkinn. Hann telur
lögin skýr um þessi efni og að
sveitarstjórninni beri að fara að
þeim, burtséð frá sjónarmiðum
jafnréttislaga. Hann tekur þó efnis-
lega afstöðu með meirihlutanum.
„Ég er sammála því að það megi
endurskoða lögin. Þau voru ágæt á
sínum tíma en það má alveg breyta
því sem talið var nauðsynlegt árið
1972,“ segir Stefán.
Síðustu ár hafa sveitarfélög víða
um land gagnrýnt lögin með hlið-
sjón af jafnréttissjónarmiðum og
bent á að þau hafi ekki staðist tím-
ans tönn. Unnur Brá Konráðsdóttir,
formaður allsherjar- og mennta-
málanefndar Alþingis, hefur lagt
fyrir þingið frumvarp um afnám
laganna. Óvíst er hvort frumvarpið
fær afgreiðslu fyrir þinglok.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestmannaeyjar Bæjarráðsfulltrúar eru ósammála um afgreiðslu málsins.
Húsmæðraorlof
ógreitt í Eyjum
Telur að bæjarráð brjóti lög
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Nauðsynlegt er að dýpka siglinga-
leiðina yfir Grynnslin utan við
Hornafjarðarós, að sögn Björns
Inga Jónssonar, bæjarstjóra
Hornafjarðar. Verði það ekki gert
er framtíð sjávarútvegs á Höfn í
hættu, að hans mati. Hann segir að
greið leið inn í höfnina sé forsenda
þess að áfram verði unnið að upp-
byggingu sjávarútvegs á Höfn,
annars sé viðbúið að uppbyggingin
leiti annað. Djúprista skipa á leið
til Hafnar er nú takmörkuð við
fimm metra sem þýðir að t.d. hlað-
in makrílskip og stærri flutninga-
skip komast ekki í höfnina.
Fulltrúar Hornfirðinga hittu
þingmenn Suðurkjördæmis, þ.á m.
tvo ráðherra, sl. föstudag og leit-
uðu liðsinnis þeirra við að fá ríkið
til að kosta dýpkunina, enda eru
Grynnslin utan Hornafjarðarhafn-
ar. Björn Ingi segir að þingmenn-
irnir hafi tekið erindi Hornfirðinga
vel.
„Það er lífsspursmál fyrir byggð-
ina hér að finna varanlega lausn á
þessu vandamáli. Það voru allir á
því,“ segir Björn Ingi. „Verði
Grynnslin svona áfram er ekki for-
senda fyrir áframhaldandi upp-
byggingu sjávarútvegs á Höfn.
Maður óttast mest að sjávarút-
vegsfyrirtækin ákveði að hætta
uppbyggingu hér og fara eitthvað
annað. Þá verður stórum hluta af
undirstöðu byggðarlagsins kipppt í
burtu. Ég er hræddur um að það
verði töluvert dýrt fyrir íslenska
þjóð.“
Í framhaldi af fundinum með
þingmönnunum skrifuðu Hornfirð-
ingar Vegagerðinni og óskuðu eftir
því að dýpkunarframkvæmdir á
Grynnslunum yrðu boðnar út sem
fyrst. Spurningin um hver á að
borga á ekki að tefja framkvæmd-
ina, að mati Björns Inga. Hann
bendir á að Grynnslin séu utan við
mörk Hornafjarðarhafnar en sigl-
ingasvið Vegagerðarinnar telji hins
vegar að þau séu hluti hafnarinnar.
Björn Ingi segir að verði dýpkunin
samþykkt sem styrkhæf hafnar-
framkvæmd greiði ríkið 60%
kostnaðarins en hafnarsjóður 40%.
Verði hins vegar samþykkt að
Grynnslin séu ekki á ábyrgð hafn-
arsjóðs borgar ríkið allan kostn-
aðinn.
„Kostnaður við dýpkun á
Grynnslunum til að bjarga vertíð-
inni í sumar hleypur á nokkrum
tugum milljóna,“ segir Björn Ingi.
„Við gerðum ekki ráð fyrir slíkum
kostnaði í fjárhagsáætlun fyrir
þetta ár. Grynnslin eru utan við
mörk hafnarsvæðisins og því telj-
um við að ríkinu beri að borga
þennan kostnað.“
Dýptarmælingar sýna að
náttúruleg læna er að myndast
vestast í Grynnslunum alveg upp
við Hvanney, nálægt klettum og
skerjum. Björn Ingi segir hug-
myndina vera þá að breikka læn-
una svo dúprist skip geti siglt inn í
Hornafjarðarhöfn.
Nauðsynlegt að dýpka
á Grynnslunum
Hornfirðingar vilja að dýpkun verði boðin út sem fyrst
Ljósmynd/mats.is
Hornafjarðarós Grynnslin utan við ósinn. Mjög grynnkaði á þeim í vetur.
Audi Q5
Kraftur, hönnun
og sparneytni
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · www.audi.is
Q5 2.0 TDI quattro, 190 hö, 8,4 sek 0-100 km/klst., frá 7.990.000 kr.
Q5 3.0 TDI quattro, 258 hö, 5,9 sek 0-100 km/klst., frá 9.290.000 kr.
SQ5 3.0 TDI quattro, 313 hö, 5,1 sek 0-100 km/klst., frá 11.590.000 kr.