Morgunblaðið - 04.06.2015, Qupperneq 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
Kær vinkona,
Ingibjörg Bjarnar-
dóttir, hefur kvatt
eftir þungbær veik-
indi. Kynni okkar
hófust fyrir rúmum þrjátíu ár-
um þegar við hófum nám við
lagadeild Háskóla Íslands. Við
vorum báðar talsvert eldri en
aðrir nemendur og það varð án
efa þess valdandi í upphafi að
kynni tókust með okkur. Eins
og gengur í löngu og ströngu
námi skiptast á skin og skúrir
og þannig var það einnig á
stundum hjá okkur Ingibjörgu.
En við glöddumst með hvor
annarri þegar vel gekk og
studdum hvor aðra þegar eitt-
hvað var okkur mótdrægt. Það
lagði síðan grunninn að vináttu
okkar á milli sem stóð þar til yf-
ir lauk þrátt fyrir að ég væri
lengi við störf úti á landi.
Engum sem kynntist Ingi-
björgu duldist hinn mikli og ein-
lægi áhugi hennar fyrir fé-
lagslegu réttlæti. Henni voru
réttindamál kvenna mjög hug-
leikin og lagði hún mörgum
slíkum málum, og verkefnum
þeim tengdum, lið í gegnum ár-
in. Þá voru henni málefni barna
og fjölskyldna einnig hugleikin
og segja má að hún hafi í starfi
sínu lagt áherslu á fjölskyldu-
mál en hún starfaði lengst af
sem lögmaður á eigin stofu.
Bætti hún við sig námi í sátta-
meðferð til þess að geta betur
tekist á við þennan viðkvæma
málaflokk. Hún var mjög traust
og skyldurækin og hélt því afar
vel utan um þau mál og verk-
efni sem henni voru falin.
Ingibjörg var glæsileg kona
og mér fannst hún ávallt geisla
af hreysti og þrótti. Það var
mikið áfall að heyra að hún
hefði greinst með MND-sjúk-
dóminn rétt um það leyti sem
hún lét af störfum fyrir tveimur
árum. Hún hafði veikst af
krabbameini tveimur áratugum
fyrr en fengið bata eftir hetju-
lega baráttu. Þegar ég sagði
henni að mér þætti henni hafa
verið sköpuð grimm örlög sam-
sinnti hún því ekki heldur sagð-
ist líta svo á að sér hefði verið
úthlutað enn einu erfiðu verk-
efninu í lífinu, verkefni sem
henni væri ætlað að draga lær-
dóm af. Og hún tókst á við þetta
Ingibjörg
Bjarnardóttir
✝ IngibjörgBjarnardóttir
fæddist 15. mars
1943. Hún lést 18.
maí 2015. Útför
Ingibjargar fór
fram 27. maí 2015.
nýja verkefni eins
og önnur verkefni
sem henni voru fal-
in, af festu og ein-
urð. Hún reyndi að
njóta þess sem lífið
hefur upp á að
bjóða, sótti leikhús
og aðra viðburði,
en tókst einnig á
við verkefni sem
hún taldi geta orðið
öðrum til hagsbóta.
Síðustu mánuði hittumst við
reglulega en ég var þá flutt aft-
ur til Reykjavíkur. Þrátt fyrir
að við vissum báðar að hverju
stefndi voru þessar samveru-
stundir okkar ánægjulegar og
gefandi. Síðustu dagana sem
Ingibjörg lifði vorum við síðan í
símasambandi vegna verkefnis
sem hún vildi ljúka og enn sem
fyrr var andinn óbugaður, þrátt
fyrir að líkamlegri heilsu henn-
ar hefði þá hrakað verulega.
Svo kvaddi þessi hugrakka vin-
kona mín skyndilega og svo
miklu fyrr en við höfðum áætl-
að. En þannig er lífið, fullt af
óvæntum verkefnum sem takast
verður á við, sama hve óvelkom-
in þau kunna að vera, eins og
hún orðaði það sjálf.
Að leiðarlokum þakka ég af
alhug góða vináttu. Ég votta
Geir, eiginmanni Ingibjargar,
innilega samúð, en hann ann-
aðist hana af mikilli nærfærni í
veikindum hennar og gerði
henni kleift að dveljast heima á
heimili þeirra til æviloka. Inni-
legar samúðarkveðjur sendi ég
einnig fjölskyldu hennar. Veri
hún kært kvödd.
Áslaug Þórarinsdóttir.
Með Ingibjörgu Bjarnardótt-
ur er fallinn frá öflugur fé-
lagsmaður Sáttar, fagfélags
sáttamanna. Félagið var stofnað
í nóvember 2005 og var Ingi-
björg einn helsti hvatamaður að
stofnun þess og fyrsti formaður
félagsins en hún sinnti for-
mennsku í félaginu til ársins
2014.
Ingibjörg var óþreytandi í
vinnu sinni fyrir Sátt og full af
eldmóði við að breiða út sátta-
miðlun sem raunhæfa leið til
lausnar ágreiningi í íslensku
samfélagi. Í formannstíð hennar
stóð Sátt m.a. fyrir tveimur
viðamiklum námskeiðum fyrir
verðandi sáttamenn þar sem
fengnir voru til landsins mikils-
virtir fræðimenn í sáttamiðlun
frá Norðurlöndunum og Bret-
landi. Einnig var haldin hér á
landi norræn ráðstefna, fjöl-
mörg styttri námskeið og
fræðslufundir undir styrkri
stjórn Ingibjargar. Ingibjörg
var okkar helsti fræðimaður í
sáttamiðlun. Hún flutti ótal er-
indi um málið og var m.a. leið-
beinandi meistaranema í lög-
fræði sem skrifuðu um
sáttamiðlun. Hún leiddi starf
Sáttar af röggsemi á fyrstu ár-
um þess og sýndi þar mikla
þrautseigju og kraft. Hún missti
aldrei sjónar á markmiðinu og
hugsjóninni um að gera sátta-
miðlun að raunhæfum kosti í ís-
lensku samfélagi. Ingibjörg
vann störf sín fyrir Sátt og
sáttamiðlun alla tíð án endur-
gjalds og sinnti þeim samhliða
lögmannsstörfum sínum sem oft
á tíðum urðu jafnvel að víkja
vegna starfa hennar að fram-
gangi sáttamiðlunar.
Sátt stendur í mikilli þakk-
arskuld fyrir starf Ingibjargar í
þágu félagsins. Félagsmenn
þakka fyrir samfylgdina við
hana og votta fjölskyldu hennar
samúð um leið og þeir kveðja
formann sinn með virðingu.
F.h. Sáttar,
Silja Ingólfsdóttir og Sonja
María Hreiðarsdóttir.
Frænka mín, Ingibjörg
Bjarnardóttir, er látin. Við vor-
um bræðrabörn. Faðir hennar
var Björn Guðmundsson, bíl-
stjóri, kallaður Spánarfari, en
móðir hennar Þórunn Magnús-
dóttir, sagnfræðingur, fræg
baráttukona.
Lífsbarátta Björns og Þór-
unnar var hörð, ekki síst vegna
skoðana þeirra, vinna stopul og
sífelldir flutningar úr einu hús-
næði í annað. Ekki léttu róttæk-
ar skoðanir þeirra þeim róð-
urinn. Þvert á móti.
Hugsjónirnar flæktust fyrir
þeim um margt, ekki síst í ver-
aldarvafstrinu.
Þess vegna lá leiðin í Camp
Knox. Þegar þau skildu varð
Þórunn eftir með börnin og
gerðist talsmaður þeirra sem
þar bjuggu í Samtökum her-
skálabúa. „Við vorum ekki bara
braggabúarnir í skólanum held-
ur líka kommarnir í bröggun-
um,“ sagði Ingibjörg mér
seinna þegar ég var að setja
mig inn í þessa sögu.
Já, mörg var lífsreynslan, og
eins og Ingibjörg var komin af
uppreisnarfólki gerði hún sjálf
uppreisn og fór að heiman,
kornung. Þó að hún væri með
góðar einkunnir hafði skóla-
stjórinn sagt henni að fólk úr
bröggum, með hennar bak-
grunn, ætti ekki að vera að
huga að framhaldsnámi.
Hér gæti ég skrifað langt
mál. Ingibjörg var nokkur ár úti
á vinnumarkaðnum en átti síðan
ævintýralegan námsferil bæði
hér heima og í Svíþjóð og af-
sannaði rækilega orð skólastjór-
ans. Hún lærði lögfræði og alls
kyns sérsvið innan hennar og
vegnaði vel á öllum sviðum lífs-
ins.
Hvað sem skýrir veltinginn í
öllu því ölduróti sem líf okkar
er þá vil ég segja að bakgrunn-
ur Ingibjargar nýttist henni vel.
Fortíðin var henni stöðugt um-
hugsunarefni og uppspretta
skilnings. Það var frábært að
eiga hana að og ræða við hana.
Hún var bæði skemmtileg og
gáfuð og kvaddi allt of fljótt.
Hún var gift Geir Ólafssyni
lækni. Þau voru höfðingjar heim
að sækja.
Við í fjölskyldunni sendum
Geir og börnum þeirra, Birni og
Þórunni, tengdasyninum Þor-
valdi og barnabörnunum tveim-
ur okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Einar Már Guðmundsson.
Á ráðstefnunni „konur við
stjórnvölinn“ sem haldin var í
mars 1986 kom hugmyndin um
að stofna samskiptanet kvenna
og um haustið var Netið stofn-
að.
Í Netinu hafa verið konur á
öllum aldri, í fjölbreyttum störf-
um með mismunandi reynslu og
menntun að baki. Tilgangurinn
var að þannig gætu konur hist
og öðlast stuðning, fræðslu og
hvatningu og skipst á skoðun-
um, hugmyndum og upplýsing-
um. Ingibjörg markaði fljótlega
sterk spor í starfsemi Netsins
og lét til sín taka og varð tengill
1989. Alla tíð hefur Ingibjörg
borið hag Netsins fyrir brjósti,
verið hugmyndarík og virk í
starfsemi þess. Ótrúlegur fjöldi
úrvalsfyrirlesara (nær allt kon-
ur) hefur komið til okkar Net-
kvenna öll þessi ár og sjálfar
höfum við miðlað hver annarri
af reynslu okkar. Ingibjörg
lagði sitt af mörkum og hélt
bæði fyrirlestur og námskeið í
Skálholti sem snerti hennar fag.
Innanlandsferðir Netsins vor og
haust hafa alltaf verið blanda af
fræðslu og skemmtan. Þessi
ferðalög hófust með ferð að
Hellnum á Snæfellsnesi 1989. Í
faðmi íslenskrar náttúru var
lagður grunnur að langri vin-
áttu stórs hóps kvenna.
Eins og gengur og gerist í
stórum félögum myndast oft
minni hópar innan þeirra. Sam-
setning hópanna gat verið
breytileg og hittust hóparnir
aukreitis utan Netfunda og var
m.a. farið í ferðir innanlands og
utan. Við undirritaðar höfum
verið í slíkum hópum ásamt
Ingibjörgu.
Ingibjörg stóð fyrir fyrstu ut-
anlandsferðinni, ógleymanlegri
Parísarferð 1991 eftir að hafa
óvænt fengið íbúð þar til afnota
í eina viku. Í raun hafa allar
þessar ferðir verið stórkostleg-
ar sama hvernig hópurinn hefur
verið skipaður. Má nefna sem
dæmi ferðina á kvennaráðstefn-
una í Turku, Kanadaferðina,
Tyrklandsferðina, Indland,
Malaví, Kýpur, Krít og ferð til
Norður-Noregs svo eitthvað sé
nefnt. Til þess var tekið hve
gott var að treysta ratvísi Ingi-
bjargar á ferðalögum. Hún
leiddi hópinn gjarnan á söfn og
aðra menningarstaði því menn-
ing var henni hugleikin. Hún
var óhrædd að prufa eitthvað
nýtt svo sem framandi rétti og
nutum við hinar oft góðs af því.
Innanlands má nefna Lauga-
vegsgönguna og svo Langanesið
1995, þar sem Ingibjörg mætti,
tæplega búin að jafna sig eftir
erfiða geislameðferð. Hún var
mjög hugrökk og sterk kona
andlega og líkamlega. Hún
sýndi mikið æðruleysi í veik-
indum sínum og gafst aldrei
upp.
Margt hefur verið brallað og
minningarnar margar og góðar.
Samveran hefur verið notaleg
og umræðurnar verið gefandi
um allt milli himins og jarðar.
Ingibjörg hafði mikinn áhuga á
jafnrétti, menningu, bókmennt-
um og listum og var ætíð mjög
rökföst í skoðunum og fylgin
sér. Þó bar hún fulla virðingu
fyrir skoðunum annarra. Innan
Netsins hafa umræður um bæk-
ur alltaf tekið talsvert pláss og
verið vinsælt umræðuefni.
Einn af hennar góðu eigin-
leikum var að kunna að njóta,
að lifa lífinu lifandi, og það var
gaman að fá að vera henni sam-
ferða í öll þessi ár.
Hennar verður sárt saknað,
en við eigum góðar minningar
sem lifa munu með okkur
áfram.
Fjölskyldunni allri vottum við
einlæga samúð okkar.
Fyrir hönd Netsins,
Anna, Auður, Birna,
Guðrún, Hanna, Marta
Hildur og Ulla.
Ragna frænka
var ein af fimm
systrum Kristjönu
ömmu minnar. Hún
var gift Ármanni
Sigurðssyni járnsmið en hann
lést 1987. Hún var há og glæsi-
leg eins og þær allar. Ragna og
Ármann áttu fjögur börn: Ragn-
heiði, Sigríði, Sigurð og Krist-
ján. Seinna komu barnabörn og
barnabarnabörn og hafa án efa
verið miklir augasteinar því
Ragna var mjög barngóð. Ragna
var mikil áhugakona um garð-
rækt og garðurinn hennar bar
Ragna Þ.
Kristjánsdóttir
✝ Ragna Þ. Krist-jánsdóttir
fæddist 5. apríl
1923. Hún lést 23.
apríl 2015.
Útför Rögnu fór
fram 13. maí 2015.
af öllum görðum
hvað glæsileika
varðaði. Hún varði
þar ófáum stund-
um. Mörg börnin
léku sér þar bæði
sér og henni til
skemmtunar. Þeg-
ar ég fermdist gáfu
Ragna og Ármann
mér mjög fallegt
seðlaveski með
nafninu mínu á sem
ég hef notað til dagsins í dag.
Þetta sýnir hversu hlýtt hug-
arþel hennar til ættingja sinna
var. Hún elskaði allt sem stóð
henni næst. Nú hefur elsku
Ragna fengið langþráða hvíld
eftir hamingjuríka ævi. Veri hún
Guði falin og megi hið eilífa ljós
lýsa henni. Ég votta aðstand-
endum samúð mína.
Kristjana Jónsdóttir.
Elsku amma
okkar, amma Lína
eins og hún var
alltaf kölluð af okk-
ur barnabörnum,
er nú fallin frá. Hún var ynd-
isleg manneskja með ótrúlega
lífsgleði sem smitaði ávallt út
frá sér. Okkur þykir svo vænt
um allar sögurnar sem hún
sagði okkur um það þegar hún
var ung og þegar hún fræddi
Sigurlína
Gunnlaugsdóttir
✝ SigurlínaGunnlaugs-
dóttir fæddist 29.
júlí 1924. Hún lést
19. maí 2015. Útför
hennar fór fram 27.
maí 2015.
okkur um lífið.
Amma var rosalega
félagslynd, henni
leið best þegar við
vorum öll saman-
komin stórfjöl-
skyldan og eru það
stundir sem eru
okkur mjög dýr-
mætar. Amma vildi
aldrei missa af
neinu og var alltaf
til í að prófa eitt-
hvað nýtt og lét aldurinn aldrei
stoppa sig.
Elsku amma okkar, hvíldu í
friði.
Auður Björk, Axel Guð-
mundur og
Matthildur Arabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR SÆVAR GUÐJÓNSSON,
Kríubakka 4,
Bíldudal,
lést á blóðlækningadeild Landspítalans
laugardaginn 23. maí í faðmi fjölskyldu sinnar.
Útför hans fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn
6. júní kl. 14.
.
Sigríður Bjarnadóttir,
Vignir Bjarni Guðmundsson, Margrét Guðmundsdóttir,
Gyða Guðmundsdóttir, Þorleifur Örn Björnsson,
Ásdís Snót Guðmundsdóttir, Valdimar B. Ottósson
og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir fyrir hlýju og samúð við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MARGRÉTAR SÆMUNDSDÓTTUR
frá Selparti í Flóa,
Bólstaðarhlíð 54,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki í Hlíðarbæ og á Grund
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
.
Ólafur Halldór Torfason,
Ragnheiður Þórarinsdóttir, Þórarinn Th. Ólafsson,
Kristín Þorbjörg Ólafsdóttir, Ingjaldur Ásmundsson,
Ólína Margrét Ólafsdóttir, Ásgeir Þorkelsson,
Torfi Jóhann Ólafsson, Ásdís Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
KRISTÍN RUNÓLFSDÓTTIR,
Ásbrandssstöðum,
Vopnafirði,
sem lést mánudaginn 25. maí verður
jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju
mánudaginn 8. júní kl. 14.
Jarðsett verður í Hofskirkjugarði.
.
Bryndís Nikulásdóttir,
Gunnar Runólfsson,
Guðný Runólfsdóttir, Alfreð Pétursson,
Lára Runólfsdóttir, Hermann Einarsson,
Sigrún Runólfsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
GUNNÞÓRS BENDERS,
Lautasmára 20,
Kópavogi,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
4. maí.
.
Soffía Hrafnhildur Jónsdóttir,
Guðleif Bender, Guðmundur A. Gunnarsson,
Guðrún Dóra Gísladóttir, Páll Snæbjörnsson,
Jón Bender, Guðrún Ragnarsdóttir,
barnabörn og langafabörn.