Morgunblaðið - 04.06.2015, Síða 35
Ferðalög norður að Stóra-Vatns-
skarði, á æskuslóðir mömmu, og á
slóðir pabba, austur að Efri-Vík í
Landbroti. Þar kynntist ég stangveið-
inni, sem er enn mín ástríða.
Ég var í sveit í þrjú sumur í Miðkoti
í Vestur-Landeyjum hjá yndislegu
fólki, Ásdísi Kristinsdóttur og Þóri
Ólafssyni.“
Árni stundaði nám við Samvinnu-
skólann á Bifröst en var síðan búsett-
ur á Blönduósi næstu árin.
Hann flutti aftur suður árið 1987,
hóf störf á nýrri útvarpsstöð, Stjörn-
unni, og starfaði við fjölmiðlun, í út-
varpi, á blöðum og í sjónvarpi næstu
árin.
Árið 1994 flutti Árni með þáverandi
eiginkonu sinni austur í Hveragerði:
„Þar var gott að búa en mér finnst
Hveragerði vera einn fallegasti bær
landsins, í aðeins hálftíma fjarlægð frá
borginni. Þar bjuggum við í tólf ár en
fluttum þá til Reykjavíkur. Stuttu síð-
ar skildu leiðir okkar hjóna.“
Árni hafði verið óflokksbundinn en
á Suðurlandi hóf hann sinn pólitíska
feril. Hann tók að sér kosningastjórn
fyrir Framsóknarflokkinn skömmu
eftir að hann flutti í Hveragerði, varð
aðstoðarmaður Finns Ingólfssonar, í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum
1995-99, aðstoðarmaður Halldórs Ás-
grímssonar í utanríkisráðuneytinu
1999-2001, var þá framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksis, var kjörinn
bæjarfulltrúi í Hveragerði 1998 og aft-
ur 2002, varð alþingismaður
Framsóknarflokksins í Reykjavík
2003 og í kjölfarið félagsmálaráðherra
2003-2006.
Vorið 2006 ákvað Árni að hætta í
stjórnmálum, réði sig til Íslandsbanka
og fór þar fyrir verkefnum bankans í
endurnýjanlegri orku til 2013.
Hann er nú framkvæmdastjóri orku
hjá Mannviti.
Árni og Berglind, kona hans, una
sér best í hópi vina og fjölskyldu: „Á
sumrin er stangveiði mitt helsta
áhugamál og við hjónin stundum það
sport töluvert saman. Á veturna höf-
um við fyrir reglu að fara fjölskyldu-
ferð í Hlíðarfjall og er þá jafnan glatt á
hjalla.“
Fjölskylda
Eiginkona Árna er Berglind Braga-
dóttir, f. 6.5. 1974, hársnyrtir.
Foreldrar hennar eru Guðbjörg A.
Gunnarsdóttir, f. 7.6. 1954, skrif-
stofumaður, og Bragi S. Baldursson, f.
28.12. 1952, rafvirki. Stjúpfaðir Berg-
lindar er Ólafur Guðjónsson, f. 21.9.
1953, framkvæmdastjóri.
Fyrri eiginkona Árna er Edda
Björg Björgvinsdóttir, f. 25.6. 1960,
matráður.
Dóttir Árna frá því áður er Guðrún
Magnea Árnadóttir, f. 11.6. 1983, flug-
maður hjá Icelandair, búsett í Kópa-
vogi, en maður hennar er Björn Ragn-
ar Björnsson markaðsstjóri og er
sonur þeirra Mikael Magnús Björns-
son, f. 2013.
Börn Árna og Eddu Bjargar eru
Sara Dögg Árnadóttir, f. 31.3. 1994,
nemi í Kópavogi, og Árni Páll Árna-
son, f. 31.8. 1996, tónlistarmaður í
Kópavogi.
Stjúpbörn Árna eru Elvar Andri
Guðmundsson, f. 14.7. 1993, nemi í
Reykjavík, og Sandra Karen Guð-
mundsdóttir, f. 30.1. 2001, nemi í
Reykjavík.
Hálfbróðir Árna, samfeðra, er Guð-
jón Magnússon, f. 16.5. 1960, atvinnu-
rekandi í Reykjavík.
Alsystkini Árna eru Páll Magnús-
son, f. 12.3. 1971, bæjarritari í Kópa-
vogi; Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 28.12.
1973, verkefnisstjóri í Reykjavík.
Foreldrar Árna: Magnús Bjarn-
freðsson, f. 9.2. 1934, d. 30.8. 2012,
fréttamaður, og Guðrún I. Árnadóttir,
f. 15.5. 1937, bókavörður í Kópavogi.
Úr frændgarði Árna Magnússonar
Árni
Magnússon
Rósa María Gísladóttir
húsfr. í Varmalandi
Einar Jónsson
b. á Varmalandi í Sæmundarhlíð
Sólveig Einarsdóttir
húsfr. á Stóra-Vatnsskarði
Árni Árnason
b. á Stóra-Vatnsskarði í Skagafirði
Guðrún I. Árnadóttir
bókavörður í Kópavogi
Guðrún Þorvaldsdóttir
húsfr. í Borgey
Árni Jónsson
snikkari á Hólum og b. síðast í
Borgey í Vallhólmi í Skagafirði
Árný Eiríksdóttir
húsfr. í Háu-Kotey
Sigurbergur Einarsson
b. í Háu-Kotey í Meðallandi
Ingibjörg Sigurbergsdóttir
húsfr. á Efri Steinsmýri.
Fósturmóðir Magnúsar: Guðrún
Magnúsdóttir húsfr. í Efri-Vík
Bjarnfreður Ingimundarson
b. á Efri-Steinsmýri í Meðallandi
Fósturfaðir Magnúsar: Páll Pálsson
b. í Efri-Vík í Landbroti
Magnús Bjarnfreðsson
fréttam. við RÚV, var
búsettur í Kópavogi
Sigurveig Vigfúsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Ingimundur Árnason
í Vestmannaeyjum
Þorkell Sigurbjörnsson
tónskáld
Árni Bergur Sigurbjörnsson
pr. í Áskirkju
Einar Sigurbjörnsson
prófessor í guðfr. við HÍ
Karl Sigurbjörnsson
biskup
Björn Sigurbjörnsson
pr. í Svíþjóð
Gíslrún
Sigurbergsdóttir
húsfr. á Efri-
Steinsmýri
Sigurbjörn Einarsson
biskup
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
alþm. og form. Sóknar
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
Kristinn fæddist í Reykjavík4.6. 1926. Foreldrar hansvoru Hallur Þorleifsson
yfirbókari og Guðrún Ágústsdóttir
söngkona. Guðrún var systir Áslaug-
ar, konu Bjarna Jónssonar vígslu-
biskups, en þær voru dætur Ágústs
Benediktssonar, hálfbróður, sam-
feðra, Hallgríms Benediktssonar,
forstjóra og borgarfulltrúa, föður
Geirs forsætisráðherra.
Eiginkona Kristins var Hjördís
Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja
og eignuðust þau fjögur börn.
Kristinn lauk námi frá Verzlunar-
skóla Íslands 1945 og söngnámi frá
Royal Academy of Music í London
1954. Hann vann ýmis skrifstofu-
störf til 1970 en hóf þá störf hjá
menntamálaráðuneytinu þar sem
hann sinnti málefnum tónlistar og
annarrar menningarstarfsemi,
innanlands sem utan.
Kristinn var einn virtasti óperu-
söngvari þjóðarinnar frá því um
miðja síðustu öld og máttarstólpi í
íslenski sönglífi. Hann söng fyrst 17
ára með karlakórnum Kátum fé-
lögum, sem faðir hans stjórnaði, og
skömmu síðar með karlakórnum
Fóstbræðrum, sem naut starfs-
krafta hans alla tíð. Hann söng
bassahlutverkið í Sálumessu Moz-
arts á vegum Tónlistarfélagsins árið
1949, og söng Sparafucile í Rigol-
etto, fyrstu íslensku óperuuppfærslu
Þjóðleikhússins 1951.
Eftir námið í London fékk Krist-
inn atvinnutilboð frá breskum
óperuhúsum en fékk ekki atvinnu-
leyfi. Hann hélt heim og söng í fjöl-
mörgum óperuuppfærslum, hélt ein-
söngstónleika og söng í útvarpi og
sjónvarpi hér heima og erlendis.
Meðal hlutverka hans má geta Papa-
genós í uppfærslu Þjóðleikhússins
1956-7 og titilhlutverksins í Brúð-
kaupi Figaros 1969.
Kristinn var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku Fálkaorðu og
er hann varð sextugur árið 1986
voru haldnir miklir tónleikar í Þjóð-
leikhúsinu honum til heiðurs.
Fjölmargar upptökur eru til með
söng Kristins og 2002 kom út úrval
þeirra á tvöföldum geisladiski er
nefnist Kristinn Hallsson bass-
bariton. Kristinn lést 28.7. 2007.
Merkir Íslendingar
Kristinn
Hallsson
90 ára
Aðalheiður Sigurðardóttir
Sigrún Gísladóttir
Sölvi Eysteinsson
85 ára
Lára J. Magnúsdóttir
Pétur Einarsson
Sigríður Skúladóttir
Sigrún Þorleifsdóttir
80 ára
Pálína Sigríður
Sigurðardóttir
75 ára
Ástrún Jónsdóttir
Sigurður Vignir Hjelm
Sævar Magnússon
70 ára
Bára Sólmundsdóttir
Guðjón Weihe
Guðrún Árný Jónasdóttir
Hildur Viðarsdóttir
Jón Hlöðver Áskelsson
Ragnar Björnsson
Þórelfur Jónsdóttir
60 ára
Guðni Guðnason
Laufey Sigurðardóttir
Sigurbjörg G.
Halldórsdóttir
Sigurður Bjarnason
Valdemar Sigurjón Jónsson
50 ára
Freyr Njálsson
Guðrún Karlsdóttir
Gunnar Rúnar
Sumarliðason
Kristín Ellertsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Lilja Kúld
Ólöf Kristín Sveinsdóttir
Snædís Baldursdóttir
Sólveig Arna
Jóhannesdóttir
Zhijian Shen
40 ára
Arna Valdís Kristjánsdóttir
Artur Ert
Bergdís Saga
Gunnarsdóttir
Bergur Óskar Ólafsson
Chad Michael Keilen
Dagný Hrund Örnólfsdóttir
Egill Þór Magnússon
Guðmunda Björnsdóttir
Guðmundur Óli Tryggvason
Haukur Davíð Magnússon
Hrönn Indriðadóttir
Lilja Samúelsdóttir
Prakob Prawan
Ragnheiður Jónsdóttir
Tzenka Gentcheva Tzoneva
Þorsteinn Yngvi Bjarnason
30 ára
Baldur Ingi Halldórsson
Birna Dröfn Birgisdóttir
Daníel Sigrúnarson Hjörvar
Ellen Magnúsdóttir
Guðný Svava
Guðmundudóttir
Hildur Guðjónsdóttir
Jaroslaw Prus
Lukasz Krzysztof
Klyszewski
Ruta Vaiciute
Sara Katrín Stefánsdóttir
Þórður Hjálmar Þórðarson
Til hamingju með daginn
30 ára Tryggvi býr í
Grundarfirði, lék knatt-
spyrnu með mfl. Víkings,
Ólafsvík, og er sjómaður
frá Ólafsvík.
Maki: Unnur Þóra Sigurð-
ardóttir, f. 1989, starfar
hjá Marz – sjávaraf-
urðum.
Börn: Klara Dögg, f. 2012,
og Aron Leví, f. 2014.
Foreldrar: Hafsteinn
Garðarsson, f. 1960, og
Guðbjörg Jenný Ríkarðs-
dóttir, f. 1962.
Tryggvi
Hafsteinsson
30 ára Kristín Björk ólst
upp á Sólbakka í Þykkva-
bæ, býr á Baugöldu á
Hellu og er að ljúka
sjúkraliðaprófi. Hún vinn-
ur á skristofu Samverks á
Hellu.
Maki: Ásgeir Bl. Stein-
grímsson, f. 1978, málari.
Dóttir: Ísabella Margrét
Pálsdóttir, f. 2003.
Foreldrar: Sigurjóna Sig-
valdadóttir, f. 1959, og
Emil Jakob Ragnarsson, f.
1950.
Kristín Björk
Emilsdóttir
30 ára Íris ólst upp í
Garðabæ, er nú búsett í
Kópavogi, lauk prófum í
grafískri hönnun í Mílanó
og starfar á Vert – mark-
aðsstofu.
Systur: Ingunn Blöndal, f.
1986, og Rebekka Blön-
dal, f. 1988.
Foreldrar: Guðmundur
Blöndal, f. 1954, kenn-
aranemi við HÍ í Reykja-
vík, og Halla Sigmars-
dóttir, f. 1956, teiknari hjá
Parka í Hafnarfirði.
Íris Guðmunds-
dóttir Blöndal
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Sjálfvirk rennibraut inn á heimili