Morgunblaðið - 09.06.2015, Page 28

Morgunblaðið - 09.06.2015, Page 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2015 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Aldrei hefur verið auðveldara að heyra Enn er bætt um betur með nýju ReSound heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og áreynslulausa heyrn. Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu þessa hágæða tækni. GOLDEN LOBE AWARDS 2014 ASSOCIATION OF INDEPENDENT HEARING HEALTHCARE PROFESSIONALS Most Innovative Concept 2014 presented to: Resound - LiNX made for iPhone Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er eitt og annað sem þú átt ólok- ið en getur nú ekki lengur vikist undan að ganga frá því. Gættu þess að ganga ekki svo harkalega fram að þú eigir á hættu að fá allt saman í hausinn aftur. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur fulla ástæðu til að vera ánægð/ur því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. Hafðu samt hemil á nýjungagirninni því of mikið má af öllu gera. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Að eltast við hamingjuna er örugg- asta aðferðin til þess að fæla hana í burtu. Gerðu vinum þínum glaðan dag og njóttu ein- faldleikans. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Neikvæðar hugsanir ber að forðast. Ef fólki finnst þú ekki nógu ákveðin/n þá mun það ekki taka neitt mark á orðum þínum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Stundum pælir þú í hvor er skrítnari þú eða fólkið í kringum þig. Ef þú stendur þig að því að hugsa of mikið, skaltu slökkva á heila- starfseminni og halda þínu striki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þetta er góður dagur til að ræða við foreldra þína eða yfirmenn. Maki og vinir munu reynast vel og þú mátt búast við veg- legum gjöfum, arfi og bættu lánstrausti. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þín bíða svo mörg verkefni að það er engu líkara en þú eigir ekki að fá að líta upp í allan dag. Reyndu að ganga úr skugga um að fólk komi hreint fram við þig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þetta er góður dagur til að tala við mikilvægt fólk um allt það sem skiptir máli. Reyndu hvað þú getur að ná sambandi. Hæfni þín til að hugsa skýrt þegar kemur að peningum er óvenjulítil. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Notaðu daginn fyrir verslun, við- skipti og fjármálasýsl. Farðu þér því hægt og láttu öryggið sitja í fyrirrúmi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reiddu þig ekki um of á aðstoð annarra. Gefðu öðrum tíma til að sanna sig því án samkomulags verður ekkert úr verk- inu. Taktu samt enga óþarfa áhættu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þegar þú ert örugg/ur með sjálfa/n þig, gleymirðu að biðja um hjálp. Ef þú treður smá tíma fyrir vinina inn í vinnutím- ann, og stundar líkamlega og andlega bæt- andi iðju, verður tilveran betri. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér finnast sumar persónulegar skoð- anir starfsfélaga þinna út í hött. Taktu eftir gjörðum, ekki orðum. Aflaföngin færa á land fræknir landsins arfar. Brunar skeið um bólgin sjá bylgjur freyða stríðar, Ávallt seiða sjómenn þá sjávarleiðir víðar. Hallmundur Guðmundsson yrkir um „Vonbrigði“ á Boðnarmiði: Hann var sprækur með lipra löpp, og Lóu bauð endalaus –höpp-. En hún vill ekki fá ’ann, og helst ekki sjá ’ann því hún var svo helvíti slöpp. Páll Imsland heilsar leirliði á góðum degi með hornfirskri kveðju: Í fornöld var skógur í Skógey. Nú skartar hún slíkum samt þó ei. Það fór allt í sand sem eyddi þar land og síðan þar næst ekki nóg hey. Kristján Karlsson orti: Dimmt er vestur hjá Djúpi og draugar á hvítum hjúpi fara leið sína um allt. Það er andskoti kalt. Og ekkert gaman á Núpi. Kistján bætir síðan við þessari at- hugasemd: „Þarna er Vestfjörðum rétt lýst, þó að ég hafi ekki hug- mynd um það!“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á sjómannadaginn og þrjár limrur Ingólfur Ómar Ármannsson orti á Boðnarmiði í tilefni Sjómannadags- ins 7. júní 2015. Sannir garpar fórnir færa fleyjum sigla um ránargrund, Í ljóði kært er mér að mæra manndáð þeirra og hetjulund. Í brjósti mínu bærast strengir Braga kviknar skærsta glóð, Sjómenn Íslands djarfir drengir draga föng úr ægissjóð. Ingólfur Ómar lét þess síðan get- ið, að þessar væru voru ortar í fyrra í tilefni Sjómannadagsins. – „Fyrsta vísan er í anda liðins tíma en ég læt þó slag standa. Dansa boðar drynur sær dembir froðutárum. Dátt í voðum vindur hlær veltist gnoð á bárum. Sýna hetjur dug og dáð drengir heilla góðir, Afrek tíðum hafa háð hafs um úfnar slóðir. Ágjöf hræðast ei né grand ægishetjur djarfar. Í klípu „TAKTU EINA PILLU Á FASTANDI MAGA Á HÁLFTÍMA FRESTI NÆSTU 90 DAGA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ÞARF AÐ HITTA TVO AÐRA UMSÆKJENDUR ÁÐUR EN ÉG GERI UPP HUG MINN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að leika sér ekki að tilfinningum hennar. ÉG VAR MJÖG VIRKUR Í ÍÞRÓTTUM, GRETTIR. ÉG VAR LIÐSSTJÓRI SKÓLALIÐSINS. Í SKÁK. HANN SÝNDI ÞEIM Í TVO HEIMANA. AF HVERJU SKIPTUM VIÐ REIKNINGNUM BARA EKKI Í TVENNT? Í TVENNT?! AF HVERJU SKIPTUM VIÐ HONUM Í TVENNT? AF ÞVÍ AÐ ÉG RÆÐ! ÚTSALA ÁR- B ÁR- B ÁR- B Víkverji rak augun í það á Fésbók-inni í gær að nýgerðir kjara- samningar á almennum vinnumark- aði eru þegar farnir að fara út í verðlagið. Fyrirtækjaeigandi póst- aði mynd af reikningi fyrir ræstingu, sem hafði hækkað um 12% á milli mánaða og skýring hækkunar sögð vera kjarasamningarnar. Þetta er svakalegt ef rétt er og vonar Vík- verji svo sannarlega að stjórnendur fyrirtækja og stofnana haldi í sig með gjaldskrárhækkanir. Að öðrum kosti fer verðbólgan úr böndum og launahækkanir fjúka út um gluggann. x x x Víkverji flaug á dögunum heimmeð Icelandair, eftir vel heppn- aða utanlandsferð. Í stuttu máli sagt var sú flugferð einkar óþægileg. Ekki er við flugstjóra eða flugliða að sakast, þau sinntu störfum sínum af stakri prýði. Flugtak og lending var óaðfinnanleg og þjónustulund flug- liða til mikillar fyrirmyndar. Það voru hins vegar óþægindin um borð sem pirruðu Víkverja. Þröngt var á milli sæta og loftræstingin léleg, auk þess sem ekkert afþreyingarkerfi var í boði. Hið síðastnefnda var þó tilkynnt fyrirfram í tölvupósti til far- þega. En hvort sem það er við Bo- eing eða Icelandair að sakast þá mætti vera lengra bil á milli sæta- raða í almennu farrými, vélin sem Víkverji flaug með var hönnuð fyrir dvergvaxna farþega. x x x Einn léttur í lokin. Það er hverjummanni hollt að vera í góðu sam- bandi við sína nánustu. Það getur þó tekið á sig ýmsar myndir, eins og þegar kunningi Víkverja hringdi í mömmu sína á dögunum: „Hvernig hefur þú það, mamma mín?“ spurði hann. „Ekki of gott,“ svaraði mamman, „mér líður mjög illa“. „Hvers vegna líður þér svona illa?“ var spurt. „Ég hef ekki borðað í 38 daga.“ „Það er hræðilegt,“ sagði vinur Víkverja, „hvers vegna hefur þú ekki borðað svona lengi?“ „Vegna þess að ég vildi ekki vera með munninn fullan af mat ef þú skyldir hringja.“ víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Reglur þínar eru dásam- legar, þess vegna heldur sál mín þær. Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fá- vísa vitra. (Sl. 119, 129-130.) mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.