Morgunblaðið - 09.06.2015, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.06.2015, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2015 Margar tillögur eru af veitingum á heimasíðu okkar. Einnig er hægt að panta einstaka rétti eða eftir óskum. Veislusalur okkar er bjartur og fallegur salur á jarðhæð, gott aðgengi. Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin í verði þegar erfidrykkja er í sal. Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is ·www.veislulist.is Veitingar í erfidrykkjur af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal okkar, í aðra sali eða í heimahús. Skútan Hvað eftir annað hafa stuðningsmenn Reykjavíkurflugvallar á höfuðborgarsvæðinu, sem eru í meirihluta, stungið niður penna til að verja lífæð allra landsmanna í Vatns- mýri- og sjúkraflugið fyrir öllum rang- færslum Dags B. Egg- ertssonar í fjölmiðlum. Meirihluti borgarbúa- og landsbyggðarmanna sem vill kveða niður ósannindin um Reykja- víkurflugvöll telur framkomu borg- arstjórnarmeirihlutans gagnvart þessari öryggiskeðju sjúkraflugsins skammarlega. Þetta skeytingarleysi er nú að því komið að hrekja meiri- hluta Reykvíkinga og 80% lands- manna til uppreisnar gegn þessari svikamyllu sem andstæðingar flug- vallarins reyna að réttlæta með tómum falsrökum í fjölmiðlum. Krafan sem þeir halda til streitu um að sjúkraflugið fyrir allt landið verði á einni hendi í stað þess að sinna því frá Akureyrarflugvelli leysir engan vanda og er blaut tuska í andlit allra landsmanna. Þá stórversnar þessi þjónusta ef ein- hverjum dettur í hug að nota alltof hægfleyga þyrlu sem hefur engan afísingar- og jafnþrýstibúnað. Utan höfuðborgarsvæðisins yrðu íbúar landsbyggðarinnar strax fyrir hverju áfallinu af öðru. Það myndi strax vekja litla hrifningu starfandi lækna á Reykjavíkursvæðinu og úti á landi þegar allar tilraunir til að koma fárveikum manni undir lækn- ishendur á sjúkrahúsum höfuðborg- arinnar renna út í sandinn. Óþol- andi er að siðblindur borgarstjórnarmeirihluti sem ræðst án nokkurs tilefnis á farþega- og sjúkraflugið skuli tefla slæmu ástandi í samgöngumálum Reykja- víkurborgar gegn lífæð allra lands- manna í Vatnsmýri. Nú berast fréttir af því að stjórnendur Reykjavíkurborgar vinni hörðum höndum að því að brjóta sam- komulagið sem fyrrverandi yfir- maður samgöngumála, Ögmundur Jónasson, gerði í sinni ráðherratíð við Jón Gnarr, þáverandi borg- arstjóra, fyrir hálfu öðru ári um framtíð flugvallarins í Vatnsmýri. Fram komu í Fréttablaðinu 17. nóv- ember sl. siðblindar, fjarstæðu- kenndar og ótrúverðugar fullyrð- ingar hjá forstjóra Isavia um að SV-NA-flugbrautin væri aldrei not- uð af sjúkraflugmönnum Mýflugs. Rangfærslurnar sem andstæðingar Reykjavíkurflugvallar nota gegn þessum ágætu flugmönnum norðan heiða eru til háborinnar skammar og dæma sig sjálfar. Fullvíst þykir að hugmyndir um önnur flugvall- arstæði á borð við Hólmsheiði, Hvassa- hraun og Löngusker verði aldrei að veru- leika. Áætlaður kostn- aður við að byggja nýj- an flugvöll á þessum stöðum er talinn alltof hár sem verður ís- lenska ríkinu ofviða. Engum kemur á óvart að forstjóri Isavia skuli í góðri samvinnu við Dag B. Eggertsson tala eins og peningar vaxi alltaf á trjám í fá- mennu landi með 328 þúsund íbúa. Áður hafa skoðanabræður nýja borgarstjórans ítrekað kröfu sína um að þeir geti innheimt 46 millj- arða króna greiðslu fyrir flutning innanlandsflugsins til Keflavíkur án þess að fram komi hvert þeir ætli að sækja þessa peninga sem ís- lenska ríkið finnur hvergi. Með stuðningi sínum við íbúðabyggð á NA-SV-flugbrautinni lýsir forstjóri Isavia fyrirlitningu sinni á miðstöð sjúkraflugsins sem hann vil færa frá Akureyri til Keflavíkur. Enn erfiðara yrði fyrir íbúa landsbyggð- arinnar að treysta á sjúkraflugið ef það verður á einni hendi og því sinnt frá Keflavíkurflugvelli með þyrlum sem hafa engan afísingar- og jafnþrýstibúnað og geta ekki af þessum sökum flogið sjónflug yfir hálendið og fyrir ofan veðurhæð- irnar. Í Morgunblaðinu 4. desember 2014 opinberaði Ragnar Þ. Þór- oddsson, bókbindari í Reykjanesbæ, vanþekkingu og fyrirlitningu sína þegar það fór illa í hann að flug- menn Mýflugs skuli með góðum ár- angri sinna þessari neyðarþjónustu frá Akureyrarflugvelli. Undir það tók forstjóri Landhelgisgæslunnar sem lýsti vanþóknun sinni á því hvað þessir ágætu flugmenn standa sig vel og eiga hrós skilið. Starfandi læknar í Reykjavík sem ítreka and- stöðu sína gegn flutningi innan- landsflugsins úr Vatnsmýri hafa sakað Isavia um að reka hornin í landsbyggðina og heilbrigðisþjón- ustuna á höfuðborgarsvæðinu. Vel getur greinarhöfundur skilið að vonsviknum skattgreiðendum um allt land verði fljótlega heitt í hamsi þegar þeir frétta að óreiðumenn í borgarstjórn geti alltaf skilið eftir sig sviðna jörð án þess að verða dregnir til ábyrgðar. Isavia rekur hornin í landsbyggðina Eftir Guðmund Karl Jónsson »Nú berast fréttir af því að stjórnendur Reykjavíkurborgar vinni hörðum höndum að því að brjóta sam- komulagið Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Það horfir nokkuð undarlega við, nú þegar öll teikn eru á lofti um að viðsnún- ingur sé að verða á veðurfari vegna ára- tugasveiflu í sjávar- straumum, að ein- göngu hafi verið notuð nýleg veður- gögn frá hlýjum árum þegar unnin var greining á áhrifum lokunar neyðarbrautar Reykja- víkurflugvallar. Með kólnandi veðurfari er nokkuð fyrirséð að veturinn mun lengjast og ísing, snjókoma og hvassviðri gætu orðið mun tíðari. Það er því illskilj- anlegt að sleppt sé að nota eldri veðurgögn sem eru frá kaldara tímabili og þess vegna mun betur til þess fallin að meta hverra veðra við eigum von á næstu ár- um. Svar Isavia við þessum athuga- semdum mínum var að þeir treystu skýrslunni enda hefði hún verið unnin eftir viðmiðum ICAO. Við nánari skoðun virðist þó sem viðmiðum ICAO hafi hins vegar ekki verið fylgt, því við at- hugun mína á leiðbeiningunum rak m.a. ég augun í eftirfarandi: Ráðleggingum ICAO ekki fylgt Leiðbeiningar ICAO mæla m.a. fyrir því að notuð skuli mæligögn yfir „eins langt tímabil og mögu- legt er“. Með því að henda eldri mælingum, sem þó uppfylltu kröf- ur ICAO um mælitíðni, er ekki verið að fylgja þessum ráðlegg- ingum. Gert er ráð fyrir að leggja eigi niður sjúkraflug Við útreikninga virðist eingöngu vera reiknaður nothæfisstuðull fyrir stærri flugvélar sem eru í áætlunarflugi og þola aðeins meiri hliðarvind. Leiðbeiningarnar segja hins vegar að nothæfisstuðulinn eigi að reikna fyrir allar flugvélar sem hann á að þjónusta. Sjúkraflug fer fram á minni vélum sem þola minni hliðarvind. Skýrsluhöfundar virð- ast þannig gefa sér að leggja eigi niður allt sjúkraflug, án þess þó að taka það fram í skýrslunni. Sama gildir um all- ar minni flugvélar með viðmiðunar- brautarlengd minni en 1.200 m. Ekki virðist gert ráð fyrir að flugvöllurinn þurfi að upp- fylla viðmið ICAO um nothæfis- stuðul fyrir þessar vélar. Útreikningar byggja á óskhyggju Í leiðbeiningum ICAO segir að viðmiðunargildi ICAO fyrir há- marks hliðarvind eigi eingöngu við um venjulegar aðstæður og því geti verið nauðsynlegt að taka sér- staklega tillit til ýmissa þátta eins og brautarbreiddar, vindhviða, ókyrrðar í lofti, hálku og snjóalaga og að lækka þurfi hliðarvinds- mörkin í óveðri. Þetta má túlka t.d. þannig að þá daga sem ísingaraðstæður eru til staðar þurfi að lækka leyfilegt há- marksgildi hliðarvinds. Hreint ótrúlegur misskilningur virðist koma fram við túlkun skýrsluhöfunda á þessari grein, því í stað þess að túlka enska orðasambandið „may require“ sem „geti verið nauðsynlegt“ er þegar vísað er í þessa grein talað um að það „kunni að vera ástæða til“ að taka tillit til vindhviða eða að hönnuðir „megi“ huga að áhrifum brautarbreiddar. Samkvæmt þess- ari röngu þýðingu er það nánast háð geðþóttaákvörðun hönnuðar hvort hann taki tillit til ákveðinna veðuratriða eða ekki. Með því einu að „óska sér“ að tiltekið vandamál sé ekki lengur til staðar hverfur það. Abrakadabra, púff. Með þessum rökstuðningi ákváðu skýrsluhöfundar að taka ekki tillit til neins ofantalinna þátta, þrátt fyrir að þeir viður- kenni það í skýrslu að þessir þættir hafi áhrif á flugfærð. Þessi túlkun er vægast sagt galin og er því afar langsótt að hægt sé að halda því fram að vinnan samræmist ICAO- leiðbeiningunum. Flugöryggi áhyggjuefni Endurtekinn misskilningur skýrsluhöfunda, sem kerfisbundið vanmeta áhættuþætti eða sleppa þeim, skekkir niðurstöðu skýrsl- unnar verulega og er hún því ónothæf. Til marks um hversu fjarri raunveruleikanum niðurstaðan er má nefna að það sem af er ári hafa um 6,5% sjúkraflugs farið um neyðarbrautina, sem virkar nokk- uð hátt þegar haft er í huga að samkvæmt skýrslunni er talið að tilvist neyðarbrautarinnar hafi eingöngu um 2,4% áhrif á not- hæfisstuðul flugvallarins. Það verður einnig að teljast verulegt áhyggjuefni að þessi skýrsla hafi ekki þegar verið dregin til baka þrátt fyrir þá miklu gagnrýni sem hún hefur þegar fengið. Hvorki Isavia né Efla virðast hafa séð sér fært að rýna þessa vinnu almennilega, sem er nokkuð undarlegt í ljósi þess að sá hluti ICAO-leiðbeining- anna sem fjallar um útreikninga á nothæfisstuðli telur ekki nema rétt um 3 blaðsíður. Öfugsnúið öryggi á Reykjavíkurflugvelli Eftir Jóhannes Loftsson »Endurtekinn mis- skilningur skýrslu- höfunda, sem kerfis- bundið vanmeta áhættu- þætti eða sleppa þeim, skekkir niðurstöðu skýrslunnar verulega og er hún því ónothæf. Jóhannes Loftsson Höfundur er verkfræðingur og frumkvöðull. Drottinn guð! Þú sem hefur allt á þínu valdi. Við þökkum þér nýliðna helgi og biðjum blessunar öllu fólki í komandi viku. Ég á sálmabók sem ekki er í frásögur færandi nema að í bókinni eru bænir fyrir fyrripart og seinnipart alla daga vikunnar. Þar segir að það að biðja bænirnar sínar er að tala við guð. Við biðjum sérstaklega núna fyrir fólki sem þarf að líða vegna verkfalla, lít til þeirra og lát engan þurfa að líða skort vegna verkfalls. Heilagi Guð, himneski faðir, ég bið þig að blessa sérstaklega allt starfsfólk þessa fjölmiðils og ver með því í leik og starfi. Þakka þér Guð fyrir að við, sem trúum á þig megum alltaf koma til þín og hugga okkur við bænir þínar, blessa þú og ver með fólki sem líður vegna styrjalda víða um heim, við biðjum þig sérstaklega að vera með því fólki sem reynir að komast á ófullkominn hátt yfir til Evrópu og þakka þér fyrir alla þá hjálp sem varðskip okkar hafa getað hjálpað í Miðjarðarhafi. Góði Guð, blessa allar fjölskyldur okkar, ver með öllum þeim smáu. Í Jesú helgasta nafni, Amen. Karl Jóhann Ormsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Bænir Bæn Að biðja bænir er að tala við Guð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.