Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Side 6
Föstudagur 27. Febrúar 20096 Fréttir
Sandkorn
n Nú eru farnar að berast þær
sögusagnir að yfirlýsingar Jóns
Baldvins Hannibalssonar um
formannsskipti í Samfylking-
unni snúi ekki einvörðungu að
því að koma Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur burt af for-
mannsstóli,
heldur horfi
hann lengra
fram í tím-
ann. Sagan
segir nefni-
lega að von
Jóns Bald-
vins standi
til að næsti
formaður Samfylkingarinnar
staldri stutt við á formannsstóli
og að nýr formaður verði kosinn
á næsta kjörtímabili. Þetta álítur
gamli flokksformaðurinn kjörn-
ar aðstæður til að koma Árna
Páli Árnasyni í stól formanns.
Jón Baldvin hefur lengi stutt
framgang Árna Páls og virðist
líklegur til að gera það áfram.
n Óvenjuleg staða er komin upp
á Alþingi. Síðustu ár og jafnvel
áratugi vöndust landsmenn því
að þingmenn vinstriflokkanna,
sem þá voru í ríkisstjórn, kvört-
uðu undan því að engir ráð-
herrar væru í þingsalnum þegar
mikilvæg mál væru rædd og fáir
eða engir
þingmenn
ríkisstjórn-
arflokkanna.
Nú ligg-
ur landið
öðruvísi og
vinstriflokk-
arnir eru í
stjórn. Ber
þá svo við að eina breytingin er
að nú eru það vinstrimenn sem
vantar í þingsal og sjálfstæðis-
menn sem lýsa eftir ráðherrum
og þingmönnum ríkisstjórn-
arinnar, eins og gerðist í tilfelli
Sigurðar Kára Kristjánssonar
sem harmaði að sjá aðeins einn
stjórnarliða í salnum þegar rætt
var um seðlabankafrumvarpið í
þriðja sinn.
n Ástralsk-enski fjárfestirinn
Steve Cosser mun hafa reiðst
þegar tilboði hans í Árvakur,
útgáfufélag Morgunblaðsins,
var ekki tekið af Íslandsbanka á
miðvikudaginn. Cosser var viss
um að hann hefði átt hæsta til-
boðið í félagið en ekki eignar-
haldsfélagið Þórsmörk. Fjárfest-
irinn mun hafa haft samband
við Morgunblaðið og viljað lýsa
yfir óánægju sinni með lend-
inguna í málinu en hætt við það
á endanum að fara með málið
í fjölmiðla. Lögmaður Cossers,
Guðmundur Oddsson, fund-
aði svo með starfsmönnum
Íslandsbanka í gærmorgun þar
sem útskýrt var fyrir honum að
tilboð Cossers hefði verið lægra
en Þórsmerkurhópsins.
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra vill ekki tilgreina hvaða
fyrirtæki átt er við sem þjóðhags-
lega mikilvæg og fara muni í sérstakt
eignasýslufélag á vegum ríkisins.
Nefnd um endurreisn fjármála-
kerfisins undir stjórn Mats Josefsson,
sænsks bankasérfræðings, kynnti til-
lögur 11. febrúar sem meðal annars
gerðu ráð fyrir stofnun slíks félags.
Félaginu (Asset Management Comp-
any) er ætlað að styðja endurreisn
stærri fyrirtækja sem talin eru gegna
mikilvægu hlutverki í íslensku efna-
hagslífi, en einnig að endurskipu-
leggja félög og bjarga verðmætum
sem glatast ef þau fara í þrot.
Nefnir engin nöfn
„Það er óviðeigandi að nefna nöfn
og jafnvel fjölda af því að maður
boðar það ekki fyrirfram hvaða fyr-
irtæki eru tekin slíkum tökum. Það
er ekki þannig sem það gerist. Þetta
er spurning um samstarf við bank-
ana um þau mál sem þeir eru með til
úrvinnslu og í hvaða tilvikum það er
talið heppilegra að færa skipulagn-
ingu þeirra og eignarhald undir slíkt
eignaumsýslufélag. Það er verið að
skoða þetta í fjármálaráðuneytinu
og undirbúa stofnun félagsins. Ann-
aðhvort verður það gert með frum-
varpsflutningi eða að það verður
tekið félag sem ríkið á og samþykkt-
um þess breytt og það gert að tæki í
þessu skyni. Það væri fljótvirkari leið
ef hún reynist fær.“
Steingrímur segir að þetta sé ver-
ið að ræða við bankana. Hann átti
fund með öllum bankastjórum rík-
isbankanna í síðustu viku þar sem
meðal annars var farið yfir þessi
mál. „Við leggjum á það áherslu að
þetta verði unnið í góðu samstarfi
við bankana.“
Getur varðað samkeppnislög
Starfandi fyrirtæki á markaði hafa
sum hver lýst áhyggjum af því að
bankar í eigu ríkisins taki upp á sína
arma illa stödd fyrirtæki sem eiga í
samkeppni við önnur betur stödd
fjárhagslega. Með því að ívilna bág-
stöddum fyrirtækum með einhverj-
um hætti væri verið að fara á svig
við grundvallarreglur frjálsrar sam-
keppni þar sem þeir sem best standa
sig gjalda þess að bágstaddir keppn-
autar komist í forsjá ríkisbankanna.
Steingrímur segir að Samkeppn-
iseftirlitið hafi væntanlega ekki at-
hugasemdir við það þótt eignarhaldi
ríkisins sé háttað með þessum hætti
frekar en að það væri gert óbeint í
gegnum bankana. „Samkeppniseft-
irlitið hefur ástæðu til þess að fylgj-
ast grannt með því ef tiltekin fyr-
irtæki eru komin í eign banka eða
umsjá banka. Það þekkjum við frá
liðinni tíð að það getur komið upp sú
gagnrýna staða að samkeppnisaðil-
arnir óttist að fyrirtækin njóti þess að
hafa öflugan bakhjarl eins og banka
sem er í rauninni kominn með eign-
arhaldið í sínar hendur. Þetta er ein-
göngu spurning um fyrirkomulag,
hvað þjónar best þeim markmiðum
að þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki
eða starfsemi, sem ekki má koma
neitt rof í, sé endurskipulögð í gegn-
um svona tæki eða að bankarnir
glími við það hver fyrir sig.“
Rekstraraðstæður líkar
náttúruhamförum
Nærtækt er að ætla að samgöngu-
fyrirtæki, orkufyrirtæki, fjarskipta-
fyrirtæki og önnur fyrirtæki sem
snerta grunngerð samfélagsins séu
í flokki þeirra fyrirtækja sem talist
geta þjóðhagslega mikilvæg. Einnig
gæti stærð fyrirtækja og fjöldi starfa
skipt máli. Skipa- og flugfélög og
símafélög gætu því hæglega verið
undir þessum hatti, en einnig stór
matvælafyrirtæki og önnur fjölmenn
fyrirtæki.
Eignasýslufélaginu er einnig ætlað
að endurskipuleggja félög og bjarga
verðmætum sem glatast ef félög fara í
þrot. Vitað er að stærstu bílainnflutn-
ingsfyrirtækin eru nánast öll komin í
þrot. Þá geta byggingarvöruverslanir
verið í hættu vegna gríðarlegs sam-
dráttar í byggingariðnaði.
Nokkrir viðmælenda DV, sem
reka fyrirtæki á almennum mark-
aði, telja það orka tvímælis að félagi
í opinberri umsjá sé falið að bjarga
verðmætum félaga sem gætu glat-
ast í gjaldþrotum. Ekkert þurfi að
vera óeðlilegt við að fyrirtæki verði
gjaldþrota. Markaðinn eigi að nota
til grisjunar og í gjaldþrotum komist
verðmætin í hendur þeirra sem bet-
ur er lagið að stunda rekstur.
Á móti er bent á að rekstrarað-
stæðum fyrirtækja megi líkja við
náttúruhamfarir. Gjaldmiðillinn hafi
hrunið og enginn rekstur geti borið
25 prósenta vexti til lengdar.
„Það er óviðeigandi að
nefna nöfn og jafnvel
fjölda af því að maður
boðar það ekki fyrirfram
hvaða fyrirtæki eru tekin
slíkum tökum.“
Brátt skýrist hvaða fyrirtæki stjórnvöld og ríkisbankarnir setja undir sérstakt eigna-
sýslufélag. Þar gætu verið bágstödd flugfélög, skipafélög, síma- og fjarskiptafélög og önn-
ur fyrirtæki sem tilheyra grunngerð samfélagsins. Fjármálaráðherra vill ekki tilgreina
hvaða félög um sé að ræða en hann ræddi málið við bankastjóra ríkisbankanna nýverið.
STÓRFYRIRTÆKI
Í ÖNDUNARVÉL
JóhaNN haukssoN
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Viðhalda mikilvægum fyrirtækjum steingrímur J. sigfússon og
Jóhanna sigurðardóttir ætla að viðhalda mikilvægum fyrirtækjum með
því að stofna eignasýslufélag sem heldur þeim gangandi með hjálp
ríkisins. Hér útskýra þau hugmyndir sínar á blaðamannafundi í gær.
Flugfélög ekki er vitað til þess að
flugfélög séu undir sérstöku eftirliti
ríkisbankanna eða að þau hyggist leita
aðstoðar.
skipafélög eimskip tapaði á annað
hundrað milljörðum króna í fyrra eða
3.200 krónum á sekúndu. Lendir það á
gjörgæslu ríkisbankanna?
Innritun í síma 659 3313 - 772 1640 - lafleur@simnet.is - www.lafleur.is
stÓrfelld verÐlÆkkun
Námskeið í Númeralógíu hefjast
laugardaginn 21. febrúar
Lærðu að reikna út persónuleika þinn og annarra
– verða þinn eigin meistari