Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Blaðsíða 23
föstudagur 27. febrúar 2009 23Fókus
Hvað er að
GERAST?
föstudagur
n Bardukha á Kaffi Kúlture
Hljómsveitin bardukha býður
áhorfendum upp á þjóðlagatónlist sem
á rætur að rekja í gríska og tyrknesta
þjóðlagahefð. tvennir tónleikar verða í
boði, klukkan 21 og 23.
n Umsvif á Dillon
Hljómsveitin umsvif mun spila sína
eigin tónlist í bland við tónlist
blómatímabilsins. tónar á borð við
doors, trúbrot og flowers og Janis
Joplin. Hippar reykjavíkur ættu ekki að
láta þetta tækifæri framhjá sér fara.
n Dj Hreggo á Sjallanum
diskó eða danstónlist. Plötusnúðurinn
Hreggo kann að skemmta gestum
sjallans á akureyri. Það eru komin
mánaðamót og þá er tilvalið að halda
upp á það og hrista aðeins á sér
bossann. frítt er inn á sjallann.
n Dalton á Hressó
strákarnir í dalton kunna að skemmta
fólki. gleðin byrjar snemma, klukkan
22. bjór á góðu tilboði og eftir miðnæti
er það dj erling sem skemmtir fólki til
lokunar.
n Þórður Daníel á Hverfisbarnum
Plötusnúðurinn Þórður daníel hressir,
bætir og kætir. tónlistin mun dynja
hátt á Hverfisbarnum í kvöld. fjörið
byrjar á miðnætti.
n Í svörtum fötum á Player´s
Loksins, loksins.
strákarnir í Í
svörtum fötum
eru loksins
komnir saman
eftir langa
fjarveru. Þeir
munu frumflytja
nýtt lag hjá Loga
í beinni og
bruna síðan
beint á Player´s að skemmta aðdáend-
um sínum sem beðið hafa lengi eftir
þessu. Miðaverð er 1.500 krónur.
laugardagur
n Bjartmar Guðlaugs,
Rottweiler á Prikinu
goðsögnin bjartmar guðlaugsson
grípur í gítarinn og tekur nokkra
slagara á Prikinu
á laugardags-
kvöldið. Það
stendur til að
gefa út VIP-
passa og fær
bjartmar sjálfur
fyrsta passann.
um miðnætti
tekur síðan dj
danni deluxxx
við. Þess má geta að strákarnir í
rotweiler munu taka lagið þegar líður
á nóttina.
n DJ Casanova á Kaffibarnum
Hjörtu munu slá er hjartaknúsarinn dj
Casanova setur sig í gírinn á Kaffibarn-
um. Valentínusardagurinn er liðinn en
ástin blómstrar sem aldrei fyrr á
barnum. stuðið hefst á miðnætti.
n Sniglabandið á Players
Hin geysivinsæla hljómsveit snigla-
bandið mun stíga á svið á Players í
kvöld við mikinn fögnuð aðdáenda.
töffararnir í sniglabandinu svíkja ekki
og lofað er brjálaðri stemningu.
Miðaverð er 1.500 krónur.
n Dj Stef á Hverfisbarnum
Það þekkir engin Hverfisbarinn betur
en gunni stef. Hann veit hvað
stúlkurnar vilja heyra og er óhætt að
segja að stemningin verði góð.
Plötusnúðurinn byrjar á miðnætti.
n Góðir landsmenn
á Dillon Sportbar
Hljómsveitin góðir landsmenn mun án
efa gera góða hluti á dillon sportbar í
Hafnarfirðinum. einn kaldur og góð
tónlist, klikkar ekki.
KaRDemommUBæRinn
Klassísk saga sem aldrei deyr.
milK
Kvikmynd
sem fólk
mun muna
eftir vegna
frammistöðu
leikaranna.
FRoSt /
nixon
stórskemmtileg
mynd um
áhugaverða
karaktera.
FanBoyS
fyrir þá sem
eru með
„Máttinn“,
hinir haldi
sig í öruggri
fjarlægð.
PinK PantHeR 2
Það var
lítið
hlegið í
bíóinu.
skipti. Til dæmis þegar ég var 16 ára
og spilaði Tsjækovsky fyrst dreymdi
mig nóttina áður að flygillinn hefði
oltið niður af sviðinu og á fyrstu tvær
sætaraðirnar og kramið tónleika-
gesti. Ég vaknaði í svitakófi. Það var
mjög spes og eftirminnilegt.“
Víkingur, sem hefur unnið til
fjölda verðlauna og hefur með-
al annars unnið tvisvar sinnum Ís-
lensku tónlistarverðlaunin, hefur að
auki spilað með fjölda merkismanna
og segir hann dvöl sína í Juilliard
hafa gert honum það kleift. „Ég hef
spilað með alveg frábærum músk-
íköntum og ætla meðal annars að
spila með einum píanóleikara sem
ég kynntist þar næsta haust.“
Hlustar á Björk
En hvað hlustar píanóleikari sem lifir
og hrærist í klassískri tónlist sjálfur á
sér til gamans? „Ég hlusta á ýmislegt
en ef ég á að nefna eitt er Björk Guð-
mundsdóttir flottasti poppari í heim-
inum. Hlusta mjög oft á hana þegar
ég er að elda eftir langa daga.“ Það
sem heillar hann hvað mest við Björk
er að hún er einn af þeim listamönn-
um sem gera gjörólíka hluti á ólík-
um tímum og nýta sér hæfileika sína
til hins ýtrasta. „Það sýnir í raun all-
ar hliðar á listamanninum og það er
það sem ég leita eftir í tónlist og hrífst
af. Þegar listamennirnir eru á fleygi-
ferð og taka áhrif úr mörgum áttum.“
Hann segir líka skemmtilegt að
pæla í djassi. „Svo eru Bítlarnir alltaf
í forgrunni hjá mér, finnst melódísk
tónlist líka skemmtileg.“
Hann hefur líka gaman af kvik-
myndum og sýgur þessa dagana Bret-
land í sig með því að horfa á bresk-
ar heimildamyndir að ógleymdum
ferðalögum en í gegnum starf sitt
hefur hann fengið mörg tækifæri til
að sjá heiminn. „Ég var til dæmis á
tónleikatúr í nokkrum héruðum í
Kína og það var ótrúlegt að sjá kúlt-
úrinn þar. Fólk hafði líka afskaplega
gaman af því að sjá ljóshærðan pían-
ista og hvað þá menntaðan úr Juilli-
ard,“ segir hann. „Svo finnst mér líka
gaman að lesa og spila fótbolta,“ segir
píanósnillingurinn að lokum. asdis-
bjorg@dv.is
Það er mikið vandaverk að gera
heilsteypt leikverk úr jafn flókinni
og margradda sögu og Sölku Völku
Halldórs Laxness. Það sannaðist á
sænsku bíómyndinni hér um árið
og það hefur einnig sannast á til-
raunum fólks til að flytja verkið á
leiksvið, nú síðast dansleik Auðar
Bjarnadóttur upp úr sögunni. Þó er
þessi sýning á margan hátt glæsilegt
verk. Hópdansarnir í fyrri hlutanum
eru alveg sérstaklega tilkomumiklir,
tón- eða kannski öllu heldur hljóð-
list Úlfars Inga mögnuð og djörf
notkun á kvikmyndaefni í mynd-
rænum undirleik við dansinn geng-
ur furðanlega vel upp. Ég veit auð-
vitað ekki hvernig þeir, sem þekkja
lítið eða ekki neitt til Sölku Völku fyr-
ir, kunna að lesa þessa sýningu, en
áhorfandi, sem telur sig sæmilega
handgenginn sögunni, ætti að geta
notið hennar í botn.
Salka Valka miðlar sálfræði-
legri greiningu, sem vart á sinn líka
í íslenskum bókmenntum. Mann-
úð skáldsins og skarpskyggni ná
hér jafnvægi sem hélst í Sjálfstæðu
fólki, en ekki, að ég hygg, í nokkru
hinna síðari verka HKL. Dramatísk-
ur grunnur sögunnar, baráttan milli
Steindórs og Arnalds um ástir Sölku
og glíma hennar við sjálfa sig, er í
rauninni skýr og einfaldur, en um
leið eru tilbrigðin í sögunni nánast
óendanleg. Maður er alltaf að sjá
eitthvað nýtt í hvert sinn sem maður
les hana. Hér tekst langbest að sýna
þríhyrninginn á milli Sölku, Sigur-
línu og Steindórs, enda túlkaði Lára
Stefánsdóttir Sigurlínu, einsemd
hennar og angist, frábærlega og fékk
afbragðs mótdans frá Johann Lindell
sem náði ruddaskap og frumstæðri
erótík Steindórs mjög vel. Fauta-
skapur hópsálarinnar og útskúfun
þess, sem fyrir honum verður, er lík-
ast til það sem maður geymir lengst
með sér úr sýningunni. Þáttur Arn-
aldar varð hins vegar miklu óljósari
og gufaði að lokum upp í hálfgerð-
um vandræðagangi. Úr því að Auð-
ur vildi á annað borð halda honum
inni, hefði vísast verið farsælla að
lengja sýninguna og tvískipta henni,
svona eins og skáldið gerði sjálft í
sínum ópus.
Það breytir ekki því að bestu part-
ar sýningarinnar gnæfa yfir flest af
því sem ég hef séð á íslensku dans-
sviði undanfarin ár, og gott til þess að
vita að hún er á leið til Þýskalands.
Okkur veitir ekki af slíkri landkynn-
ingu þessa dagana.
Jón Viðar Jónsson
Metnaðarfullt og glæsilegt
tHe HoUSe oF tHe DeaD:
oveRKill
grófur, blóðugur,
kjaftfor og jafnvel
klámfenginn, en
umfram allt fyndinn
og skemmtilegur.
leiklist
Salka Valka
eftir Auði Bjarnadóttur
svöluleikhúsið í samstarfi
við Hafnarfjarðarleikhúsið
tónlist: úlfar Ingi Haraldsson
Búningar: sigrún úlfarsdóttir
lýsing: garðar borgþórsson
m
æ
li
r
m
eð
...
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
Elti ástina til Oxford
Undirbýr fyrstu sólóplötuna
Víkingur er útskrifaður úr
Juilliard og einn efnilegasti
píanóleikari Íslendinga.