Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Blaðsíða 33
föstudagur 27. febrúar 2009 33
NefNdiN
Þórarinn Þórarinsson
fréttastjóri DV og kvikmynda-
gagnrýnandi, formaður
Ásgrímur Sverrisson
leikstjóri og handritshöfundur
Sigríður Pétursdóttir
umsjónarkona Kviku á Rás 1
Kvikmyndir
DV menningarverðlaun
Skjaldborg 2008, hátíð íslenskra heimildamynda, tókst frábærlega vel. Hjálpaðist þar allt
að; fjölbreytt úrval mynda, heiðursgestur af hæsta kaliberi, gott utanumhald, skemmtileg
stemning meðal gesta og afar elskulegar móttökur heimamanna. Svo ekki sé minnst á sjálft
kvikmyndahúsið, Skjaldborgarbíó, sem búið er að gera upp af miklum metnaði.
Skjaldborg-kvikmyndahátíðin
Kjötborg er gullfalleg og lágstemmd „feelgood“ frásögn um afmarkað samfélag í borginni.
Þeir Kristján og Gunnar verslunareigendur kunna að vera með síðustu kaupmönnunum á
horninu en tilfinningin er samt sú að þeir hafi alltaf verið þarna – og muni vonandi alltaf
vera þarna, því það kemst ágætlega yfir að þessir ágætu menn bjóða ekki aðeins upp á fjöl-
breytt úrval hvers kyns dagvöru heldur einnig trú, von og kærleika.
eftir Helgu rakel rafnsdóttur og Huldu rós guðnadóttur
Kjötborg
Árið 2008 var sérlega gjöfult þegar leikið efni í sjónvarpi var annars vegar. Sakamálaþættir
voru frekir til fjörsins en vel heppnað framhald Næturvaktarinnar stóð þó upp úr ekki síst
fyrir fumlaus vinnubrögð, styrk handrits og góðan leik. Tilfærsla þríeykis hinna lánlausu
bensínafgreiðslumanna af mölinni út í sveit heppnaðist vonum framar þótt gamanið tæki
heldur betur að grána. Dagvaktin er sérlega súr og svört á góðan hátt. Dásamleg tragikóm-
edía úr ýktum, íslenskum veruleika.
í leikstjórn ragnars Bragasonar
Dagvaktin
Rúnar Rúnarsson festi sig í sessi sem einn efnilegasti leikstjóri Íslendinga með þessari níst-
andi sterku stuttmynd sem hefur vakið verðskuldaða athygli á kvikmyndahátíðum um víða
veröld og sópað að sér verðskulduðum verðlaunum. Smáfuglar fylgir hópi unglinga sem
segja eina bjarta sumarnótt skilið við sakleysi bernskunnar og stíga inn í harðan veruleika
hinna fullorðnu.
eftir rúnar rúnarsson
Smáfuglar
Þessi hressilegi snúningur Baltasars á Ívanov eftir Tsjekov sló hressi-
lega í gegn enda alveg sérlega góð bíómynd og skemmtileg upplifun
sem líður áfram eins og gott jazzband að improvisera. Þarna kvað við
nýjan tón í íslenskri kvikmyndagerð þar sem upp úr einhverju litlu
spratt eitthvað stórt. Baltasar fór til Flateyjar með úrvalsmannskap og
lék sér eitt sumar og afraksturinn var fullsköpuð kvikmynd þar sem
saman fóru góður leikur, leikstjórn og skemmtilegt handrit.
eftir Baltasar Kormák
Brúðguminn