Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Blaðsíða 40
föstudagur 27. febrúar 200940 Helgarblað
„Mörgæsirnar komu alveg
hlaupandi á móti manni,“ segir
Erla Guðrún Hafsteinsdóttir,
meistaranemi í Ástralíu, en
hún dvaldist við rannsóknir
um síðustu jól langt frá öllu
sem kallast mannabyggð-
ir, nánar tiltekið á Suð-
urskautslandinu. Það er
óhætt að segja að þessi
jól hafi verið ólík öll-
um öðrum sem
Erla hafði upplif-
að. Auk þess að
leika sér við
mörgæs-
irnar var þar að
finna ótrúlega víð-
áttu og einstaka
náttúrufegurð.
Kalda og grófa
en engu að síður
stórbrotna.
Jól á hjara
veraldar
„Ég er í meistara-
námi við Mac-
quaire University í
Sydney þar sem ég
legg stund á rann-
sóknir á mengun
vegna þungmálma í
jarðvegi þar sem er
frost og þíða,“ segir
Erla þegar hún út-
skýrir veru sína á
einum afskekktasta
stað jarðarinnar.
„Ástæðan fyrir því
að ég fór á suðurskautið var sú að þar
er gömul landfylling sem var í notk-
un fram á seinni hluta 9. áratugarins
og þar á meðal er úrgangur frá ýms-
um þungmálmum eins og bygging-
arúrgangur, rafhlöður og galvanis-
erað stál.“
Erla Guðrún býr í Sydney ásamt
áströlskum kærasta sínum Luke
Shearman. Hún er menntaður land-
fræðingur frá Háskóla Íslands og út-
skrifaðist árið 2007. Hún fluttist svo
til Ástralíu fyrir rúmu ári. Það var svo
um síðustu jól sem Erla dvaldi á suð-
urskautinu.
Sex daga á sjó
„Við lögðum af stað með skipinu Aur-
ora Australis 23. nóvember og ég var
komin til Casey, vinnustöðvar sem
er hluti af umráðasvæði Ástralíu,
29. desember. Sjórinn var svo góð-
ur að ferðin tók færri daga en áætlað
var eða sex daga. Við þurftum því að
bíða á skipinu nokkra daga í viðbót á
meðan fólkið sem var í stöðinni var
að klára sín verk. Það var ekki svefn-
pláss fyrir svo marga,“ segir hún.
Erla fór ásamt leiðbeinanda sín-
um og fleira fólki sem fór í sama til-
gangi og hófust tilraunirnar strax
og hún var búin að koma sér fyrir.
„Við settum upp tilraun þar sem við
blönduðum jarðvegi úr landfylling-
unni við okkar sérstöku efnablöndu
sem samanstendur aðallega af fos-
fati, sem bindur mengunina á form
sem skaðar ekki umhverfið.“
Tilraunin var skilin eftir og mun
svo Erla fara aftur að ári liðnu til að
taka fleiri sýni og sjá hvernig staðan
er eftir að náttúruöflin hafa unnið sitt
verk.
Vann til sex á aðfangadag
Það getur verið afar undarlegt að
upplifa sína vinnudaga með bara
snjó, kulda og víðáttu fyrir augum
og sérstaklega yfir jólahátíðina. „Við
unnum alveg svakalega mikið á með-
an við vorum þarna enda var aðaltil-
gangur ferðarinnar að setja upp til-
raunina. Ég vann meira að segja til
klukkan sex á aðfangadag,“ segir Erla
sem eflaust hefur hugsað til okkar
hinna hinum megin á hnettinum.
Hver dagur var ólíkur þeim fyrri
hjá Erlu á meðan verið var að setja
tilraunina upp. Eftir það urðu verk-
in nokkuð hefðbundin. „Við þurft-
um mjög reglulega að taka vatnssýni,
fyrst á hverjum degi og svo annan
hvern. Það var yfirleitt gert í hádeg-
inu og eftir það var farið á tilrauna-
stofuna.“ Þar var gengið frá sýnum,
ýmsir eiginleikar mældir eins og
sýrustig og fleira. Svo þurfti að skrá
það niður í tölvuna. „Yfirleitt reynd-
um við ekki að vinna mikið lengur en
til fimm en það tókst nú ekki alltaf,“
segir hún.
Húsverk á laugardögum
Þó erfitt sé að ímynda sér að hægt sé
Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, meistaranemi við
Macquaire-háskólann í Sydney, dvaldi um síðustu
jól á Suðurskautslandinu við rannsóknir. Hún segir
upplifunina vera afar sérstaka en engu að síður
frábæra. Heiðbjartar nætur, víðátta sem fáir
geta ímyndað sér og bráðskemmtilegar mör-
gæsir sem komu hlaupandi á móti fólki.
Hélt jólin á
suðurskautinu
„Það var samt svo sérstakt að sjá þær og hvað
þær eru rosalega gæfar. Þær voru ófeimnar að
koma hlaupandi og skoða mann hátt og lágt. Al-
veg yndisleg dýr,“
Góðir leikfélagar
dýrin leika sér ófeimin
innan um mannfólkið.
„Komu hlaupandi á
móti manni“
erla upplifði mörgæsirn-
ar á skemmtilegan hátt.