Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Side 15
föstudagur 27. febrúar 2009 15Helgarblað Englandsbanki bauð Adolf Burger, einum þeirra sem fölsuðu bresk pund í einangrunarbúðum nasista í síðari heimsstyrjöldinni, að koma í bankann og skoða einn af fölsuðu seðlunum. Ástæða veru Burgers í Lundúnum er útgáfa endurminn- inga hans á ensku Fölsun breskra pundsseðla var liður í fyrirætlunum nasista til að knésetja breska hagkerfið og Burg- er, sem var ásamt fleiri fölsurum neyddur til að búa til nánast full- komnar falsanir, skoðaði einn seð- ilinn og umlaði: „Já. Þetta er einn af mínum.“ Adolf Burger, sem er níutíu og eins árs, er fyrsti falsarinn sem vitað er til að hafi verið boðið í Englands- banka. Í viðtali við breska blaðið The Times sagði hann að hann og samfangar hans hefðu merkt föls- uðu seðlana með ákveðnum hætti í von um að Englandsbanki gerði sér grein fyrir því að um falsanir væri að ræða, en án þess að nasist- ar rækju í það augun. Fölsun mikil ógn Stærð breskra peningaseðla olli því að vaninn var að brjóta þá sam- an og pinna þá saman og með því voru gerð örlítil göt eftir pinnana. „Til að láta okkar seðla líta út fyrir að vera notaðir voru sérfræðingar í búðunum sem gerðu pinnagöt- in. En við vissum að Englending- ar myndu aldrei stinga í gegnum Brittanníu [sem er tákn breska konungsveldisins á seðlinum] og því var það einn fangi sem alltaf gataði Brittaníu. Við vonuðumst til að koma skilaboðum út úr búð- unum svo fólk gæti borið kennsl á falsaðan seðil, en okkur tókst það ekki,“ sagði Burger. Ógnin sem stóð af fölsunum var svo mikil að árið 1943 voru all- ir seðlar , nema fimm punda seð- illinn, teknir úr umferð í Bretlandi, og fimm punda seðillinn var end- urhannaður árið 1945. Adolf Burger vann við að búa til 135 milljónir sterlingspunda í fimm, tíu, tuttugu og fimmtíu punda seðlum, en sú upphæð svar- ar til þriggja milljarða sterlings- punda á núvirði. Þýskir útsendarar komu seðl- unum í umferð um gervallt meg- inland Evrópu og í bígerð var að henda seðlabúntum yfir Bretland til að valda óstöðugleika í breska hagkerfinu. Konan send í gasklefann Adolf Burger, sem er lærður prent- ari, er Slóvaki og gyðingur. Hann var handtekinn í ágúst 1942, sjö mán- uðum eftir að hann gekk í hjóna- band með Gíselu. Þau voru send til einangrunarbúðanna í Auschwitz, þar sem Gísela var deydd síðar það ár. Eftir átján mánuði í Auschwitz-Birkenau varð reynsla Burgers af prent- iðn til þess að hann var færður til Sachsenhausen til að vinna að peninga- fölsun í áætlun sem gekk undir nafninu Aðgerð Bernhard. Adolf Burger fékk sér- staka meðferð, en gerði sér grein fyrir því að vegna vinnu sinnar yrði honum ekki lífs auðið. „Þegar ég fékk rúm með rúmfatnaði og mat leið mér eins og dauðri manneskju í fríi því okk- ur var ekki ætlað að lifa af. Þegar þeir fóru með mig í sérálmurnar hugsaði ég „Nú er ég örugglega dauðans matur“ því þeir myndu örugglega ekki láta mig lifa af svona aðgerð,“ sagði Burger í viðtali við The Tim- es. Bandaríkjamenn frelsuðu búðirnar í maí 1945. Gæti falsað nýja seðla Ástæða þess að Adolf Burger var boðið að sækja Englandsbanka heim var útgáfa á endurminning- um hans á ensku. Endurminning- ar hans voru gefnar út á tékknesku árið 1983, en Burger er búsettur í Prag. Sama ár komu þær út í slóv- akískri og síðar í þýskri þýðingu undir heitinu Des Teufels Werk- statt. Enska þýðingin kom út í þess- um mánuði og fylgdi Burger henni eftir með því að heimsækja Lundúni. Árið 2006 var gerð kvikmynd byggð á endurminningum Adolfs Burger, Die Fälscher, og vann hún til Óskarsverðlauna árið 2008 sem besta erlenda kvikmyndin. Adolf Burger er annar tveggja falsara sem komu við sögu í Að- gerð Bernhard sem enn eru á lífi. Að hans sögn væri hann fær um að falsa nýja peningaseðla þrátt fyrir tæknilega þróun í prentun þeirra. Burger sagði Andrew Bailey, yfir- gjaldkera Englandsbanka, að hafa þó engar áhyggjur. „Ég lofaði hon- um [Bailey] að ég myndi ekki gera slíkt aftur,“ sagði Adolf Burger. „Þegar ég fékk rúm með rúmfatnaði og mat, leið mér eins og dauðri manneskju í fríi því okkur var ekki ætlað að lifa af. Þeg- ar þeir fóru með mig í sérálmurnar hugsaði ég „Nú er ég örugg- lega dauðans matur“ því þeir myndu ör- ugglega ekki láta mig lifa af svona aðgerð.“ í Englandsbanka Falsari Í Aðgerð Bernhard í síðari heimsstyrjöldinni neyddu nasistar fanga sína sem bjuggu yfir þekkingu og kunnáttu til að falsa breska pundsseðla. Tilgangurinn var að valda óstöðugleika í breska fjármálakerf- inu. Tveir þeirra sem unnu við falsanirnar eru enn á lífi og er Adolf Burger annar þeirra. KolBeinn þorsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Adolf Burger Var neyddur til að falsa breska pundsseðla í einangrunarbúðum nasista. Fimm punda seðill britt- annía er í vinstra efra horni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.