Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Blaðsíða 19
Föstudagur 27. Febrúar 2009 19Umræða
Hver er manneskjan? „Fótbolta-
kona úr Kópavogi.“
Hvað drífur þig áfram? „Fótbolt-
inn og kærastinn.“
Uppáhaldsnammið þitt?
„súkkulaði-þristur.“
Hvaða lið í enska boltanum?
„Manchester united.“
Hvernig var tilfinningin að vera
valin aftur í landsliðið? „Hún var
mjög góð. Það tekur langan tíma að
komast úr svona meiðslum og ég er
búin að stefna að þessu og leggja
aukalega á mig til þess.“
Er hægt að spila fótbolta eftir
þrjú krossbandsslit? „greinilega.“
Hvaðan kemur þessi mikla
ákveðni og seigla? „Það var
talsvert liðið síðan ég meiddist í
annað sinn og ég var búin að lofa
mér að hætta ef ég meiddist aftur. en
svo meiddist ég á mjög leiðinlegum
tíma, ég var þá komin í byrjunarliðið í
landsliðinu og það dreif mig áfram.“
Ertu ekki hrædd um að meiðast
aftur? „Ég er það yfirleitt ekki. Ég er
allavega ekki að hugsa um það.“
Eru fjölskylda og vinir ekki á
nálum þegar þú spilar? „Jú,
aðallega mamma.“
Markmið þín í sumar? „stefnan
er að komast með landsliðinu á eM
og vinna Íslandsmeistaratitilinn með
breiðabliki.“
Ertu með einhverja áætlun til
að forðast frekari meiðsli? „Ég
er með styrktaræfingar sem ég geri
en er annars ekkert að hlífa mér á
vellinum.“
Hvernig mun landsliðinu ganga
á EM í sumar? „betur en margir
halda.“
Hvað finnst þér að Davíð ODDssOn eigi að taka sér fyrir HenDur?
„Hann ætti bara að fara á eftirlaun og
hætta að skipta sér af þjóðmálum. Ég
held að hann sé búinn í stjórnmálum.“
SigUrðUr BöðvarSSon
43 ára KerFisFræðingur
„Hann ætti að skrifa. Ég hef lesið eina
bók eftir hann og finnst davíð ágætur
penni. Hann var búinn að lofa okkur
því þar sem þá yrði ekki skertur
lífeyririnn hans.“
Einar gUnnarSSon
59 ára atvinnulaus byggingaFræðingur
„Hann ætti að vinna við allt annað en
opinber störf.“
Jón ÞórarinSSon
27 ára KerrustarFsMaður
„Hann ætti að fara aftur að skrifa. Hann
er fínn rithöfundur. Ég mæli með því.
Hann hefði jafnvel átt að gera það fyrir
átta árum.“
Máni JónSSon
47 ára prentari
Dómstóll götunnar
Erna BJörk SigUrðardóttir,
knattspyrnukona úr breiðabliki, var
valin aftur í landsliðið eftir að hafa
jafnað sig af þriðju krossbandsslitun-
um á ferlinum.
Stefnir á eM
í SuMar
„Hann ætti að setjast niður og skrifa
ævisöguna sína. Ég hef ekki lesið mikið
eftir hann en veit að hann er skemmti-
legur penni.“
nína gUðMUndSdóttir
57 ára bóKbindari
maður Dagsins
Í kvikmyndinni 28 Days Later breyt-
ast flestallir íbúar Bretlandseyja í
uppvakninga sem herja á nágranna
sína. Undir lok myndarinnar furðar
einn íbúanna sig á því að handan við
sundið horfa menn enn á Simpsons
eins og ekkert hafi í skorist.
Þegar maður kemur til Noregs frá
Íslandi fær maður nánast sömu til-
finningu. Hér eru engar heimsenda-
spár eða bankahrun, blöðin eru ekki
full af spillingarmálum, göturnar af
mótmælendum og óeirðalögreglu.
Vissulega voru hér óeirðir fyrir utan
ísraelska sendiráðið í kjölfar árás-
anna á Gaza, en ólíkt Reykjavík var
það ekki hinn almenni borgari sem
þar átti í hlut.
Í um hálftíma ferðalagi frá Ósló
er Sandvika Storsenter, sem er sam-
kvæmt einhverjum mælikvörðum
stærsta verslunarmiðstöð Norð-
urlanda. Hér heldur partíið áfram
eins og það sé enn 2007, svo lengi
sem maður þiggur ekki laun sín í
íslenskum krónum. Hægt er að fá
lánaða rafmagnsbíla með körfum
undir innkaupapoka til að komast
endanna á milli í verslunarhúsinu.
Á klósettunum er ekki pappír til
að þurrka sér um hendurnar, held-
ur heit handklæði. Einhvers staðar
á efri hæðum er risavaxin líkams-
ræktarstöð, og engin af búðunum
sýnir þess merki að vera á leiðinni
á hausinn. Á kaffihúsunum drekka
konur í pelsum latte og bílastæða-
húsin rúma vart alla einkabílana.
Tilfinningin er eins og að hafa tek-
ið tímavél marga mánuði aftur í tím-
ann. Vorum við einhvern tímann
svona?
Sveitamennska og svartidauði
Íslendingar hafa löngum gert grín að
sparsemi og meintri sveitamennsku
Norðmanna. En meðan Íslendingar
keyrðu efnahag sinn aftur til hafta-
áranna með því að reyna að sýna
fram á hvað þeir væru miklir heims-
borgarar, byggðu Norðmenn í kyrr-
þey upp fyrirmyndar velferðarríki.
Og ekki skortir þá verslunarmið-
stöðvarnar heldur. Norðmenn eru
nú komnir jafnmikið í tísku meðal
Íslendinga og þeir þóttu áður kjána-
legir. Sá hlær best sem síðast hlær,
nema hvað Norðmenn myndu varla
hlæja að litlum fátækum frændum
sínum.
Hér fáum við velvild og vinnu,
það er ekki að undra að annar hver
Íslendingur sé á leiðinni til Nor-
egs. Enda hefur munurinn á lífs-
kjörum í Noregi og Íslandi varla
verið meiri síðan þeir réðu okkur á
14. öld. Norðmenn fóru afar illa út
úr svartadauða og féllu þar eftir í
skuggann af Danmörku og Svíþjóð,
urðu fátæk hjálenda eins og Ísland
og Finnland. Það var fyrst á ára-
tugunum eftir seinni heimsstyrjöld
sem þeir efnuðust, þökk sé olíunni
jafnt sem mjög stórum skipastóli. Á
undanförnum áratugum hafa þeir
farið fram úr grannþjóðum sínum,
enda eru í dag mörg láglaunastörf í
Noregi mönnuð af Svíum. Líklega fá
Svíarnir brátt harða samkeppni frá
Íslendingum.
Svíar og smábílar
Í blöðunum er ekki bankahrun
helsta fréttin, heldur hinn nýbak-
aði sigurvegari Eurovision sem
spáð er góðu gengi í Moskvu. „Jafn-
vel Svíarnir halda að hann eigi eft-
ir að vinna,“ segir á forsíðu VG. Þó
má finna kreppufréttir í blöðunum
ef nánar er að gáð. Forsíðufrétt Fin-
ansavisen er um bílasala í Björgvin
sem að segist kaupa notaða bíla á
hálfvirði á Íslandi og flytja þá heim.
Áður keypti hann lúxusbifreiðar
eins og Range Rover og Porsche frá
Þýskalandi, en nú eru jafnvel Norð-
menn farnir að spara við sig í glæsi-
kerrunum. Í staðinn eru það notað-
ir Yaris og Auris frá Íslandi sem fólk
sækir í.
Helsta fréttin hinum megin við
landamærin er slæmt gengi Saab
sem rambar á barmi gjaldþrots. Ef til
vill þýðir það að enn fleiri Svíar eiga
eftir að koma yfir. „Mig langar ein-
hvern tímann til að fara til Íslands
og sjá Íslandshestana,“ segir sænska
afgreiðslustúlkan á kaffihúsinu
Steam í Sandvika Storsenter. Þeir
Norðmenn sem koma til Íslands á
næstunni eiga þó ef til vill eftir að
skoða bíla frekar en hesta.
Skemmtu þér eins og það sé 2007
valUr gUnnarSSon
rithöfundur skrifar
„Það er ekki
að undra að
annar hver
Íslendingur sé
á leiðinni til
Noregs.“
mynDin
Punt fyrir pontu Helga sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, veit að jafnvel í þingsalnum þarf að huga að útlitinu eins og rakel ósk sigurðardóttir ljósmynd-
ari komst að þegar hún fylgdist með umræðum um seðlabankafrumvarpið á dögunum.
kjallari
Mynd rakEl