Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Page 31
NefNdiN
Sigríður Sigþórsdóttir
arkitekt FAÍ
Pálmar Kristmundsson
arkitekt FAÍ
Margrét Harðardóttir
arkitekt FAÍ
Byggingarlist
DV Menningarverðlaun föstudagur 27. febrúar 2009 31
Staðsetning: Þvervegur 1-7, Reykjavík
Verkkaupi: Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastdæma
Arkitektar: Arkibúllan:Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, arkitekt FAÍ, og Hrefna Björg Þor-
steinsdóttir, arkitekt FAÍ
Aðstoð: Hjördís Sóley Sigurðardóttir BA, arkitekt FAÍ
Myndlist: Berghall: Anna Hallin og Olga S. Bergmann
Ráðgjafar: Landmótun: landslagshönnun; Conis: burðarvirki, Efla: lagnir, loftræsting; Ver-
kís:hljóðhönnun; Mannvit: raflagnir, brunahönnun; Lúmex: lýsingarhönnun
Aðalverktakar: Spöng ehf
Starfsmannahús við Gufuneskirkjugarð er fyrsti áfangi þjónustubygginga við Gufunes-
kirkjugarð í Reykjavík. Það er árangur af samkeppni á vegum Arkitektafélags Íslands árið
2005. Húsið rís austast í lóðinni við aðalinngang í kirkjugarðinn. Því er valinn staður af nær-
gæti m.t.t. grágrýtisklapparholtsins sem er á lóðinni. Byggingin er hvít með grágrýtisklædd-
um veggjum að hluta, sem tengja hana umhverfinu á markvissan hátt. Hún er byggð inn
í holtið á sannfærandi máta og skapar látlaust, en viðeigandi umhverfi fyrir starfsemina.
Byggingin stendur vel sem sérstakur áfangi.
Staðsetning: Austurvegi, Ísafirði
Verkkaupi: Ísafjarðarbær
Arkitektar: Arkiteó, Einar Ólafsson, arkitekt FAÍ
Meðhöfundur samkeppnistillögu: Örn Þór Halldórsson, arkitekt FAÍ
Ráðgjafar: Tækniþjónusta Vestfjarða, VST (Verkís)
Aðalverktakar: Vestfirskir Verktakar
Nýbygging Grunnskólans á Ísafirði er viðbygging við gamla skólahúsið við Aðalstræti, sem
var byggt árið 1801 og er nú friðað. Nýbyggingin er jafnframt tenging við svonefndan Nýja
barnaskóla sem stendur við Austurveg. Byggingin er niðurstaða samkeppni sem efnt var til
árið 2001.
Nýbyggingin er dregin til baka frá götulínu Aðalstrætis og myndar tveggja hæða umgjörð
um gamla skólann, sem er áfram helsta einkenni og ímynd skólans.
Í nýbyggingunni eru sterkir litir notaðir með hvítum flötum, svo andrúmsloftið inni er glað-
legt og hæfir vel starfseminni. Skólahúsið er bjart og opið og tengist vel ytra umhverfi. Vel
hefur tekist að tengja gamla skólann nýrri starfsemi án þess að bera friðað skólahúsið ofur-
liði. Viðbyggingin er látlaus og hófstillt og þjónar vel sínum tilgangi.
grunnskólinn á Ísafirði
Staðsetning: Borgarbraut 54, Borgarnesi
Verkkaupi: Menntaborg ehf
Arkitektar: Kurtogpí; Ásmundur Hrafn Sturluson, arkitekt FAÍ, og Steinþór Kári Kárason,
arkitekt FAÍ
Listskreyting: Þór Vigfússon myndlistarmaður
Ráðgjafar: Mannvit: burðarvirki, lagnir, loftræsting, hljóðhönnun; VJI: raflagnir; Exton; hljóð-,
ljósa- og myndkerfi
Aðalverktakar: Borgarverk ehf, Loftorka ehf, Sólfell ehf
Menntaskóli Borgarfjarðar er staðsettur í Borgarnesi í nýjum kjarna þéttbýlisins við Borgar-
fjarðarbrúna. Lóðin afmarkast af grónum klettum, með mikilfenglegu útsýni yfir Hvítárósa
og Hafnarfjall, sem er eitt þekktasta kennileiti frá Borgarnesi.
Byggingunni er skipt upp í þrjá hússkrokka með þakgörðum. Höfundar vitna til mæli-
kvarða bæjarsamfélagsins sem húsið er byggt inn í og margbreytilegrar húsagerðar í bæn-
um. Húsið er klætt með kopar sem hefur sérstæðan samhljóm með umhverfinu; inn á milli
klettanna. Þakið er lagt grjótmulningi sömu gerðar og klettarnir í kring, en þakgarðar eru
með lynggróðurþekju.
Byggingin er í eigu heimamanna og gegnir einnig hlutverki menningarhúss Borgfirðinga.
Menntaskóli Borgarbyggðar
Staðsetning: Hafnarbakka 8, Þorlákshöfn
Verkkaupi: Hafnarsjóður Þorlákshafnar
Arkitektar: Yrki ehf; Ásdís H. Ágústsdóttir,
arkitekt FAÍ, og Sólveig Berg, arkitekt FAÍ
Ráðgjafar: Mannvit ehf; Burðarþol og lagn-
ir, VJI ehf; Raflagnir
Aðalverktakar: Trésmíðar Sæmundar ehf
Vigtarhúsið er á einni og hálfri hæð með út-
sýni yfir höfnina. Húsið er hafnarskrifstofa
og þaðan er innsiglingu báta í höfnina jafn-
framt stýrt.
Stjórnstöð hafnarinnar er í svífandi rúnnuð-
um húshluta næst sjónum, eins og skips-
brú með sýn yfir allt hafnarsvæðið. Í neðra
hálfhringslagaða rýminu er skrifstofa hafn-
arstjóra. Þar á milli er kaffistofa, aðstaða
starfsmanna og inngangur.
Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og
klætt með álplötum. Þakið er flatt og glugg-
ar eru úr áli. Byggingin er í sterkum app-
elsínugulum lit og með mjúkum formum.
Starfsemi hússins og smæð býður upp á
spennandi mannvirki sem sjálfkrafa verður
tákn Þorlákshafnar.
Staðsetning: Ytri-Neslönd, Mývatnssveit
Verkkaupi: Fjölskylda Sigurgeirs Stefáns-
sonar
Arkitektar: Mannfreð Vihjálmsson, arkitekt
FAÍ
Sýningarhönnun: Axel Hrafnkell
Ráðgjafar: Efla: burðarvirki; Mannvit: lagn-
ir, loftræsting; Verkís: raflagnir
Aðalverktakar: Norðurvík, auk sjálfboða-
liða
Fuglasafn Sigurgeirs Stefánssonar er í
landi Ytri-Neslanda í Mývatnssveit. Safn-
ið er umgjörð afar merkilegs fuglasafns
í einkaeign sem nú er opið almenningi.
Bátaskýli er staðsett við vatnið, byggt utan
um Sleipni, merkan grip í samgöngusögu
sveitarinnar. Lóðin fyrir Fuglasafnið nær
að bökkum Mývatns. Höfundur sækir form
hússins í náttúrufegurð Mývatnssveitar;
það rís upp úr landinu, klætt gróðurþekju
af byggingarlóðinni og verður eitt með
náttúrunni.
Grasi gróin þök og hlaðnir veggir mæta
auga gestsins frá aðkomuveginum og
húsið opnast með gler- og viðarklæddum
veggjum út að vatninu. Móttökurýmin eru
einkar björt og aðlaðandi þar sem njóta
má nálægðar við fuglalífið og náttúruna.
vigtarhús Þorlákshöfn
Þjónustubyggingar KgrP
Fuglasafn Sigurgeirs Stefánssonar