Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Síða 32
föstudagur 27. febrúar 200932
NefNdiN
Tinni Sveinsson
ritstjóri Húsa og híbýla, formaður
Gunnar Vilhjálmsson
grafískur hönnuður
Hlín Helga Guðlaugsdóttir
framkvæmdastjóri hönnunarsjóðs
Auroru
Hönnun
menninGarVerðlaun DV
Stefnumót bænda og hönnuða nefn-
ist verkefni sem á upptök sín í Lista-
háskóla Íslands. Þar er stefnt saman
nemendum í vöruhönnun og bænd-
um sem stunda heimavinnslu og sölu
afurða. Þegar vel gengur fylgja hönn-
uðirnir síðan vöruþróuninni eftir eins
lengi og þarf. Verkefnið er nú á þriðja
starfsári og hefur nú þegar skilað af sér
frábærum vörum í verslanir, rabarbar-
akaramellu frá Löngumýri á Skeiðum
og sláturtertu frá Möðrudal. Íslensk
matvælaframleiðsla getur verið í hæsta
gæðaflokki og víða um land leynast
tækifæri sem kalla á samstarf við hönn-
uði til að skapa vörur með sérstöðu.
Stefnumótið er hárrétt nálgun á tímum
þar sem neytendur gera auknar kröfur
um vörur sem byggjast á góðri hönn-
un, gæðum og rekjanleika. Forsvars-
menn verkefnisins eru Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir og Brynhildur Pálsdóttir
hönnuðir og Sigríður Sigurjónsdóttir,
prófessor í vöruhönnun við Listahá-
skóla Íslands. Kristján Björn Þórðarson
er grafískur leiðbeinandi verkefnisins.
Stefnumót bænda og hönnuða
Hinn íslenskættaði Chuck Mack kynnti í fyrra borðið Table 29 en formgerð þess og sam-
setning er nýjung í tækni. Efnin í því sameina það að geta kallast „græn hönnun“. Fyrir
hönnun sína á borðinu hlaut Chuck eina virtustu hönnunarviðurkenningu veraldar, Red
dot-verðlaunin. Borðplatan er gerð úr mörgum lögum af pappír og trjákvoðu sem eru
bökuð í ofni. Chuck, sem býr og starfar á Íslandi, byggir hugmyndafræði borðsins fyrst og
fremst á spennu og núningskrafti sem myndast í því og heldur því saman. Ekkert lím er not-
að og borðið er auðvelt að taka í sundur og setja í flatar pakkningar.
Table 29
Verslunareigendurnir og hönnuðirnir í Kron, Hugrún Dögg Árnadóttir og Magni Þorsteins-
son, réðust ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar þau ákváðu að hanna og fram-
leiða sína eigin skólínu. Hún kom á markað í haust og er framleidd á gamla mátann af
handverksmönnum í hinni þekktu skógerðarborg, Elda, á Spáni. Skórnir eru einstaklega vel
heppnaðir, litríkir og fágaðir, og eru fyllilega samkeppnishæfir við erlend gæðamerki. Þeir
fara í dreifingu út um allan heim á árinu.
Skólína KOnKrOn
Myndskreytingar Sigga Eggerts vekja athygli um víðan völl enda er stíll hans afgerandi og
flottur. Á liðnu ári vann hann myndir fyrir fjölda tímarita út um allan heim, til dæmis New
York Times, Wallpaper, Blender, Grafik og Computer Arts. Siggi vann fyrir mörg þekkt fyrir-
tæki, m.a. Microsoft og Samsung. Þá skreyttu myndir hans verslanir og plötuumslög hljóm-
sveita í Bretlandi og Bandaríkjunum og einnig tók hann þátt í fjölda sýninga, frá Akureyri til
London og Barcelona.
Siggi eggerts
Katrín Ólína Pétursdóttir hefur náð undraverðum árangri í hinum alþjóðlega hönnunar-
heimi og var árið í fyrra þar engin undantekning. Í ágúst var til að mynda opnaður Cristal
Bar í Hong Kong þar sem einstakur og persónulegur stíll hennar nýtur sín til hins ítrasta.
Barinn er klæddur hólf í gólf með verkum Katrínar og er hinn glæsilegasti. Fyrir vikið fékk
hún enda sænsku Forum Aid-verðlaunin í innanhússhönnun. Hérlendis gafst tækifæri til að
sjá þessa aðferð Katrínar í verki hennar, Ugluspegill, á sýningunni ID Lab í Hafnarhúsinu.
Einnig tók hún þátt í verkefninu 8+8 Made in Hafnarfjörður og hannaði Grýlu fyrir Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra. Þá kom hún einnig mikið við sögu á hinni virtu sýningu 100%
Design í Tókýó og á Hönnunarviku í Helskinki.
Katrín Ólína