Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Side 35
DV menningarverðlaun föstudagur 27. febrúar 2009 35
NefNdiN
Jón Proppé
gagnrýnandi og sýningarstjóri, formaður
Hanna Styrmisdóttir
sjálfstætt starfandi sýningarstjórimyndlist
Myndhugsun Sigrúnar Sirru er sérstök
blanda af vísindalegri nálgun og listrænni
óreiðu. Þannig var útgangspunktur sýning-
ar hennar á Kling & Bang galleríi á síðasta
ári kannski eðlilegt framhald af hugmynd-
um hennar en þar vísaði hún til kenninga
skammtaeðlisfræðingsins Werners Heisen-
berg sem komst að því að aldrei væri hægt
að mæla samtímis bæði staðsetningu og
hreyfingu rafeinda: Þegar kemur að kjarna
hins efnislega heims getum við aldrei kort-
lagt veruleikann með vissu. Í sýningarrým-
inu byggði Sigrún Sirra eins konar undra-
heim með marglitum hálfgegnsæjum
kössum, ljósum og myndbandsvörpunum
– veröld þar sem allt virtist í senn úthugs-
að og skipulagt en þó síbreytilegt. Eins og í
fyrri verkum sínum gerði hún hér áhorf-
andann að virkum þátttakanda og sýningin
hverfðist um skynjun hans og hreyfingar í
salnum. Þarna fór saman spennandi sjón-
ræn upplifun og íhugun um eðli skynjunar
okkar og skilnings.
Óvissulögmálið í
Kling & Bang galleríi
Bragi Ásgeirsson hóf feril sinn í myndlist fyrir um sex áratugum. Hann hefur haldið ótal
sýningar og líka látið mikið að sér kveða sem kennari við Myndlista- og handíðaskólann og
með skrifum sínum um myndlist, en hann var lengi helsti myndlistargagnrýnandi Morgun-
blaðsins. Á sýningunni Augnasinfóníu á Kjarvalsstöðum var dregið fram heildaryfirlit yfir
myndsköpun Braga þar sem vel mátti sjá hve mikið og fjölbreytt framlag hans hefur verið,
allt frá því að hann tók þátt í endurskoðun íslenskrar myndlistar með öðrum abstraktmál-
urum á sjötta áratugnum og fram á þessa daga. Á sýningunni mátti sjá hve sterkt framlag
Braga hefur verið á hverjum tíma en jafnframt hve persónuleg og öflug tjáning hans hefur
alla tíð verið. Sýningarstjóri var Þóroddur Bjarnason.
Yfirlitssýning augnasinfónía á Kjarvalsstöðum
Bragi Ásgeirsson
Í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 2008 var sett upp viðamikið sýningarverkefni á Aust-
urlandi í samstarfi menningarmiðstöðvarinnar Skaftfells á Seyðisfirði, listamiðstöðvarinn-
ar á Eiðum og Sláturhússins á Egilsstöðum. Björn Roth var sýningarstjóri en listamennirnir
sem tóku þátt í verkefninu voru Paul Harfleet, Sara Björnsdóttir og Maati Saarinen í Slátur-
húsinu, Cristophe Buchel, Skyr Lee Bob, Poni fjöllistahópurinn (Guðni Gunnarsson, Erna
Ómarsdóttir og Lieven Dousselaere) og Pétur Kristjánsson í Skaftfelli og Hrafnkell Sigurðs-
son og Linnert Alvés á Eiðum. Þessar uppákomur voru sérstaklega vel heppnaðar auk þess
sem þær eru til vitnis um það öfluga myndlistarstarf sem unnið hefur verið á Austurlandi
undanfarin ár með metnaðarfullum sýningum og viðburðum.
Ferðalag
Eirún Sigurðardóttir er ein af stofnendum Gjörningaklúbbsins sem löngu er orðinn einn af
þekktustu myndlistarhópum landsins en hún hefur líka haldið allmargar einkasýningar og
tekið þátt í ýmsum samsýningum. Nálgun Eirúnar er mögnuð blanda af frásögn og mynd-
rænni framsetningu með sterkri tilvísun í hið kvenlæga. Eirún var sjálf hluti af sýningunni
Höll blekkinganna, sat í salnum í hekluðum hjúp og heklaði þar fram sýninguna sem hafði
sterkar tilvísanir í heim véfrétta og goðsagna en var jafnframt hugleiðing um sýn samtímans
á konur, upplifun þeirra og stöðu. Sýningunni fylgdi bókverk með teikningum Eirúnar og
textum eftir Sigríði Þorgeirsdóttur heimspeking og Sigrúnu Daníelsdóttur sálfræðing.
Höll blekkinganna, í Suðsuðvestur, reykjanesbæ
eirún Sigurðardóttir
Haraldur Jónsson hefur sýnt mikið síðustu tvo áratugi og þróað með sér afar sérstakt mynd-
mál og framsetningu. Verk hans eru sjónræn og ágeng en um leið fæst hann oft við að hlut-
gera hið óáþreifanlega og efnislausa, þögnina og myrkrið eða einhvers konar hugboð og
hugmyndir sem gera verk hans fyrir vikið enn áleitnari. Á sýningunni Myrkurlampi í Lista-
safni ASÍ voru verkin unnin sérstaklega inn í sýningarrýmið svo úr varð heill heimur upplif-
ana þar sem Haraldur leiddi áhorfendur inn í myndhugsun sína á sérstaklega áhrifamikinn
hátt og má segja að hann hafi dregið hér saman þá ýmsu þræði sem hann hefur spunnið á
sýningum sínum mörg undanfarin ár. Framsetningin öll var í senn skýr og margræð, eins og
verk hans eru ávallt, en fyrst og fremst til þess fallin að vekja gesti sjálfa til umhugsunar og
opna nýjar leiðir til skynjunar á umhverfinu og upplifunum sínum.
myrkurlampi í listasafni aSÍ
Haraldur Jónsson
Sigrún Sirra Sigurðardóttir
Mynd Ívar Brynjólfsson
Mynd rut HallgrÍMsdóttir