Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Síða 41
föstudagur 27. febrúar 2009 41Helgarblað að búa skikkanlega á svo köldum og fjarlægum stað hafði hópurinn það mjög gott á meðan á dvölinni stóð. Casey er stöð þar sem rannsóknar- menn vinna allt árið um kring og þarf því að búa vel um þá miðað við lífsskilyrðin í kring. „Á meðan ég var þarna voru um 70 manns á svæðinu og samanstóð hópurinn af vísinda- mönnum, smiðum, pípulagninga- mönnum, vélvirkjum, kokkum, fjar- skiptafólki, flugmönnum og læknum svo það var nóg um að vera. “ Gistiaðstöðuna segir hún líka hafa verið til fyrirmyndar. Þetta var þó ekki alveg eins og að búa á hót- eli því allir þurftu að leggja til þessa stóra heimilis eins og Erla orðar það. Það þurftu til dæmis allir að hjálpa til í eldhúsinu og á laugardögum fékk hver og einn húsverk sem hann þurfti að klára. „Það var samt góður matur, gott fólk, góð vinnuaðstaða og vel hugsað um alla,“ segir hún sátt. Gott félagslíf á suðurskautinu „Suðurskautið er mjög sérstakur stað- ur. Allir sem eru þarna eru komnir til að vinna ákveðin verk og það er eins og að vera í einni stórri fjölskyldu. Þar sem allir eru tilbúnir að aðstoða hver annan ef þarf.“ Erla segir að þar sem allir búa í návígi þurfi að passa að taka enn meira tillit til hver ann- ars en í venjulegu lífi þar sem mað- ur fer bara heim eftir vinnudaginn og þarf ekki að hitta vinnufélagana fyrr en daginn eftir. „Á móti kom að það var mikið félagslíf og maður gat alltaf fundið einhvern sem var til í að gera eitthvað,“ segir Erla sem eyddi kvöld- unum í pílukasti, billjard, á göngu- skíðum, í gufubaði eða göngutúrum. Miklir öfgar Kuldinn var ekki eins óbærileg- ur og menn geta sér til um. „Það er hásumar núna og því kuldinn ekki mikill. Það var yfirleitt um svona 2 gráður. Það minnti mig bara soldið á íslenskan vetur fyrir utan að það var bjart allan sólarhringinn eins og er á sumrin heima.“ Erla flaug heim til Ástralíu 8. jan- úar eftir skipsferð og fannst henni afar skrýtið að koma til baka. Hún fór úr 40 gráðu frosti, frá flugvellinum á suðurskautinu en hann stendur í 700 metra hæð yfir sjávarmáli þar sem er kaldara, og yfir í 30 gráðu hita í Sydn- ey. „Það voru svolítið miklir öfgar þar á milli.“ Það er svolítið skondið að segja frá því að frá suðurskautinu þarf að fljúga að nóttu til svo flugbrautin sé nógu ísi lögð til að geta hafið flugtak. Annars er hún farin að þiðna of mik- ið. Mörgæsirnar komu hlaupandi Ferðin stóðst algjörlega væntingar Erlu þótt hún hefði viljað skoða sig meira um. Vinnan tók sinn tíma og því var það ekki hægt. „Það skemmti- legasta sem ég gerði utan vinnunn- ar var þegar við fórum eitt kvöldið í bátssiglingu á gúmmíbát út að ísjök- unum sem voru þarna rétt fyrir utan. Sólin lá þá lægra á lofti og útsýnið var stórkostlegt. Ég brosti allan hringinn það kvöld.“ Það sem vakti sérstaka athygli Erlu þarna var lyktin í umhverfinu. Hún var nefnilega engin þar sem lítið er í umhverfinu. En lyktina af mörgæsunum segir hún hafa ver- ið svakalega mikla og vakið undrun. „Það var samt svo sérstakt að sjá þær og hvað þær eru rosalega gæfar. Þær voru ófeimnar að koma hlaupandi og skoða mann hátt og lágt. Alveg yndisleg dýr,“ segir Erla að lokum asdisbjorg@dv.is Hélt jólin á suðurskautinu Langt frá Íslandi Það er óhætt að segja að erla hefði ekki getað komist lengra. Stórkostlegar verur Keisaramörgæsir eru um 120 cm á hæð og vega frá 20 til 40 kíló. Þessar gæfu verur geta orðið allt að 40 ára gamlar. Ömmubakstur ehf. Kársnesbraut 96a | 200 kópavogi | S: 545 7000 Veljum íslenskt gott í dagsins önn... Ömmu kleinur Ömmu spelt flatkökur Ömmu flatkökur Nýr kostur í DV eru þjónustuauglýsingar. Það borgar sig að auglýsa í DV! ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR Hringdu í síma 515 5550 og byrjaðu strax í dag!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.