Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Qupperneq 51
föstudagur 27. febrúar 2009 51Helgarblað
Fermingartíska í 20 ár
„Við höfum verið í þessu síðan fyrir
Kringlu,“ segir Svava Johansen, eig-
andi verslunarkeðjunnar NTC, um
fermingartískuna. „Ætli við höfum
ekki verið að byrja í kringum 1985,“
segir Svava en Kringlan var opn-
uð árið 1987 og var verslunin 17 þá
opnuð þar. Síðan er verslunin orðin
partur af verslunarkeðjunni NTC og
nú eru einar 18 mismunandi versl-
anir.
„Ég var nú ekki langt frá því að
vera fermingarbarn sjálf á þessum
tíma,“ segir Svava þegar hún rifar
upp gamla tíma. „Í fyrstu vorum við
hópur fólks sem hafði mikinn áhuga
á fermingartísku og við saumuðum
mikið af fötunum sjálf.“ Svava segir
að í þá daga hafi það borgað sig að
sauma en það sé að mestu liðin tíð.
Þegar verslunin 17 stóð ein og
sér var búðin mun sveigjanlegri og
tók mið af því sem var að gerast í
þjóðfélaginu. „Ef það voru ferming-
ar vorum við með fermingarföt, svo
útskriftarföt, jólaföt, skólaföt og koll
af kolli. Þetta hefur breyst mikið og
sérhæfingin er orðin mun meiri. Þar
sem ein verslun er ætluð tilteknum
hópi.“
Svava hefur haft gaman af því að
vinna með fermingartískuna. Krakk-
arnir sýna henni mikinn áhuga
og sérstaklega stelpurnar. „Það er
þó alltaf að verða meiri og meiri
vakning hjá strákunum.“ Það hefur
myndast hefð fyrir því hjá 17 og síð-
ar NTC að fá hóp fermingarkrakka í
auglýsingar eins og sjá má á mynd-
unum. Hefðin er að verða yfir 20 ára
gömul og er elsta myndin hér á síð-
unni frá árinu 1989.
Eins og sést á myndinni frá ár-
inu 1991 kostuðu jakki og buxur
saman 17.400 en í dag kosta jakka-
föt í 17 19.000 krónur. „Þó svo að
flestallt hafi hækkað undanfarið og
frá þessum tíma reynum við alltaf
að halda vörð um fermingartísk-
una.“
Í fyrra fór NTC af stað með
hönnunarkeppni í grunnskólum
landsins. „Þar vorum við að hvetja
unga krakka til þess að koma sínum
skoðunum og hugmyndum á fram-
færi. Útkoman var mjög skemmti-
leg og í haust mun besta hönnunin
fyrir strákaföt og stelpuföt koma í
búðir,“ segir Svava að lokum.
asgeir@dv.is
Svava Johansen er einn helsti frumkvöðull íslenskrar fermingartísku síðustu áratugi:
Svava Johansen, eigandi
NTC „Í fyrstu vorum við hópur
fólks sem hafði mikinn áhuga á
fermingartísku og við saumuðum
mikið af fötunum sjálf.“
1989 Níundi áratug-
urinn var einstakur
hvað fatatísku varðar.
1996 svart og
hvítt var greinilega
alveg málið 96.
2009 Það hefur margt
breyst á 20 árum.
1990 ennisband
og slegið hár hjá
stelpunum.
1995 teinóttu jakkafötin
komu sterk inn og litríkir
kjólar hjá stelpunum.
1991 stallur hjá strák-
unum og stuttbuxur
hjá stelpunum.
2008 Hárskraut hjá
stelpunum og converse-
skór hjá strákunum.