Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Qupperneq 64
n Eftir nokkurt hik lét Árni Mathie-
sen, dýralæknir, fyrrverandi fjár-
málaráðherra og nú óbreyttur þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, þau
boð út ganga í gær að hann myndi
ekki gefa kost á sér til áframhald-
andi þingmennsku í kosningunum í
vor. Eiríkur Jónsson,
ritstjóri Séð og heyrt,
gerði þessari ákvörðun
Árna snörp skil í hnit-
miðaðri bloggfærslu
og hafði aðeins örfá orð
um brotthvarf
dýralæknis-
ins úr stjórn-
málum: „Nú
getur hann
snúið sér að
málleysingj-
unum aftur.
Ekki geta þeir
kvartað.“
Kiddi Búmerang!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Gyðjurnar eru mömmuklúbbur sem
var stofnaður 08.08.08. Ég var bumbu-
lína á þessum tíma en ég eignaðist
mitt fyrsta barn í september. Ég er ekki
mikið í slórinu og hafði samband við
nokkrar frábærar konur sem voru líka
með kúlu eða nýbúnar að eiga. Allt
skemmtilegar og hæfileikaríkar konur
sem ég þekkti mismikið. Konur sem ég
hafði kynnst í skóla, meðgöngusundi,
jóga, vinnunni eða í gegnum nána
snillinga. Bumban eða bumbuling-
arnir okkar voru það sem sameinaði
okkur og allar vildu vera memm. Það
kom mér skemmtilega á óvart en hóp-
urinn er stór fyrir vikið,“ segir Andr-
ea Róberts en yfir tuttugu mömmur
eru í hópnum. Meðal þeirra eru Inga
Lind Karlsdóttir sjónvarpskona Em-
ilía Björg Óskarsdóttir, oft kennd við
stúlknasveitina Nylon, og Brynja Þor-
geirsdóttir fjölmiðlakona.
„Þetta hefur verið kjörinn félags-
skapur til að hressa sig við á meðgöngu
og eftir fæðingu. Við ræðum og deilum
barnatrixum, ráðum, stórkostlegum
uppgötvunum og líðan. Við styðjum
hver aðra og í hópnum ríkir trúnaður.
Við erum ótrúlega stoltar af hver ann-
arri og orðið sem kemur oftast upp í
hugann hjá okkur er „virðing“. Okkur
finnst við vibba skemmtilegar og hefur
þótt rosalega gaman að kynnast enda
jafnast ekkert á við vináttu sterkra
kvenna,“ segir Andrea.
liljakatrin@dv.is
Varnarlausir
málleysingjar
Andrea Róberts er stofnandi mömmuklúbbsins Gyðjurnar:
Frægar mömmur hittast
n Kankvísa kynbomban Ásdís Rán
Gunnarsdóttir er umvafin Holly-
wood-stjörnum þessa dagana ef
marka má bloggsíðu hennar. „...það
vill svo heppilega til að ég bý með
slatta af Hollywood leikurum núna
þar sem er verið að taka upp nokkr-
ar myndir hérna í Búlgaríu þessa
dagana og þeir búa
allir hérna í comp-
lexinu mínu,
þar má nefna
Colin Farrel,
Ed Harris, Dolf
Lundgren og Van
Dam. Ekki slæmt að
fara í gymmið með
þessum gæjum á
daginn,“ segir
Ásdís á síð-
unni en nýja
bloggsíðan
hennar,
asdisran.
com, fer
í loftið
fljótlega.
n Kristinn H. Gunnarsson, sem
hefur fyrir löngu sannað sig sem
eitt mesta ólíkindatól íslenskra
stjórnmála, er enn að koma á
óvart. Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjálslynda flokks-
ins, hafði vart þerrað gleðitárin yfir
úrsögn Kristins úr flokknum þegar
út spurðist að þessi síðasti flótta-
þingmaður úr þingflokki frjáls-
lyndra hygðist ganga í Samfylking-
una og bjóða sig fram á lista þess
flokks í Norðvesturkjördæmi. Með
þessu má segja að Kristinn sé kom-
inn heim eftir viðkomu á nokkr-
um stoppistöðvum. Hann var fyrst
kosinn á þing fyrir
Alþýðubandalagið
en yfirgaf flokkinn
þegar hann rann
inn í Samfylking-
una. Þá gekk hann
í Framsóknar-
flokkinn sem
hann yfirgaf
svo fyrir
Frjálslynda
flokkinn til
þess eins
að enda í
Samfylk-
ingunni.
Börnin með „börnin eru í langflestum
tilfellum með og það er tær snilld að
fylgjast með krílunum stækka. “
ásdís býr
með stjörnum
sleggjan í
hausinn á krötum