Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Síða 2
Föstudagur 22. maí 20092 Fréttir
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
nýja vistarbandið
Um 90 þúsund Íslendingar
verða bundnir átthagafjötr-
um ef spár Seðlabanka Ís-
lands rætast. Um 40 prósent
húsnæðiseigenda munu að
tveimur árum liðnum skulda
meira en þeir geta fengið fyrir húsin
sín. Þessir Íslendingar munu eiga
mjög erfitt með að flytjast búferlum,
nema sitja uppi húsnæðislausir með
milljóna króna skuldabagga. Þórodd-
ur Bjarnason, prófessor í félagsfræði,
segir neikvæða eiginfjárstöðu geta
aukið upplausn í samfélaginu og gert
það að verkum að ungt fólk flytji úr
landi. „Fólk hefur undanfarin ár lagt
í óskaplega miklar fjárfestingar. Það
keypti íbúðir á háu verði og stóð í þeirri trú að þetta væri örugg fjár-
festing. Fólk tók ákvarðanir sem eftir á að hyggja voru mjög vafasam-
ar, en enginn sá afleiðingarnar fyrir.“
ríkið í flugrekstur
Íslandsbanki hefur
leyst til sín hluta-
bréf 20 hluthafa
í Icelandair með
veðköllum. Veð-
köllin hafa ekki áhrif
á starfsemi Icelandair. Þar
af eru hlutabréf sem voru í
eigu eignarhaldsfélaga Karls
Wernerssonar og Einars
Sveinssonar sem lánuðu
eigin félögum milljarða til
að kaupa hlutina þegar þeir
áttu Íslandsbanka. Finn-
ur Ingólfsson segir Lang-
flug standa illa en að óvíst
sé hvort eða hvenær Landsbankinn muni leysa til sín hlut félagsins í
Icelandair. Ríkið gæti orðið um 80 prósent eigandi í Icelandair. Lánin
fyrir hlutum Máttar og Nausts í Icelandair voru veitt árið 2006 og 2007
þegar Einar Sveinsson var stjórnarformaður og einn stærsti hluthafi
Glitnis, nú Íslandsbanka.
2
1 „Fólk ætlaði að éta okkur“dv.isF r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðþriðjudagur 19. maí 2009 dagblaðið vísir 76. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
Fékk Ekki SlÖkkVitæki
mEðaN BílliNN BraNN
Fékk
BEtri
klEFa
Bílakirkju-
garður
krEPPuNNar
íguFuNESi
Fréttir
BraSilíuFaNgiNN:
Fréttir
þEir lÁNuðu SjÁlFum Sér
til að kauPa iCElaNdair
karl WErNErSSoN og EiNar SVEiNSSoN miSStu FlugFélagið í gær
jóhaNNa Forðaði Sér í moSkVu
Fólk
Fréttir
ÍSLAND 2011:
EFtirtVÖ Ár muNu
40% íSlENdiNga Ekki
gEta SElt hÚSNæði Sitt
krEFjaSt
réttlætiS
FYrir
hraFNhildi
Þeir sem eiga
meira en þeir
skulda í heimilinu
Þeir sem skulda
meira en þeir
eiga í heimilinu
90 ÞÚSUND
FANGAR
Á EIGIN
HEIMILI
Fréttir
Fréttir
miSSkilNiNgur í hÚSaSmiðjuNNi Varð til þESS að rEYNt Var að kæFa EldiNN mEð PEYSum
60%
Heimili
í plús
40%
Heimili
í mínus
Þriðjudagur 19. maí 20092
Fréttir
Íslandsbanki hefur leyst til sín 42 pró-
sent hlutafjár 20 hluthafa Icelandair
með veðköllum. Stærstu hluthafarn-
ir sem um ræðir eru Fjárfestingafé-
lagið Máttur og eignarhaldsfélagið
Naust ehf. Máttur átti rúm 23 prósent
í Icelandair en Naust átti tæp 15 pró-
sent.
Eftir yfirtöku bréfanna er Íslands-
banki, og þar með íslenska ríkið, orð-
inn langstærsti einstaki hluthafi Ice-
landair með 47 prósenta eignarhluta,
en fyrir átti bankinn fimm prósenta
hlut í félaginu.
Í tilkynningu frá Íslandsbanka
kemur fram að veðköllin muni ekki
hafa nein áhrif á starfsemi Icelandair
en líklegt þykir að bankinn muni
selja hlutinn við fyrsta tækifæri.
Lánveitingar veittar þegar Karl
og Einar voru ráðandi í Glitni
Lánveitingarnar fyrir hlutum Mátt-
ar og Nausts í Icelandair áttu
sér stað árið 2006 og 2007
þegar Einar Sveinsson
var stjórnarformaður
og einn stærsti hlut-
hafi Glitnis, nú Íslands-
banka. Einar var þá
aðaleigandi í eignar-
haldsfélaginu Nausti, en
bróðir hans Benedikt var
þar einnig hluthafi, og
stærsti einstaki hluthaf-
inn í eignarhaldsfélag-
inu Hrómundi sem var
skráður eigandi tæplega
32 prósenta hlutar í Ice-
landair. Einar var jafnframt
stjórnarformaður Icelandair
þar til í byrjun mars á þessu
ári.
Stærsti eigandi Icelandair,
með 50 prósenta eignarhlut, var hins
vegar félagið SJ2 sem er í eigu Mil-
estone, félags Karls Wernerssonar,
sem var stór hluthafi og varaformað-
ur stjórnar Glitnis á þeim tíma þeg-
ar lánveitingarnar vegna kaupanna í
Icelandair áttu sér stað.
Lánuðu sjálfum sér
Veðköllin sem Íslandsbanki gerði
í hlutabréf Icelandair í gær eru því
tilkomin vegna lána sem forsvars-
menn félaganna sem áttu bréfin
veittu sínum eigin félögum og fé-
lögum tengdum sér þegar þeir voru
stórir hluthafar í Glitni. Lánveiting-
arnar til félaganna tveggja munu
hlaupa á tugum milljarða króna
samkvæmt heimildum DV en ná-
kvæm lánsupphæð fæst ekki upp-
gefin hjá Glitni. Veðin fyrir lánun-
um sem notuð voru til að kaupa
hlutina í Icelandair voru í hluta-
bréfunum sjálfum.
Ástæðan fyrir því að Íslands-
banki leysir bréfin til sín nú er að
ónógar tryggingar voru fyrir lán-
unum vegna hlutafjárkaupanna og
forsvarsmenn félaganna höfðu ekki
getað lagt fram frekari tryggingar
fyrir þeim.
Eins og í svo mörgum öðrum
tilfellum úr íslensku viðskiptalífi á
síðustu árum voru forsvarsmenn og
eigendur þeirra félaga sem tóku lán-
in til að fjármagna hlutabréfakaup-
in ekki í persónulegum ábyrgðum
fyrir þeim og ganga því skuldlausir
út úr hlutahafahópi Icelandair.
Landsbankinn mun líklega
leysa til sín bréf Langflugs
Með veðköllunum er íslenska ríkið
orðið ráðandi í félaginu, eins og áður
segir, en næststærsti hluthafinn í Ice-
landair er Langflug, fjárfestingafé-
lag sem er að tveimur þriðju hlutum
í eigu Finns Ingólfssonar. En félag-
ið stendur illa um þessar mundir og
nema skuldir þess umfram eignir um
30 milljörðum króna.
Aðspurður hvort Landsbankinn,
stærsti lánveitandi Langflugs, muni
leysa til sín hlut félagsins á næstunni
segir Finnur að Langflug eigi í erfið-
leikum eins og svo mörg önnur fjár-
festingafélög. Hann segist ekki vita
hvenær það komi í ljós hvort bank-
inn muni leysa hlut félagsins til sín.
„Ég get ekkert sagt til um það á þess-
ari stundu,“ segir Finnur en heimild-
ir DV herma að Landsbankinn muni
leysa bréf Langflugs til sín á næst-
unni. Ástæðan er sú að félagið hef-
ur ekki orðið við kalli bankans um
að leggja fram frekari frekari trygg-
ingar fyrir útistandandi láni félagsins
sem notað var til að fjármagna kaup-
in í Icelandair en veðin fyrir kaupum
Langflugs á bréfunum í Icelandair
voru í bréfunum sjálfum.
Áhrif veðkallanna
Áhrifin sem innkall bréfanna í Ice-
landair munu hafa eru að nær öruggt
þykir að Gunnlaugur Sigmundsson
muni láta af stjórnarformennsku í fé-
laginu, en hann átti tveggja prósenta
hlut í því auk þess sem Einar Sveins-
son mun ekki sitja áfram í stjórn þess
sem varaformaður. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Hjördísi Vilhjálmsdótt-
ur, ráðgjafa Steingríms J. Sigfússon-
ar fjármálaráðherra, mun bankinn,
en ekki hið opinbera, alfarið ákveða
hvernig brugðist verður við veðköll-
unum, meðal annars hvaða áhrif þau
munu hafa á starfsemi Icelandair.
Það verður því í höndum bankans að
finna nýja stjórnarmenn.
Einnig er spurning hvaða áhrif
veðköllin munu hafa fyrir rekst-
ur olíufélagsins N1 en það er í eigu
eignarhaldsfélagsins BNT en stærsti
hluthafi þess er Máttur, með 29 pró-
senta eignarhluta. BNT átti auk þess
tæplega 50 prósenta hlut í BNT. N1
stendur ekki vel um þessar mund-
ir og tapaði félagið rúmum millj-
arði króna á síðasta ári og námu
skuldir þess um 19 milljörð-
um samkvæmt ársreikn-
ingi þess árið 2008.
Hermann Sævar
Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri BNT og
N1, segir að atburð-
ir gærdagsins muni
ekki hafa áhrif
á rekstur N1.
Hann segir að
N1 hafi lagt
fram hluta-
fé í Naust
á sínum
tíma
en að
InGI F. VILhjÁLmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
LÁNUÐU SJÁLFUM SÉR TIL
AÐ KAUPA Í ICELANDAIR
Karls Wernerssonar Einars
sveinssonar
Finnur
Ingólfsson
FImm stærstu núVErandI
hLuthaFar í IcELandaIr:
íslandsbanki hf. um 47%
Langflug ehf. 23,83%
Sparisjóðabanki íslands hf. 9,36%
alnus ehf. 3,30%
icelandair group hf. 2,55%
„Ég get ekkert sagt
til um það á þessari
stundu.“
hættir nær örugglega í stjórn
Einar Sveinsson mun nær örugg-
lega hætta í stjórn icelandair eftir
atburði gærdagsins en hann var
stór hluthafi í félaginu í gegnum
eignarhaldsfélögin Naust og mátt.
Þriðjudagur 19. maí 2009 3
Fréttir
það hlutafé hafi verið afskrifað í bók-
um N1 árið 2007. „Þess vegna hittir
þetta okkur ekki illa fyrir núna,“ segir
Hermann.
Hann segist hins vegar reikna með
að hlutur Máttar í BNT verði seldur í
framtíðinni vegna erfiðrar stöðu fé-
lagsins. Hermann segir hins veg-
ar að þetta komi ekki niður á
rekstri N1.
Ríkið gæti orðið
allsráðandi
Með því að leysa til
sín bréfin er staðan
sú að ríkið ræður í
raun yfir meira en
56 prósenta hlut
í Icelandair en
segja má á ríkið
eigi einnig rúm-
lega 9 prósenta
hlut Sparisjóða-
bankans í Ice-
landair vegna úti-
standandi skulda
bankans við Seðla-
banka Íslands sem
nema á annað
hundrað milljörð-
um króna auk þess
sem bankinn var tek-
inn yfir af Fjármála-
eftirlit-
inu í mars. Ef Landsbankinn tekur
hlut Finns yfir mun Icelandair því
verða í ríkiseign að langmestu leyti.
Ekki náðist í þá Einar Sveins-
son og Gunnlaug Sigmundsson við
vinnslu fréttarinnar.
Hlutur Langflugs yfirtekinn
bráðlega Félag sem er að
stórum hluta í eigu Finns ing-
ólfssonar, fyrrverandi ráðherra
og seðlabankastjóra, mun nær
örugglega missa hlut sinn í
icelandair yfir til Landsbankans
á næstunni.
Ríkið stærsti hluthafinn í
Icelandair Eftir atburði gærdagsins
er ríkið orðið stærsti hluthafinn í
icelandair í gegnum íslandsbanka en
þá leysti bankinn til sín hlutabréf 20
hluthafa með veðköllum.
Kampavínsklúbbur eiginkvenna
nokkurra helstu auðmanna þjóð-
arinnar er floginn frá Óman og aft-
ur til Bretlands. Konurnar yfirgáfu
Chedi-hótelið í borginni Muscat á
laugardag og sunnudag, samkvæmt
starfsmanni hótelsins. DV greindi
frá ferðum klúbbsins í síðustu viku
en konurnar dvöldu í vellystingum
á hótelinu frá síðasta miðvikudegi.
DV greindi frá því á miðvikudag-
inn að konurnar ættu pöntuð her-
bergi á hótelinu – starfsmaður þess
hafði staðfest það í samtali við blað-
ið – þar sem þær ætluðu að dvelja
fram á sunnudag. Eftir að konurn-
ar komu á hótelið fékk DV hins veg-
ar ekki að ræða við þær og fékk það
ekki staðfest að þær dveldu á hót-
elinu.
Talið var mögulegt að konurn-
ar hefðu afpantað herbergin eftir
að umfjöllun um lúxusferð þeirra
komst í hámæli, en nóttin á hótel-
inu kostar á bilinu 60 til 160 þús-
und krónur. Af orðum starfsmanns-
ins að dæma er hins vegar ljóst að
konurnar dvöldu á hótelinu.
Gleðirík dvöl
Dvöl kampavínsklúbbsins á hót-
elinu átti að einkennast af miklu
„gamni, glensi og gleði“ eins og
segir í ferðalýsingu sem DV hef-
ur undir höndum. Konurnar ellefu
ætluðu meðal annars að „chilla“ við
sundlaugina, stunda „sunset yoga“
og tennis, drekka „diet mohito“ og
kampavín, fá sér „shisha“ vatns-
pípu og fara í skoðunarferðir.
Ellefu konur voru boðaðar í
ferðina til Óman. Meðal þeirra voru
Guðrún Eyjólfsdóttir, eiginkona
Lýðs Guðmundssonar, Þuríður
Reynisdóttir, eiginkona Ágústs Guð-
mundssonar, Arndís Björnsdótt-
ir, eiginkona Sigurðar Einarssonar,
Linda Stefánsdóttir, fyrrverandi eig-
inkona Jóns Ásgeirs Jóhannesson r,
Sigríður Sól Björnsdóttir, eiginkona
Heiðars Más Guðjónssonar fyrrver-
andi framkvæmdastjóra hjá Novat-
or, og Þórdís Edwald, eiginkona Ár-
manns Þorvaldssonar fyrrverandi
forstjóra hjá Singer og Friedlander
í London.
Dóttir Einars Sveinssonar í
klúbbnum
Ekki er vitað hversu margar af kon-
unum fóru í ferðina en meðal þeirra
sem starfsmaður hótelsins staðfest-
ir að hafi gist á hótelinu eru Guðrún
Eyjólfsdóttir, Linda Stefánsdóttir
og Arndís Björnsdóttir. Nokkrar af
konunum fóru af hótelinu á laugar-
daginn en hinar á sunnudaginn.
Ein af konunum sem boðuð var í
ferðina er Ásta Sigríður Einarsdótt-
ir, dóttir Einars Sveinssonar fyrrver-
andi stjórnarformanns Glitnis. Ásta
Sigríður er 15 prósenta hluthafi
í eignarhaldsfélaginu Hrómundi
sem aftur er rúmlega þrjátíu pró-
senta eigandi Fjárfestingafélagsins
Máttar. Máttur átti 23 prósenta hlut
í Icelandair en Íslandsbanki leysti
til sín hlutabréf Máttar í Icelandair
í gær vegna ótryggra veða fyrir láni
sem Glitnir veitti félaginu á sínum
tíma til að fjármagna kaupin í flug-
félaginu.
Ekki er vitað hvort Ásta fór með
kampavínsklúbbnum til Óman
því DV hefur ekki náð af henni tali
en ljóst er að hlutur hennar í Hró-
mundi hefur rýrnað töluvert í verði
eftir atburði gærdagsins.
HLUTHAFI Í ICE-
LANDAIR Í KAMPA-
VÍNSKLÚBBNUM
Ásta Sigríður er 15
prósenta hluthafi í
eignarhaldsfélaginu
Hrómundi sem aftur er
rúmlega þrjátíu pró-
senta eigandi Fjárfest-
ingafélagsins Máttar.
InGI F. VILHjáLmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Konurnar gistu á hótelinu
Samkvæmt starfsmanni Chedi-hótelsins
í Óman gistu meðlimir kampavíns-
klúbbsins á hótelinu fram á sunnudag.
myndin er tekin við sundlaug hótelsins.
inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif-
stofustjóri Íþrótta- og tómstunda-
„Við lítum svo á að börnin séu
að taka þátt í formlegu frístunda-
starfi á frístundaheimilunum en
þar fer fram margs konar starf-
semi sem er sniðin að aldri þeirra
og þörfum. Þá taka ekki öll börn
sem sækja frístundaheimilin þátt
í öðru frístundastarfi og þótti
ástæða til að gefa foreldrum þeirra
möguleika á að nýta kortið til að
greiða niður dægradvölina. Það
skal þó tekið fram að full vistun á
frístundaheimili kostar um 8.000
Sveitarstjórn Rangárþings eystra hef-
ur samþykkt að verja 2,6 milljónum
króna í malbikun Móðeiðarhvolsveg-
ar að leigulóðum undir frístundahús í
landi Móeiðarhvols. Er það vegna þess
að tölvuvert blæs af malarveginum yfir
frístundahúsabyggðina. Einn af þeim
sem á hús í landinu er Davíð Oddsson,
fyrrverandi seðlabankastjóri, og kona
hans Ástríður Thorarensen.
Óeðlilegar framkvæmdir
Guðlaug Ósk Svansdóttir, sveitar-
stjórnarfulltrúi minnihlutans í Rang-
árþingi eystra, greiddi atkvæði gegn
framkvæmdunum ásamt Sólveigu Ey-
steinsdóttur.
„Þessum lóðum var úthlutað fyr-
ir nokkrum árum og það kemur ekk-
ert fram í samningi við kaupendur að
vegurinn verði malbikaður. Sveitar-
stjórn er búin að samþykkja að mal-
bika þennan veg og vill meina að
kaupendum hafi verið gefið loforð
um það. Þegar svona illa árar finnst
mér óeðlilegt að sveitarfélagið ráðist í
svona framkvæmd,“ segir Guðlaug.
Eigendur malbiki sjálfir
Guðlaug segir sveitarfélagið standa
ágætlega miðað við önnur sveitarfélög
í landinu en þó séu mörg mál brýnni
en malbikun vegar við frístundahús.
„Okkur bráðvantar meðal annars
nýjan leikskóla, dagvistunarúrræði
og félagsþjónustu fyrir aldraða. Það
eru ýmis mál sem þurfa meiri þunga
en að malbika veg fyrir frístundahúsa-
eigendur. Það er verið að hækka ýms-
ar álögur á íbúana í sveitarfélaginu, til
dæmis er búið að hækka leikskóla- og
fæðisgjöld í leikskólunum, þannig að
það er mjög óeðlilegt að það sé farið í
að malbika veg.
Ég skil það að fólk sem fær mik-
ið ryk af vegi yfir sig vilji láta malbika.
Ég tel að þessir eigendur ættu klárlega
að malbika sjálfir. Þeir eiga að stofna
félag um þessa byggð og fara í þessa
framkvæmd sjálfir á sínum eigin for-
sendum. Það eru margir sem sitja við
sama borð og vegir almennt í sveitar-
félaginu eru margir mjög slæmir.“
Að sögn Guðlaugar eru um tut-
tugu frístundahús í frístundabyggð-
inni á bökkum Eystri Rangár. Einn
af eigendum sumarhúss í landinu er
Davíð Oddsson, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, og kona hans Ástríður
Thorarensen. Guðlaug telur það ekki
hafa skipt neinu máli um samþykkt-
ina að Davíð eigi hús í landinu.
Ekki eingöngu fyrir Davíð
Ólafur Eggertsson, oddviti í Rangár-
þingi eystra, segir veru Davíðs Odds-
sonar í landi Móeiðarhvols ekki
koma þessu máli við.
„Þessi vegur er ekki eingöngu
fyrir Davíð Oddsson. Davíð Odds-
son býr langt frá þessu hverfi og
notar Suðurlandsveg frá Reykja-
vík austur í sveit. Hann notar
þennan veg þegar hann fer að
veiða í Rangá. Hann hafði eng-
in áhrif og það getur öll sveitar-
stjórnin vottað fyrir.“
Ólafur segir kostnað við
malbikun vegarins nema broti
af þeim tekjum sem sveitarfé-
lagið hefur haft af þessu svæði.
„Þeir sem hafa byggt í land-
inu hafa skilað verulegum gjöld-
um til sveitarfélagsins, um tut-
tugu til þrjátíu milljónum.
Við setjum 2,6 milljón-
ir í malbikunina, eða í
kringum tíu til fimmt-
án prósent af þeim
tekjum sem við erum
búin að hafa af þessu
svæði. Það var talað
um það þegar fyrstu
sumarbústaðaeigendur hófu bygging-
ar að þessi vegur yrði malbikaður og
við teljum að við séum ekki búin að
fullselja þessa vöru fyrr en það gerist.“
Bara smotterí
Ólafur segir önnur stefnumál sveit-
arstjórnar ekki frestast vegna þessara
framkvæmda.
„Þetta er bara smotterí. Að sjálf-
sögðu bætum við alla þjónustu hér og
erum stöðugt að gera það. Við vitum
að við þurfum að byggja upp leikskóla
og það er næsta verkefni. Þetta trufl-
ar ekki aðrar framkvæmdir. Íbúarnir
verða bara ánægðari og vilja búa hjá
okkur þegar við bætum umhverfið.“
VeiðiVegur DaVíðs
malbikaður
lilja Katrín gunnarsDÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Þessi vegur er ekki
eingöngu fyrir Davíð
Oddsson.“
Ekki í samningum
guðlaug segir það ekki
koma fram í samningi við
kaupendur lóða í landinu að
vegurinn verði malbikaður.
Fer í veiði davíð
Oddsson notar
móeiðarhvolsveg til
að fara í veiði í rangá.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur samþykkt að
verja 2,6 milljónum króna í malbikun vegar að sumarhúsum í landi
Móeiðarhvols. guðlaug Ósk svansdóttir sveitarstjórnarfulltrúi tel-
ur þessar framkvæmdir óeðlilegar og brýnna að byggja upp leikskóla
og félagsþjónustu fyrir aldraða. Davíð Oddsson á hús í landinu og
notar hann veginn þegar hann fer til veiða í Rangá.
hitt málið