Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 32
Föstudagur 22. maí 200932 Ferðir innanlands
FRÆÐSLA OG FJÖR Á
FRAMANDI SLÓÐUM
Gljúfursund, hellaferðir og ísklifur er brot af
þeim fjölmörgu ferðum sem Arctic Rafting
býður upp á. Torfi G. Yngvason, einn af eig-
endum Arctic Rafting, segir ferðirnar blöndu
af gríðarlegri skemmtun, einstakri upplifun
og fræðslu um landið. Ferðirnar eiga það líka
sameiginlegt að ferðalangar kynnast stöðum
sem örfáir hafa séð.
Þ
etta er rosalega flott. Al-
gjör snilldarferð og al-
veg svakalega skemmti-
leg. Þetta er mögnuð
ferð sem kemur mikið
á óvart,“ segir Torfi G. Yngvason,
einn af eigendum Arctic Rafting,
um gljúfursund, eða snorkeling
eins og það er oftast kallað.
Þessi skemmtilega ferð fer fram
í gjánni Silfru á Þingvöllum. Torfi
segir vatnið í Þingvallavatni engu
líkt og þreytist hann aldrei á þess-
ari ferð þótt hann hafi farið hana
hundrað sinnum.
„Silfra er einn af þeim stöðum í
heiminum þar sem er mest útsýni
neðan vatnsyfirborðsins. Snorklar-
ar og kafarar eru alltaf að leita að
hreinum sæ og hreinu vatni. Vatn-
ið í Þingvallavatni er svo ofboðs-
lega hreint og er útsýnið svakalega
mikið, um 80 til 120 metrar,“ segir
Torfi.
Engrar sérstakrar þekkingar á
snorkeling eða köfun er krafist í
ferðinni og nýtir fólk á öllum aldri
sér þessa áhugaverðu ferð.
„Maður þarf varla að kunna að
synda. Það er smá straumur í Silfru
þannig að maður líður út sprung-
una. Fólk er klætt í dúngalla, þurr-
galla yfir hann og neofren-hanska
og er líka með froskalappir. Það
eru aðallega útlendingar sem fara í
þessa ferð en fjöldi Íslendinga eykst
jafnt og þétt. Fólk á öllum aldri nýt-
ir sér þetta tækifæri – allt frá skóla-
hópum og upp í eldri borgara.“
Á Þingvöllum er líka hægt að
fara í hellaferð á vegum Arctic Raft-
ing og einnig er boðið upp á hella-
ferð í Bláfjöllum.
„Þetta eru mjög skemmtilegar
ferðir. Báðar ferðirnar eru þannig
að maður fer ofan í hellinn á ein-
um stað og kemur upp á öðrum
þannig að maður er að ferðast und-
ir jörðinni. Þetta er líka hálfgerð
jarðfræðiferð. Það fer mikill tími í
að útskýra hvernig Ísland verður
til, hvernig hellarnir verða til og
hvernig Ísland hefur mótast. Þetta
er mjög fræðandi og skemmtilegt.
Heimsókn á stað þar sem eiginlega
enginn hefur farið áður.“
Aðrar ævintýraferðir sem sam-
eina fjör og fræðslu eru jökul-
göngu- og ísklifursferðirnar á Sól-
heimajökul. Arctic Rafting býður
einnig upp á krefjandi jökul- og
fjallgöngur á Hvannadalshnjúk,
Eyjafjallajökul og Snæfellsjökul.
„Þessar ferðir eru þannig hann-
aðar að allir sem treysta sér í góða
gönguferð geta tekið þátt. Í þessum
ferðum er einnig mikil fræðsla um
jökla, loftslagsbreytingar og hvaða
áhrif þær hafa á jöklana okkar og
hvernig jöklar eru að hörfa,“ segir
Torfi.
Torfi þarf ekki að hugsa sig
tvisvar um þegar blaðamaður spyr
hver sé hans uppáhaldsferð hjá
Arctic Rafting.
„River rafting á Hvítá. Það er
búið að vera
vinsælasta
ferðin um árabil.
Maður er varla Ís-
lendingur nema mað-
ur hafi raftað á Hvítá.
Það er svo ofboðslega fal-
leg á og stendur okkur nærri.
Gullfoss er í Hvítá og þetta er
ein af fáum jökulám sem ekki er
búið að virkja. Flatt gljúfur, stutt frá
borginni, stökkklettur – æðislegur
staður.“
liljakatrin@dv.is
Hjá sumum snýst lífið bara um ís... Aðalstræti 3 - Akureyri
Leyndardómar hyl-
dýpisins Útsýnið í Silfru á
Þingvöllum er engu líkt.
Íslenskt, já takk! Allir
Íslendingar ættu að fara í
ævintýraferð á jökla landsins.
Alltaf vinsælast Rafting trón-
ir á toppnum yfir vinsælustu
ferðirnar hjá Arctic Rafting og
hefur gert um árabil.
mYndir ArTic rAfTinG