Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 34
Föstudagur 22. maí 200934 Ferðir innanlands söguslóðir Georgs Bjarnfreðarsonar íslenskur þjónustuaðili • • • • Elsta og líklega þekktasta sveitahót-el á landinu, Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit við Breiðafjörð, er komið á sjötugsaldur en hefur þó aldrei verið yngra. Barðstrendingafélagið í Reykjavík reisti Bjarkalund árið 1947 og skyldi hótelið vera áfangastaður á hinni löngu og erfiðu ferð milli landshluta, en þá var á sumrin tveggja til þriggja daga bílferð milli Reykjavíkur og suðursvæð- is Vestfjarða. Hótelið stendur í fögru og gróðursælu umhverfi á eiðinu milli Beru- fjarðar og Þorskafjarðar, rétt við þjóðveg- inn skammt vestan við afleggjarann út að Reykhólum. „Mikið upplifelsi“ Þáttaröðin Dagvaktin á Stöð 2, framhald Næturvaktarinnar vinsælu, gerðist í Bjarkalundi eins og flestir vita og reynd- ar víðar í Reykhólasveitinni. „Þetta var skemmtilegur en erfiður tími þegar upptökurnar fóru fram og mikið upplif- elsi fyrir okkur hérna“, segir Árni Sigur- pálsson hótelstjóri í Bjarkalundi. „Leik- ararnir og allir sem voru í kringum þetta voru alveg frábært fólk.“ Árni hefur þegar fundið fyrir auknum áhuga á hótelinu eftir að Dagvaktin var sýnd. „Fólk er mjög spennt að sjá stað- inn og er mikið að láta mynda sig þar sem ákveðnar senur voru teknar. Þetta er mjög gaman,“ segir hann. NetsaMbaNd á tjaldstæðiNu Bjarkalundur hefur tekið stakkaskiptum á síðustu misserum og nú er opið þar allt árið. Aðstaðan, jafnt utanhúss sem inn- an, hefur verið stórbætt, eldhúsið tekið í gegn, sjoppan löguð að nútímakröfum og kominn er vísir að smávöruverslun. Matseðillinn er vandaður og vínveiting- ar í boði. Til viðbótar hótelherbergjum og svefnpokaplássi hafa verið byggð nokkur ný smáhýsi rétt fyrir ofan hót- elið, hvert um sig með eldhúsi, salerni og sturtu. Í Bjarkalundi er bæði netsam- band og GSM-samband en svo var ekki til skamms tíma. Skammt frá hótelinu er tjaldsvæði og vel búin stæði fyrir tjaldvagna, hjól- hýsi og húsbíla. Nýtt þjónustuhús með salernum og sturtum hefur verið tekið í notkun. Sjálfsalar eru fyrir bensín og olíu. elsta fiskiræktiN Rétt neðan við Bjarkalund er Berufjarð- arvatn. Í það rennur Alifiskalækur. Nafn hans er þekkt úr fornritum og mun vera elsti vitnisburður um fiskirækt hérlend- is. Í vatninu gefst gestum kostur á því að renna fyrir afkomendur bleikjunnar sem þarna var alin fyrir þúsund árum. Árni veiðir sjálfur úr Beruvatni. „Við bjóðum upp á bleikju úr vatninu á veit- ingastaðnum,“ segir hann. Upp af Bjarkalundi eru Vaðalfjöll, tveir samvaxnir og afar sérkennileg- ir stuðlabergshnjúkar, liðlega 500 m á hæð. Margir ganga þangað upp til að skoða þessa stórfenglegu náttúrusmíð og njóta útsýnisins bæði yfir Breiða- fjörðinn og norður yfir Þorskafjörð. Jepplingaslóði liggur frá Bjarkalundi upp undir Vaðalfjöll. Auk þess eru fjöl- breyttar gönguleiðir við allra hæfi allt í kring. Jónsmessuhátíð er haldin í Bjarka- lundi á hverju sumri. Hún er fyrst og fremst ætluð fjölskyldufólki sem vill vera í friðsælum fagnaði á öruggum stað með börnunum. Aðeins eru 215 km frá Reykjavík vest- ur í Bjarkalund og bundið slitlag alla leið. erla@dv.is Aðdáendur Dagvaktarinnar hafa flykkst á Hótel Bjarkalund í Reykhólasveit. Árni Sigurpáls- son hótelstjóri segir fólk gjarnan láta mynda sig þar sem ákveðin atriði voru tekin upp og hefur hann fundið fyrir auknum áhuga gesta eftir sýningu þáttanna um Georg Bjarnfreðarson og Ólaf Ragnar. Fersk bleikja Hótel Bjarkalundur stendur við Beruvatn og á veitinga- staðnum er boðið upp á bleikju úr vatninu. Mynd Hlynur Þór Magnússon Dagvaktin og hótelstjórinn Georg Bjarnfreð- arson, Árni Sigurpálsson hótelstjóri, Ólafur Ragnar Hannesson og Lilja Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Dagvaktarinnar. MynD HlynuR ÞÓR MaGnúSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.