Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 80
n Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og
heyrt sem gerir út á að lífið verði
skemmtilegra, varð afi á uppstign-
ingardag þegar Lovísa, dóttir hans,
varð léttari og ól sveinbarn. Móður
og syni heilsast vel ekki síður en
afanum sem þarna fékk sitt fyrsta
barnabarn. Enn hefur drengurinn
ekki fengið nafn og því ekki vitað
hvort hann verður skírður eftir
afanum sem gjarnan er kallaður
EIR í samræmi við
fræga skamm-
stöfun nafns
síns. „Ég held að
þetta sé endur-
fæðing. Drengur-
inn er einkar vel
skapaður og ekki
kallaður annað
en Litli-Eirík-
ur,“ sagði Eiríkur
Jónsson í beinu
framhaldi fæð-
ingarinnar.
Ber af eins og
gull af EIR!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Kæru landsmenn. Hvers á þjóð-
in skilið af okkur, nýju þingi og nýj-
um þingmönnum?“ Svona hljóm-
uðu upphafsorð jómfrúarræðu
Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þing-
manns Samfylkingarinnar, á Alþingi
á mánudag. Sigmundur lét ekki þar
við sitja heldur ítrekaði spurning-
una og því útilokað að um mismæli
væri að ræða. Þetta orðalag fyrrver-
andi fjölmiðlamannsins hefur vakið
heitar umræður í bloggheimum þar
sem setningin er alls ekki rétt. Rétt
er að spyrja „hvað á þjóðin skilið af
okkur“.
Einhver knár fylgisveinn Sig-
mundar hefur greinilega rekið sig í
þessa ambögu því inni á vef Alþing-
is er búið að breyta þessari frægu
spurningu til rétts vegar. Samt sem
áður er flennistórt vatnsmerki yfir
ræðunni þar sem stendur „Óyfirles-
ið“ í hástöfum.
Eins og frægt er orðið skrifaði Sig-
mundur ævisögu Guðna Ágústsson-
ar sem hét því einfalda nafni „Guðni
– Af lífi og sál“. Líklegt er að þar hafi
Sigmundur spurt Guðna spjörunum
úr um hvað felist í því að vera alþing-
ismaður og punktað niður heilræði í
hvívetna. Hvort það er tilviljun eður
ei tók Guðni einmitt upp á því í fyrra
að breyta ræðu sinni inni á vef Al-
þingis líkt og Sigmundur.
Í viðtali við Vísi á þeim tíma segir
Guðni að breytingar á ræðum þing-
manna, frá því að þær falla í ræðu-
stólnum og þangað til þær enda á
vefnum, séu víst algengar. Það sé
réttur allra þingmanna að mega yf-
irfara ræður sínar. Það er þá líklega
það sem þjóðin á skilið af þeim.
EIR oRðInn afI Sigmundur Ernir Rúnarsson tekur málfræðimistök til baka á vef Alþingis:
TEkuR vIð kyndlInum af Guðna
n Kirkjunnar menn hafa ekki farið
varhluta af góða veðrinu sem hefur
glatt hjörtu landsmanna undan-
farna daga. Biskupsstofa ákvað að
gera vel við starfsfólk sitt á miðviku-
daginn og lokaði stofnuninni vegna
veðurs. Starfsmenn fengu þá kjörið
tækifæri til að sleikja sólina en þessi
sólríki frídagur hefði ekki getað
komið á betri tíma. Daginn eftir var
nefnilega sjálfur
uppstigningar-
dagur og það
segir sig sjálft að
þá þurfti bless-
að starfsfólk
Biskupsstofu
ekki að mæta
til vinnu.
lokað vEGna
vEðuRs
n Sykurpúðinn og athafnamaður-
inn Haffi Haff er duglegur að setja
skemmtileg myndbönd af sjálfum
sér á Facebook-síðu sína. Í einu af
því nýjasta segist hann aldrei taka
verðmiðana strax af fötum ef ske
kynni að hann vildi skila þeim.
Hann hvetur fólk til að gera slíkt
hið sama því óvíst er hvað framtíð-
in beri í skauti sér. Undir þessum
boðskap heyrist taktföst tónlist
sem Haffi dillar sér við enda er
hann músíkalskur með eindæm-
um - bæði þrusu-
góður söngvari
og knár dansari
eins og hann
sýnir í einleik
Péturs Jó-
hanns,
Sann-
leikan-
um.
safnaR
vERðmIðum
Opið laugardaga 10-14
Ræðusnillingar „hvernig
myndir þú segja þetta, guðni?“
gæti sigmundur verið að spyrja.