Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009 19Helgarblað
HVAÐ GERA ÞAU NÚ?
Alls féllu eða hættu sjálfviljugir 27 þingmenn á Alþingi í vor. Þau koma úr ýmsum greinum, en eiga það
öll sameiginlegt að þiggja biðlaun næstu mánuði eftir að hafa hætt á Alþingi. DV sló á þráðinn til fyrr-
verandi þingmanna til þess að forvitnast um framtíðaráform þeirra. Fá þeirra hafa tekið ákvörðun um
hvað þau ætla að taka sér fyrir hendur. Einn verður skólastjóri, annar ætlar að spila golf og önnur brást
öfugsnúin við og þverneitaði að gefa upp áform sín.
GUÐjóN A KRistjáNssoN
frjálsynda flokki
„Það er nú það. Fyrsta verkið mitt
er að halda áfram að skoða mál-
efni Frjálsynda flokksins og ganga
þar frá skuldum og semja um þær.
Við getum ekki borgað þær eins
og er núna. Það verkefni verð ég
að vinna næsta mánuðinn. “
EllERt b. scRHAm
samfylkingu
„Ég er mjög upptekinn af því að
gera ekki neitt. Spila golf, vera
með familíunni og anda rólega.“
GUÐfiNNA bjARNAdóttiR
sjálfsTÆÐisflokki
„Ég gef ekkert upp um það. Ekki
neitt.“
EiNAR máR siGURÐARsoN
samfylkingu
„Ég er búinn að ráða mig sem
skólastjóra Valsárskóla. Nú er ég,
eins og ég segi í gríni og alvöru,
að hefja endurhæfingu. Ég hef
áður verið skólastjóri, forstöðu-
maður skólaskrifstofu og setið í
menntamálanefnd þingsins.“
siGURÐUR KáRi
KRistjáNssoN
sjálfsTÆÐisflokki
„Ég er ekkert búinn að ákveða
það. Ég er bara að skoða þá
möguleika sem eru í stöðunni í
rólegheitunum og er ekkert að
flýta mér að því. Það er ýmislegt
sem kemur til greina.“
KARl V.mAttHíAssoN
frjálslynda flokki
„Ég fer í mitt fyrra starf, ég var
vímuvarnaprestur og ég mun
fara til þeirra starfa í haust þegar
sumarleyfum lýkur.“
HElGA s. HARÐARdóttiR
framsóknarflokki
„Ég held áfram í laganáminu
næsta vetur.“
GUNNAR sVAVARssoN
samfylkingu
„Það er enn ekkert ákveðið með
það. Ég er að hugsa minn gang
og það er betra að hugsa í sól og
blíðu. Ég hef verið tengdur rekstri
og fjármálum og geri ráð fyrir því
að kröftum mínum sé best varið
þar.“
mAGNÚs stEfáNssoN
framsóknarflokki
„Það er ekkert ákveðið. Ég er að
vinna að því að komast í starf.
Ég var sveitarstjóri í Grundarfirði
áður en ég settist á þing.“ En
hugnast honum sveitarstjórnar-
störf nú: „Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á sveitarstjórnarmálum.“
KRistiNN H. GUNNARssoN
framsóknarflokki
„Það liggur ekkert fyrir um það.
Það er óskrifað blað. Ég er ekkert
farinn að hugsa um það.“
KolbRÚN
HAlldóRsdóttiR
vinsTri grÆnum
„Ég er ekki búin að ákveða neitt
hvað ég er að fara.“
GRétAR mAR jóNssoN
frjálslynda flokknum
„Það er alveg óákveðið. Ég hef
verið með útvarpsþátt og verð
með hann í klukkustund á viku
á nýrri útvarpsstöð á tíðninni
100,5. Það er það eina sem er fast
í hendi.“
VAlGERÐUR
sVERRisdóttiR
framsóknarflokki
„Ég er nú bara í sveitinni minni
og þar er alltaf nóg að gera. Ég
sé fyrir mér að í sumar verði ég
bara hér á Lómatjörn að dytta að
ýmsu. Hér á ég heima.“
ARNbjöRG sVEiNsdóttiR
sjálfsTÆÐisflokki
„Ég er að ganga frá ýmsu sem
snýr að þingmannsstarfinu og er
að leita mér að vinnu. Það er allt
opið.“
ástA möllER
sjálfsTÆÐisflokki
„Það er ekki komið í ljós.“
iNGibjöRG sólRÚN
GíslAdóttiR
samfylkingu
„Verkefnið sem ég stend
andspænis er að ná heilsu. Ég
bara einhendi mér í það. Þetta
krefst vinnu og þolinmæði. Síðan
verður tíminn að leiða í ljós hvað
verður.“
Árni Mathiesen, Sjálfstæðisflokki
Árni hefur vent kvæði sínu í kross og hafið störf við dýralækningar eftir tæplega
tveggja áratuga hlé frá greininni. Ekki náðist í Árna.
Björn Bjarnason, Sjálfstæðisflokki
Björn svaraði ekki fyrirspurn DV. Hann var í vikunni kjörinn formaður Samtaka um
vestræna samvinnu. Björn er lögfræðingur að mennt.
Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu
Ágúst Ólafur ætlar í framhaldsnám erlendis. Fyrir er hann með háskólamenntun í
lögfræði og hagfræði. Ekki náðist í Ágúst Ólaf.
Geir H. Haarde, Sjálfstæðisflokki
Geir hefur átt við erfið veikindi að stríða og má búast við að á næstunni fari orka
hans í að ná bata. Ekki náðist í Geir.
Jón Magnússon, Sjálfstæðisflokki
Jón rak lögmannsstofu áður en hann gerðist þingmaður og hélt áfram lögmanns-
störfum meðfram þingmennsku. Ekki náðist í Jón.
Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingu
Lúðvík er lögfræðingur að mennt og hefur þegar fengið atvinnutilboð án þess að
hafa tekið því. Ekki náðist í Lúðvík.
Ármann Kr. Ólafsson, Sjálfstæðisflokki
Ármann er bæjarfulltrúi í Kópavogi og sinnti því meðfram þingstörfum. Ekki
náðist tal af honum.
Sturla Böðvarsson, Sjálfstæðisflokki
Sturla er húsasmíðameistari og með próf í raungreinum og byggingatæknifræði
frá Tækniskóla Íslands. Ekki náðist í Sturlu.
Kjartan Ólafsson, Sjálfstæðisflokki
Kjartan var áður viðriðinn ylrækt á Suðurnesjum. Ekki náðist tal af honum.
Björk Guðjónsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Björk er með gagnfræðapróf. Ekki náðist í hana.
Herdís Þórðardóttir, Sjálfstæðisflokki
Herdís er með sjúkraliðamenntun og er OPJ-þerapisti. Ekki náðist í Herdísi.