Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 34
Föstudagur 22. maí 200934 Ferðir innanlands
söguslóðir Georgs
Bjarnfreðarsonar
íslenskur þjónustuaðili
• • • •
Elsta og líklega þekktasta sveitahót-el á landinu, Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit við Breiðafjörð, er komið á sjötugsaldur en hefur þó
aldrei verið yngra. Barðstrendingafélagið
í Reykjavík reisti Bjarkalund árið 1947 og
skyldi hótelið vera áfangastaður á hinni
löngu og erfiðu ferð milli landshluta, en
þá var á sumrin tveggja til þriggja daga
bílferð milli Reykjavíkur og suðursvæð-
is Vestfjarða. Hótelið stendur í fögru og
gróðursælu umhverfi á eiðinu milli Beru-
fjarðar og Þorskafjarðar, rétt við þjóðveg-
inn skammt vestan við afleggjarann út að
Reykhólum.
„Mikið upplifelsi“
Þáttaröðin Dagvaktin á Stöð 2, framhald
Næturvaktarinnar vinsælu, gerðist í
Bjarkalundi eins og flestir vita og reynd-
ar víðar í Reykhólasveitinni. „Þetta var
skemmtilegur en erfiður tími þegar
upptökurnar fóru fram og mikið upplif-
elsi fyrir okkur hérna“, segir Árni Sigur-
pálsson hótelstjóri í Bjarkalundi. „Leik-
ararnir og allir sem voru í kringum þetta
voru alveg frábært fólk.“
Árni hefur þegar fundið fyrir auknum
áhuga á hótelinu eftir að Dagvaktin var
sýnd. „Fólk er mjög spennt að sjá stað-
inn og er mikið að láta mynda sig þar
sem ákveðnar senur voru teknar. Þetta
er mjög gaman,“ segir hann.
NetsaMbaNd á tjaldstæðiNu
Bjarkalundur hefur tekið stakkaskiptum
á síðustu misserum og nú er opið þar allt
árið. Aðstaðan, jafnt utanhúss sem inn-
an, hefur verið stórbætt, eldhúsið tekið
í gegn, sjoppan löguð að nútímakröfum
og kominn er vísir að smávöruverslun.
Matseðillinn er vandaður og vínveiting-
ar í boði. Til viðbótar hótelherbergjum
og svefnpokaplássi hafa verið byggð
nokkur ný smáhýsi rétt fyrir ofan hót-
elið, hvert um sig með eldhúsi, salerni
og sturtu. Í Bjarkalundi er bæði netsam-
band og GSM-samband en svo var ekki
til skamms tíma.
Skammt frá hótelinu er tjaldsvæði
og vel búin stæði fyrir tjaldvagna, hjól-
hýsi og húsbíla. Nýtt þjónustuhús með
salernum og sturtum hefur verið tekið
í notkun. Sjálfsalar eru fyrir bensín og
olíu.
elsta fiskiræktiN
Rétt neðan við Bjarkalund er Berufjarð-
arvatn. Í það rennur Alifiskalækur. Nafn
hans er þekkt úr fornritum og mun vera
elsti vitnisburður um fiskirækt hérlend-
is. Í vatninu gefst gestum kostur á því
að renna fyrir afkomendur bleikjunnar
sem þarna var alin fyrir þúsund árum.
Árni veiðir sjálfur úr Beruvatni. „Við
bjóðum upp á bleikju úr vatninu á veit-
ingastaðnum,“ segir hann.
Upp af Bjarkalundi eru Vaðalfjöll,
tveir samvaxnir og afar sérkennileg-
ir stuðlabergshnjúkar, liðlega 500 m á
hæð. Margir ganga þangað upp til að
skoða þessa stórfenglegu náttúrusmíð
og njóta útsýnisins bæði yfir Breiða-
fjörðinn og norður yfir Þorskafjörð.
Jepplingaslóði liggur frá Bjarkalundi
upp undir Vaðalfjöll. Auk þess eru fjöl-
breyttar gönguleiðir við allra hæfi allt í
kring.
Jónsmessuhátíð er haldin í Bjarka-
lundi á hverju sumri. Hún er fyrst og
fremst ætluð fjölskyldufólki sem vill
vera í friðsælum fagnaði á öruggum stað
með börnunum.
Aðeins eru 215 km frá Reykjavík vest-
ur í Bjarkalund og bundið slitlag alla
leið.
erla@dv.is
Aðdáendur Dagvaktarinnar
hafa flykkst á Hótel Bjarkalund í
Reykhólasveit. Árni Sigurpáls-
son hótelstjóri segir fólk gjarnan
láta mynda sig þar sem ákveðin
atriði voru tekin upp og hefur
hann fundið fyrir auknum áhuga
gesta eftir sýningu þáttanna um
Georg Bjarnfreðarson og Ólaf
Ragnar.
Fersk bleikja Hótel Bjarkalundur
stendur við Beruvatn og á veitinga-
staðnum er boðið upp á bleikju úr
vatninu. Mynd Hlynur Þór Magnússon
Dagvaktin og hótelstjórinn Georg Bjarnfreð-
arson, Árni Sigurpálsson hótelstjóri, Ólafur Ragnar
Hannesson og Lilja Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Dagvaktarinnar. MynD HlynuR ÞÓR MaGnúSSon