Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Qupperneq 4
Föstudagur 22. maí 20094 Fréttir
Sandkorn
n Þorsteinn Gunnarsson, fyrr-
verandi íþróttafréttamaður og
núverandi formaður knatt-
spyrnudeildar Grindavíkur, virð-
ist vera afskaplega illa upplýstur
um hvað er að gerast hjá Grinda-
víkurliðinu.
Þegar DV
fékk veður af
því snemma
á miðviku-
dag að Milan
Stefán Jank-
ovic væri að
víkja til hlið-
ar sem þjálf-
ari hafði DV samband við Þor-
stein sem sagði ekkert slíkt vera
að gerast. Nokkrum klukkutím-
um síðar var Lúkas Kostic kynnt-
ur til sögunnar sem nýr þjálfari
Grindavíkurliðsins og sagði í við-
tali við Fótbolti.net að fyrst hefði
verið rætt við hann kvöldið áður.
Því hlýtur að vakna sú spurning
hvort stjórnin sé klofin og aðrir
stjórnarmenn hafi leynt Þorstein
hvað væri að gerast eða þá að...
n Rekstur Lýðvarpsins virðist ekki
hafa gengið alveg sem skyldi.
Allavega eru nokkrir fyrrverandi
starfsmenn ósáttir við að hafa
ekki fengið greidd laun og gekk
meðal annarra framkvæmda-
stjóri stöðvarinnar út af þeim
sökum.
Sumir þeirra
sem telja sig
svikna voru
bæði í aug-
lýsingasölu
og söfnun
meðmæla
fyrir Lýð-
ræðishreyf-
inguna. Aðalhvatamaðurinn að
stofnun stöðvarinnar kannast
þó ekkert við neina óánægju og
segist ekkert koma að rekstrinum
núna. Sá er Ástþór Magnússon
sem fór í sólina á Spáni og hefur
verið í símasambandi við stöðina
í þættinum frettavakt.is í hádeg-
inu á virkum dögum.
n Fjárlaganefnd Alþingis auglýsir
núna eftir erindum frá félögum,
samtökum og einstaklingum sem
ætla að sækja um styrk til nefnd-
arinnar fyrir næsta ár. Áhugasam-
ir geta sent inn erindi til 15. júní.
Þó er hætt
við því að
heldur færri
fái nú en
áður vegna
yfirvofandi
niðurskurðar.
Það má því
búast við að
Guðbjartur
Hannesson, formaður nefndar-
innar, og aðrir nefndarmenn eigi
eftir að sitja sveittir yfir því ekki
aðeins að fara yfir niðurskurð-
artillögur ráðuneyta heldur líka
við að neita styrkbeiðnum sem
aldrei fyrr.
Stjórnendur Skipta hf., þeirra á meðal Brynjólfur
Bjarnason forstjóri félagsins, hafa tapað nær öllum
eignum sínum í Exista hf. Brynjólfur á sjálfur Lamba
ehf. Skuldir einkahlutafélagsins gætu hæglega verið ná-
lægt einum milljarði króna eftir bankahrunið á sama tíma
og eignir þess eru að engu orðnar. Meginhlutverk Lamba
ehf. er sauðfjár- og geitarækt og kaup og sala
á fasteignum og verðbréfum. „Lítill tími
gefist í búskap,“ segir Brynjólfur.
Skuldug geitarækt
forStjóranS
á arnarneSi
Lambi, einkahlutafélag í eigu
Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra
Skipta, skuldaði 700 milljón-
ir króna í árslok 2007. Skuldirnar
gætu hæglega verið um eða yfir
milljarður króna hafi þær verið í
erlendum gjaldmiðlum. Á sama
tíma eru eignir félagsins í Exista
hf. orðnar nánast verðlausar.
Lambi ehf. er skráð á heimili
Brynjólfs og eiginkonu hans Þor-
bjargar K. Jónsdóttur í Mávanesi
í Garðabæ. Yfirlýstur tilgangur
Lamba er sauðfjár- og geitarækt
og kaup og sala fasteigna og verð-
bréfa. „Því miður hefur lítill tími
gefist í búskap en hver veit hvað
framtíðin ber í skauti sér,“ seg-
ir Brynjólfur í svörum sínum við
spurningum DV.
Brynjólfur segir að Lambi ehf.
hafi átt 1,6 prósenta hlut í Skiptum.
„Samkvæmt tilkynningu til Kaup-
hallarinnar 31. mars 2008 gekk fé-
lagið að yfirtökutilboði Exista og
fékk fyrir hlutabréf í Exista.“
Hrun eignanna
Samkvæmt ársreikningi félagsins
skuldaði það rétt um 700 milljón-
ir eins og áður segir. Á sama tíma
voru eignir þess um 561 milljón
króna. Hafi skuldirnar verið í er-
lendri mynt að hluta eða öllu leyti
má ætla að þær nemi að minnsta
kosti einum milljarði króna nú.
Félagið tapaði árið 2007 tæp-
um 87 milljónum króna og voru
skuldir umfram eignir þá um 132
milljónir króna.
Í skýrslu með ársreikningi
Lamba ehf. fyrir þetta sama ár
kemur fram að félagið hafði átt
hluti í Símanum hf. Þeim var skipt
út fyrir hlutabréf í Skiptum hf.,
móðurfélagi Símans. Nafnverð
þeirra þá var um 120 milljónir
króna.
Skömmu eftir að Skipti hf. voru
sett á markað í mars í fyrra gerði
Exista yfirtökutilboð í allt hluta-
fé Skipta á genginu 6,64. Gengið
í Exista var þá skráð 10,1. Flest-
ir hluthafar í Skiptum gengu að
tilboðinu og eignuðust þannig
hluti í Exista. Samkvæmt skýrslu
Brynjólfs sjálfs voru öll hlutabréf
Lamba í Skiptum hf. notuð til þess
að kaupa hluti í Exista hf. á þess-
um tíma. Nafnverð hlutanna í
Exista nam liðlega 78 milljónum
króna. Á þeim tíma var markaðs-
verð um tífalt meira, eða 780 millj-
ónir króna. DV hefur ekki upplýs-
ingar um á hvaða gengi Brynjólfur
keypti bréfin í Exista.
Ljóst má vera að eign Brynjólfs
Bjarnasonar og annarra sem að
tilboðinu gengu er því sem næst
að engu orðin. Eins og fram hef-
ur komið stendur Exista mjög illa.
Fyrir skemmstu gerðu Bakkavar-
arbræður; Lýður og Ágúst Guð-
mundssynir, yfirtökutilboð í Exista
og buðust til að greiða hluthöfum
tvo aura á hlut. Samkvæmt því er
eign Brynjólfs og Þorbjargar í Ex-
ista nánast að engu orðin.
Þræðir ehf.
Þræðir ehf. er félag í 47 prósenta
eigu Skipta og lykilstjórnenda fé-
lagsins; Kristínar Guðmunds-
dóttur fjármálastjóra (10), Páls
Ásgrímssonar lögfræðings og
framkvæmdastjóra hjá Skiptum
(7) og Sævars Freys Þráinsson-
ar, forstjóra Símans hf. (7). Stjórn
Þráða skipa Brynjólfur Bjarnason,
framkvæmdastjóri félagsins, og
bræðurnir Lýður og Ágúst Guð-
mundssynir, aðaleigendur Exista.
Samkvæmt ársreikningi Þráða
námu skuldir félagsins í árslok
2007 um 128 milljónum króna og
félagið tapaði um 15 milljónum
króna það ár. Heildareignir þess
voru metnar á 337 milljónir króna
og eignir umfram skuldir liðlega
200 milljónir. Þræðir eignuð-
ust hlut í Símanum hf. árið 2006.
Skipti lánaði Þráðum 150 milljónir
króna til kaupa á hlutum í félaginu
sjálfu árið 2007. Jafnframt eignað-
ist Skipti hluti í Þráðum.
Brynjólfur segir að eignarhald
á Lamba ehf. og Þráðum ehf. sé
í stórum dráttum eins og það var.
„Fjárhagsleg staða þessara félaga
er augljóslega erfið en engar kröf-
ur hafa verið afskrifaðar vegna
þeirra,“ segir Brynjólfur í svari
við spurningum DV. Hann kveðst
ekki ræða persónuleg fjármál sín í
fjölmiðlum þegar hann er spurð-
ur um persónulegar ábyrgðir á
skuldum Lamba ehf.
Rífleg mánaðarlaun
Athygli vekur að í svokallaðri
starfskjaranefnd Skipta hf. áttu
sæti Lýður Guðmundsson, Rann-
veig Rist og Panikos Katsouris á
þessum tíma. Samvæmt leiðbein-
andi reglum Kauphallarinnar er
ráð fyrir því gert að nefndin sé að
meirihluta skipuð óháðum aðil-
um. Á meðfylgjandi töflu má sjá
greiðslur til stjórnenda í samræmi
við ákvarðanir starfskjaranefnd-
ar Skipta hf. Samkvæmt þeim má
ætla að tekjur Brynjólfs hjá fé-
laginu hafi verið 4,5 til 5 milljón-
ir króna á mánuði árið 2007 og
hugsanlega lengi eftir það. Lífeyr-
isgreiðslur eru þar meðtaldar.
Brynjólfur Bjarnason var ráð-
inn forstjóri Landssíma Íslands
2002 þegar fyrirtækið var einka-
vætt. Hann hafði þá verið for-
stjóri útgerðarfélagsins Granda
hf. Brynjólfur var forstjóri hjá Al-
menna bókafélaginu 1976-1983.
Hann tengist svonefndum Eim-
reiðarhópi, en flestir meðlima
hópsins hafa verið valdamenn
innan Sjálfstæðisflokksins síðasta
aldarfjórðung. Nefna má Davíð
Oddsson, Geir H. Haarde, Friðrik
Sophusson, Baldur Guðlaugsson
og Hannes Hólmstein Gissurar-
son sem allir tilheyrðu umrædd-
um valdahópi.
Ljóst má vera að eign
Brynjólfs Bjarnasonar
og annarra sem að
tilboðinu gengu er
því sem næst að
engu orðin.
JóHann Hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Laun stjórnar og æðstu stjórnenda
starFskjaraneFnd skipta hF. ákvarðar starFskjör æðstu stjórnenda.
Framkvæmdastjórn skipta hf Laun
milljónir
Hlunnindi Bónus Lífeyrir Hlutir í
eigin nafni
Hlutir í inn-
herjafélögum
Brynjólfur Bjarnason Frk.stj. 40,8 1,7 5.0 11 47.740 119.115.229
kristín guðmundsdóttir 21,5 1,4 1,5 0,45 4.288.148
sævar Freyr Þráinsson 19,8 1,6 1,6 114.351 2.855.907
páll ásgrímsson 114.351 2.855.907
stjórn skipta hf
Lýður guðmundsson 5,6
rannveig rist 2,8
sigurgeir Brynjar kristgeirsson 2,8
panikos katsouris 2,8
erlendur hjaltason 2,8
Athygli vekur að fulltrúar starfskjaranefdnar Skipta hf. eru jafnframt í stjórn félagsins.
Forstjórinn hrunið kemur við pyngju
Brynjólfs því hann á Lamba ehf. einn og
hlut í Þráðum ehf. þar sem hann situr í
stjórn ásamt Bakkavararbræðrum.
aðsetur Lamba ehf. einkahlutafélag Brynjólfs Bjarnasonar er
skráð til heimilis í mávanesi í garðabæ. Yfirlýstur tilgangur félagsins
er sauðfjár- og geitarækt og viðskipti með fasteignir og verðbréf.
Dagsflutnigar
897 8866
Dagur bílstjóri
dagur@dagsflutningar.com
www.dagsflutningar.com
Þjónusta einstaklinga og fyrirtæki
Hvar sem er hvenær sem er
2 tonna lyfta
Rafmagnstjakkur
Heilopnun