Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Page 10
Ari Matthíasson leikari sagðist fyr-
ir stuttu í Silfri Egils hafa verið við-
staddur kynningu Kaupþings á vog-
unarsjóðnum GIR Capital Investment
fyrir tíu árum. Sjóðurinn var skráður
á Caymaneyjum í mars árið 2000. Á
fundinum var viðstöddum tjáð að þeir
myndu fá arðgreiðslur tvisvar á ári og
þær væri hægt að fá greiddar inn á
reikninga hvar sem er í heiminum.
Lífeyrissjóðir tóku þátt
Samkvæmt heimildum DV var nokk-
ur fjöldi fulltrúa frá íslenskum lífeyr-
issjóðum viðstaddur fundinn. Sam-
kvæmt ársreikningum Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóðs
hjúkrunarfræðinga, Lífeyrissjóðs
starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyris-
sjóðs Vestmannaeyja, Lífeyrissjóðs
bænda og Lífeyrissjóðs Norðurlands
(nú Stapi) fjárfestu þeir í vogunar-
sjóðnum sem skráður er á Cayman-
eyjum.
„Þeir eiga að fjárfesta í áhættulaus-
um fjárfestingum. Þeirra eina hlut-
verk er að hugsa til lengri tíma og að
geta staðið undir lífeyrisskuldbinding-
um sínum,“ segir Ari Matthíasson að-
spurður hvað honum finnist um allan
þann fjölda íslenskra lífeyrissjóða sem
fjárfesti í vogunarsjóðnum.
„Það stingur dálítið í augu að líf-
eyrissjóðir séu að skipta við svona sjóð
sem skráður er á skattaparadísareyj-
um eins og Caymaneyjum. Mér fyndist
þess vegna eðlilegt að skoða það hvort
slíkar fjárfestingar séu eðlilegar,“ segir
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.
Sjóðurinn í rannsókn
Vogunarsjóðurinn var nokkuð í frétt-
um fyrir stuttu eftir að Ari sagði frá
honum í Silfri Egils. Eftir yfirlýsingar
Ara í þættinum ákvað embætti skatt-
rannsóknarstjóra að rannsaka kynn-
ingu Kaupþings. Ari tjáði DV að hann
hefði verið kallaður í yfirheyrslu.
Í samtali við DV segir Bryndís
Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri
að í framhaldi af yfirlýsingum Ara hafi
embættið tekið skýrslur af nokkrum
einstaklingum. „Það hefur samt eng-
inn fengið réttarstöðu grunaðs manns
vegna þessarar kynningar,“ segir hún. Í
framhaldi af því var skoðað hvort þeir
sem fjárfestu í GIR-sjóðnum hefðu
greitt skatta af fjárfestingum sínum.
„Það er verið að vinna í því,“ segir
Bryndís.
Kynntu skattsvikasérfræðing
Í Silfri Egils sagði Ari frá því að á fund-
inum hefðu þeir Sigurður Einars-
son og Hreiðar Már Sigurðsson kynnt
GIR-sjóðinn. Þar upplýstu þeir
fundargesti um að sjóður-
inn myndi greiða út
arðgreiðslur tvisv-
ar á ári. Þær væri
hægt að fá borg-
aðar inn á reikn-
inga hvar sem
er í heiminum.
Nefndu þeir
ýmis lönd þar
sem gilti banka-
leynd. Fljótlega
kæmi til lands-
ins sérfræðing-
ur Kaupþings
frá Lúxem-
borg sem gæti
aðstoðað við að stofna hlutafélög er-
lendis.
Við borð Ara sátu þeir Brynjólf-
ur Bjarnason, þáverandi forstjóri
Granda, Sigurður Einarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Kaupþings,
Þorsteinn Vilhelmsson, þáverandi
eigandi Samherja, Einar Sveinsson,
þáverandi framkvæmdastjóri Sjóvár,
auk eins fulltrúa lífeyrissjóðs sem Ari
kannaðist ekki við.
Í samtali við DV segist Ari Matthías-
son ekki geta fullyrt um hversu margir
fulltrúar frá lífeyrissjóðum landsins
hafi verið á fundinum. Fundinn sátu
um 30 manns. „Mér fannst það hins
vegar mjög skrýtið að við borðið hjá
mér væri fulltrúi frá lífeyrissjóði,“ segir
hann. Hvorki náðist í Sigurð Einarsson
né Hreiðar Má Sigurðsson við vinnslu
fréttarinnar.
Sjóðurinn ennþá starfræktur
„Sjóðurinn er ennþá starfandi en hefur
ekki verið opinn fjárfestum í þó nokk-
urn tíma. Hann var lokaður fyrir fjár-
festa löngu fyrir bankahrunið,“ segir
Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Kaupþings. Árið 2000
yfirtók GIR-sjóðurinn Fóðurblönduna
ásamt Eignarhaldsfélaginu GB. Árið
2002 keypti sjóðurinn 15 prósenta hlut
í Frjálsa fjárfestingabankanum.
Minnist ekki sjóðsins
„Ég minnist þess ekki,“
segir Ögmundur Jón-
asson heilbrigðisráð-
herra aðspurður
hvort hann muni
eftir því að Líf-
eyrissjóður
starfsmanna
ríkisins (LSR)
hafi fjárfest
í vogunar-
sjóðnum GIR
Capital Invest-
ment árið 2000.
Þar að auki
minnist hann
ekki að hafa vitað
af tilvist vogunar-
sjóðsins á þessum
tíma. Á þeim tíma
var Ögmund-
ur stjórnar-
formaður
LSR.
„Mér finnst það af og frá,“ sagði Ög-
mundur þegar honum var tjáð að GIR-
sjóðurinn væri ennþá starfræktur hjá
Kaupþingi. Segist hann alltaf hafa haft
miklar efasemdir um fjárfestingar líf-
eyrissjóða í vogunarsjóðum og hafa
gagnrýnt það.
LSR fjárfesti í sjóðnum
„Nei, ég var ekki á honum og það
var enginn frá okkur á honum,“ segir
Haukur Hafsteinsson, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins (LSR), aðspurður hvort hann eða
einhver frá LSR hafi verið staddur á
fundinum sem Ari segist hafa sótt fyr-
ir tíu árum. Eftir viðtal Egils Helgason-
ar við Ara Matthíasson hafði Haukur
samband við starfsmenn sem unnu
í eignastýringu á þeim tíma sem Ari
sótti fundinn og könnuðust þeir ekki
við að hafa verið viðstaddir fundinn.
Hann segir að þegar þeir byrjuðu
með séreignaleiðina hafi hún ver-
ið boðin út og hafi Kaupþing séð um
ávöxtun hennar á árunum 1999 til
2002. Kaupþing hafi því fjárfest í GIR-
sjóðnum fyrir hönd LSR. Árið 2000
átti LSR 36 milljónir í GIR-sjóðnum
og var sú upphæð komin í 54 milljónir
árið 2002. LSR tók síðan yfir séreigna-
leiðina árið 2003. Frá þeim tíma hefur
sjóðurinn ekki átt í GIR-sjóðnum.
Launalækkun til skoðunar
Laun hjá yfirmönnum lífeyrissjóða
hafa verið nokkuð í umræðunni und-
anfarið. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri
Lífeyrissjóðs verslunarmanna, til-
kynnti í síðustu viku að hann hefði
ákveðið að láta af störfum. Til stóð að
lækka laun Þorgeirs úr 30 milljónum á
ári í 12 milljónir. Í stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar
er sú stefna mörk-
uð að engin ríkis-
laun verði hærri
en laun forsæt-
isráðherra. Laun
Hauks voru 19,8
milljónir í fyrra,
eða 1.650 þús-
und á mánuði.
Haukur
segist ekki
hafa fengið
nein fyrirmæli
um að lækka
laun sín en mál-
ið sé hins vegar til
skoðunar hjá stjórn
sjóðsins.
34 milljarða
eignarýrnun
Eignir LSR og Lífeyris-
sjóðs hjúkrunar-
fræðinga rýrnuðu um 34 milljarða
króna í fyrra. Fóru úr 340 milljörðum
í upphafi árs 2008 niður í 306 milljarða
í lok árs. Í upphafi árs 2008 var eign-
arhlutur sjóðanna í Kaupþingi tæpir
tuttugu milljarðar króna. Nam hlutur-
inn nálægt sex prósentum af heildar-
eignum sjóðanna. „Þetta
var innan fjárfestinga-
heimilda sjóðsins.
Mat okkar á þess-
um tíma var að
eignarhlutur-
inn væri eðli-
legur. Í kjölfar
bankahruns-
ins er eðlilegt
að menn taki
fjárfestinga-
stefnuna til
endurskoð-
unar. Einn
þáttur í því
verður örugg-
lega að athuga
hvort endur-
skoða eigi hvað
sjóðurinn megi
eiga mikið í ein-
staka fyr-
irtæki,“
segir
Haukur.
Hins vegar verði að skoða þetta í
samhengi. Miklar hækkanir hafi orðið
á hlutabréfum undanfarin ár. Sjóður-
inn átti bréf í bæði Búnaðarbankanum
og Kaupþingi áður en fyrirtækin sam-
einuðust. „Í árslok 2001 námu eignir í
hlutabréfum um átta milljörð-
um króna. Í árslok 2007
nam verðmæti hluta-
bréfasafnsins um 52
milljörðum króna
þrátt fyrir að við
hefðum einungis
notað þrjá millj-
arða króna til
hlutabréfakaupa
á þessu tímabili,“
segir hann.
Föstudagur 22. maí 200910 Fréttir
Lífeyrissjóðir fjárfestu
í sjóði á Caymaneyjum
Margir íslenskir lífeyrissjóðir fjárfestu í vogunarsjóðnum GIR Capital Investment sem skráður er á Cayman-
eyjum. Sjóðurinn er ennþá starfandi hjá Kaupþingi. „Það stingur dálítið í augu að lífeyrissjóðir séu að skipta
við svona sjóð,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Sjóðurinn var kynntur á Hótel Holti fyrir tíu
árum. Sjóðurinn er í rannsókn hjá embætti skattrannsóknarstjóra.
annaS SiGMundSSon
blaðamaður skrifar: as@dv.is
„Það stingur dálítið í
augu að lífeyrissjóðir
séu að skipta við svona
sjóð sem skráður er á
skattaparadísareyjum.“
Minnist ekki sjóðsins ögmundur Jónasson
heilbrigðisráðherra segir að sér hafi ekki verið
kunnugt um fjárfestingar Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins í vogunarsjóði Kaupþings.
Hvað eR voGunaRSjóðuR?
Svar Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra á Vísindavefnum:
með hugtakinu vogunarsjóður (e. hedge fund) er yfirleitt átt við sjóð sem notar
lántöku eða svokallaða skortstöðu í tilteknum eignum til að afla fjár til kaupa á
öðrum eignum. með skortstöðu er átt við að sjóðurinn fær verðbréf að láni frá
öðrum og selur þau til að afla fjár.
íslenska heitið vísar til þess að slíkir sjóðir taka alla jafna vogaða (e. leveraged)
stöðu í tilteknum eignum, það er fjármagna kaup á þeim að minnsta kosti að
hluta með öðru en eigin fé.
Yfirleitt eru vogunarsjóðir lokaðir almenningi. Ein skýring á því er að nokkuð ríkar
kröfur eru gerðar um upplýsingagjöf til sjóða sem seldir eru almenningi og það
hentar vogunarsjóðum illa, enda vilja þeir halda spilunum þétt að sér. önnur
skýring er að þessir sjóðir taka oft mikla áhættu og það hentar helst fjársterkum
aðilum sem geta staðið af sér talsvert tap.
Sat ekki fundinn Haukur
Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins,
segist ekki hafa verið á kynningu
Kaupþings á vogunarsjóðnum á
Hótel Holti.
MYnd SiGtRYGGuR aRi jóHannSSon
umdeilt „Það
stingur dálítið í
augu að lífeyris-
sjóðir séu að skipta
við svona sjóð,“ segir
gylfi magnússon
viðskiptaráðherra.