Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Page 12
Föstudagur 22. maí 200912 Fréttir
Þrýstingurinn á Gunnar Birgisson,
bæjarstjóra í Kópavogi, náði nýj-
um hæðum í vikunni þegar Fram-
sóknarflokkurinn, samstarfsflokkur
Sjálfstæðisflokksins í meirihlutan-
um í bæjarstjórn, ræddi um að slíta
samstarfinu við Gunnar vegna tug-
milljóna greiðslna frá Kópavogs-
bæ til útgáfufyrirtækis í eigu dóttur
bæjarstjórans. En DV greindi frá því
um miðjan apríl að Frjáls miðlun,
útgáfufyrirtæki Brynhildar Gunn-
arsdóttur, dóttur Gunnars, hefði
fengið greiddar 40 milljónir króna
frá Kópavogsbæ fyrir ýmsa útgáfu-
starfsemi á síðustu sex árum, með-
al annars fyrir verk sem ekki hefðu
verið kláruð eða gefin út.
Sama dag og DV skrifaði fréttina
um greiðslurnar til dóttur Gunnars,
sem byggð var á öruggum heim-
ildum blaðsins, lögðu tveir af bæj-
arfulltrúum Samfylkingarinnar í
Kópavogi fram fyrirspurn á bæjar-
ráðsfundi þar sem farið var fram á
að starfsmenn bæjarins tækju sam-
an upplýsingar um öll viðskipti bæj-
arins við fyrirtæki dótturinnar tíu ár
aftur í tímann. Í síðustu viku var svo
lögð fram skýrsla um greiðslurnar á
bæjarráðsfundi þar sem kom fram
að fyrirtækið hefði fengið greidd-
ar rúmar 50 milljónir frá bænum á
síðustu tíu árum. Á sama fundi var
samþykkt, einróma, tillaga um að
láta endurskoðendur Kópavogsbæj-
ar rannsaka viðskipti bæjarins við
Frjálsa miðlun og mun niðurstað-
an liggja fyrir innan tveggja vikna.
Þessar upplýsingar hafa svo leitt til
þess að meirihlutasamstarfið í bæn-
um er nú ótryggt því framsóknar-
menn virðast draga heilindi Gunn-
ars í efa. Þeir hafa þó gefið það út að
þeir hyggist bíða þar til niðurstað-
an í úttektinni á viðskiptunum liggi
fyrir á næstu tveimur vikum áður en
þeir taka ákvörðun um framtíð sam-
starfsins.
Katrín boðar rannsókn hjá LÍN
Ofan á þessa úttekt á viðskiptum
Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun
bætist svo við að Katrín Jakobsdótt-
ir menntamálaráðherra gaf það út á
miðvikudaginn í samtali við DV að
hún hefði beðið stjórnarformann
Lánasjóðs íslenskra námsmann
(LÍN), Harald Guðna Eiðsson, að
láta endurskoðendur rannsaka við-
skipti sjóðsins við Frjálsa miðlun
á þeim tíma sem Gunnar Birgis-
son var stjórnarformaður LÍN, á ár-
unum 1991 til 2009. DV greindi frá
því í síðasta mánuði að Frjáls miðl-
un hefði fengið greiddar rúmar 11
milljónir króna frá LÍN á þeim tíma
sem Gunnar var stjórnarformaður.
Katrín segir aðspurð að úttekt LÍN
á sjóðnum muni líklega ekki taka
langan tíma. Þess má einnig geta
að Katrín lét það verða eitt af sínum
fyrstu verkum að skipa nýja stjórn
yfir LÍN þegar hún tók við sem ráð-
herra fyrr á árinu og batt hún þar
með enda á 18 ára setu Gunnars í
stjórninni.
Bæjarstjórinn hefur hins vegar
oftsinnis áður verið nefndur í tengsl-
um við spillingu, vafasama stjórn-
unarhætti og ýmis hneykslismál á
liðnum árum en sú umræða hefur
alltaf dáið út því ekki hafa legið fyrir
nægjanlegar sannanir gegn Gunnari
til að hægt hafi verið að hanka hann.
Gunnar hefur af þessum sökum ver-
ið uppnefndur „Sópranus“ af and-
stæðingum sínum en bæjarstjórinn
er stundum sagður reka bæjarfélag-
ið eins og sitt eigið fjölskyldufyrir-
tæki og hefur þetta leitt til þess að
hörðustu gagnrýnendur hans kalla
Kópavog „New Jersey Íslands“.
Einn heimildarmaður DV seg-
ir að spillingarorðsporið hafi alltaf
fylgt Gunnari því hann sé fyrirferð-
armikill orðhákur sem alltaf hafi
verið í sviðsljósinu og milli tann-
anna á fólki enda sé hann og verði
alltaf afskaplega umdeildur maður.
Viðskiptin við Klæðningu
verði einnig rannsökuð
Áður en umræðan um Frjálsa miðl-
un komst í hámæli í fjölmiðlum í
síðasta mánuði hafði helst verið tal-
að um að Gunnar hafi hyglað verk-
takafyrirtæki sínu, Klæðningu, frá
því hann varð formaður bæjarráðs
Kópavogs árið 1991og fram á okkar
dag. Klæðning vann alls kyns verk-
takavinnu fyrir hönd bæjarins á
meðan Gunnar átti það, en hann dró
sig út úr félaginu þegar það rambaði
á barmi gjaldþrots árið 2003 og var
endurfjármagnað af nýjum hlut-
höfum. Gunnar stofnaði Klæðn-
ingu árið 1986 en hann er doktor
í jarðvegsfræði og hefur stundum
sagt í gríni um sjálfan sig að hann
sé „doktor í drullu“. Það vekur hins
vegar athygli að Kópvogsbær hafði
ekki átt í miklum viðskiptum við
Klæðningu áður en Gunnar tók sæti
í bæjarstjórn Kópavogs árið 1990.
Gagnrýnin sem sett var fram á
viðskipti Kópavogsbæjar við Klæðn-
ingu gekk út á það að ekki væri eðli-
legt að samið væri án útboðs við
verktakafyrirtæki sem var í eigu og
laut stjórn formanns bæjarráðs en
þetta var gert allt til ársins 2000 þeg-
ar verklagsreglunum var breytt og
byrjað var að notast meira við útboð
í bænum en áður hafði verið gert.
Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Kópavogi, seg-
ir að á þessum tíma hafi minnihlut-
inn fengið að sjá lista með yfirliti
um viðskipti Klæðningar við bæinn.
„Við litum alltaf svo á að upplýsing-
arnar í þessum listum væru réttar.
En miðað við að þær upplýsingar
sem við fengum um kostnaðinn við
ársskýrslu bæjarins voru ekki réttar
INgI F. VILhjáLmssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
KÓNGURINN Í KÓPAVOGI RIÐAR TIL FALLS
Pólitískir dagar gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi,
þykja vera taldir vegna umfjöllunar um tugmilljóna greiðslur
til fyrirtækis dóttur hans frá Kópavogsbæ. Hneykslismálið er þó
aðeins eitt af mörgum á umdeildum ferli bæjarstjórans og kann
að vera að gömul spillingarmál komi upp á yfirborðið í kjölfarið.
Gunnari er lýst sem bæði „gulli og grjóti“ af heimildarmanni DV
því hann þykir bæði harður og óbilgjarn en einnig afar ljúfur á
köflum. Bæjarstjórinn er sagður stjórnandi af gamla skólanum:
hvatvís, óbilgjarn, frekur en hörkuduglegur.
n 14. apríl 2009 Bæjarfulltrúar
samfylkingarinnar í Kópavogi óska
eftir því á bæjarráðsfundi að teknar
verði saman greiðslur frá Kópavogs-
bæ til Frjálsrar miðlunar
n 15. apríl 2009 dV greinir frá því
að Frjáls miðlun hafi fengið rúmlega
40 milljónir króna í greiðslur frá
Kópavogsbæ á síðustu sex árum,
meðal annars fyrir ókláruð verk
n 22. apríl 2009 dV greinir frá því
að Frjáls miðlun hafi fengið rúmar 11
milljónir króna frá Lánasjóði íslenskra
námsmanna (LíN) á meðan gunnar
Birgisson var stjórnarformaður
n 12. maí 2009 Kópavogsbær setur
sér siðareglur sem ná yfir bæjarfull-
trúa og stjórnendur hjá Kópavogsbæ
n 14. maí 2009 Lögð fram skýrsla
á bæjarráðsfundi um viðskipti
Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun.
Þar kemur fram að þau nemi rúmlega
50 milljónum á 10 ára tímabili.
samþykkt að láta endurskoðendur
fara yfir viðskipti bæjarins við félagið
n 19. maí 2009 Framsóknarmenn í
Kópavogi funda um greiðslurnar til
dóttur gunnars og hvort flokkurinn
eigi að slíta stjórnarsamstarfinu
n 20. maí 2009 Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra greinir frá því
að stjórn LíN muni rannsaka greiðslur
frá sjóðnum til Frjálsrar miðlunar í
stjórnarformannstíð gunnars
n 20. maí 2009 sjálfstæðismenn
í Kópavogi funda og ræða meðal
annars um greiðslurnar til Frjálsrar
miðlunar.
n 21. maí 2009 Ljóst er að sjálfstæð-
ismenn í Kópavogi eru ósáttir við
umfang greiðslnanna. Framsóknar-
og sjálfstæðismenn segjast ætla að
bíða eftir úttektinni á viðskiptunum
við Frjálsa miðlun áður en ákvarðanir
verði teknar.
Helstu Hneykslis-
og spillingarmálin
n rúmlega 50 milljóna króna
greiðslur til Frjálsrar miðlunar frá
Kópavogsbæ.
n rúmlega 11 milljóna króna
greiðslur til Frjálsrar miðlunar frá LíN.
n Verkin sem verktakafyrirtækið
Klæðning fékk frá Kópavogsbæ
meðan gunnar átti það.
n Hótanir gunnars í garð
verktakafyrirtækisins ÓgBYgg sem
dV hefur greint frá.
n Eignarhluturinn í Klæðningu
sem geymdur er hjá Kaupþingi í
Lúxemborg og dV hefur greint frá.
n Kaup Kópavogsbæjar á hesthúsum
í eigu gunnars og fjölskyldu á
gustssvæðinu.
n gunnar tekinn ölvaður undir
stýri í október 2002 eftir heimsókn
á strippstaðinn goldfinger
– ráðherradraumar gunnars dóu í
kjölfarið.
n myndir teknar af gunnari á
goldfinger.
skítapólitík? gunnar Birgisson hefur ítrekað kallað fyrir-
spurnir guðríðar arnardóttur og félaga hennar í samfylking-
unni í Kópvogi um Frjálsa miðlun „skítapólitík“. Fyrirspurnir
bæjarfulltrúanna um Frjálsa miðlun hafa orðið til þess að
margir innan sjálfstæðisflokksins í Kópavogi velta því nú fyrir
sér hvort gunnar geti setið áfram sem bæjarstjóri.