Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Page 13
er ástæða til að skoða þessi viðskipti
aftur í tímann til að ganga úr skugga
um hversu umfangsmikil þau voru,“
segir Flosi en samanburður hans
á þeim gögnum um viðskiptin við
Frjálsa miðlun sem lögð voru fram
í bæjarráði í síðustu viku sýna fram
á að minnihlutinn fékk rangar upp-
lýsingar þegar spurst var fyrir um
kostnað við gerð ársskýrslu Kópa-
vogsbæjar fyrir nokkrum árum, þar
munar um hálfri milljón króna.
Aldrei náðist hins vegar að sanna
að Gunnar hefði gerst sekur um
spillingu vegna viðskipta Klæðn-
ingar og Kópavogsbæjar þó að orðr-
ómurinn hafi verið hávær og margir
sem veltu því fyrir sér hvort Gunnar
hyglaði eigin fyrirtæki.
Ljósmyndarinn fékk
minna en Frjáls miðlun
Eins og er á hið sama við um við-
skiptin við Frjálsa miðlun þó að
vissulega sé það nýbreytni að hafa
skjalfestar upplýsingar um Gunnar
sem bendi til óeðlilegra viðskipta-
hátta. Samkvæmt öruggum heim-
ildum DV er eitt af því sem er óeðli-
legt við viðskipti Kópavogsbæjar við
Frjálsa miðlun að fyrirtækið hafi
fengið margfalt meira greitt fyrir
ljósmyndir sem það lét undirverk-
taka, ljósmyndarann Guðmund Ing-
ólfsson, taka fyrir sig í nokkrum til-
fellum en ljósmyndarinn sjálfur fékk
greitt frá Frjálsri miðlun. Félag dótt-
ur Gunnars virðist því hafa stungið
mismuninum í vasann. Þetta er eitt
af þeim atriðum sem endurskoð-
endur bæjarins munu væntanlega
skoða en það vekur spurningar af
hverju ekki er gengið beint til samn-
inga við ljósmyndara.
DV hafði samband við Guð-
mund Ingólfsson og spurði hann
hvort greiðslurnar sem hann fékk
frá Frjálsri miðlun hafi verið lægri
en upphæðirnar sem félagið fékk
frá bænum. Guðmundur vildi hins
vegar ekki tjá sig um málið í samtali
við blaðið.
Samkvæmt heimildum blaðsins
var það auk þess algengt að Frjáls
miðlun fengi greitt fyrir myndirnar
sem fyrirtækið seldi til Kópavogs-
bæjar í hvert skipti sem þær voru
notaðar, til dæmis myndir sem tekn-
ar voru úr ársskýrslum bæjarins.
2,5 milljónir fyrir
ljósmyndir í IKEA-römmum
Annað sem tortryggt hefur verið
í viðskiptum bæjarins við Frjálsa
miðlun er að fyrirtækið hefur á síð-
ustu sex árum fengið tæpar 2,5 millj-
ónir fyrir umhverfisviðurkenningar
sem árlega eru veittar fimm aðilum.
Viðurkenningarnar eru innrömmuð
A-4-blöð í IKEA-römmum og þykja
fáfengilegar. Samkvæmt heimildum
DV ákvað skipulagsstjóri bæjarins,
Birgir Sigurðsson, að dóttir Gunn-
ars ætti alltaf að sjá um að gera um-
hverfisviðurkenningarnar þrátt fyrir
að ýmsir aðrir starsmenn bæjarsins
væru á móti því. Fyrrverandi starfs-
maður í stjórnsýslunni í Kópavogs-
bæ segir að viðurkenningarnar séu
„djók“. „Þetta voru bara myndir sem
teknar voru og settar inn í ramma.
Þetta er núll og nix,“ segir viðmæl-
andinn og bætir því við að það sé
alls ekki svo mikil vinna á bak við
viðurkenningarnar.
„Bæði gull og grjót“
En þrátt fyrir spillingarumræðuna
um Gunnar og þá staðreynd að hann
er einn umdeildasti stjórnmála-
maður á Íslandi eru lýsingar fólks á
honum auðvitað alls ekki einhlítar
og er hann sagður vera „stórbrotinn
karakter“ af einum heimildarmanni
DV. „Ég heyrði einhvern segja um
Gunnar: Hann er bæði gull og grjót.
Ég held að það sé hægt að taka und-
ir það,“ segir heimildarmaður sem
þekkir Gunnar vel. „Hann getur
bæði verið alveg svakalega harður,
heiftúðugur, hefnigjarn og alveg of-
boðslega frekur en svo getur hann
líka haft mjög stórt hjarta ef hann
sér eitthvað aumt. Hann er auðvit-
Nýjar siðareglur Kópavogsbæjar
samþyKKtar 12. maí síðastliðiNN
n 5. gr. Misbeiting valds.
„Kjörnir bæjarfulltrúar og stjórnendur mega ekki beita réttindum eða aðstöðu
sem fylgja embætti þeirra í þágu einkahagsmuna sinna eða annarra í því skyni
að geta notið óbeinna eða beinna persónulegra hagsbóta af því. Einnig skulu
þeir gæta þess að nýta sér ekki óopinberar upplýsingar til að hagnast á þeim
persónulega eða að hjálpa öðrum að gera það.“
n11. gr. Stöðuveitingar
„Kjörnum bæjarfulltrúum ber að koma í veg fyrir að einstaklingum sé veitt
starf eða stöðuhækkun hjá sveitarfélaginu á öðrum forsendum en hæfni til
að rækja starfið og gæta þess, þegar þeir koma sjálfir að ákvörðun um val á
starfsmönnum, að hæfasti umsækjandinn hljóti starfið.“
Föstudagur 22. maí 2009 13Fréttir
KÓNGURINN Í KÓPAVOGI RIÐAR TIL FALLS
Bæjarstjórinn í kröppum dansi Framsóknarflokk-
urinn, samstarfsflokkur sjálfstæðisflokksins í meirihlut-
anum í bæjarstjórn Kópavogs, gaf það út í vikunni að
flokkurinn hygðist mögulega endurskoða samstarfið
við sjálfstæðisflokkinn vegna viðskipta bæjarsins við
Frjálsa miðlun í stjórnartíð gunnars Birgissonar.
Framhald á
næstu síðu
Bæjarstjórinn í kröppum dansi Framsóknar-
flokkurinn, samstarfsflokkur sjálf tæðisflokksins
meirihluta um í bæjarstjórn Kópavogs, gaf
það út í vikunni að flokkurinn hygði t ögulega
endurskoða samstarfið i sjálfstæðisflokkinn
vegna viðskipt bæjarsins við F jálsa miðlun í
stjórnartíð gunnars Birgissonar.