Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Síða 14
Föstudagur 22. maí 200914 Fréttir
að mannlegur og getur verið ósköp
ljúfur og lagt lykkju á leið sína til að
aðstoða fólk,“ segir heimildarmað-
urinn og bætir því við að bæjarstjór-
inn sé „álíka góður við vini sína og
hann getur verið vondur við óvini
sína“.
Annar heimildarmaður DV tekur
undir þetta og segir að undir hrjúfu
yfirborði Gunnars leynist viðkvæm
sál. „Gunnar Birgisson er ekki vond
manneskja en hann getur ver-
ið ósanngjarn gagnvart þeim sem
gagnrýna hann. Við sjáum þetta í
umræðunni um Frjálsa miðlun að
hann er fljótur að ráðast á andstæð-
inga sína og væna þá um skítapól-
itík á sama tíma og hann fagnar því
að verið sé að skoða viðskipti bæj-
arins við félagið. Þetta er ansi mót-
sagnakennt en Gunnar er afar hvat-
vís maður,“ segir viðmælandinn
og bætir því við að Gunnar hafi til
dæmis farið algerlega fram úr sér
í viðskiptum bæjarsins við Frjálsa
miðlun.
Flosi segir að helsti kostur Gunn-
ars sé að það sé alltaf hægt að treysta
því sem hann lofar; að allir samn-
ingar sem hann hafi gert við hann í
gegnum tíðina hafi staðið.
Samkvæmt heimildarmönnum
DV mun eiginkona Gunnars, Vigdís
Karlsdóttir, einnig vera mikil önd-
vegiskona og segir einn þeirra að
manni sem eigi svo góða konu sé
ekki alls varnað en þau hjónin eiga
saman tvær dætur, þær Auðbjörgu
Agnesi og áðurnefnda Brynhildi.
Ryðst og treðst
Einn heimildarmaður DV segir að
Gunnar ryðjist og troðist til að ná
markmiðum sínum. „Hann er dríf-
andi keppnismaður sem vill klára
hlutina mjög fljótt. Mér finnst hann
stundum fara fram úr sér. Sum-
ir stjórnmálamenn hugsa bara og
pæla og gera ekki neitt en Gunnar
er alls ekki þannig því hann lætur
verkin tala. Þess vegna er eftirspurn
eftir mönnum eins og Gunnari því
hann er svo duglegur en sennilega
er best að það fari meira saman að
menn hugsi um hlutina og hrindi
þeim í framkvæmd.“
Flosi segir að Gunnar sé mikill
dugnaðarmaður sem komi miklu í
verk, sem sést meðal annars á hinni
miklu uppbyggingu sem átt hefur
sér stað í Kópavogi á síðustu árum,
en að hann sé jafnframt ótrúlega
óvæginn og ósvífinn í málflutningi.
„Miðað við hvað hann er ósvífinn
oft á tíðum er einkennilegt hvað
hann er viðkvæmur fyrir gagnrýn-
um umræðum um sjálfan sig. Hann
er ekki eins og margir stjórnmála-
menn sem eru stóryrtir sem taka vel
við því á móti. Hann myndi aldrei
sitja undir því sem hann segir um
aðra,“ segir Flosi.
Biðlað til auðmanna
Dugnaður og vilji Gunnars til fram-
kvæmda sést meðal annars á því að
í miðju íslenska góðærinu ákvað
Kópavogsbær að reisa óperuhús
í bænum með peningum frá fjár-
sterkum einkaaðilum og var það
Gunnari mikið keppikefli að húsið
yrði reist. Jón Helgi Guðmundsson í
BYKO mun hafa verið sá auðmaður
sem ætlaði að veita hæsta styrkinn í
byggingu hússins og sat hann einnig
í nefnd sem sett var á laggirnar um
bygginguna.
Eftir að bygging hússins komst
á dagskrá mun Gunnar Birgisson
hafa leitað til margra einstaklinga
og beðið þá um að leggja verkefn-
inu lið. Í einhverjum tilfellum hafði
hann þann háttinn á, samkvæmt
traustum heimildum DV, að funda
með auðugu fólki sem vildi flytja
í Kópavoginn þar sem ýjað var að
því að það gæti orðið því til góða
að styrkja byggingu óperuhússins;
meðal annars að það gæti hjálp-
að því að fá betri lóð undir íbúðar-
hús sitt í bænum fyrir vikið. Þessi
beiðni bæjarstjórans var ekki lögð
fram berum orðum heldur var lát-
ið í þetta skína óbeint. Öllum sem
sátu þessa fundi með bæjarstjóran-
um mun hins vegar hafa verið ljóst
hvert Gunnar var að fara. Engar
heimildir eru hins vegar um hversu
margir þessir fundir voru né hverj-
ar undirtektirnar voru en einhverj-
um mun þó hafa blöskrað framferði
bæjarstjórans kappsama.
Samkvæmt heimildum DV
er einnig talið að rannsaka þurfi
greiðslur frá einkafyrirtækjum til
stjórnmálaflokka í Kópavogi, með-
al annars frá verktakafyrirtækjun-
um BYGG, Ris og JB. verktökum.
Talið er að þessi fyrirtæki hafi styrkt
Sjálfstæðisflokkinn um mjög háar
fjárhæðir á liðnum árum en á sama
tíma hafa þau verið mjög umsvifa-
mikil í verktakaframkvæmdum í
bænum og fengið mikið af góðum
lóðum úthlutað.
Pólitísk risaeðla
Einn heimildarmaður DV segir að
stjórnunarhættir eins og Gunnars
eigi ekki upp á pallborðið á Nýja
Íslandi og því sé þjóðin miklu við-
kvæmari nú fyrir slíkum málum
sem lykta af spillingu en fyrir nokkr-
um árum. Þó segir hann að hann sé
ekki viss um að Gunnar eigi á hættu
að þurfa að hætta sem bæjarstjóri
vegna viðskipta bæjarins við Frjálsa
miðlun. „Ef þetta væri stjórnmála-
maður í ríki á meginlandi Evrópu
væri hann í mikilli hættu á að þurfa
að yfirgefa stólinn. En miðað við ís-
lenskar hefðir er hann ekki í neinni
hættu því það er afar sjaldgæft að
menn segi af sér hér á landi,“ seg-
ir heimildarmaðurinn. Hann bætir
því við að Gunnar sé grófur „karl-
apólitíkus“ sem vaði áfram og að
hann passi illa inn í þá umræðu
um lýðræði, gegnsæi og samræður
í stjórnmálum sem nú ríði röftum í
samfélaginu. „Hann er dálítið eins
og risaeðla í pólitíkinni í dag. Bara
eins og hann er á velli.“
Flosi tekur undir þetta sjónarmið
að hluta þegar hann segir að Gunn-
ar sé fulltrúi gamalla gilda í stjórn-
sýslu. „Hann er ekkert ofboðslega
mikið gefinn fyrir reglu og formfestu
í rekstri. Hann stjórnar ofboðslega
miðlægt: allt fer í gegnum hann,“
segir Flosi. Hann segir að þetta hafi
bæði sína kosti og galla því með
þessu móti hafi hann góða yfirsýn
og veiti fjármálum og starfsmönn-
um bæjarins mikið aðhald með
því að vera með nefið ofan í hvers
manns koppi.
„Honum finnst að hann einn eigi
að ráða öllu og hann ber litla virð-
ingu fyrir skoðunum annarra. Hann
beitir meirihlutaræðinu mjög stíft.
Það er mjög merkilegt að heyra bæj-
arstjóra allra Kópavogsbúa segja það
oftsinnis á bæjarstjórnarfundum að
honum sé alveg sama hvað minni-
hlutinn segir. Hann segir: „Mér er
alveg sama hvað þau segja; þetta
eru bara kommúnistar.“ Hann hefur
oft kallað mig kommúnista í gegn-
um tíðina,“ segir Flosi sem setið hef-
ur í bæjarstjórninni síðan 1998.
Talið að umfjöllunin
leiði ekki til stjórnarslita
Heimildarmönnum DV ber sam-
an um að þrátt fyrir umræðuna um
spillinguna í kringum Gunnar Birg-
isson sé afar ólíklegt að Framsókn-
arflokkurinn slíti samstarfinu í bæj-
arstjórn við Sjálfstæðisflokkinn en
flokkarnir hafa verið saman í stjórn
í bænum síðastliðin nítján ár. Ómar
Stefánsson, bæjarfulltrúi framsókn-
armanna, hefur einnig gefið það
út að meirihlutasamstarfið sé ekki
ótraust og að meirihlutinn hafi gert
góða hluti í bænum. Þó mun flokk-
urinn bíða með að taka ákvarðanir
um framhaldið þar til niður-
staða liggur fyrir úr út-
tekt endurskoðend-
anna. Í samtali við DV
segir Samúel Örn Er-
lingsson varabæjar-
fulltrúi að flokkurinn
gefi ekkert út um
málið fyrr en niður-
staða úttektarinnar
liggur fyrir.
Heimilda-
menn blaðsins
segja að hvað sem komi út úr úttekt-
inni sé afar ólíklegt að Ómar verði
hvatamaður að því að slíta sam-
starfinu. Þar er meðal annars talið
að hann hafi ekki nægilegt pólitískt
þor né dug til að fara gegn Gunnari
á slíkan hátt.
Allt brjálað í
Sjálfstæðisflokknum
Af samtölum DV við frammámenn
í Sjálfstæðisflokknum í Kópa-
vogi er mikil undrun og
óánægja með málið inn-
an flokksins því þeir
gerðu sér ekki grein
fyrir því að viðskipti
Kópavogsbæjar
við Frjálsa miðlun
hefðu verið svona
mikil á síðustu
árum. Sjálfstæð-
ismenn virðast
vera hneykslaðir
á framferði Gunn-
ars og taka marg-
ir flokksmenn djúpt
í árinni þegar þeir
ræða um málið,
án þess að
þeir vilji láta hafa það eftir sér undir
nafni opinberlega.
Heimildarmönnum DV ber flest-
um saman um að miklu líklegra sé
að pólitískur þrýstingur á Gunnar
innan úr Sjálfstæðisflokknum muni
leiða til stjórnarslita eða að Gunn-
ari verði hreinlega ýtt út úr flokkn-
um vegna hneykslisins í kringum
Frjálsa miðlun og myndi það þá
byggjast á ótta við að vera Gunn-
ars í honum sverti flokkinn og
gæti komið sér illa í kom-
andi bæjarstjórnar-
kosningum á næsta
ári. En fyrir síð-
ustu bæjarstjórn-
arkosningarnar
þurfti flokkurinn
að glíma við um-
deilda fylgju
Gunnars
og varð það
flokknum ekki til
framdráttar. Einn
sjálfstæðismaður-
inn orðar það sem
svo að „róðurinn sé
heldur að þyngjast“
og á hann þar við að
staða Gunnars
versni
nú á milli daga. Heimildarmönnum
DV ber því saman um að Gunnar
ætti að hafa miklu meiri áhyggjur af
sínum eigin flokki á næstunni en af
samstarfsflokknum í stjórninni auk
þess sem Gunnar hefur alltaf ver-
ið umdeildur í flokknum og hefur
meðal annars aldrei hlotið meira en
50 prósent atkvæða í prófkjöri.
Sjálfstæðismenn segja að inn í
viðhorf flokksmanna spili að fólk
líti allt öðruvísi á slík spillingarmál
í íslenskum stjórnmálum en gert var
fyrir efnahagshrunið í haust; það
sem menn hefðu kannski komist
upp með fyrir tveimur árum komast
þeir ekki upp með í dag; fólk sé orð-
ið þreytt á vafasömum stjórnunar-
háttum og spillingu og vilji að byrj-
að verði með hreint borð.
Þrátt fyrir kurrinn munu sjálf-
stæðismenn í Kópavogi, líkt og
framsóknarmennirnir, hins veg-
ar ætla að bíða eftir niðurstöðunni
úr úttekt endurskoðenda bæjarins
á viðskiptunum við Frjálsa miðlun
áður en ákvarðanir verða teknar um
framhaldið og er málið sagt vera í
biðstöðu. Samflokksmenn Gunn-
ars leggja hins vegar mikla áherslu
á að rannsókn málsins verði hraðað.
Hins vegar er það að verða ljóst að
Gunnari Birgissyni er vart sætt sem
bæjarstjóri í Kópavogi eftir að þetta
hneykslismál kom upp, hvern-
ig svo sem fráhvarf hans verður
útfært. Kóngurinn í Kópavogi
riðar nú til falls þrátt fyrir að
opinberar yfirlýsingar sjálf-
stæðismanna í Kópavogi
segi annað um þessar
mundir.
Greiðslur til
Frjálsrar miðlunar
ÁR UPPhæð
2003 6.636.422
2004 4.979.510
2005 8.094.225
2006 6.668.755
2007 6.044.625
2008 6.990.725
AllS 39.414.262
lætur rannsaka viðskipti lÍN við félagið Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra greindi frá því í vikunni að hún hefði beðið
stjórnarformann LíN að láta gera úttekt á viðskiptum sjóðsins við
Frjálsa miðlun. menn hafa velt því fyrir af hverju gunnar, sem er
með doktorspróf í jarðvegsverkfræði og kallar sjálfan sig „doktor
í drullu“ í gríni, hafi verið formaður lánasjóðsins í næstum 20 ár.
Biðlað til auðmanna tengsl gunnars við fjársterka aðila eins og Jón
Helga guðmundsson, aðaleiganda BYKO, og burðug verktakafyrirtæki
eins og BYgg og ris hafa löngum verið í umræðunni. Jón Helgi mun
meðal annars hafa lofað hæsta fjárstyrknum vegna byggingar óperuhúss
í bænum sem nú er dottin upp fyrir.