Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Page 18
Föstudagur 22. maí 200918 Fréttir
Samkvæmt nýrri skýrslu voru nauð-
ganir og annað kynferðislegt ofbeldi
landlæg á stofnunum sem reknar
voru undir verndarvæng kaþólsku
kirkjunnar á Írlandi, hvort sem um
var að ræða svonefnda vinnuskóla
eða stofnanir fyrir munaðarleysingja.
Skýrslan er afrakstur níu ára rann-
sókna og í henni kemur fram að þús-
undir drengja og stúlkna upplifðu
hrylling undir ægihrammi kaþólskra
presta og nunna á Írlandi.
Skýrslan byggist á framburði þús-
unda fyrrverandi vistmanna og starfs-
manna á yfir tvö hundruð og fimmtíu
stofnunum sem starfræktar voru af
kirkjunni.
Yfir 30.000 börn sem höfðu verið
brennimerkt smáþjófar, höfðu gerst
sek um að skrópa í skóla eða komu
frá vandræðaheimilum – en sá flokk-
ur náði gjarna til einstæðra mæðra
– enduðu innan vébanda stofnana á
borð við vinnuskóla, endurhæfingar-
heimili og munaðarleysingjahæli, þar
sem strangur agi tíðkaðist. Þetta við-
gekkst frá 1930 fram undir lok síðustu
aldar, þegar síðustu stofnununum var
lokað.
Sólarhrings aðgengi
Thomas Wall, munaðarleysingi frá
Limerick, reifaði dvöl sína í endur-
hæfingarskóla í Glin í Limerick-sýslu,
sem rekinn var af Christian Brothers-
reglunni, í viðtali við Shane Harrison,
fréttaritara BBC á Írlandi. Þriggja ára
að aldri var Wall sendur á stofnunina
af glæpadómstóli.
„Frá átta ára aldri sætti ég kyn-
ferðislegu ofbeldi af hálfu reglubróð-
ur í Glin... Ef þeim líkaði við einhvern
var sá kominn í hættu, þú varðst skot-
mark. Og það var ekki nokkur leið að
forðast það... ég meina, þeir höfðu
aðgang að þér tuttugu og fjóra tíma á
sólarhring,“ sagði Thomas Wall.
Tom Hayes lenti, tveggja ára að
aldri, í sama skóla og Thomas Wall og
hafði svipaða sögu að segja, en í hans
tilfelli varð hann fórnarlamb eldri
drengja í skólanum: „Það var algengt
að vakna á næturnar við að einhver
var að eiga við þig kynferðislega.“
Hayes sagði að hann hefði glatað
öllu trausti til kaþólsku kirkjunnar, að
hann væri kristinn en ekki kaþólskur.
„Ég sagði skilið við mína kaþólsku trú
við skólahliðið,“ sagði Hayes.
Andrúmsloft ofbeldis
Patrick Walsh var tveggja ára þegar
bernsku hans lauk. Walsh var færður
fyrir dómstól ásamt tveimur bræðr-
um hans, þriggja og fjögurra ára, og
sex ára systur. Glæpurinn var sá að
móðir þeirra var í hamingjulausu
hjónabandi og hafði yfirgefið eigi-
mann sinn.
„Hún var metin seki aðilinn af ríki
og kirkju,“ sagði Walsh í viðtali við
Times. „Pabbi minn afneitaði henni
því hún vildi skilnað, sem var ólögleg-
ur. Við vorum sett á sakamannabekk,
ákærð og dæmd fyrir að „eiga foreldri
sem sýndi af sér vanrækslu“,“ sagði
Walsh.
Minningar næstu fjórtán ára eru
litaðar af líkamlegu og kynferðislegu
ofbeldi, hungri, ótta og bjargarleysi í
Artane-vinnuskólanum skammt frá
Dyflinni, sem rekinn var af Christian
Brothers-reglunni.
„Þegar ég kom til Artane 1953 voru
þar 450 drengir og þar var andrúms-
loft ofbeldis. Heimilið var einnig not-
að fyrir unga afbrotamenn, þannig
að við urðum ekki aðeins bráð reglu-
bræðranna heldur einnig dýrslegra
gengja,“ sagði Patrick Walsh um dvöl
sína.
Hentugleikasamband kirkju og
ríkis
Patrick Walsh lýsti kerfinu sem hann
lenti í klónum á sem hentugleika-
sambandi kirkju og ríkis: „Írland var
klerkaveldi. Kirkjan fékk fjármagn
sem var lífæð trúarreglna og börnin
voru nýtt til að fylla vasa þeirra [trúar-
reglnanna] með peningum. Ég komst
að því síðar að Artane fékk ávísun
upp á, við skulum segja, 10.000 pund,
mánaðarlega frá ríkisstjórninni. Art-
ane sendi 8.000 pund til Rómar. Af
því leiddi að við vorum vannærð og
við unnum tólf klukkustundir á dag
á ökrunum eða verkstæðunum... Við
vorum barnaþrælar.“
Patrick Walsh vonar að skýrslan
verði til þess að allur sannleikurinn
komi í ljós og sagði að nú væri tæki-
færi fyrir kirkjuna að biðjast afsökun-
ar. „Biskupar, ríkisstjórnin og kardín-
álarnir í Páfagarði hafa á endanum
fengið vitneskju um hvað gerðist,“
sagði Walsh.
Ummæli erkibiskups fordæmd
Sjónarmið Vincents Nichols, nýskip-
aðs erkibiskups í Westminster, sem
hann viðraði fyrr í vikunni féllu í
hrjóstrugan jarðveg hjá Patrick Walsh,
sem starfar hjá Isoca, írskum samtök-
um sem stofnuð voru til að aðstoða
fórnarlömb barnaníðs.
Nichols sagði að það krefðist „hug-
rekkis“ af hálfu þeirra klerka, sem
viðriðnir voru kynferðislega misnotk-
un barna, að horfast í augu við gjörð-
ir sínar. „Það krefst hugrekkis og við
megum ekki gleyma að þessi skýrsla
mun einnig skyggja á allt hið góða
sem þeir gerðu,“ sagði Nichols.
Patrick Walsh sagði að bull væri
ekkert nýtt af nálinni og sagði að það
sem erkibiskupinn þyrfti að gera væri
að „skoða náið skapgerð og eðli þess
fólks sem hann væri að tala um og
spyrja sig hvort það væri fært um að
láta gott af sér leiða“.
Nichols reyndi á fimmtudag að
mýkja ummæli sín og í viðtali við
Guardian sagði talsmaður hans:
„Nichols erkibiskum hefur fordæmt af-
dráttarlaust alla misnotkun.“ Talsmað-
ur Nichols sagði að hjarta erkibiskups
væri hjá fórnarlömbum misnotkunar-
innar og að draga ætti gerendur
til ábyrgðar og, þar sem ástæða
væri til, sæta lögreglurannsókn.
Kristnir bræður og systur
miskunnar
Samkvæmt skýrslunni er í
flestum tilfellum um að ræða
drengjastofnanir á vegum
Christian Brothers-reglunnar
og stúlknastofnanir á vegum
reglu Sisters of Mercy. Til þess
er tekið að stúlkur sættu mun
minna kynferðislegu ofbeldi,
en í stað þess sættu þær annars konar
ofbeldi og niðurlægingu sem var beitt
til að eyða sjálfsvirðingu þeirra.
„Í sumum skólum drógu reglu-
legar barsmíðar dám af helgiathöfn...
Stúlkur voru barðar með áhöldum
sem hönnuð voru til að veita sem
mestan sársauka og voru barðar á all-
an líkamann,“ segir í skýrslunni.
Ennfremur er komist að því að þeg-
ar yfirstjórn kirkjunnar stóð frammi
fyrir vísbendingum um kynferðis-
legt ofbeldi var gripið til þess ráðs að
færa gerandann um set, þar sem hon-
um var í mörgum tilfellum kleift að
halda áfram iðju sinni. „Öryggi barna
almennt var ekki umhugsunarefni,“
segir í skýrslunni.
Fimm binda opinber skýrsla um ýmiss konar ofbeldi innan
veggja stofnana á vegum kaþólsku kirkjunnar á Írlandi er ný-
komin út. Óhætt er að segja að niðurstöður níu ára rannsókna
eigi lítið skylt við kristilegan kærleik. Fórnarlömb fara ófögrum
orðum um kerfið sem rændi þau bernskunni.
Ofbeldi Og
niðurlæging
Patrick Walsh var
tveggja ára þegar
bernsku hans lauk.
Walsh var færður fyrir
dómstól ásamt tveimur
bræðrum hans, þriggja
og fjögurra ára, og sex
ára systur.
Christian brOthers-reglan
Christian Brothers-reglan er stofnun innan rómversk-kaþólsku kirkjunnar og var
stofnuð af Edmund rice. starfsvið reglunnar tengist aðallega boðun fagnaðar-
erindisins og menntun æskunnar og gjarna innan samfélags fátækra og var fyrsti
skóli reglunnar á írlandi stofnaður 1802.
undanfarin ár hefur reglan sætt gagnrýni vegna ítrekaðra uppljóstrana um
kynferðislega misnotkun barna á stofnunum hennar í Kanada, Ástralíu, Bretlandi
og írlandi. í lok síðustu aldar baðst reglan afsökunar vegna þess á nokkrum
stöðum í heiminum.
Á seinni hluta síðustu aldar tengdust skólar reglunnar ásökunum um ofbeldi og
líkamlegar refsingar.
sisters Of MerCy-reglan
sisters of mercy-reglan er regla kaþólskra kvenna og var stofnuð af Catherine
mcauley í dyflinni á írlandi, árið 1831.
Árið 2003 voru meðlimir reglunnar víðs vegar um heiminn um 10.000 að tölu og
skiptust niður í sjálfstæðar reglur.
upphaf reglunnar má rekja til þess þegar mcauley nýtti fé sem hún erfði til að
byggja „Hús miskunnar“ í dyflinni þar sem sjá átti fátækum konum og börnum
fyrir menntun og trúar- og félagslegri þjónustu.
skuggi hefur fallið á regluna með opinberri skýrslu ríkisstjórnar írlands þar sem
reglan er fordæmd fyrir að hafa látið líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi líðast
innan veggja stofnunarinnar.
Kolbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Afrakstur níu ára
rannsókna Óhætt er
að segja að niðurstaðan
sé áfellisdómur yfir
stofnunum kaþólsku
kirkjunnar á írlandi.
Vincent nichols, nýskipaður
erkibiskup í Westminster
ummæli hans um „hugrekki“
gerenda voru fordæmd.
Artane-vinnuskólinn á Írlandi Bernsku fjölda drengja lauk við komuna í skólann sem rekinn var í skjóli kaþólsku kirkjunnar.