Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 21
Föstudagur 22. maí 2009 21Umræða
Hver er maðurinn? „Hann er Felix
Bergsson. rúmlega fertugur
fjölskyldufaðir í Vesturbænum. Og Kr-
ingur.“
Hvar ertu uppalinn? „Ég er uppalinn
fyrstu ár ævinnar á Blönduósi eða til
átta ára aldurs. síðan þá hef ég búið í
Vesturbænum.“
Hvað drífur þig áfram? „Leitin að
hamingjunni og viljinn til að hafa lífið
skemmtilegra.“
Uppáhaldsmaturinn þinn? „sushi.
Þegar maður er í skapinu fyrir sushi er
það það besta sem ég fæ.“
Uppáhaldshúsverkið þitt? „Elda
fyrir fjölskylduna.“
Hvað gerir Felix Bergsson á
heitum sumardegi? „reynir að njóta
þess að vera heima með fjölskyldunni
og aðeins að sinna garðverkum og
öðru slíku. Við erum svo heppin að eiga
fallegan garð þannig að við höfum það
mjög gott bara heima við.“
Hvernig kom sú hugmynd upp að
halda tónleika heima hjá þér?
„Listahátíð auglýsti eftir listamönnum
sem vildu halda stofutónleika og ég
bauð mig fram.“
Verður ekkert óþægilegt að vera
með ókunnugt fólk á vappinu í
stofunni? „Nei, ég held ekki. Þetta er
mjög skemmtileg hugmynd og ég
hlakka bara til. mér finnst mjög gaman
að taka á móti gestum og eins hef ég
mjög gaman af fólki. Þetta er bara
spennandi.“
Við hverju má fólk búast í nýja
Popppunkti? „skemmtilegheitum par
excellance. Við erum að taka upp
þættina núna og það er alveg rosalega
gaman. Það má búast við skemmtileg-
um spurningum úr smiðju doktorsins
og glæsilegri umgjörð af hálfu
sjónvarpsins. svo skemmtilegasta
fókinu sem eru rokkstjörnur því þær
taka sig svo passlega alvarlega.“
Verður bryddað upp á einhverjum
nýjungum? „Nei, við erum ekkert
mikið fyrir nýjungar. Þó dr. gunni sé
pönkari er hann smá bankamaður í sér
þannig að hann er lítið í því að breyta
hlutunum og ég er algjörlega með
honum í því. Við erum mjög sáttir við
þetta eins og það er. Við komumst
reyndar aðeins í feitt í myndasafni
sjónvarpsins og fólk mun strax taka
eftir því.“
Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu?
„Ég er að fara að flytja til Noregs.“
ReBekka JóHannesdóttiR
15 ára NEmi
„Ég ætla að leita mér að vinnu, reyna
að græða smá pening og svo bara
skemmta mér.“
OddUR JónssOn
16 ára atViNNuLaus
„Ég ætla til útlanda. danmerkur og
kannski ástralíu.“
andRea Rán JónsdóttiR
15 ára NEmi
„Við erum nú ekki búin að finna neinn
tíma fyrir sumarfrí. En það stendur til að
fara allavega upp í sumarbústað í viku.“
GUðlaUGUR ÞóR ÞóRðaRsOn
41 árs aLÞiNgismaður
Dómstóll götunnar
Felix BeRGssOn heldur á
sunnudaginn stofutónleika heima hjá
sér fyrir gesti og gangandi og hlakkar
mikið til. Hann stendur í upptökum á
Popppunkti með rokkstjörnum sem
taka sig passlega alvarlega.
SuShi beSt þegar
Skapið er rétt
„Ég er í barneignarleyfi og ætla að klára
það. Einbeita mér að uppeldinu.“
linda VilHJálmsdóttiR
37 ára OFurmamma
maður Dagsins
Á meðan allir tala um Draumalandið gleymist Draumaborgin.
Íslendingar eru næstbesta þjóð í
heimi. Við erum næstbest í hand-
bolta, á eftir Frökkum. Við erum
næstbest í Eurovision, á eftir Norð-
mönnum. Kaupthing var næst-
stærsta fyrirtækjahrun sögunnar, á
eftir Enron. Á meðan héldu Norð-
menn tvöfalda þjóðhátíð 17. maí,
þar sem Fairytale var sungið oftar en
þjóðsöngurinn „Ja, vi elsker“.
Það er gott að geta glaðst yfir ein-
hverju. Mikið hefur breyst varðandi
hugarfar fólks eftir hrun, og mað-
ur verður þess víða var. Gott ef af-
greiðslufólk ber ekki höfuðið aðeins
hærra en áður. Að vera í vinnu yfir-
höfuð er nokkuð til að vera stoltur
af, og engin skömm að því að vera
blankur eða að vinna hjá ríkinu. Í
góðærinu rak maður sig á að fólk sem
var í „venjulegum vinnum“ skamm-
aðist sín fyrir að vera ekki komið með
eigin einkaþotu. Það er almennt eins
og virðing fólks fyrir hvert öðru hafi
aukist. Maður tekur eftir því að bílar
stoppa jafnvel fyrir manni ef maður
gengur yfir götu. Jeppi í stæði ætlað
fötluðum er ekki lengur jafnalgeng
sjón.
engin skömm að missa vinnu
Sumir fyllast skömm yfir því að hafa
misst vinnuna, þótt það sé út af að-
stæðum sem það fékk engu ráðið
um. Það er sterkt í okkur að líta í eig-
in barm og reyna að telja okkur trú
um að við sjálf hljótum að hafa gert
eitthvað af okkur þegar illa fer. En
að mörgu leyti erum við þó alltaf á
valdi afla sem í raun ráða miklu
meira um líf okkar heldur en við
sjálf. Í góðærinu var það al-
mennt viðtekin skoðun að
stjórnmál skiptu litlu máli,
að þau kæmu okkur lítið
við. Nú eru þau rædd
í heitum pottum og á
kaffihúsum um land
allt, enda vitum við
að það skiptir máli
fyrir okkar eigið
líf hvernig land-
inu er stjórnað.
Hugsanlega
ber fólk einn-
ig meiri virðingu
fyrir skoðunum
hvert annars. Allt sem okkur var tal-
ið trú um að væri satt og rétt reyndist
rangt. Engin veit raunverulega neitt
fyrir víst, og því er fólk reiðubúnara
til þess að hlusta á skoðanir hvert
annars. Maður vonar það að minnsta
kosti.
ekkert virkar lengur...
En kreppan er einnig farin að segja
til sín að öðru leyti. Ef maður ferðast
um Rússland sér maður víða hrörn-
andi skemmtigarða og leikvelli sem
voru byggðir á 8. áratugnum, áður
en efnahagshnignun Sovétríkjanna
fór raunverulega að segja til sín.
Þó að glæsihallir hafi síðan ris-
ið í miðborg Moskvu og Pét-
ursborgar er enn langt í land
með að eðlileg endurnýjun
hafi átt sér stað. Það eru
ótal lítil atriði sem
virka ekki.
Maður verður
strax var við slík-
ar breytingar hér.
Sjálfsalar sem
virka ekki, tóm-
ir sápuhólkar á
klósettum, bíó-
myndir skakk-
ar á tjöldum.
Góðæris-Ís-
land var land
þar sem allt
tók stöðug-
um breytingum. Á núverandi gengi
er líklegt að endurnýjunin verði
hægari. Til að gera illt verra hafa
tæki og tól, tölvur og símar undan-
farið ekki verið hönnuð með meiri
endingartíma en 2-3 ár. Því er hætta
á að við munum sjá hlutina úreldast
hratt á næstu árum, jafnvel hraðar en
í Rússlandi.
Hinar nýju nýlenduverslanir
Það er fleira sem að getur farið að
minna á Rússland. Eitt er það að til
verði búðir sem heimamenn eiga lít-
ið erindi í. Á þessu gengi er hætta á
að margar af þeim búðum sem áður
seldu lúxusvörur eða jafnvel raftæki
fari að verða nokkurs konar nýlendu-
verslanir auðugra ferðamanna.
Það eru einnig önnur áhrif sem
hugsanlegt er að við förum að finna
fyrir. Í Rússlandi eru til skemmtistað-
ir þar sem innlendar konur borga
sig inn til þess að kynnast erlendum
körlum, sem fá frían aðgang. Maður
er strax farinn að heyra sögur af kon-
um sem fara á fyrrverandi góðæris-
staði til þess að „skoða útlendinga“.
Einnig hefur það borist mér til eyrna
að einstaka erlendir karlmenn kvarti
undan því að íslenskar konur nánast
ráðist á þá með giftingu í huga.
Líklega er hér um alger undan-
tekningartilvik að ræða. En það er
ljóst að margt mun breytast í gjald-
þrota landi.
Nokkur undarleg áhrif kreppunnar
kjallari
ValUR GUnnaRssOn
rithöfundur skrifar
„Að vera í vinnu
yfirhöfuð er
nokkuð til að vera
stoltur af, og engin
skömm að því að
vera blankur.“
svona er íslanD