Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Síða 30
Föstudagur 22. maí 200930 Helgarblað
Þ
egar maður er
orðinn vanur því
að hlaupa um víð-
an völl er svolítið
erfitt að fara inn
í einhverja girð-
ingu,“ segir Lýður
Árnason læknir,
kvikmyndagerð-
ar- og tónlistarmaður. Lýður hefur
undanfarin 10 ár starfað sem lækn-
ir á Vestfjörðum. Hann ákvað nýlega
að hætta störfum sökum breytinga í
heilbrigðiskerfinu en fáheyrt er að
læknar hætti í starfi og söðli algjör-
lega um. Enda mikil vinna og mennt-
un sem liggur að baki starfinu.
Lýður, sem hefur gert kvikmyndir
eins og Í faðmi hafsins, Jólamessan,
Ísmaðurinn og Skuggabörn, er með
ýmis verkefni í gangi en að öðru leyti
er óvíst hvað framtíðin ber í skauti
sér. Þó að Lýður sé fæddur og upp-
alinn á höfuðborgarsvæðinu hefur
hann lengst af starfað úti á landi og
lent í ýmsu skrautlegu svo ekki sé
meira sagt.
Vanur frelsinu
Lýður er búsettur í Bolungarvík
ásamt fjölskyldu sinni þar sem kona
hans, Íris Sveinsdóttir, er starfandi
læknir. Lýður hefur starfað sem eins
konar flökkulæknir og sinnt Flateyri
og Þingeyri ásamt því að starfa á Ísa-
firði.
„Gömlu landsbyggðarsamning-
arnir eru flestir að detta út og svo er
ákveðin tiltekt í gangi í heilbrigðis-
kerfinu,“ segir Lýður um ástæðu þess
að hann hefur ákveðið að hætta sem
læknir á Flateyri og Þingeyri. „Mínum
samningi var sagt upp og mér boðinn
annar með breyttum formerkjum. Ég
hafði bara ekki áhuga á honum. Þetta
hefur lítið með laun að gera, meira
með starfsfyrirkomulag. Þegar mað-
ur er vanur að vinna sjálfstætt er erfitt
að breyta því.
Það er viss hagræðing í gangi í heil-
brigðiskerfinu öllu og það sem verið
er að gera hérna er að færa allt und-
ir einn hatt sem er á Ísafirði. Þetta er
skiljanleg þróun enda búið að vinna
mikið í samgöngumálum hér á svæð-
inu og enn eru menn að. Síðasta víg-
ið er Bolungarvík og um ár þangað til
að göng þangað verða komin í gagn-
ið. Það segir sig sjálft að það er ekki
hægt að hafa lækna á öllum þessum
stöðum endalaust.“
Niðurskurðurinn rétt að byrja
Mikil niðurskurðaráform hafa verið
í heilbrigðiskerfinu um allt land og
víða verið háværar óánægjuraddir
vegna þess. Fólki finnst sparnaður-
inn oft bitna á þeim sem þurfa mest
á þjónustunni að halda eða minnst
mega sín. Lýður segir niðurskurð-
inn rétt byrjaðan. „Það verður skorið
miklu meira niður, það er óumflýjan-
legt. En maður sættir sig illa við nið-
urskurð í heilbrigðis- og menntakerfi
þegar menn ætla svo að halda áfram
með hluti eins og tónlistarhús og há-
tæknisjúkrahús sem hvorutveggja er
gjörsamlega óþarft að mínu mati. Við
erum ekkert að deyja úr músikskorti
eða hátæknisjúkdómum. Við erum
mestmegnis að glíma við almenn
heilbrigðisvandamál. Þetta er grund-
vallarspurning um forgangsröðun.“
Hvað önnur niðurskurðaráform
varðar segir Lýður:
„Opinber stjórnsýsla er orðin alltof
þykk. Það þarf að skera hana við trog.
Það er alltof mikið af fólki í störfum
sem eru óþörf.“ Lýður vill til dæmis
sjá niðurskurð í utanríkisþjónust-
unni. „Ég myndi líka vilja sjá Varnar-
málastofnun aflagða. Það fara fleiri
hundruð milljónir á ári í það. Einn
stærsti hluti opinberra útgjalda er
launakostnaður og þar mætti verða
almenn samþjöppun, að harmonikan
yrði dregin aðeins saman,“ og bendir
Lýður jafnframt á að betra sé að fleiri
haldi vinnunni með jafnari laun en að
missa fólk út í atvinnuleysi.
Engin vélmenni í stað lækna
Þó að það verði auðvitað tekjumiss-
ir við að hætta sem læknir segist
Lýður lítið spá í það. „Konan starfar
sem læknir hérna í Bolungarvík og
ég hleyp kannski undir bagga með
henni,“ en Lýður segist enga end-
anlega ákvörðun hafa tekið um það
hvort hann muni stunda læknisfræð-
ina frekar í framtíðinni. „Ég er nú bú-
inn að vinna við þetta í 15 ár og það
er allt í lagi að taka sér smá umþótt-
unartíma. Sjá hvað er í boði. Einnig er
nokkuð um starfstilboð fyrir lækna í
útlöndum. Sérstaklega á Norðurlönd-
unum og það er aldrei að vita hvort
maður skoði það eitthvað.“ Lýður seg-
ir læknisstarfið gott að því leyti að eft-
irspurnin er næg. „Það koma engin
vélmenni í stað lækna, svo mikið er
víst.“
Nokkur óvissa ríkir um framtíðar-
búsetu fjölskyldunnar. „Við verðum
alla vega hérna fyrir vestan komandi
vetur en eftir það er allt óráðið, hugs-
anlega Hafnarfjörður eða útlönd,
kemur í ljós.“
Lýður segir frábært að búa á Vest-
fjörðum með fjölskyldu og hann gæti
varla hugsað sér betri stað. „Það er
geggjað að vera hérna bæði með börn
og hunda,“ en Lýður á fjögur börn, þar
af þrjú með Írisi, og að auki hundinn
Mola. „Börnin eru frá 1 árs og upp í 15
ára.“
Myndbandsmeðferðin
Á 15 ára ferli sínum sem læknir hefur
Lýður lent í ýmsu undarlegu og öðru
jafnvel ævintýralegu. Hann hefur
mestan part starfstímans starfað úti á
landi og segir sér líka það betur en að
starfa í borginni. Hann segir það líka
part af sjarmanum að starfa á stað
eins og Vestfjörðum, þar fyrirfinn-
ist enn kynlegir kvistir. Enda neyðist
hann líka stundum til þess að beita
óhefðbundnum en skilvirkum lækn-
ingaraðferðum.
Lýður gengst til dæmis við því
að hafa læknað mann af áfengissýki
með myndbandsupptöku. „Fólk sem
títt er drukkið lendir oft í algleymi.
Drekkur svo mikið að það gleymir
stað og stund. Heldur að auki að það
sé bráðskemmtilegt.“ Til þess að fyr-
irbyggja þann misskilning tók Lýður
einu sinni upp myndband af skjól-
stæðingi þar sem hann hafði fengið
sér of mikið neðan í því. „Viðkomandi
sá þá svart á hvítu hvernig ástandið
var í raun og veru.“ Þessi skjólstæð-
ingur Lýðs stakk tappanum umsvifa-
laust í flöskuna og hefur ekki drukk-
ið áfengan dropa síðan. „Þetta er ódýr
en skjótvirk aðferð.“
Tungulausi bóndinn
Önnur ótrúleg uppákoma sem Lýður
minnist var þegar afdælingur leitaði
til hans með heldur óvanalegt vanda-
mál. „Til mín kom skjólstæðingur og
bað mig um að lappa upp á sig.“ Af-
dælingurinn hafði keyrt langa leið
til þess að leita læknishjálpar og var
illskiljanlegur þegar á heilsugæsluna
var komið. Það kom hins vegar í ljós
hvað amaði að þegar hann dró tung-
una upp úr buxnavasanum. „Skondn-
ast við þetta tilvik var að þegar ég tjáði
honum að of seint væri í rassinn grip-
ið tók hann því með mikilli rósemd,
stakk tungunni aftur í vasann og ók
til síns heima. Ég komst því aldrei svo
langt að greina vandann.“
Risapungur í heitum bala
Lýður segir að fólk úti á landi og í
dreifbýlinu sé oft harðgerðara og
tregara til að leita sér hjálpar bjáti
eitthvað á. „Eins og hér fyrir vestan,
fólk metur lífið meira af gæðum en
magni. Sem dæmi, einu sinni fékk
ég til mín Einseyring sem átti í vand-
ræðum með að míga og dvaldi lang-
dvölum í heitum bala til þess að geta
losað um. Orsök teppunnar var firna-
stór pungur.“
Lýður útskýrði fyrir manninum að
hægt væri að lækna þetta vandamál
með einfaldri aðgerð á sjúkrahúsi.
Einseyringurinn var tregur til þess
að fara en lét eftir miklar fortölur til
leiðast. „Mér urðu hins vegar á þau
grundvallarmistök að kveða upp úr
með að hafa aldrei nokkurn tíma séð
svo risavaxinn pung, líkast til þann
stærsta á Íslandi. Karlinn var fljótur
að notfæra sér þetta og sagði að fyrst
svo væri vildi hann halda gripnum og
það varð úr.
Það er oft mjög erfitt að flytja þessi
gömlu björg úr stað. Það er þessi
gamli hugsunarháttur sem er nú
óðum að hverfa þó enn eimi eftir af
honum hérna fyrir vestan. En þetta
kryddar mjög upp á starfið og í sam-
antektinni finnst mér persónulega
mest gaman að eiga við varginn.“
Eddan hvarf
Eins og áður kom fram hefur Lýður
lagt þó nokkra stund á kvikmynda-
gerð meðfram læknisstarfinu. „Ég
og Jóakim Reynisson höfum verið í
þessu í gegnum tíðina,“ en þeir eiga
saman kvikmyndafélagið Í einni
sæng. Þeir félagar gerðu meðal ann-
ars myndina Í faðmi hafsins árið 2001
en hún skartaði Hinriki Ólafssyni og
Margréti Vilhjálmsdóttur í aðalhlut-
verkum.
Lýður Árnason hefur ákveðið að hætta sem læknir á Flateyri og Þingeyri í kjölfar skipulagsbreytinga í heilbrigðiskerfinu. Hann segist of vanur að starfa sjálf-
stætt til að taka þátt í miðstýringunni. Það er fáheyrt að læknar hætti í starfi á besta aldri og söðli algjörlega um en Lýður er einnig kvikmyndagerðar- og tónlist-
armaður. Hann hefur í ýmsu lent á ferli sínum sem læknir og segir alltaf erfiðast þegar börn verða veik. Undarlegustu atvikin voru þó þegar hann sá stærsta pung
landsins, læknaði áfengissýki með myndbandsupptöku og fékk til sín tungulausan bónda.
„Meira fjör
að eiga við
varginn“
HLjóMsVEiTiN GRjóTHRuN
Heldur kveðjutónleika fyrir Lýð
um hvítasunnuhelgina.