Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2009, Blaðsíða 68
föstudagur 22. maí 200968 Lífsstíll
Þessi holli og góði réttur er úr grillblaði Gestgjafans:
Grillað tofu með snöGGsteiktu Grænmeti
umsjón: kolbrún pálína helgadóttir, kolbrun@dv.is
sumarið er komið og
sömuleiðis heill hafsjór
af nýjum og girnilegum
snyrtivörum. dV tók
saman nokkrar einstak-
lega spennandi vörur
sem gaman væri að hafa í
snytibuddunni í sumar.
Byrjaðu daGinn vel morgunverður er mikilvægasta mál-
tíð dagsins. sú vísa verður víst aldrei of oft kveðin. nú þegar úrval
ávaxta fer vaxandi í verslunum er tilvalið að útbúa sér góðan safa
eða orkumikinn hristing í byrjun dags. notaðu hugmyndaflugið
og prófaðu þig áfram, það er nánast allt leyfilegt. einnig má nálg-
ast mikið úrval uppskrifta á netinu. tvær appelsínur, tvær stórar
gulrætur, sítróna og engiferbiti er til dæmis góð blanda í safavélina
snemma dags. njótið vel!
Body.is er vefsíða sem einkaþjálfararnir Björn Þór
Sigurbjörnsson og Kristján Samúelsson reka. Mark-
mið vefsíðunnar er að vera afþreyingar- og fræðslu-
vefur fyrir almenning sem hugsar um bætta heilsu
og vill fræðast. Body.is er eina vefsíða landsins sem
inniheldur hjálpartæki eins og reiknivélar sem svara
helstu spurningum um almennt líkamsástand og
næringu. Björn og Kristján deila hér með okkur
SMART-markmiðasetningunni sem þeir gera góð skil
á vef sínum. Markmiðasetningin er eitthvað sem allir
ættu að geta tileinkað sér.
Vertu
SMArt
S. stendur fyrir skýr markmið. Það að vilja minni
rass, stærri upphandleggi og minni maga eru
ekki markmið, það eru óskir. gott er að notast við
blað og penna og skrifa markmiðin skýrt niður,
þegar talað er um skýr markmið er átt við að þú
setjir niður dagsetningu sem þú ætlar að vera
búin að ná markmiðunum fyrir. til dæmis, þann
1. ágúst ætla ég að vera búin að missa fjögur
kíló og svo framvegis. Það er hægt að líkja þessu
við bílferð. Þú sest ekki bara upp í bíl og keyrir
eitthvert, þú stefnir alltaf á ákveðinn áfangastað.
M. stendur fyrir mælanleg markmið. hér ættir þú
að byrja á byrjuninni og mæla ummál á helstu
líkamshlutum og ef til vill fitumæla þig. fram að
1. ágúst ættu að vera tvær til þrjá mælingar sem
geta verið „skammtíma“ markmið þín til þess að
þú sért meðvituð um að allt stefni í rétta átt. fram
að settu tímamarki þínu skaltu halda dagbók yfir
mælingarnar og hvenær þú ætlar að gera þær svo
að þú lendir ekki í óvæntu kapphlaupi við tímann.
A. stendur fyrir alvöru markmið. markmið þín
þurfa að vera byggð á þekkingu, hæfileikum og
aðgangi að tækjum til þess að geta náð settu
markmiði. Það getur falið í sér að þú verðir að
lesa þér vel til, til dæmis á netinu og í góðum
bókum um árangur, hvatningu, mataræði og
æfingar eða fengið þér aðstoð fagfólks. Það að
ná markmiðum sínum kostar aga og vinnu, þú
þarft að skapa með þér þinn eigin persónulega
stíl til þess að ná því fram sem þú leitast eftir.
R. stendur fyrir raunhæf markmið. hér er um að ræða
það atriði sem flestir hafa flaskað á í gegnum tíðina.
ekki byggja upp skýjaborgir, því þær eru því miður oft
ávísun á gremju og svekkelsi yfir því að ná ekki settu
marki. Þegar talað er um óraunhæf markmið er átt við
að þú munt ekki ná af þér fjórum kílóum á viku og svo
framvegis, við viljum síður en svo draga úr þér kjarkinn
en þetta eru hlutir sem gerast ekki á einni nóttu. fáðu
aðstoð og kynntu þér hvað virkilega er raunhæft. mikil-
vægast er þó að hver og einn persónugeri markmiðin.
T. stendur fyrir tímasetningu. Þegar þú hefur sett
þér markmið fyrir ákveðinn tíma, ákveðið að vinna
markvisst að því og ná því fram með skipulagðri
vinnu og þegar þú hefur náð markmiðum þínum og
allt gengur eins og það á að ganga er ekkert því til
fyrirstöðu að láta kné fylgja kviði og setja sér önnur
og jafnvel háleitari markmið í framhaldinu. eftir að þú
hefur notað þessar reglur munu þær hjálpa þér við
allt sem þú tekur þér fyrir hendur, hvort sem það er
að koma þér í betra form, safna fyrir utanlandsreisu
eða komast í gegnum nýtt og krefjandi nám.
S
A
M
r t
GAnGi þér Vel!
Áður en tofu er grillað er gott að
pressa vökvann úr því jafnvel þótt
það sé stífari gerðin (firm). Það gerir
það að verkum að áferðin verður stíf-
ari og meira í líkingu við ljóst kjöt og
auðveldara verður að grilla það.
UppSkRifT fyRiR 4
kryddlögur:
1 dl eplasafi
1 msk. edik
2 msk. tamarind- eða soja-sósa
1 msk. sérrí
1 msk. púður- eða hrásykur
1 msk. rifin engiferrót
1 chili-aldin, fræhreinsað og smátt saxað
blandið öllu saman, setjið í pott og
sjóðið í 3-4 mínútur.
1 pakki tofu (u.þ.b. 500 g)
2-3 msk. olía
1 rauðlaukur, skorinn í báta
1 gul paprika, skorin í strimla
1 rauð paprika, skorin í strimla
100 g sveppir, skornir í sneiðar
50 g baunaspírur
salt og pipar
handfylli saxaður, ferskur kóríander
setjið tofu á djúpan disk, leggið plast
yfir og setjið farg, t.d. mjólkurpott, ofan
á. geymið í kæli í 1 klst. skerið tofu í
sneiðar, leggið á disk og þekið með
kryddleginum. látið standa í 15-30 mín.
hellið kryddleginum af tofu-inu í skál og
geymið. penslið tofu-ið með 2 msk. af
olíu og grillið í 2 mín. báðum megin eða
steikið á pönnu. Það er upplagt að nota
wok-grillpönnu til að steikja grænmetið
ef þið eigið hana, að öðrum kosti er wok-
panna best. setjið 1 msk. olíu á pönnuna
og steikið grænmetið, fyrst lauk og svo
í þeirri röð sem upp er talið og grillið
þar til það fer að mýkjast. raðið grilluðu
tofu-inu ofan á, hellið kryddleginum
yfir og bragðbætið með salti og pipar.
sáldrið kóríander yfir og berið fram strax.
Umsjón og stílisti: sigríður björk bragadóttir
Mynd: rakel ósk sigurðardóttir
skemmti-
leGar
nýjunGar
Byltingarkenndur maskari
með turbolash frá estée lauder á
algjör augnhárabylting sér stað.
hann er fyrsti titrandi maskarinn
í heiminum sem gerir allt sem
þú vilt fyrir augnhárin. hámarks
þekja, lengd, aðskilnaður, dýpt og
sveigja, allt í sama maskaranum.
makarinn sér sjálfur um vinnuna.
Unaðslegur ilmur
Chloé er nýr unaðslegur ilmur í
fallegu glasi. ilmurinn er hugsað-
ur fyrir sjálfsöruggar og fallegar
konur, konur sem þora. hann er
ferskur og kvenlegur og hentar
konum á öllum aldri.
Léttur farði í sumar
bobbi brown hefur hannað
einstaklega léttan og hentugan
farða fyrir sumarið sem ber
heitið skin foundation. farðinn
er einstaklega náttúrulegur
áferðar og inniheldur spf15
sólarvörn sem kemur sér vel í
sólinni í sumar. hentar öllum
húðtegundum.
Björn og kristján
einkaþjálfarar og menn-
irnir á bak við body.is.