Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2009, Síða 17
Guðmundur Ólason, fyrrverandi
forstjóri fjárfestingarfélagsins Mil-
estone, átti tvö einkahlutafélög sem
fengu 1.500 milljóna króna kúlulán
til að kaupa hlutabréf í Milestone
og fjárfestingarbankanum Askar
Capital. Skuldir félaganna Sáttar og
Lokkadísar sem Guðmundur keypti
bréfin í gegnum nema nálægt 3.200
milljónum króna í dag. Guðmund-
ur á einnig hrossaræktarbúið Torf-
unes ásamt Karli Wernerssyni. Torf-
unes á hestinn Mátt sem keppti á
Heimsmeistaramóti íslenska hests-
ins í Brunnadern í Sviss nýverið. DV
sagði fyrir um að allir íslensku hest-
arnir yrðu seldir að móti loknu og því
myndu Guðmundur og Karl græða
milljónir á hrossasölu.
Í ráðgjöf
Guðmundur Ólason stofnaði einka-
hlutafélagið Möttul í lok apríl. Það
starfar við fjárhagslega endurskipu-
lagningu og endurreisn fyrirtækja.
Meðeigendur hans eru Arnar Guð-
mundsson, fyrrverandi fjármálastjóri
Milestone, Jóhannes Sigurðsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri Miles-
tone, og Guðmundur Hjaltason, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri hjá Glitni.
Þeir vinna í dag við endurskipulagn-
ingu sparisjóðanna. Auk þess veitti
félagið ráðgjöf þegar fjárfestingar-
bankarnir VBS og Saga Capital fengu
lán hjá ríkinu til að borga kröfur
vegna endurhverfra viðskipta bank-
anna við Seðlabankann.
Yfirheyrðir
Karl Wernersson og Guðmundur
Ólason hafa báðir verið yfirheyrð-
ir í tengslum við rannsókn sérstaks
saksóknara á tryggingafélaginu Sjó-
vá. Karl Wernersson var aðaleigandi
Milestone, eignarhaldsfélags Sjó-
vár, og Guðmundur var forstjóri eins
og áður var nefnt. „Fjármálaráðu-
neytinu var ekki kunnugt um tengsl
Möttuls og Milestone fyrr en einni til
tveimur vikum áður en tilkynnt var
um endurfjármögnun Sjóvár,“ sagði
Elías Jón Guðjónsson, upplýsinga-
fulltrúi fjármálaráðuneytisins, ný-
verið þegar DV spurði hvort fyrrver-
andi stjórnendur Milestone væru
heppilegir fulltrúar til að koma að
uppbyggingu sparisjóða landsins.
Steingrímur Wernersson er lyfjafræð-
ingur að mennt. Hann er giftur Dinu
Akhmetzhanova, sem ættuð er frá
Kasakstan. Þau voru nokkuð í frétt-
um þegar þau létu rífa 230 fermetra
hús að Árlandi 1 í Fossvoginum til
að byggja þar nýtt 700 fermetra hús.
Blaðið Sirkus mat eigur Steingríms á
43 milljarða króna um sumarið 2007.
Steingrímur hefur ekki verið mikið
fyrir sviðsljósið og þykir mjög fjöl-
miðlafælinn.
Steingrímur, sem er búsettur í
Bretlandi, á óuppgerðar sakir við
málaraverktaka sem hefur stefnt
honum vegna tveggja milljóna króna
greiðslu sem hann telur Steingrím
skulda sér, vegna vinnu við einbýl-
ishús hans. Þá sagði DV frá því á
dögunum að Steingrímur hefði flutt
snekkju sína, sem hefur verið geymd
í Snarfarahöfn undanfarin ár, úr
landi með gámaflutningaskipi Eim-
skips. Þá keypti lögmaður hans lúxu-
sjeppa Steingríms og nágrannar lög-
mannsins keyptu hjólhýsi af honum.
Veðsettu bótasjóðinn
Bræðurnir Karl og Steingrímur
Wernerssynir eru synir Werners
Rassmussen, sem auðgaðist vel sem
einn umsvifamesti lyfsali landsins.
Grunnurinn að veldi bræðranna var
því reistur af föður þeirra. Eftir að
Karl tók við fjárfestingum fjölskyld-
unnar réðust þeir í gríðarlegar fjár-
festingar. Milestone varð til og hóf
að kaupa hluti í Lyfjum & heilsu, sem
áður hafði keypt fjölskyldufyrirtækið
Ingólfsapótek. Bræðurnir eignuðust
Lyf & heilsu að fullu og keyptu það út
úr Milestone á síðasta ári.
Þeir réðust í mikla útrás í Svíþjóð
og keyptu sænska tryggingafélag-
ið Moderna, en rekstur þess hefur
verið yfirtekinn af sænska fjármála-
eftirlitinu. Heildareignir Moderna
námu um 430 milljörðum króna. Þeir
keyptu sænska fjármálafyrirtækið In-
vik fyrir 70 milljarða króna árið 2007.
Stærstu eignir þeirra á Íslandi voru
tryggingafélagið Sjóvá, Askar Capi-
tal og fjármögnunarfyrirtækið Avant.
Milestone sætir nú rannsókn fyrir
að hafa veðsett bótasjóð Sjóvár en
bræðurnir keyptu Sjóvá af Íslands-
banka árið 2005.
fréttir 4. september 2009 föstudagur 17
WWW.SVAR.IS
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
SKÓLATILBOÐ!
ACER Asp
ire 5536
Öflug fartö
lva með st
órum og b
jörtum 15.
6“
skjá. Þæg
ilegt lyklab
orð með ta
lnaborði o
g
nýjasta ky
nslóð sner
timúsar. Ö
flugur tveg
gja
kjarna örg
jörvi, 3GB
vinnslumi
nni, 250GB
harður dis
kur og ATi
Radeon 3
200 skjáko
rt.
FARTÖLVUBAKPOK
I
FYLGIR Í KAUPBÆ
TI
99.900
ACER eMachines e520
Flott fartölva í skólann með 3
GB vinnsluminni,
Intel 2Ghz örgjörva og 160
GB hörðum disk.
Bjartur og góður 15“
skjár.
119.900
FARTÖL
VUBAK
POKI
FYLGIR
Í KAUP
BÆTI
fjölmiðlafælinn
lyfjafræðingur
43 milljarða eignir Steingrímur Wern-
ersson, til hægri, ásamt eiginkonu sinni
Dinu Akhmetzhanova. Eigur hans voru
metnar á 43 milljarða króna árið 2007.
1.500 milljóna
kúlulán
Hestamenn Guðmundur Ólason til hægri,
fyrrverandi forstjóri Milestone, og Karl
Wernersson fyrir miðju, fyrrverandi eigandi
Milestone, eiga hrossaræktarbúið Torfunes.
Karl Wernersson útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur frá Háskóla Ís-
lands árið 1986. Hann var ráðinn til
Örtölvutækni-Tölvukaupa hf í lok
ársins 1989, fyrst sem fjármálastjóri,
síðan sem sölustjóri, þá aðstoð-
arframkvæmdastjóri og loks sem
framkvæmdastjóri árið 1994. Fyrir-
tækið glímdi við mjög þungan rekst-
ur og varð niðurstaðan sú að því var
skipt upp í tvö rekstrarfélög. Digi-
tal-tölvuumboðið var skilið fá öðr-
um rekstri félagsins og var stofnað
nýtt fyrirtæki í kringum umboðið.
Aðalmennirnir á bak við Örtölvu-
tækni ehf voru Werner, faðir Karls,
og Árni Fannberg. Félagið réð til sín
starfsmenn frá gamla hlutafélaginu
og keypti eignir út úr því, en gamla
fyrirtækið þurfti að leita nauða-
samninga við lánardrottna sína.
Á mannamáli mætti ef til vill kalla
slíkan gjörning kennitöluflakk.
Dýrmæt reynsla
Digital á Íslandi ehf., eins og fyrir-
tækið hét síðar, undir stjórn Karls
og í eigu Werners, sameinaðist svo
Tæknivali árið 1999 og vék Karl þá
úr stóli framkvæmdastjóra.
Karl sem hefur ekki látið fjöl-
miðla ná í sig að undanförnu, ræddi
hins vegar um vandræðin í kringum
Örtölvutækni í viðtali við DV árið
2006. „Það var á þeim tíma sem við
áttum Örtölvutækni að við lentum í
miklum en lærdómsríkum hremm-
ingum. Það var þó fyrir öllu að við
náðum að koma fótunum undir fyr-
irtækið aftur og seldum það svo,“
segir Karl um tímabilið sem reynd-
ist honum mikil reynsla.
65 milljarða eigur
Karl var jafnan talinn eiga tvo þriðju
í fjárfestingafélaginu Milestone,
sem var miðpunktur fjölskyldu-
veldisins. Steingrímur átti hins veg-
ar einn þriðja. Áður hafði Ingunn,
systir þeirra, gengið út úr Milestone
og haslað sér völl sem sjálfstæður
fjárfestir. Grunninn að fjölskyldu-
veldinu reisti apótekarinn Wern-
er Rasmussen, faðir systkinanna.
Hann fjárfesti í Pharmaco og Delta
undir lok síðustu aldar, ásamt því
að reka Ingólfsapótek. Karl tók svo
að mestu við kyndlinum og fjárfesti
grimmt með miklum árangri. Mark-
aðurinn, fylgiblað Fréttablaðsins,
mat eigur Karls á 62 milljarða króna
um mitt sumar 2008. Blaðið Sirk-
us hafði metið þær á 65 milljarða
króna árið 2007 þegar útrásin stóð
sem hæst. Þá vakti athygli að hann
átti kraftmesta Hummer landsins,
650 hestafla tryllitæki. Ekki er vitað
um fjárhagslega stöðu hans í dag.
65 milljarða maður
Réð bróðurpartinum Karl átti tvo þriðju í Milestone á móti þriðjungi Steingríms.