Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Qupperneq 5
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 2015 5
FRÁ RITSTJÓRUM
Í þessu hefti Uppeldis og menntunar eru fimm ritrýndar greinar og bálkur viðhorfs-
greina um sögu uppeldis- og menntunarfræða sem 40 ára háskólagreinar á Íslandi.
Ritrýndu greinarnar fjalla um ólík efni á sviði menntavísinda. Þarna er að finna yfirlits-
grein um kenningar og rannsóknir á vegferð ungs fólks til fullorðinsaldurs, og greinar
um kulnun meðal leik- og grunnskólastjóra, þverstæðuna um lýðræðislegt skólastarf,
mat foreldra á þátttöku og skólaumhverfi getumikilla einhverfra barna og félagslegt
réttlæti eins og það snýr að fólki með þroskahömlun. Síðastnefnda greinin er á ensku.
Viðhorfsgreinarnar eru unnar í samvinnu við Uppeldis- og menntunarfræðideild
Háskóla Íslands.
Nú eru breytingar í vændum á tímaritaútgáfu í menntavísindum. Menntavísinda-
svið Háskóla Íslands og Félag um menntarannsóknir hafa ákveðið að taka höndum
saman um að gefa út nýtt tímarit á grunni tímaritanna tveggja, Uppeldis og mennt-
unar, sem Menntavísindasvið og áður Kennaraháskóli Íslands hafa gefið út síðan 1992,
stundum í samstarfi við fleiri aðila, og Tímarits um menntarannsóknir, sem Félag um
menntarannsóknir hefur gefið út síðan 2004. Nýja tímaritið mun heita Tímarit um upp-
eldi og menntun, og sameina þannig titla tímaritanna tveggja, og skammstöfunina TUM
má nota ef á þarf að halda. Á ensku mun tímaritið heita Icelandic Journal of Education
og fylgja samningum Uppeldis og menntunar við erlenda gagnagrunna. Ritstjórar hins
nýja tímarits verða Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, sem verið hefur ritstjóri Uppeldis
og menntunar sl. fimm ár, tilnefndur af Menntavísindasviði, og Hermína Gunnþórs-
dóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, tilnefnd af Félagi um menntarannsóknir. Nýr
ritstjóri mun svo taka við af Ingólfi eftir eitt ár.
Ætlunin er að flytja útgáfu tímaritsins nýja inn á vefsvæði sem fleiri tímarit í
Háskóla Íslands nota og gefa það út tvisvar á ári með þeim hætti. Ekki er ákveðið
hvort prentuð verða eitt hefti eða tvö á hverju ári til að selja áskrifendum eða hvort
tímaritið verður fyrst lokað á vefnum öðrum en áskrifendum en opnað innan ákveðins
tíma, eins og Uppeldi og menntun er nú opnað öllum innan eins árs. Einnig standa
vonir til þess að hægt verði að flytja umsýslu greinanna, svo sem skil á handriti og skil
ritrýna á áliti sínu um handritin, inn í nýja kerfið.
Ritstjórar þakka öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóg við útgáfu og dreifingu
þessa heftis. Þeir þakka enn fremur samskiptin við ritnefndina og alla aðra sem hafa
tekið þátt í að gefa út Uppeldi og menntun síðan árið 1992.