Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Blaðsíða 132
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 2015132
UPPELDIS - OG MENNTUNARFRÆÐI 40 ÁRA
NIÐURLAG
Hér hefur verið stiklað á stóru um þróun BA-námsins í uppeldis- og menntunarfræði
við Háskóla Íslands í 40 ár. Þetta er lýsing eins starfsmanns, en ekki greining með
stefnu háskólans í huga, sem þó má greina í bakgrunninum. Til dæmis er athyglis-
vert hve margir fastir kennarar hafa fyrst verið stundakennarar um tíma áður en þeir
fengu stöðu. Þá er athyglisvert að loka þurfti inntöku í grunnnám greinarinnar til að
fjármagna framhaldsnámið. Miðað við reiknilíkön og regluna um þreyttar einingar
sem leið til fjármögnunar einstakra greina gat það ekki gengið til lengdar.
Það er mitt álit að uppeldis- og menntunarfræðunum hafi farsællega verið skip-
að í Félagsvísindadeild árið 1976. Þar þróuðust þau sem fræðigrein í samvinnu við
tengdar greinar félagsvísinda. Sú ákvörðun að flytja greinina yfir á Menntavísinda-
svið árið 2009 var eðlileg að mörgu leyti þar sem Háskóli Íslands og Kennaraháskóli
Íslands sameinuðust og Menntavísindasvið HÍ varð til. Þessi ráðstöfun var engu að
síður umdeild, bæði meðal kennara og nemenda greinarinnar. Með tímanum hefur
samruninn gengið eftir, þó að enn bóli ekki á nýju húsi Menntavísindasviðs við Suður-
götu. Kennarar greinarinnar hafa verið virkir, bæði í grunn- og framhaldsnáminu á
Menntavísindasviði, og ýmis tækifæri á sviði rannsókna og náms í menntavísindum
hafa skapast. Greinin dafnar vel á Menntavísindasviði, grunnnámið hefur vaxið og
áherslur breyst nokkuð með aðkomu kennara Menntavísindasviðs.
Ég tel mig þó ekki eina um það álit að eftirsjá sé að uppeldis- og menntunarfræði-
skorinni, bæði meðal þeirra sem fóru á Menntavísindasvið og hinna sem urðu eftir á
Félagsvísindasviði. Skorin var faglega sterk, margbreytileg en samheldin og svaraði
kalli tímans um nýjar greinar og námsbrautir. Við flutninginn á Menntavísindasvið
fórum við kennararnir í mismunandi deildir og aðrir urðu eftir með fötlunarfræði og
námsráðgjöf í Félags- og mannvísindadeild. Þó að starfsmenn Kennaraháskólans, nú
Menntavísindasviðs, hafi margir reynst frábærir samstarfsmenn, og starfsmenningin
þar um margt hin ágætasta, hafa þær breytingar sem stofnanasamruninn kallaði á ver-
ið mörgum erfiðar. Sumir þeirra sakna hins líflega umhverfis sem þeir höfðu skapað
og búið við fyrir samrunann og áður en fjárhagur stofnunarinnar stjórnaðist eingöngu
af afköstum. Oft er sagt að stofnanasamruni taki um 10 ár; enn eru því 3–4 ár til stefnu!
Það er von mín að það takist að mynda sem öflugast fagsamfélag og starfsmenningu
fyrir allt starfsfólk Menntavísindasviðs, þannig að uppeldis- og menntunarfræðin og
aðrar námsleiðir sviðsins dafni áfram sem best.
ATHUGASEMD
1 Upplýsingar um útskriftartölur og nöfn eru fengnar frá Háskóla Íslands (Háskóli
Íslands, 2015), frá Sverri Guðmundssyni og frá Sigurði Inga Árnasyni, og kann ég
þeim bestu þakkir fyrir. Einnig vil ég þakka Kristínu Indriðadóttur á Skjalasafni
Háskólans fyrir veitta aðstoð og liðlegheit. Þá studdist ég við kennsluskrár Háskóla
Íslands á árabilinu 1973–2015 án þess að þeirra sé allra sérstaklega getið í tilvís-
unum eða í heimildaskrá.