Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Síða 6
Sandkorn
n Sjálfstæðismenn með frama-
drauma eru óðum að setja sig
í stellingar fyrir komandi próf-
kjör. Meðal þeirra kvenna sem
vilja komast í borgarstjórn er
Áslaug Friðriksdóttir, náinn
samherji
Gísla Mart-
eins Bald-
urssonar
borgarfull-
trúa. Áslaug
var raunar
andvíg próf-
kjöri en er
sögð ætla að
taka slaginn. Það ætlar tónlist-
arkennarinn Edda Borg einnig
að gera. Þær stöllur eiga sam-
eiginlegt að vera afkvæmi fyrri
ráðamanna í flokknum. Áslaug
er dóttir Friðriks Sophussonar,
fyrrverandi ráðherra, og Edda
er dóttir Ólafs Kristjánssonar,
fyrrverandi bæjarstjóra í Bol-
ungarvík.
n Öfgaarmur Sjálfstæðisflokks-
ins leggur mikla áherslu á að
Gísli Marteinn Baldursson
haldi stöðu sinni sem maður
númer tvö á
eftir Hönnu
Birnu. Sá
hópur sem
er í kring-
um Davíð
Oddsson
og Hannes
Hólmstein
Gissurarson
á ekki mann í neinni valda-
stöðu eftir að Guðlaugur Þór
Þórðarson alþingismaður batt
enda á pólitískan feril Björns
Bjarnasonar. Allt er því lagt
undir að verja Gísla Martein
hvers örlög munu ráðast af vilja
Hönnu Birnu Kristjánsdótt-
ur borgarstjóra sem ræður því
sem hún vill.
n Öldungis er óvíst að Sjálf-
stæðisflokkurinn haldi meiri-
hluta í
Reykjavík
eftir kosn-
ingar. Fram-
sóknarmað-
urinn Óskar
Bergsson
þykir ekki
líklegur til
að laða fylgi
að flokki sínum til að ná inn
tveimur mönnum sem líklega
þarf til að meirihlutinn haldi.
Óskar hefur ekki náð að heilla
kjósendur utan hins harða
kjarna flokksins. Þá er hann
einnig umdeildur innan eigin
raða. Ólíklegt er að sótt verði
að honum en það gæti þó gerst.
Þar er helst horft til Einars
Skúlasonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra flokksins, sem
um tíma var fylgisveinn Odd-
nýjar Sturludóttur borgarfull-
trúa Samfylkingar.
6 föstudagur 6. nóvember 2009 fréttir
Sóknarbörn í hinum íslenska söfnuði þjóðkirkjunnar í Danmörku hafa áhyggjur af
því að missa frá sér íslenskan prest. Óvenjumörg fermingarbörn treysti á sendiráðs-
prestinn íslenska sem hverfur á braut um áramótin. Rudolf Otto Ronke sóknarbarn
leitar sáluhjálpar hjá prestinum og er í sjokki.
Fjöldi sóknarbarna í hinum íslenska
söfnuði þjóðkirkjunnar í Danmörku
er uggandi yfir því að missa íslensk-
an prest úr söfnuðinum um áramót-
in. Þannig hefur söfnuðurinn áhyggj-
ur af komandi fermingartímabili,
skírnum og mánaðarlegum messum
í kirkjunni.
Íslenska þjóðkirkjan hefur síð-
ustu fjóra áratugi haldið úti embætti
sendiráðsprests í Danmörku. Kirkju-
hald hefur orðið reglulegur þátt-
ur í íslenska samfélaginu um árabil
og alla jafna er messað einu sinni í
mánuði, í Kirkju heilags Páls, ásamt
því að fram fer ríkulegt barnastarf.
Séra Þórir Jökull Þorsteinsson gegnir
embættinu í dag en um áramót verð-
ur það lagt niður og presturinn send-
ur heim.
Algjörlega ómetanlegt
Sigurjóna Sigurðardóttir, fulltrúi í
safnaðarnefnd íslenska safnaðarins,
hefur orðið vör við mikla óánægju
meðal sóknarbarna. Hún bendir á
að í ár sé óvenjumörg fermingarbörn
í söfnuðinum. „Að sjálfsögðu erum
við uggandi yfir þessu. Að vera prest-
laus hérna er eitthvað sem okkur líst
mjög illa á. Það er ekki nokkur spurn-
ing að mér líst mjög illa á þetta,“ segir
Sigurjóna.
Rudolf Otto Ronke, sóknarbarn
í íslenska söfnuði þjóðkirkjunnar í
Danmörku, tekur í sama streng og
hefur hitt fjölda sóknarbarna sem
hafa miklar áhyggjur. Sjálfur hefur
hann leitað sér sáluhjálpar hjá prest-
inum um áratugaskeið. „Ég hef hitt
fólk á hverjum einasta degi sem er
svo hissa á þessu, unga fólkið líka.
Fólk undrast bæði og óttast þessa
breytingu, það skilur eiginlega ekki
hvers vegna þetta þarf að vera svona.
Það hefur verið algjörlega ómetan-
legt að hafa íslenskan prest hjá okkur
síðustu 40 ár. Ég vildi bara óska þess
að við fengjum að hafa hann áfram,“
segir Rudolf.
Fengið mikla hjálp
„Ég fer í hverja einustu messu. Mér
þótti rosalega leiðinlegt að heyra
þetta og er í sjokki. Ég veit eiginlega
ekki hvernig ég á að taka þessu því
presturinn hefur hjálpað mér mjög
í gegnum tíðina. Ég hef leitað mik-
ið til prestsins og þykir ákaflega gott
að hafa hann. Ég sjálfur hef það svo
miklu betra eftir að spjalla við prest-
inn og mér hafa verið gefin mjög góð
ráð í kirkjunni,“ segir Rudolf og bæt-
ir við: „Mér líst mjög illa á þetta. Það
er svo mikilvægt að hafa íslenskan
prest hjá okkur, fyrir fermingar og
skírnir til dæmis. Síðan er líka svo
gott að leita til viðkomandi, það eru
bara svo margir Íslendingar hérna
sem vilja hafa íslenskan prest. Prest-
urinn er svo mikill sáluhjálpari. Fyrir
mitt leyti hefur verið ómetanlegt að
hafa íslenskan prest hérna.“
Við vinnslu fréttarinnar var leit-
að eftir viðbrögðum frá Biskupsstofu
en án árangurs. Þaðan fengust eng-
in svör.
TRAusTi hAFsTeinssOn
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
VILJA PRESTINN ÁFRAM
sendur heim Séra Þórir hefur gegnt
embætti sendiráðsprests í Danmörku en
hverfur á braut bráðlega.
uggandi Sigurjóna hefur áhyggjur af
því að missa prestinn. Hún er hér ásamt
eiginmanni sínum, Halldóri Ásgrímssyni.
enginn prestur Í sparn-
aðarskyni verða hvorki
sendiráðsprestar í Danmörku
né Englandi eftir áramót.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
komist að þeirri niðurstöðu að skák-
snillingurinn Bobby Fischer hafi ver-
ið löglega kvæntur áður en hann féll
frá. Með dómnum var vísað frá kröfu
náinna ættingja Fischers sem vildu
að erfðabú hans yrði tekið til opinna
skipta.
Ekkja skákmeistarans, Japaninn
Miyoko Watai, fór fram á að sitja ein
að dánarbúi hans. Systursynir Fisch-
ers fóru hins vegar fram á að opinber
skipti færu fram á dánarbúi snillings-
ins, sem þýðir að skiptastjóri væri
settur yfir búið, og fóru með þá kröfu
fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Aðal-
meðferð málsins fór fram snemma
síðasta mánaðar og um mánaðamót-
in féll dómurinn.
Í dómnum er það viðurkennt að
Fischer og Watai hafi gengið í hjóna-
band 28. janúar 2005. Fyrir vikið sit-
ur hún ein að arfi eiginmannsins en
hundruð milljóna liggja í dánarbúi
hans, bæði reiðufé og verðmætar
fasteignir. Systursynir skákmanns-
ins sáluga hafa nokkrar vikur til að
íhuga hvort dómnum verði áfrýjað til
Hæstaréttar. Verði málinu ekki áfrýj-
að fær ekkjan allan arfinn óskiptan.
trausti@dv.is
Var giftur Dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að Bobby Fischer hefði verið löglega
giftur fyrir andlátið
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í erfðamáli skáksnillings:
Ekkja Fischers viðurkennd