Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Side 15
helgarblað 6. nóvember 2009 föstudagur 15
að gert meira til að hjálpa honum
að komast yfir þessa hrikalegu
lífsreynslu.
„Mér líður ekki vel í höfð-
inu. Ég þarf einhvern til að tala
við en ég hef engan,“ segir Mor-
ten. Mennirnir á bak við árás-
ina ganga enn lausir og vita hvar
hann býr. Samt sem áður hafa yf-
irvöld ekki útvegað honum hús-
næði þar sem honum finnst hann
öruggur. Hann býr í dag á leyni-
legum stað en er enn skráður til
heimilis þar sem hann var skot-
inn.
„Mér voru boðnar tvær íbúð-
ir. Á öðrum staðnum var eng-
in dyrabjalla og hin íbúðin var í
miðju innflytjendahverfi. Ég get
ekki lifað við það.“
Helmingslíkur á að lifa Morten var milli heims og helju í fjórtán daga. Hann
lifði skotárásina af en þarf meiri hjálp frá yfirvöldum.
Pálmi Jónsson, fjármálastjóri Knatt-
spyrnusambands Íslands, sólundaði
tæplega 8,2 milljónum króna, á nú-
verandi gengi, á nokkrum klukku-
stundum á næturklúbbabrölti sínu í
Zürich í Sviss árið 2005. Pálmi notaði
meðal annars kreditkort KSÍ til að
greiða fyrir hundrað þúsund króna
kampavínsflöskur. Frá þessu greindu
svissneskir fjölmiðlar í gær. KSÍ segir
Pálma hafi orðið fórnarlamb skipu-
lagðrar glæpastarfsemi þar ytra, en
hann beri allan skaðann sjálfur af
tapinu og hafi verið gert að endur-
greiða þann hlut sem féll á kort KSÍ.
Sambandið beri engan fjárhagsleg-
an skaða af málinu. Pálmi höfðaði
mál gegn forsvarsmanni Moulin
Rouge-skemmtistaðarins í Zürich
þar sem hann taldi að okrað hefði
verið á sér en bótakröfu hans var vís-
að frá dómi í vikunni. KSÍ sendi frá
sér tilkynningu eftir að blaðamaður
DV spurðist fyrir um málið þar sem
segir að skemmtistaðurinn hafi tek-
ið 3,5 milljónir króna, á þáverandi
gengi, út af kortum Pálma án hans
vitundar.
Á svissneska fréttavefnum 20
Minuten í gær er þó eilítið önnur og
skrautlegri saga sögð af málinu en
þar segir að fjármálastjórinn hafi
ásamt þremur ungum rússnesk-
um dömum, sem nafngreindar eru
sem Eva, Lora og Carmen í fréttinni,
heimsótt fjölmarga næturklúbba í
Zürich umrætt kvöld. Í morgunsárið
hafi þau endað á Moulin Rouge þar
sem Pálmi er sagður hafa slegið um
sig og pantað kampavín í massa-
vís. Hver flaska kostaði um 800
svissneska franka, eða tæpar
hundrað þúsund krónur. Dag-
inn eftir hafi hann uppgötvað
að kreditkortareikningurinn
nam 67 þúsund svissnesk-
um frönkum. Fjármálastjór-
inn kærði í kjölfarið for-
svarsmann staðarins fyrir
okur. Var það niðurstaða
dómsins að vísa bótakröfu
Pálma frá því hann hafi
kvittað fyrir alla reikninga
umrætt kvöld og ábyrgðin
væri því hans. Þóttu eng-
ar haldbærar sannanir fyr-
ir því að okur hefði átt sér
stað. Við rannsókn á málinu
komst hins vegar upp um
stórfellda svikamyllu og fjár-
svik á skemmtistaðnum í Zür-
ich sem rekstraraðili staðarins
var dæmdur fyrir. Samkvæmt
frétt 20 Minuten hjálpaði það
Íslendingnum ekkert í sínum
málarekstri. Pálmi Jónsson starf-
ar enn hjá KSÍ samkvæmt upplýs-
ingum frá sambandinu.
Dýrkeyptir kampavínsdropar á næturrölti í Sviss:
Fjármálastjóri KsÍ
glataði milljónum
Sigurður Mikael jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU
NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR
HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR?
• Hver farþegi hefur sinn eigin skjá á sætisbakinu fyrir framan sig.
• Fjölbreytt úrval kvikmynda, sjónvarpsþátta og annars efnis í nýju afþreyingarkerfi.
• Teppi, koddar og blöð eru án endurgjalds.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
76
46
1
1/
09
Dýrir dropar
Pálmi Jónsson
er sagður hafa
sólundað milljónum
króna í kampavín á
skemmtistað í rauða
hverfinu í Zürich.