Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 21
fréttir 6. nóvember 2009 föstudagur 21
BEINN ÞJÓFNAÐUR
BJarga VErÐMÆtuM
World Class-eigendurnir Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir hafa stofnað nýja kenni-
tölu undir reksturinn, samkvæmt heimildum DV. Þegar hefur eignum verið skotið
inn í hið nýja félag og skuldirnar skildar eftir í því gamla. Þær skuldir eru nærri millj-
arði íslenskra króna.
Nú þegar er búið að breyta ýmsum rekstrarsamningum yfir á nýja félagið, sem stofn-
að var um miðjan mánuðinn, og eignir verið fluttar á milli án þess að greiðsla hafi
komið yfir í gamla félagið í staðinn. Nýja félagið getur þannig tekið yfir reksturinn en
milljarðurinn liggur eftir í skel gamla félagsins. Samkvæmt heimildum DV eru einnig
uppi grunsemdir um að kennitölubreytingin og færsla eigna hafi verið framkvæmd
með aðstoð lánardrottins. Sá lánardrottinn er Landsbankinn. Stærstur hluti skulda
þeirra World Class-eigenda er til kominn vegna misheppnaðs útrásarævintýris World
Class í Danmörku. Takist að færa eignirnar yfir á nýtt félag sleppa eigendurnir við
milljarð í skuldir.
Stór hluti skuldanna snýr að Straumi Fjárfestingabanka. Straumsmenn eru afar
ósáttir vegna kennitölubreytingar World Class og aðstoðar Landsbankans við þá
breytingu, eftir því sem heimildir DV herma. Landsbankinn eignaðist húseignina,
sem World Class Laugum er rekið
í, eftir að Nýsir fór á hausinn. Til að
tryggja húsaleigu og tekjur hefur
bankinn hjálpað eigendunum að
stofna nýtt félag og skilja skuldir
eftir í gamla félaginu. Skuldir sem
eru tilkomnar eftir misheppnað
útrásarævintýri heilsuræktarinnar
í Danmörku. Þær nema milljarði
íslenskra króna sem Björn og Haf-
dís vonast til að verði afskrifaðar.
Samkvæmt heimildum DV undir-
búa Straumsmenn málsókn gegn
World Class og á þeim bænum
telja menn borðleggjandi að
kennitölubreytingunni verði rift.
Til að auðvelda málsóknina hefur
bankinn keypt til sín kröfur frá
annarri fjármálastofnun, til þess
að tryggja stöðu sína og ná betur
til eigendanna fyrir dómstólum.
Landsbankinn ber fyrir sig banka-
leynd og þaðan fást engin svör.
BrJÁLaÐir BirgJar
Birgjar Pennans voru ævareiðir yfir því á vormánuðum að Kaupþing banki hefði
stofnað nýtt félag utan um rekstur Pennans á Íslandi og skipt um kennitölu á
félaginu því slíkt gerði þeim illmögulegt að fá kröfur sínar við fyrirtækið greiddar.
Kaupþing banki tók yfir rekstur Pennans þann 20. mars síðastliðinn en bankinn er
stærsti kröfuhafi fyrirtækisins. Bankinn úrskurðaði Pennann svo gjaldþrota en mun
halda áfram að reka verslanir Pennans þar til heppilegur kaupandi finnst. Sá rekstur
fer hins vegar fram undir nýrri kennitölu.
Birgir sem á útistandandi kröfu hjá Pennanum frá því í byrjun ársins segir að sér
þyki það afar miður að bankinn hafi skipt um kennitölu. „Ég hafði samband við
gjaldkera Pennans á fimmtudag til þess að fá kröfuna greidda en fékk þá þau svör
að fyrirtækið væri komið í þrot, að búið væri að skipta um kennitölu og því fengi ég
kröfuna ekki greidda,“ sagði birgirinn óánægði.
„Krafan mín er á gömlu kennitöluna. En ég get gengið inn í verslanir Pennans og
séð vörurnar mínar þar og mun Penninn græða á því að selja þær en ég veit að
ég mun aldrei fá þær borgaðar. Þetta er ekkert annað en þjófnaður; þetta er bara
kennitölusvindl. Það sem mér svíður mest er að það er Kaupþing banki sem er að
gera þetta, ríkisbankinn.“
Helgi Júlíusson, forstjóri Pennans, sagði í samtali við DV að félagið hefði verið lýst
gjaldþrota og að Kaupþing hefði stofnað nýtt félag utan um rekstur fyrirtækisins.
Forstjórinn segir að félagið hafi verið lýst gjaldþrota því að menn hafi metið það
svo að þetta væri eina leiðin til að tryggja rekstrargrundvöll Pennans og störf
starfsfólksins. „Þetta er ekki gert til þess að svína á neinum,“ sagði Helgi.
HLiÐarVEguriNN VaLiNN
„Það er búið að stofna nýjan klúbb og nýja kennitölu. Þetta er bara smá hliðarvegur
sem var tekinn til að losna við skuldir. Þetta er nátturlega bara kennitöluflakk og ég
forðast ekki að tala um það,“ segir Jón Baldursson, fráfarandi formaður Golfklúbbs
Eskifjarðar.
Golfklúbbur Eskifjarðar er fyrsti golfklúbbur í sögu Íslands sem farið hefur á hausinn.
Klúbburinn var nýverið lýstur gjaldþrota eftir að hann réð ekki við tugmilljóna skuld-
ir, tæplega sextíu milljóna króna tap. Nú hefur verið stofnaður nýr klúbbur á grunni
þess eldri, Golfklúbbur Byggðarholts, og ný kennitala tekin við. Skuldirnar verða hins
vegar eftir hjá gamla félaginu. Þrátt fyrir gjaldþrot klúbbsins bauð formaður hans sig
aftur fram til formannssetu en hlaut ekki kosningu.
Jón leggur áherslu á að gjaldþrotið hafi verið illviðráðanlegt. „Ég réð ekkert við þetta
gjaldþrot. Við erum fyrsti klúbburinn sem fer í þrot því yfirleitt hafa sveitarfélögin
komið til bjargar. Okkar sveitarfélag er sjálft hins vegar á gjörgæslu og í það slæmum
málum að ekki var hægt að bjarga okkur. Því fannst engin lausn og því urðum við að
fara í þrot. Núna er bara komin ný stjórn. Ég er ekkert að fela það hvernig hlutirnir
gengu fyrir sig,“ segir Jón.
„Við vorum óheppin með framkvæmdir og erlend lán. Það er enginn öfundsverður
af því að fara á hausinn. Gjaldþrotið var óheppileg staða en það var ömurlegt að
lenda í þessu. Auðvitað var upplifunin ömurleg, ég leyni því ekkert. Auðvitað var ég
ekki sáttur við tapið en lífið heldur áfram og ég er ekki hættur í golfi. Nú fæ ég bara
meiri tíma fyrir það.“
ZiK-ZaK MEÐ KENNitöLur
Eigendur tískuvöruverslananna ZikZak brugðu á það ráð í vor að stofna nýtt félag
utan um reksturinn þar sem gjaldþrot blasti við eldra félagi. Hið nýja félag var skráð
á unga dóttur hjónanna sem reka verslanirnar. Miklar skuldir urðu eftir á gömlu
kennitölunni, jafnt skuldir við birgja sem og skuldir á opinberum gjöldum.
Öllu starfsfólki gamla fyrirtækisins var sagt upp störfum og verslunum fækkað.
Starfsmönnum var tilkynnt að þeir fengju engin laun greidd út þar sem skuldir
fyrirtækisins væru umfram eignir þess.
DV reyndi ítrekað að ná tali af eigendum ZikZak en án árangurs. Hin unga dóttir
þeirra, Sigríður, neitaði að ræða málið við blaðamann þegar leitað var eftir svörum
um kennitölubreytinguna. Að hennar sögn hafa sprottið upp ýmsar sögur um
starfsemina sem ekki séu sannar. Hún vildi hvorki segja hvaða sögur það eru né
leiðrétta þær í samtali við blaðamann. „Nei, ég vil helst ekki taka það á mig. Það
þýðir ekkert að vera að reyna að segja eitthvað. Þetta er bara ákvörðun sem við
höfum tekið. Við ætlum ekki að svara neinum spurningum.“ Aðspurð hvort hún eigi
við spurningar fjölmiðla eða starfsmanna sem nú hafa misst þar vinnuna, er svarið:
„Bara allt saman. Við viljum helst loka á þetta sem fyrst.“
Sleppa vel Heimildir DV herma að helstu eign-
ir World Class hafi verið færðar á nýja kennitölu
en skuldir skildar eftir á þeirri gömlu.
Ný kennitala Nærri sextíu milljóna tap setti Golfklúbb Eskifjarðar á hausinn. Búið
er að stofna nýja kennitölu undir reksturinn.
Of dýrt Eigendur ZikZak-tískuverslananna færðu eignir yfir á nýtt einkafélag sem
skráð var á unga dóttur þeirra.
móti. Þannig á þetta að vera,“ segir
Brynjar.
Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lög-
fræðingur Neytendasamtakanna,
segir kennitöluflakk alvarlegt gagn-
vart réttindum neytenda. Hún telur
nauðsynlegt að skattayfirvöld taki
hart á málunum. „Við verðum bein-
línis ekki mikið vör við kennitölu-
flakk því slíkt er erfitt að sanna en
það virðist vera nokkuð um þetta.
Það er mjög algengt að fólk leiti til
okkar vegna gjaldþrota og tilvika
sem virðast vera kennitöluflakk. Þau
tilvik eru mjög blóðug því þá missir
fólk réttindi sín sem neytendur,“ segir
Hildigunnur.
Bjarga úr brunanum
Þórólfur bendir á að hægt sé að fara
fram á ógildingu kennitöluflakks.
Hann segir hægt að skoða kennitölu-
flakk í samlíkingu við húsbruna. „Það
að menn framkvæma kennitöluflakk
vísvitandi er í eðli sínu beinn þjófn-
aður. Verið er að hafa fé undan og þar
með verið að brjóta gagnvart kröfu-
höfum. Í rauninni er þarna verið að
stela frá öðrum. Skiptastjóri getur
auðveldlega tekið upp slíka gjörn-
inga samkvæmt lögum. Kröfuhaf-
ar verða að fylgjast vel með málum
og fara fram á riftun gjörninganna.
Þannig er hægt að ná eigum aftur til
búsins,“ segir Þórólfur.
„Kannski líta sumir á þetta eins
og húsbruna, að innbúinu sé hent
út um gluggann og því bjargað en
um leið er það tekið frá réttmætum
eigendum. Álagið nú er svo mikið
að hættan er meiri á að menn kom-
ist upp með svona lagað. Að stunda
ábyrg viðskipti er grundavallarat-
riði. Menn verða að geta treyst því að
búskipti séu réttlát, ef almennt van-
traust vegna kennitöluflakks er til
staðar eyðileggur það fyrir öllum.“
Herða reglur
Indriði segir kerfið bjóða upp á gal-
opna möguleika fyrir óábyrgan at-
vinnurekstur þar sem rekstraraðilar
geti stundað það að færa verðmæti á
milli kennitalna. Hann telur að slíkt
gangi ekki upp gagnvart heiðarleg-
um samkeppnisaðilum og að treysta
þurfi verulega löggjöfina gagnvart
kennitöluflakki. Þannig sé hægt að
kalla fram ábyrgan fyrirtækjarekstur
á Íslandi.
Aðspurð telur Hildigunnur einn-
ig mikilvægt að herða reglur og bæta
eftirlit. Hún segir því miður lítið hægt
að bregðast við kennitöluflakki. „Ef
fólk framkvæmir kennitöluflakk vís-
vitandi er það mjög slæmt gagnvart
neytendum. Mér finnst að það þurfi
að fylgjast með þessu því það er ansi
mikið um þetta. Neytendur geta
alltaf gert kröfur í þrotabú en þegar
kennitöluflakk hefur átt sér stað er
það auðvitað mjög hæpið. Þá
er einnig of algengt að ný
félög taki ekki yfir ábyrgð-
ir eldri félaga og slíkt set-
ur neytendur í vanda. Við
lendum talsvert í svona
löguðu og þau mál geta verið mjög
snúin,“ segir Hildigunnur.
Ekkert nýtt
Jón Steindór segir Samtök iðnaðar-
ins lengi hafa stefnt að því að setja
upp svartan lista sem vari við ein-
staklingum sem beinlínis stundi það
að reka fyrirtæki í þrot. Hann telur
samkeppnisstöðu fyrirtækja ruglast
þegar kennitöluflakkarar eru ann-
ars vegar. „Skaðsemin birtist fyrst og
fremst gagnvart kröfuhöfum ásamt
því að samkeppnisstaða fyrirtækja
ruglast. Þegar menn þurfa ekki
að standa skil á skuldbinding-
um sínum standa þeir betur
að vígi í samkeppninni. Við lít-
um þetta mjög svo alvarlegum
augum. Við viljum setja upp
svartan lista og vara við þess-
um atvinnuflökkurum. Það
megum við því miður ekki,“
segir Jón Steindór.
Brynjar bendir á að
kennitöluflakk sé síður en
svo nýtt fyrirbæri. „Því mið-
ur er þetta ekkert nýtt. Brot-
ið er gegn kröfuhöfum sem
eiga kröfur í verðmæti gamla félags-
ins og þarna eru teknir peningar sem
menn eiga ekki. Ég er mjög ósáttur
við það að slíkt sé gert vísvitandi og
í mínum huga er það klárt hegning-
arlagabrot. Auðvitað er það alvar-
legt. Stundum hef ég ákveðna sam-
úð en stundum langar mig bara til að
kyrkja viðkomandi,“ segir Brynjar.
Alvarlegt Sérfræðingar DV telja
kennitöluflakk þjófnað gagnvart
kröfuhöfum fyrirtækja.
Svartur listi Jón Steindór vill helst setja
upp svartan lista yfir atvinnuflakkara
sem stunda að sigla fyrirtækjum í strand.
Réttur neytenda
Hildigunnur segir
fjöldamörg tilvik koma
inn á borð til hennar
þar sem grunur er um
kennitöluflakk.
Kaupþing hjálpaði Kaupþing
hefur stofnað nýtt félag utan
um rekstur Pennans og skipt um
kennitölu á fyrirtækinu.