Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Side 25
Hver er maðurinn? „Friðrik Ómar
Hjörleifsson, sonur Hjörleifs
Halldórssonar frá Steinstöðum í
Öxnadal og Sólveigar Gestsdóttur frá
Auðnum í Öxnadal.“
Hver er fyrsta minning þín úr
æsku? „Að búa í sveit í Öxnadal.“
Hvað drífur þig áfram? „Söngurinn
og tónlistin.“
Hver er eftirminnilegasta bók
sem þú hefur lesið? „Sagan af Pí.“
Hvernig tilfinning er það að eiga
vinsælustu plötuna í tveimur
löndum samtímis? „Óraunveruleg!
Samt er þetta staðreynd og afar
ánægjulegt. Ég tel upp að tíu, dreg
andann djúpt og brosi. Þetta er ekki
sjálfgefið og ef það er eitthvað sem
ég hef lært undanfarin ár er það að
njóta augnabliksins og ekki fara fram
úr sér.“
Telurðu að tónlistarsmekkur
Íslendinga og Færeyinga sé líkur?
„Já, að mörgu leyti en Færeyingar eru
samt tryggari sínu tónlistarfólki en
Íslendingar. Okkur finnst oft grasið
grænna hinum megin.“
Hvernig kom það til að þið
Jógvan réðust í þetta samstarf?
„Það var örugglega húmorinn sem
laðaði okkur hvor að öðrum og svo
það að við teljum okkur geta lært
eitthvað hvor af öðrum. Mér finnst
best að vinna með fólki sem ég get
lært eitthvað af. Af Jógvani læri ég
auðmýkt og færeysku. Hins vegar
ætla ég ekki að tileinka mér
kæruleysið hans (hlær).“
Heldurðu að Regína Ósk og Eivör
gætu náð álíka árangri ef þær
myndu gera plötu saman? „Alveg
örugglega, en samt ekki gera það
stelpur!“
Tekurðu þátt í Eurovision í vetur?
„Nei. Þörfin er ekki til staðar lengur
sem er kannski ekkert skrýtið. Ég tók
þátt 2006, 2007, 2008 og var síðan
ekki með í fyrra í forkeppninni en var
beðinn um að fara sem bakrödd og
sló til. En Eurovision er ekki að fara
neitt og ég ætla ekki að afskrifa það
að ég fari aftur en þá fer ég einn. Ég
sá það alltaf skýrt fyrir mér sem krakki
að ég myndi vinna Eurovision fyrir
hönd Íslands einn daginn!“
Hvaða ráðHerra stendur sig best?
„Davíð Oddsson, fyrrverandi ráðherra.“
ATli EinARsson,
23 árA AtviNNulAuS
„Steingrímur. Hann er fyndinn.“
TÓmAs KRisTJánsson,
18 árA StArFSMAður Í FJÖlSMiðJuNNi
„Ég þekki ekki neinn ráðherra.“
siguRlÍn ÓsK HRAFnsdÓTTiR,
17 árA NEMi
„Ég veit ekkert um svoleiðis. Ég fylgist
ekki með því.“
dAnÍEl ÓsKAR PRoFic
16 árA NEMi
Dómstóll götunnar
Ekki margir Íslendingar geta státað
sig af því að eiga vinsælustu plötuna
í tveimur löndum samtímis.
FRiðRiK ÓmAR HJöRlEiFsson
getur það þessa dagana en plata
hans og Jógvans Hansen, vinalög, er
á toppnum á Íslandi og í Færeyjum.
Húmorinn leiddi
okkur saman
„Ég hef enga skoðun á stjórnmálum.“
guðRún sæmundsdÓTTiR,
21 árS StArFSMAður Í DýrAlANDi
maður Dagsins
Það hefur verið merkilegt að fylgj-
ast með menntun Michaels Moore.
Eins og flestir vita lítur hann út eins
og dæmigerður Kani, með der-
húfu og digra skyndibitavömb. Ef
til vill hefði hann lifað lífi sínu eins
og flestir dæmigerðir Kanar eiga
að gera, talið sig hafa fundið lífstil-
ganginn í því að eignast pallbíl og
gerast meðlimur í byssusamtökun-
um NRA. Stjórnmálaþróunin gerði
honum slíkt þó ókleift.
Moore ólst upp í Flint, Mich-
igan, þar sem helsti atvinnuvegur
bæjarbúa, þar á meðal föður hans,
var að vinna í verksmiðjum General
Motors. Á Reagan-árunum var hins
vegar farið að loka verksmiðjun-
um. Árið 1989 sló Moore í gegn með
heimildamyndinni Roger and Me,
en Roger titilsins er Roger B. Smith,
yfirmaður General Motors.
Síðan þá hefur Moore verið dug-
legur við að benda á ýmislegt sem
aflaga hefur farið í Bandaríkjun-
um, svo sem byssueign í Bowling
for Columbine, hernaðarhyggju í
Fahrenheit 9/11 og lélega heilbrigð-
isþjónustu í Sicko. Í nýjustu mynd
sinni, Capitalism: A Love Story, fær-
ist hann meira í fang. Hann virðist
orðinn þreyttur á að stinga á kýl-
in, og vindur sér beint að kjarna
málsins. Öll þessi vandamál eru af-
sprengi sama vonda kerfisins.
Jesús Kristur og góðu forset-
arnir
Í hugum margra eru Bandaríkin og
kapítalisminn samtengd fyrirbæri,
enda hafa þau verið helsti málsvari
markaðshagkerfisins undanfarna
öld eða svo. Moore bendir þó á að
það sé ekkert í stjórnarskrá Banda-
ríkjanna sem bendlar þau sérstak-
lega við kapítalisma, hún hljómi í
raun frekar sósíalísk ef eitthvað er.
Hann varar sig þó á því að ráðast
á annan af grunnstólpum Banda-
ríkjanna, kristnina, heldur bend-
ir á hvað frjálshyggjukapítalismi sé
lítt samrýmanlegur boðskap Krists.
Hann bendir einnig á hvernig góð-
ir forsetar, svo sem Franklin Roose-
velt og Jimmy Carter, hafa varað við
græðgisvæðingunni.
Í grunninn má segja sem svo að
Moore telji hnignun Bandaríkjanna
hafa hafist í stjórnartíð Ronalds
Reagan, þegar atvinnuleysi jókst,
sífellt fleirum var stungið í fangelsi
og hinir ríku urðu æ ríkari. Þetta
ferli hefur síðan haldið óslitið áfram
með Clinton og tveimur Bush-um,
þegar forsvarsmenn stórfyrirtækja
og banka á borð við Goldman Sachs
sátu í öllu ráðuneytum. Þeir hófu
síðan að afnema allt aðhald innan
frá. Sigrún Davíðsdóttir sagði ein-
mitt á þéttsetnum hádegisfundi
í Háskólanum á þriðjudaginn að
Glitnir hefði ekki hrunið út af Leh-
man Brothers, heldur hefðu báðir
bankarnir hrunið af sömu ástæðu,
of miklum innbyrðistengslum.
Michael Moore telur að með
Obama hafi nýtt tímabil gengið í
garð, að tíma hinnar óheftu græðgi
sé lokið. Þær gríðarlegu upphæð-
ir sem bankarnir fengu eftir hrun-
ið síðasta haust hafi verið lokaút-
spil þess hóps sem öllu hefur ráðið
í Bandaríkjunum sem hafi sópað
til sín eins miklu og þeir gátu af al-
mannafé áður en ný stjórn tók við.
Kínverska öldin
Þó að stuðningur við Obama fari
dvínandi er ýmislegt sem bendir til
þess að kapítalisminn í Bandaríkj-
unum standi á miklum tímamótum.
Undanfarin 30 ár, með hnignum
og síðan falli Sovétríkjanna, hafa
Bandaríkin verið í stöðu einokunar-
fyrirtækis í alþjóðamálum. Þau hafa
hegðað sér sem slík, með blöndu af
óhófi og kæruleysi sem hefur reynst
þeim afar dýrkeypt. Þau eiga nú í
stríði á tvennum vígstöðvum sem
þau geta ekki unnið og eru mikill
dragbítur á versnandi efnahag þjóð-
arinnar. Skuldir ríkisins hafa einnig
aukist til muna eftir hrunið síðasta
haust.
Kína hefur komið hlutfallslega
mun betur út úr efnahagsörðugleik-
unum og kínversk fyrirtæki fjárfesta
grimmt í Suður-Ameríku og Afr-
íku. Kínverjar eru nú að byggja sitt
fyrsta flugmóðurskip, en ef til vill er
það meira áhyggjuefni fyrir Banda-
ríkin að þau skulda Kínverjum um
800 milljarða dollara. Þó að hagkerfi
Kína sé aðeins um þriðjungur af
hagkerfi Bandaríkjanna eru einnig
önnur lönd, svo sem Brasilía, Rúss-
land og Indland að sækja í sig veðr-
ið.
Bandaríkin eru ekki lengur ein-
okunarfyrirtæki. Þau hafa því ekki
efni á fleiri tilraunum eins og þeim
sem fólust í frjálshyggjunni. Slíkar
tilraunir eru einfaldlega of dýrkeypt-
ar. Því eru líkur á því að samkeppn-
in neyði Bandaríkin til að haga sér
skynsamlegar næstu árin.
Þroskasaga Michaels Moore
mynDin
Ístak til hjálpar verktakafyrirtækið er í jarðvegsvinnu fyrir Fjölskylduhjálp Íslands til þess að bæta aðgengi fólks í hjólastólum að þjónustu Fjölskylduhjálparinnar auk þess sem auðveld-
ara verður að koma stórum sendibílum sem flytja þeim sem minnst mega sín varning upp að dyrum. Ístak þiggur ekki greiðslu fyrir vinnuna sem er því sannkallað góðverk. mynd HEiðA
kjallari
umræða 6. nóvember 2009 föstudagur 25
vAluR
gunnARsson
rithöfundur skrifar
„Bandaríkin
eru ekki lengur
einokunarfyr-
irtæki.“