Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 29
m
æ
li
r
m
eð
...
...Jóni Leifs
- Lífi í tónum
Fyrri verk um
Jón Leifs hverfa
í skuggann af
þessari vönduðu
ævisögu.
...Paradísar-
borginni
Raunsannur
hryllingur og
margslungin saga.
...Zombie-
land
Ein besta
gamanmynd
ársins.
...Það liggur í
loftinu
Höfundarverkið er
enn ein staðfesting
á snilld Jónasar
Jónassonar.
...óp-
erunni
Ástar-
drykkur-
inn
Drykkur
sem virkar.
fókus 6. nóvember 2009 föstudagur 29
föstudagur
n Klaufarnir á Players
Klaufarnir spila á Players í Kópavogi
í kvöld. Ár og aldir eru síðan Klaufar
spiluðu þar síðast þannig að búist
er við að þakið rifni af kofanum. Fátt
klaufalegt við það.
n Jack Live-kvöld á sódómu
Who Knew, Sing For Me Sandra
og Biggibix spila á Jack Live-
kvöldi á Sódómu Reykjavík. Húsið
opnar klukkan 23, tónleikar hefjast
stundvíslega klukkan 0.00. 1.000
krónur inn.
n todmobile í Höllinni
Manstu eftir lögum eins og Eldlaginu,
Í tígullaga dal og Pöddulaginu? Ef
ekki þá færðu tækifæri til að rifja þau
upp á tónleikum með Todmobile sem
fram fara í Höllinni í Vestmannaeyjum
í kvöld. Leikar hefjast klukkan 21,
miðaverð 2.500 krónur.
n Dj moonshine á Prikinu
Prikið er staður sem aldrei sefur, sama
hvað tunglið skín. Því er við hæfi að
Dj Moonshine sjái um tónlistina fyrir
hina vel vakandi líkt og hann mun
gera í kvöld. „Happyhour“ milli kl.22
og 1, stór á 390 döðlur.
laugardagur
n Djarft kvöld á Club 101
Svokallað Dirty Night fer fram á Club
101 í kvöld. Keppt verður í djörfum
dansi, valin verður Sierra Tequila-
stúlkan, sjóðandi heit undirfatasýn-
ing fer fram og ýmislegt fleira. Dj Óli
Geir, Dj Sindri BM og Dj Joey D sjá um
tónlistina. Miðaverð er 999 krónur.
n skriðjöklar á spot
Hljómsveitin Skriðjöklar spila á Spot
í Kópavogi. Piltarnir eru auðvitað
þekktastir fyrir lagið Ég sé um
hestinn frá níunda áratugnum og
munu án efa taka það einu sinni,
jafnvel tvisvar, í kvöld. Láttu einhvern
sjá um börnin og mættu á Spot í
kvöld í glimrandi gír.
n Við borgum ekki í Borgarleik-
húsinu
Hvernig væri að gefa öldurhúsun-
um frí í kvöld og kíkja í staðinn í
leikhús, til dæmis á Við borgum ekki
í Borgarleikhúsinu? Þessi sívinsæli
gamanleikur Dario Fo er nú þar í
sýningum í leikstjórn Þrastar Leós
Gunnarssonar. Verk sem talar heldur
betur inn í íslenskan samtíma.
n Karlakórar í Glerárkirkju
Ef þú verður í menningarlega gírnum
um helgina og verður staddur/stödd
á Norðurlandi þá er hægt að skella
sér á tónleika með karlakór, og
það tveimur! Karlakór Akureyrar-
Geysir og Karlakórinn Drífandi á
Fljótsdalshéraði sameinast nefnilega
á tónleikum í Glerárkirkju klukkan 16
í dag. Einstakt tækifæri.
Hvað er að
GERAST?
...this is it
Aðdáendur
Michaels Jackson
verða að sjá þessa.
Hinum finnst
örugglega vanta
klímax.
gera mynd með aðeins meiri jarð-
tengingu en myndir hans hafa haft
hingað til. „Mér fannst það takast og
með hruninu fékk myndin reynd-
ar enn sterkari jarðtengingu,“ segir
Hilmar.
Hann bætir við að umfjöllunar-
efni myndarinnnar sé í sjálfu sér al-
varlegt mál. „Og mér finnst þetta
mikilvæg saga. En við ákváðum strax
að frásögnin yrði að vera eins létt og
hægt væri. Myndin er því grátbrosleg.
Ef ég hef fyrirmynd einhvers staðar
þá eru það breskar gamanmyndir.
Ef þær eru góðar græturðu jafnmikið
og þú hlærð. Woody Allen á góðum
degi er líka í senn fyndinn og tragísk-
ur. Þannig er lífið svo mikið. Og þetta
mátti ekki verða eitthvert svartnætti,
þetta varð að vera skemmtilegt. Í
því fólst glíman. Svo þegar við vor-
um búnir að ákveða hvert umhverfið
væri kom sagan svolítið af sjálfu sér.“
Gerði myndina
enn nauðsynlegri
Desember hefur verið kynnt sem
fyrsta íslenska jólamyndin. Hilmar
segir það vissulega kost að slík mynd
hafi ekki verið gerð áður.
„Og hugmyndin um að hafa jólin
inni í þessu held ég að hafi kviknað
strax fyrsta daginn. Við sáum að þau
urðu að vera þarna því þetta með að
þiggja aðstoð Mæðrastyrksnefndar
og Hjálpræðishersins er svo sterk-
lega tengt jólunum og gerir myndina
bara enn þá nauðsynlegri. Og þó að
þetta sé ekki Love Actually, sem er
frábær mynd, þá er þetta samt jóla-
mynd. Í stað þess að fjalla um forsæt-
isráðherra fjöllum við um fólk sem er
aðeins neðar í þjóðfélagsstiganum.
En elementin eru öll þau sömu.“
Hilmar segist ekki hafa haft meira
gaman af jólamyndum en aðrir í
kringum hann hingað til og ekkert
verið að pæla neitt sérstaklega í þeim.
„Ég hugsa bara eins og flestir um það
hvort mynd sé góð eða vond, eða
hvort mynd höfði til mín eða ekki.
En eftir að ég ákvað að gera þessa
mynd forðaðist ég ekki jólamynd-
ir,“ segir Hilmar og hlær. Hann bæt-
ir við að hann hafi rifjað upp nokkrar
klassískar jólamyndir, til dæmis It´s a
Wonderful Life með Jimmy Stewart
sem er ein frægasta jólamynd allra
tíma. „Allar jólamyndir sem eitthvað
er varið í fjalla um grafalvarlega hluti.
It´s a Wonderful Life er til dæmis um
sjálfsmorð. Samt verður þetta klass-
íker og það er bara af því að þarna
er lífið sjálft að leik. Auðvitað eru
líka til yfirborðskenndar, grunnar
og væmnar jólamyndir en það voru
svona fimm, sex myndir sem ég sá
sem voru mjög fínar.“
Öðruvísi en öll önnur jól
Desember var tekin á sex vikna tíma-
bili í kringum síðustu jól. Hilmar seg-
ir það hafa verið svolítið sérstakt að
taka upp jólamynd um nákvæmlega
þessi jól vegna þess sem gerst hafði
um haustið. „Jólin 2008 voru öðru-
vísi en öll önnur jól sem ég man eftir.
Maður sér það líka á myndinni. Þjóð-
in var í sárum, það hefur aldrei verið
jafnlítið um skreytingar, það var eng-
inn snjór og það var því mjög skrít-
in jólastemning. Þegar maður er að
gera jólamynd vill maður ljós og ég
var svolítið spældur hvað götuskreyt-
ingar voru fábrotnar miðað við árin á
undan. En svo þegar ég fór að horfa á
þetta í þessu samhengi varð ég bara
sáttur því myndin hefur að því leyti
sagnfræðilegt gildi.“
Hilmar og félagar voru að ljúka
við fjármögnun myndarinnar þegar
allt fór á hliðina hér á landi í októ-
ber í fyrra. „Við héldum fund þar sem
við einfaldlega spurðum okkur sjálf:
„Getum við þetta?“
Við veltum því alvarlega fyrir okk-
ur hvort við ættum að skila pening-
unum sem safnast höfðu til að gera
myndina af ótta við að við næðum
ekki að sigla þessu fleyi til hafnar.
En við fengum frábæran hóp af lykil-
starfsfólki til að taka ákveðna áhættu
og það varð þannig meðframleið-
endur. Þannig myndaðist sterk-
ur mórall um að þetta væri myndin
Okkar með stórum staf. Við áttum öll
hagsmuna að gæta og þannig tókst
að klára þetta,“ segir Hilmar.
ný tækni notuð
Frumsýning Desember er fyrsta
frumsýning nýstofnaðs félags, Ljós-
bands ehf., sem er í eigu hinna marg-
reyndu kvikmyndaframleiðenda
Hrannar Kristinsdóttur og Önnu
Maríu Karlsdóttur. Þær eiga að baki
myndir eins og Ikingut, Regínu,
Engla alheimsins, Fálka og Kaldaljós.
Þess má geta að myndin er tekin með
nýrri stafrænni tækni sem kallast
Red One. Hilmar veit ekki betur en
að allar íslenskar myndir sem teknar
hafi verið upp á þessu ári hafi einnig
nýtt sér þessa nýju tækni, en Desem-
ber er sú fyrsta til að koma fyrir sjón-
ir almennings. Hilmar hefur hingað
til tekið allar sínar myndir á filmu en
hann segir þetta í fyrsta skipti sem
hann fái í hendur format sem stenst
samanburðinn við filmuna.
„Þess vegna var ég tilbúinn til að
breyta. Við kvikmyndagerðarmenn
erum flestir miklir filmumenn en
þessi tækni hefur marga af kostum
filmunnar og er hagkvæmari. Önn-
ur hver mynd sem er núna gerð í Evr-
ópu og Holllywood er, að ég held,
tekin upp á Red One þannig að þetta
er greinilega framtíðin.“
tók Lay Low á skyndinámskeið
Aðalleikarar myndarinnar eru Tóm-
as Lemarquis og Lovísa Elísabet Sig-
rúnardóttir, betur þekkt sem tónlist-
arkonan Lay Low. Hilmar segist ekki
hafa séð þau fyrir sér í hlutverkunum
til að byrja með. „Þau eru einhvern
veginn allt of spes til að maður hugsi
strax til þeirra. En svo fóru fram pruf-
ur og þetta varð niðurstaðan,“ segir
Hilmar.
Lengri útgáfan af því hvernig Lov-
ísa, sem er algjörlega óreynd sem
leikkona, endaði í myndinni er sú að
annar aðalframleiðenda myndarinn-
ar, Hrönn Kristinsdóttir, stakk upp
á henni. Hilmari leist ekkert á það
fyrst og ímyndaði sér að Lovísa gæti
ekki leikið. Nafn hennar fór þó ekki
úr huga hans, enda var hann að leita
annaðhvort að syngjandi leikkonu
eða leikandi söngkonu því persón-
an sem um ræðir er söngkona. „Ég
fór svo að hugsa að það væri eitthvað
spennandi við þessa hugmynd. Lov-
ísa er líka mjög heillandi sem mann-
eskja og listamaður. Ég hringdi því í
hana og hún fór bara að hlæja þegar
ég viðraði þessa hugmynd við hana,“
segir Hilmar. Hann spjallaði svo við
Lovísu í hátt í hálftíma og tókst að
tala hana inn á að koma í prufu til
sín. Eftir hana varð Hilmar síðan
sannfærðari en nokkru sinni að Lov-
ísa væri rétta manneskjan og var hún
því ráðin.
„Á settinu þurfti ég náttúrlega að
taka hana svolítið öðrum tökum, hún
fór á skyndinámskeið hjá mér hvern-
ig kvikmyndaleikari vinnur og fleira,
og það gekk mjög vel. Það sést líka í
myndinni að hún vex eftir því sem
lengra líður. Hún færist öll í aukana
og öryggið verður meira,“ segir Hilm-
ar.
Vinnur að mynd
um Vetrarferðina
Spurður hvort hann sé búinn að fá
upp í kok af jólunum nú þegar hann
hefur nýlokið gerð myndar sem
hverfist um þau segist Hilmar ekki
finna fyrir því. „Nei, nei. Ég gæti alveg
hugsað mér að gera aðra mynd sem
tengist jólunum. Og ég hef oft verið
meira búinn eftir mynd. Ég væri því
alveg til í að byrja á næstu mynd á
morgun, alla vega á mánudag,“ segir
Hilmar og hlær.
Þegar blaðamaður spyr svo í
rælni hinnar klisjukenndu spurn-
ingar hvaða verkefni séu fram und-
an segist Hilmar vera með tvö, þrjú
verkefni í handraðanum. Eitt þeirra
sé sjónvarpsþáttaröð og mynd byggð
á skáldsögunni Vetrarferðin eftir Ólaf
Gunnarsson.
„Ég er að vinna að handriti fyr-
ir hvort tveggja en hvort bara ann-
að þeirra verði að veruleika, eða
hvorugt, ræðst af fjármögnun,“ seg-
ir Hilmar sem fengið hefur hand-
ritsstyrk fyrir verkefninu. „Þetta er
eins og allt sem maður gerir, kannski
verður þetta aldrei að veruleika. En
ég er alla vega að skrifa og svo eftir
tvö, þrjú ár erum við vonandi að tala
um þessa mynd.“
kristjanh@dv.is
Hilmar Oddsson „Ég segi ekki að mér
hafi liðið eins og ég væri allt í einu að
gera heimildarmynd, en ekkert langt frá
því.“ mYnD Heiða HeLGaDóttir
Urðu hluti af viðfangsefninu
Ungt og ástfangið par lendir í bölv-
uðu basli þegar einhver óværa fer
á kreik heima hjá því á næturnar og
raskar svefnró heimasætunnar. Kær-
astinn tekur draugaganginn ekki
mjög hátíðlega en unnustan er öllu
skelkaðri enda hefur þessi ósýnilegi
skrattakollur sem nú er kominn á
kreik fylgt henni, með hléum þó, frá
því hún var átta ára.
Kærastinn ákveður þó að fá úr
því skorið í eitt skipti fyrir öll hvur
andskotinn fari í gang á meðan þau
skötuhjú reyna að sofa svefni hinna
réttlátu. Hann dregur því forláta kvik-
myndatökuvél inn á heimilið og læt-
ur vélina ganga næturlangt í hjóna-
herberginu. Þegar parið fer svo yfir
upptökurnar á daginn fer ekkert á
milli mála að einhver óhreinn and-
inn er á sveimi yfir rúminu. Sérfræð-
ingur er kallaður til en sá hrökklast
burt og segist ekkert geta átt við fyr-
irbærið vegna þess að hér sé eng-
inn venjulegur draugur á ferð heldur
illskeyttur dímon sem sjálfsagt hafi
það lokatakmark að sölsa undir sig
stelpugreyið.
Púkinn sjálfur virðist kunna at-
hygli myndavélarinnar vel og fær-
ist allur í aukana eftir því sem á líð-
ur. Spennan magnast að sama skapi,
feigðin sem hvílir yfir parinu unga frá
upphafi verður þrúgandi og ókindin
mætir reglulega með svona klassísk
„úgabúga!“ bregðuatriði sem ná að
hreyfa við taugaveikluðum áhorfend-
um á meðan þeir sem eru verseraðir í
hryllingi haggast varla.
Paranormal Activity fer núna sig-
urför um heiminn og er hampað sem
nýju Blair Witch Project sem vissu-
lega má til sanns vegar færa fyrir
utan auðvitað að Paranormal Acti-
vity er miklu betri mynd en norna-
ruslið. Í það heila er Paranormal
Activity býsna vel heppnuð hryllings-
mynd. Hún er gerð fyrir smáaura á
Hollywood-mælikvarða en einföld
og hrá heimavídeótakan með sínum
heimildarmyndafílingi smellpass-
ar og gerir ógnina býsna raunveru-
lega. Aðalleikararnir tveir skila sínu
líka áreynslulaust og ákaflega vel. Þá
er myndin fyndin á köflum og rist-
ir frekar djúpt í einfaldleika sínum.
Hún fylgir manni eftir út í kvöldmyr-
krið og er á sveimi í huga manns að-
eins á eftir en hryllingsmynd getur
varla fengið betri meðmæli þar sem
flestar gleymast þær um leið og þeim
lýkur.
Það eina sem vinnur beinlínis
gegn myndinni er orðsporið sem hún
stendur ekki fyllilega undir. Þótt hún
sé fín fyrir sinn hatt þá mígur maður
ekkert á sig af hræðslu og þegar búið
er að lofa manni því að maður verði
sleginn kaldur af ótta vill maður helst
að staðið sé við það.
Ég gekk úr salnum í þurrum nær-
buxum og svaf eins og ungbarn um
nóttina. Það voru umtalsverð von-
brigði.
Þórarinn Þórarinsson
paranormal
activity
Leikstjóri: Oren Peli
aðalhlutverk: Micah Sloat, Katie
Featherston
kvikmyndiR
Úgabúga!