Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Page 40
40 föstudagur 6. nóvember 2009 helgarblað
Helga fæddist í Reykjavík. Hún lauk
einleikaraprófi í píanóleik frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík 1963,
lauk Künstlerische Staatsprüfung
með semballeik sem aðalgrein frá
Staatliche Hochschule für Musik í
München í Þýskalandi 1968, fyrst Ís-
lendinga, stundaði framhaldsnám
í semballeik, m.a. hjá Gustav Leon-
hardt, Kenneth Gilbert, Jill Severs,
Ton Koopman og Alan Curtis. Þá
stundaði hún nám í barokktúlkun hjá
Jesper Bùje Christensen 1978-’79.
Helga var stundakennari í píanó-
og semballeik við Tónlistarskóla
Kópavogs 1972-’78, var kennari í
hlutastarfi í semballeik, barokktúlk-
un, hljómfræði og hljómborðsleik
við Tónlistarskólann í Reykjavík frá
1972 og í nær þrjá áratugi.
Helga var brautryðjandi í sembal-
leik á Íslandi og í túlkun barokktón-
listar með upprunalegum hætti. Hún
stofnaði Bach-sveitina í Skálholti
1980 sem var lengi eina sérhæfða
hljómsveitin í barokk hér á landi.
Helga hélt fjölda tónleika inn-
anlands og á Norðurlöndunum, í
Austurríki, Bandaríkjunum og víð-
ar og lék fyrir útvarpsupptökur, m.a.
í Noregi og í Hollandi. Leikur Helgu
á verkum Jóhanns Sebastians Bachs
hlaut mikið lof, ekki síst á Goldberg-
tilbrigðunum, auk sónötusyrpu sem
hún lék með hinum heimsþekkta
barokkfiðluleikara Jaap Schröder.
Aðalstarfsvettvangur Helgu var
í Skálholti en hún stofnaði þar til
sumartónleika 1975 og leiddi síðan
tónlistarhátíðina í Skálholtskirkju
í þrjátíu sumur, m.a. sem listrænn
stjórnandi, eða til 2004 er hún varð
að hætta sökum veikinda. Hún var
þó formaður stjórnar Sumartón-
leikanna þar næstu fjögur ár. Undir
stjórn Helgu varð hátíðin í Skálholti
miðstöð fyrir túlkun barokktónlist-
ar og smiðja fyrir ný íslensk tónverk.
Hún hvatti tónskáld til að leggja út
af fornum íslenskum söngarfi en í
hennar tíð voru frumflutt nær hundr-
að og fimmtíu tónverk á hátíðinni
eftir meira en fjörutíu tónskáld, oft-
ast fyrir hennar tilstilli og mörg fyrir
hana sérstaklega. Í kjölfarið á tón-
leikahaldinu í Skálholtskirkju fylgdu
svo hljóðritanir á plötum og geisla-
diskum.
Helga var ritari Kennarafélags
Tónlistarskólans í Reykjavík 1985-’86,
formaður Félags íslenskra tónlistar-
manna 1985-’87, formaður Collegi-
um Musicum, samtaka um tónlistar-
starf í Skálholtskirkju, frá 1986, sat í
Skálholtsskólaráði frá 1993.
Helga hlaut, ásamt Manuelu Wies-
ler, Menningarverðlaun Dagblaðsins
fyrir tónlist 1980, Menningarverð-
laun DV í tónlist 1994 fyrir sembal-
leik og framlag sitt til tónleikahalds
í Skálholti, riddarakross íslensku
fálkaorðunnar 2001, heiðursverð-
laun Íslensku tónlistarverðlaunanna
2004, var útnefnd heiðurssveitungi
á Álftanesi þar sem hún bjó lengst
af auk þess sem síðasti geisladisk-
ur hennar, Frá strönd til fjarlægra
stranda, var kjörinn klassíska plata
ársins 2005.
Fjölskylda
Helga giftist 11.4. 1963 Þorkeli Helga-
syni, f. 2.11. 1942, stærðfræðingi,
fyrrv. ráðuneytisstjóra í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu og fyrrv. orku-
málastjóra. Hann er sonur Helga
Þorlákssonar, f. 31.10. 1915, d. 18.10.
2000, skólastjóra, og Gunnþóru
Kristmundsdóttur, f. 10.6. 1922, hús-
móður.
Systkini Helgu eru Agnar, f. 29.7.
1937, vistfræðingur og fyrrv. prófess-
or í líffræði við HÍ, og Edda, f. 25.2.
1939, fóstra og myndlistarkona.
Foreldrar Helgu eru Ingólfur Dav-
íðsson, f. 14.1. 1903, d. 23.10. 1998,
grasafræðingur, og k.h., Agnes Dav-
íðsson, f. Christensen í Álaborg í
Danmörku 26.6. 1902, d. 7.2. 2000,
vefnaðarkennari.
Ætt
Meðal systkina Ingólfs má nefna Er-
ling, rithöfund og fyrrv. ritstjóra Dags
á Akureyri. Ingólfur var sonur Dav-
íðs, hreppstjóra á Stóru-Hámundar-
stöðum Sigurðssonar, b. á Ytri-Reist-
ará Hallgrímssonar. Móðir Davíðs
var Steinunn Davíðsdóttir, b. á Glerá
Tómassonar, b. á Grund, bróður Sig-
ríðar, ömmu Jóns Magnússonar for-
sætisráðherra. Önnur systir Tómas-
ar á Grund var Þórunn, amma Káins.
Tómas var sonur Davíðs, b. á Arnar-
stöðum Tómassonar, b. á Hvassa-
felli Tómassonar, bróður Jónasar á
Hvassafelli, afa Jónasar Hallgríms-
sonar skálds. Móðir Steinunnar var
Helga Jónsdóttir, b. á Grjótgarði Þor-
lákssonar, dbrm. á Skriðu í Hörgárdal
Hallgrímssonar, bróður Gunnars, afa
Tryggva Gunnarssonar bankastjóra
og langafa Hannesar Hafstein, skálds
og ráðherra.
Móðir Ingólfs var María Jóns-
dóttir, b. á Hólum og Hallgilsstöð-
um, bróður Önnu, móður Jónasar
á Syðri-Brekkum, föður Hermanns
forsætisráðherra, föður Steingríms,
fyrrv. forsætisráðherra. Jón var sonur
Ólafs, b. á Syðri-Brekkum Ásgríms-
sonar. Móðir Maríu var Bergþóra
Pálsdóttir.
Agnes var dóttir Peters A.M.
Christensen, faktors við Ålborg
Amtstidende í Danmörku, og k.h.,
Birthe A.H. Christensen.
Helga var jarðsungin frá Hall-
grímskirkju mánudaginn 2.11. sl.
Pétur Jens
Thorsteinsson
sendiherra
F. 7.11. 1917 D. 12.4. 1995
Pétur fæddist í Viðey. Hann var
sonur Hannesar Hafstein, skálds
og fyrsta íslenska ráðherrans, og
Katrínar, systur Muggs myndlist-
armanns. Katrín var dóttir Péturs
Thor- steinssonar, stórút-
gerðarmanns
á Bíldudal
og í Kaup-
manna-
höfn.
Pét-
ur lauk
stúd-
entsprófi
frá MR
1937, prófi
í viðskipta-
fræðum frá HÍ
1941 og embættisprófi í lögfræði
frá HÍ 1944. Hann var starfsmað-
ur utanríkisþjónustu Íslands frá
1944, sendiherra Íslands í fjölda
ríkja og oft i mörgum ríkjum
samtímis, lengst af með aðsetur
í Moskvu, París og loks Washing-
ton. Auk þess var hann fastafull-
trúi Íslands hjá Nató, OECD og
EBE og ráðuneytisstjóri í utan-
ríkisráðuneytinu 1969-’76. Pétur
átti farsælan embættisferil, enda
traustur og vel látinn og ætíð
tilbúinn að leysa hvers manns
vanda. Hann var í forsetafram-
boði 1980, ásamt Albert Guð-
mundssyni, Guðlaugi Þorvalds-
syni og Vigdísi Finnbogadóttur.
Pétur kvæntist Oddnýju Elísa-
betu Stefánsson, BBA í viðskipta-
fræði og húsmóður og eignuð-
ust þau þrjá syni, Pétur Gunnar,
Björgólf og Eirík.
Ragnar
Ásgeirsson
ráðunautur og rithöfundur
F. 6.11. 1895 D. 1.1. 1973
Ragnar
fæddist að
Kóra-
nesi á
Mýrum,
sonur
Ásgeirs
Eyþórs-
sonar,
kaup-
manns i
Kóranesi og
síðar bókhaldara í Reykjavík, og
Jensínu Bjargar Matthíasdóttur.
Hann var albróðir Ásgeirs Ás-
geirssonar forseta.
Ragnar stundaði garðyrkju-
störf og nám í Danmörku, lauk
prófum frá Garðyrkjuskólan-
um Vilvorde í Danmörku og
tók síöan próf sem skrúðgarða-
arkitekt. Hann var kennari við
Vilvorde og síðan skrúðgarða-
arkitekt í Kaupmannahöfn 1918-
’20 og garðyrkjuráðunautur hjá
Búnaðarfélagi Íslands 1920-’57.
Hann vann síðan brautryðj-
endastarf í menningarmálum
sem ráðunautur um byggðasöfn
víðs vegar um landið.
Á ferðum sínum safnaði
hann sögnum úr íslensku mann-
lífi fyrri tíma sem komu út í
Skruddum, þriggja binda safni
þjóðlegs fróðleiks. Auk þess
komu út eftir hann æskuminn-
ingarnar Strákur og Bændaförin
1938. Ragnar var auk þess fræg-
ur fararstjóri í ferðum bænda og
húsmæðra, landskunnur hag-
yrðingur og mikill listunnandi.
minning
Helga Ingólfsdóttir
semballeikari
merkir
Íslendingar
Jón fæddist í Flatey á Breiðafirði, ólst
þar upp og gekk þar í barnaskóla.
Hann stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1946-’47.
Jón fór fjórtán ára til sjós og stund-
aði bæði sjómennsku og verkamanna-
vinnu víðs vegar um landið þar til
hann kvæntist og settist að í Kópavog-
inum 1953.
Jón hóf störf við rannsóknir hjá
Hafrannsóknastofnun1972 og starfaði
jafnframt sjálfstætt að söfnun skelja og
annarra sjávarlífvera. Eftir að Jón hætti
störfum hjá Hafrannsóknarstofn-
un hélt hann áfram söfnun sinni og
greiningu en hóf einnig að teikna þær
sjávarlífverur sem rekið hafði á fjörur
hans. Opnuð var sýning á teikningum
hans í veitingahúsinu Gullna hliðinu á
Álftanesi fyrir skömmu og sýningin en
opin.
Jón hlaut viðurkenningu frá HÍ
1993 fyrir afrek við þrotlausa söfnun á
botndýrum við Ísland. Þá hlaut hann
viðurkenningu Starfsgreinasjóðs Rot-
ary á Íslandi og heiðursviðurkenn-
ingu Lýðveldissjóðs fyrir rannsóknir
á vistfræði sjávar. Hann var sæmdur
riddarakrossi íslensku fálkaorðunnar
vegna rannsókna sinna á botndýrum
við Ísland 1998.
Fjölskylda
Jón kvæntist 10.10. 1953 Guð-
rúnu Berglind Sigurjónsdóttur, f. 19.6.
1932, d. 29.11. 2001, ljósmóður. Hún
var dóttir Sigurjóns Gestssonar leigu-
bílstjóra og Herdísar Jónsdóttur, hús-
móður og bónda.
Börn Jóns og Guðrúnar eru Her-
dís, f. 28.2. 1954, kennari, gift Hall-
dóri S. Gunnarssyni kerfisfræðingi og
eiga þau Berglind Björk, Svanhildi Sif,
Lovísu Láru og Gunnar Má; Sigurborg
Inga, f. 10.1. 1956, kennari, gift Einari
Hafsteinssyni húsasmið og eiga þau
Auði Ingu, Jón Inga og Hjört; Bogi, f.
25.5. 1960, blikksmíðameistari, kvænt-
ur Narumon Sawangjaitham veitinga-
manni og eiga þau Charin, Nimit og
Jón; Sigurbjörg, f. 1.6. 1963, búfræðing-
ur, í sambúð með Jóni Pétri Líndal og á
hún Líf Steinunni, Jakob Elvar og Vikt-
or Frey; Berglind, f. 18.10. 1967, hjúkr-
unarfræðingur í sambúð með Ara Ein-
arssyni hljómlistarmanni og eiga þau
Ísar Kára, Ástrósu Birtu og Arnar Snæ.
Systkini Jóns: Guðmundur, f. 2.1.
1903, d. 15.2. 1975; Ólafía, dó ung;
Ólafía Guðrún, f. 13.1. 1906, d. 13.4.
1930; Jónína Sigríður, f. 26.11. 1907;
Ingvi, f. 26.8. 1909, d. 2.7. 1954; Lára,
f. 10.12. 1910, d. 13.11. 1997; Sturla, f.
5.2. 1913, d. 17.2. 1994; Þórður, f. 16.5.
1915, d. 2.10. 1990; Kristín, f. 29.12.
1916, d. 9.1. 1943; Sigurbergur, f. 18.12.
1918, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Jóns voru Bogi Guð-
mundsson, f. 21.1. 1877, d. 20.5. 1965,
kaupmaður í Flatey á Breiðafirði, og
Sigurborg Ólafsdóttir, f. 7.9. 1881, d.
24.9. 1952, húsmóðir.
Jón verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 6.11. kl. 15.00.
minning
Jón Bogason
rannsóknarmaður
Fædd 25.1. 1942 – dáin 21.10. 2009
Fæddur 9.4. 1923 – dáinn 20.10. 2009
„Ég kynnist Helgu mjög ungur þar sem
foreldrar mínir eru báðir tónlistar-
menn og störfuðu með Helgu frá byrj-
un sjöunda áratugarins, meðal annars
við Sumartónleikana í Skálholti sem
Helga setti á laggirnar. Mér er minnis-
stæðast hvað hún var djörf og stóð fast
við sínar listrænu ákvarðanir. Einnig
hvernig hún treysti okkur flytjendun-
um fyrir stórum og bitastæðum verk-
efnum. Manni leið þannig svo vel með
þau undir hennar stjórn.
Helga studdi alla tíð vel við tónlist-
armenn af yngri kynslóðinni og gaf
þeim mörg tækifæri til að spreyta sig.
Það er rosalega dýrmætt fyrir mann
sem ungan tónlistarmann að kynn-
ast þannig fólki. Helga var jafnframt
frábær fyrirmynd í því hvernig maður
nálgast tónlistina, sérstaklega hvern-
ig skynsamlegt er að nálgast hana út
frá sjónarhorni þess sem bjó til tón-
listina. Túlkun hennar var mér mikill
innblástur og þau skipti sem ég spilaði
með henni voru gífurlega lærdómsrík.
Helga stofnaði Sumartónleikana í
Skálholti árið 1975 og stjórnaði þeim
í þrjátíu ár. Það koma held ég mjög
seint fram öll þau áhrif sem það fram-
tak hefur. Þegar Skálholtshátíðin var
haldin fyrst hafði Listahátíð í Reykja-
vík einungis verið haldin tvisvar eða
þrisvar sem var eina eiginlega hátíðin
þar sem klassísk tónlist var spiluð, en
hún var auðvitað ekki sérhæfð tónlist-
arhátíð. Næstu ár og áratugi byrja svo
miklu fleiri hátíðir víða um land og eru
Sumartónleikarnir í Skálholti braut-
ryðjendastarf að því leyti.“
Helga Ingólfsdóttir - eftirmæli
Vel virt Helga fékk menningarverð-
laun DV árið 1994.
sIGURÐUR sIGURÐssON
vígslubiskup í Skálholti