Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Blaðsíða 50
Sjónvarp gegnum netið iTunes-verslun Apple-fyrirtækis- ins státar af 65 milljónum skráðra notenda. Það er því kannski ekki að undra að fyrirtækið sé nú í viðræðum við stærstu framleiðendur sjónvarpsþátta vestanhafs með það fyrir augum að bjóða notend- um sínum upp á mánaðarlega áskrift gegnum iTunes að vinsæl- asta sjónvarpsefninu. Ef samningar takast er ætlunin að hefja þessa þjónustu strax á næsta ári og mánaðarleg áskrift myndi kosta 30 dollara eða um 3.750 íslenskar krónur. grænt epli í deSember Heildarsafn tónlistar Bítlanna kom á markað í september síðastliðnum í veglegum geisladiskakassa og hafði að geyma stafræna endurhljóð- blöndun á lögum Bítlanna ásamt heimildarmyndum og fágætum ljósmyndum. Þessi sama útgáfa kemur nú á markað í desember í breyttu formi því nú er allt efnið sett á 16GB USB-minniskubb sem hannaður hefur verið sérstaklega í formi eplis með vísan til hins gamla útgáfufyrirtækis Bítlanna, Apple Corps Ltd. Útgáfan verður í takmörkuðu upplagi því aðeins þrjátíu þúsund eintök verða í boði fyrir almenning í jólamánuðinum. allt er nú til undir Sólinni Þessi annars ágæti stuttermabolur er ekki allur þar sem hann er séður. Hann skynjar nefnilega þráðlaus net og sýnir hversu öflugt merki kemur frá netinu en þá glóa samsvarandi margar rendur framan á bolnum. Framleiðandinn tekur skýrt fram að ekki megi setja bolinn í þvottavél án þess að fjarlægja rafhlöður og rendurnar sjálfar af bolnum en þetta er síðan allt hægt að tengja aftur þegar flíkin er orðin þurr. UmSjón: páLL SvAnSSon, palli@dv.is Aukin félagsleg einangrun í sam- félögum nútímans virðist í huga margra haldast hönd í hönd við stór- aukna notkun almennings á netinu og farsímum en samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn er ástæðunnar ekki að leita þar. Í rannsókninni sem ber heitið Félagsleg einangrun og ný tækni (Social Isolation and New Technology) kemur fram að þrátt fyrir að mörg okkar eyði sífellt meiri tíma dag hvern, límd fyrir framan lítinn eða stóran skjá til að komast í samband hvert við annað, dragi það ekki úr raunverulegum samskiptum þar sem einstaklingar hittast augliti til auglitis. Það kemur einnig að fram að notkun samskiptasíðna líkt og Face- book eða MySpace stuðli ekki síst að samskiptum fólks með ólíkan bak- grunn, þjóðerni og menningu og sé því jákvætt og myndi fjölbreytni sem annars væri varla til staðar. Nýja rannsóknin sem unnin var af Háskólanum í Pennsylvaniu dregur þannig í efa getgátur fyrri rannsókna sem leituðu orsaka fyrir þeirri auknu félagslegu einangrun sem átt hefur sér stað meðal Bandaríkjamanna síðustu tvo áratugina. Samverkandi áhrif En það geta einnig verið samverk- andi áhrif sem stuðla að aukinni fé- lagslegri einangrun. Fjöldi þeirra sem kjósa að búa einir hefur aukist síðustu ár og ef félagslegri þörf þeirra er að mestu leyti svalað með net- samskiptum er hætta á að þeir lendi í ógöngum þegar eitthvað bjátar á í lífi þeirra. Þannig segjast tólf pró- sent Bandaríkjamanna engan trún- aðarvin eiga, einhvern sem hægt sé að tala við um mikilvæg persónuleg málefni og vandamál. Ein af niðurstöðum rannsókn- arinnar leiddi í ljós að þrátt fyrir að við lítum öll á netið sem alþjóðlegt fyrirbæri sem tengir öll heimshorn- in saman, notar almenningur sam- skiptasíður, vefpóst og spjallforrit í flestum tilvikum til samskipta við aðra innan nánasta umhverfis síns eða nágrennis. Hvort að þessi sam- skipti séu farin að koma í staðinn fyrir eðlilega virkni í umhverfi okkar skal ósagt látið. Það kemur þó fram í rannsókninni að notendur sam- skiptasíðna eins og Facebook þekki síður til nágranna sína eða leiti til þeirra varðandi hitt og þetta. Vinirn- ir á Facebook virðast hafa tekið við því hlutverki. palli@dv.is 50 föStudagur 6. nóvember 2009 helgarblað Æskuminningar Flosa Ómótstæðileg kímni – myljandi háð. Flosi eins og hann gerist bestur! SKRUDDA Er netnotkun farin að draga úr félagslegri hæfni okkar? Eru samskipti við annað fólk að verða mest til netlæg en ekki augliti til auglitis? Erum við í raun að einangrast félags- lega þrátt fyrir virkni okkar á Facebook, MSN og í farsímanum? Að geta ekki rætt málin Tólf prósent Bandaríkjamanna eiga engan trúnaðarvin. félagSleg virkni eða einangrun?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.