Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2009, Side 64
n Karl Ágúst Úlfsson Spaugstofu-
maður fagnaði 52 ára afmæli
sínu á miðvikudaginn. Það rigndi
hreinlega afmæliskveðjum á Face-
book-síðu spéfuglsins. Fjölmargir
þjóðþekktir einstaklingar köstuðu
kveðju á Karl Ágúst og má þar nefna
Helgu Brögu, Jóhönnu Vigdísi og
Sigrúnu Eddu leikkonur, Stein-
unni Valdísi Óskars-
dóttur þingkonu,
Magnús Geir
Þórðarson borg-
arleikhússtjóra
og gleðipinnann
Hemma Gunn.
Bítur svínið nokkuð á
rauða ljónið?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
KR-ingurinn og íþróttalýsandinn
Bjarni Felixson skellti sér í svína-
flensusprautu eins og svo marg-
ir landsmenn hafa gert. Bjarni þyk-
ir mikið hörkutól og kvartaði ekkert
þegar hann hafði fengið sprautuna.
Gekk út með bros á vör.
Það sem vakti athygli var að
Bjarni var tekinn fram fyrir röð af
fólki sem beið. „Bjarni, komdu bara
inn,“ sagði hjúkkan og bauð þessari
goðsögn í lifanda lífi góðan daginn.
Við restina sagði hún: „Næsti.“ Bjarni
var hress á biðstofunni en hann fór
ekki úr frakkanum, ólíkt öðrum sem
þar biðu og fóru úr yfirhöfnum sem
hjúkrunarfólk bað fólk um að gera,
og ræddi um fótbolta við aðra gesti
– enda með gríðarlegt vit á þeirri göf-
ugu íþrótt.
Bjarni lék á sínum yngri árum
knattspyrnu með KR og varð Íslands-
meistari með liðinu 1959, 1961, 1963,
1965 og 1968. Auk þess sem hann varð
bikarmeistari með liðinu 1960, 1961,
1962, 1963, 1964, 1966, og 1967.
Alls lék Bjarni sex A-landsliðsleiki
fyrir hönd Íslands og þá fékk hann
heiðursskjöld frá KSÍ fyrir störf sín.
Það er því næsta víst að Bjarni er enn
þá stjarna í augum hjúkrunarfólks.
Rigndi inn
kveðjum
Bjarni Fel fékk stjörnumeðferð í svínaflensusprautu:
Tekinn fRam fyRiR Röð
n Sölvi Tryggvason, sjónvarps-
maðurinn skeleggi, ætlar að
skrifa endurminningar Jónínu
Benediktsdóttur og setja þær á
prent. Búast má við gríðarlegum
sprengjum en Sölvi fékk Jónínu í
þáttinn sinn á Skjá einum þar sem
hún talaði tæpitungu-
laust. Þar sagði hún
meðal annars að hún
ætti gögn sem þyldu
ekki dagsins ljós – í
bili að minnsta
kosti. Heimild-
ir DV herma
að þessi gögn
fái að líta
dagsins ljós
þegar bókin
kemur út
og því má
búast við
að einhverjir
séu farnir að
skjálfa.
Sölvi + jónína
= SpRengja
n Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri og Íslandsvinurinn og
popparinn Damien Rice verða sér-
stakir verndarar Laufásborgarlunds
í Hljómskálagarðinum. Verkefnið er
samstarfsverkefni Reykjavíkurborg-
ar og leikskólans Laufásborgar en
sérstök dagskrá er í dag, föstudag,
í Hljómskálagarðin-
um vegna þessa.
Klukkan 12.30 flyt-
ur Hanna Birna
ræðu en stuttu
seinna gróður-
setja Hanna Birna,
Damien Rice og
Gísli Marteinn
Baldursson
tré í lundin-
um ásamt
16 börn-
um af
Laufás-
borg.
veRndaRaRniR
Hanna og damien
Alþýðumaður bjarni fel er fyrir löngu
orðinn goðsögn í lifanda lífi. bar er meira
að segja nefndur eftir honum.
Aðalbakhjarlar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru: