Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 FRÉTTIR
SÉRSVEITARMAÐUR
VILL KÆRA FORSETA
Embætti forseta Íslands réði mann í
embætti umsjónarmanns fasteigna
á Bessastöðum á dögunum þrátt fyr-
ir að hann uppfyllti ekki allar kröfur
sem tilgreindar voru þegar starfið var
auglýst. Aðrir umsækjendur uppfylltu
hins vegar öll skilyrði. Einn þeirra,
fyrrverandi sérsveitarmaður hjá lög-
reglunni, hefur ráðið sér lögmann
vegna málsins. Auglýst var í stöðuna
í september síðastliðnum og nær 200
manns sóttu um. Í auglýsingunni var
sagt að umsjónarmaðurinn þyrfti að
hafa meirapróf eða aukin ökuréttindi.
DV hefur fengið staðfest hjá for-
setaembættinu að sá sem fékk starf-
ið vinnur nú að því að afla sér meira-
prófsréttinda. Gengið var fram hjá
fjölda umsækjenda sem uppfylltu
öll skilyrði auglýsingarinnar og þar
með talið kröfuna um meirapróf.
Um ráðninguna sáu Örnólfur Thors-
son forsetaritari og Árni Sigurjónsson
skrifstofustjóri.
DV hefur rætt við umsækjend-
ur sem eru ósáttir við ráðninguna og
veit að alla vega einn umsækjenda er
kominn með lögmann í málið. Hjá
BSRB, regnhlífarstéttarfélagi ríkis-
starfsmanna, fengust þær upplýsing-
ar að þar telji menn að óeðlilega hafi
verið staðið að ráðningunni.
Meirapróf skilyrði
Í auglýsingunni, sem birtist í dag-
blöðum í september kom fram að
umsjónarmaður á Bessastöðum ann-
ist almenna vörslu, eftirlit og daglega
umsjón með húsakosti, lóð og land-
areign á Bessastöðum. Hann þurfi
einnig að geta sinnt fjölþættum verk-
efnum fyrir embætti forseta Íslands,
svo sem akstri og að taka þátt í und-
irbúningi og framkvæmd viðburða á
Bessastöðum.
Ekki voru gerðar sérstakar mennt-
unarkröfur til umsjónarmannsins, en
þess getið að hann þyrfti þó að hafa
meiraróf.
Fleiri hefðu sótt um
Alls sóttu 189 manns um stöðuna.
DV hefur rætt við umsækjendur. Þeir
furða sig á að sá sem ráðinn var skuli
ekki hafa uppfyllt skilyrði auglýsing-
arinnar um aukin ökuréttindi um-
sjónarmanns. Hæfasti maðurinn hafi
því einfaldlega ekki verið ráðinn.
Eftir því sem DV kemst næst hefðu
fleiri sótt um ef þeir hefðu vitað að
meirapróf væri ekki ótvírætt skilyrði,
en hættu við þar sem þeir töldu að án
meiraprófs hefðu þeir ekki von um að
fá starfið.
Hefur að minnsta kosti einn af
umsækjendunum óskað eftir form-
legum rökstuðningi fyrir ráðningunni
hjá Örnólfi Thorssyni forsetaritara.
Öllum hnútum kunnugur
Einn umsækjandanna, sem gengið
var fram hjá, hafði verið afleysinga-
maður umsjónarmanns á Bessastöð-
um frá 1997 og starfandi umsjónar-
maður í fullu starfi í veikindaforföllum
allt síðastliðið ár. Hann er lögreglu-
maður og starfaði meðal annars í 6 ár
í sérsveit lögreglunnar. Hann er einn-
ig búfræðimenntaður og hefur meira-
próf. Hann uppfyllti því öll skilyrði
auglýsingarinnar, auk þess sem hann
er öllum hnútur kunnugur eftir langt
starf í sömu stöðu og auglýst var í.
Faglegra vinnubragða krafist
Í handbók um ráðningar hjá ríkinu
sem fjármálaráðuneytið gaf út til að
leiðbeina forsvarsmönnum hjá rík-
inu, er undirstrikað að ráðningar
hjá hinu opinbera séu ávallt fram-
kvæmdar á faglegan hátt. „Faglegt
og skipulagt ráðningarferli miðar að
því að hæfasti umsækjandinn verði
ráðinn hverju sinni. Með því er jafn-
framt betur tryggt að hlutlægt mat sé
ávallt viðhaft við hæfnismatið.“
Í handbókinni er rætt um reglur
um auglýsingar hjá ríkisstofnunum.
„Gæta þarf sérstaklega að því
hvort kveðið sé á um lágmarks-
menntun eða önnur lágmarkshæf-
isskilyrði í sérákvæðum laga um við-
komandi starfsstétt eða stofnun til
viðbótar almennum hæfisskilyrðum
6. gr. stml. Í stöku tilvikum kann að
vera rétt samkvæmt eðli máls að gera
strangari/sértækari kröfur heldur en
koma fram í sérákvæðum laga. Slíkar
kröfur þurfa að vera málefnalegar og
nauðsyn þeirra ótvíræð.“
Meiraprófið nauðsynlegt
Viðmælendur DV segja að túlka beri
kröfu um meirapróf í auglýsingu
forsetaembættisins sem sértæka
hæfniskröfu, eins og rætt var um í
fyrrnefndum kafla handbókarinn-
ar. Ráðningin hafi því verið óeðlileg
því samkvæmt reglum þarf að álíta
að krafan um meirapróf sé ótvírætt
nauðsynleg.
Blaðamaður fékk þær upplýsing-
ar hjá BSRB að samkvæmt lögum og
reglugerðum séu starfsauglýsingar
hjá hinu opinbera ótvíræðar. Ekki sé
hægt að segja í auglýsingu að krafa sé
gerð um meirapróf án þess að álíta í
ráðningu að sú hæfni sé ótvírætt skil-
yrði.
Auk þess sé ekki nægilegt að bera
því við eftir á að sá sem var ráðinn sé,
eftir að ráðningin hefur átt sér stað,
að sækja sér meiraprófið.
Þannig beri að álíta þann sem
uppfylli skilyrði um meirapróf, hæf-
ari en þann sem sé ekki með meira-
próf. Það sé því ljóst að samkvæmt
reglugerðum sé ráðning forsetaemb-
ættisins í starf umsjónarmanns á
Bessastöðum óeðlileg.
Samkvæmt lögum getur umsækj-
andi sem ósáttur er við ráðningu hjá
hinu opinbera, skotið máli sínu til
umboðsmanns Alþingis. Viðbúið er
að það verði reyndin núna.
Örnólfur Thorsson vildi ekk-
ert láta hafa eftir sér um málið á
fimmtudag en hann er staddur
ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni for-
seta á Alþjóðlega efnahagsþinginu í
Davos í Sviss.
Nýráðinn umsjónarmaður fasteigna á Bessastöð-
um uppfyllti ekki hæfniskröfur í auglýsingu um
starfið. Óánægju gætir meðal umsækjenda þar
sem gengið hafi verið fram hjá fólki sem uppfyllti
öll skilyrði. Sérsveitarmaður sem sótti um starfið
íhugar að kæra forseta til umboðsmanns Alþingis.
Kröfur þurfa að vera málefna-
legar og nauðsyn þeirra
ótvíræð.
Í umsjón nýs manns
Umsjónarmaður á
Bessastöðum býr í
forsetabústaðnum.
„Stjórnkerfið, ráðuneyti og eftirlitsstofnanir, hafa líka liðið fyrir hið flokkslega mat
við ráðningar og slík meinsemd veikti getu stofnana til að veita aðhald. Flokksskír-
teinið var í mörgum tilvikum mikilvægara en fagleg hæfni; vinátta eða vensl við
ráðherra riðu baggamuninn. Þeirri skyldu að bera sannleikanum ávallt vitni í áheyrn
valdhafanna var iðulega vikið til hliðar.“
n Ólafur Ragnar Grímsson forseti í nýársávarpi sínu.
Faglegar ráðningar og forsetinn
Ræddi faglegar ráðningar í ávarpi
Ólafur Ragnar Grímsson ræddi um
mikilvægi faglegrar hæfni umsækjanda
hjá hinu opinbera. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR
Óeðlileg ráðning Forsetaembættið er
talið hafa beitt óeðlilegum vinnubrögð-
um við ráðningu. Örnólfur Thorsson
hafði umsjón með ráðningunni.
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is