Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Page 11
FRÉTTIR 29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 11 Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14 Þarftu að losa um verðmæti? Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Ennfremur erum við sífellt að leita að verkum gömlu meistaranna fyrir viðskiptavini okkar. Listmunasala hefur gengið vel undanfarið Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð KOMIÐ ÚT KOMIÐ ÚT Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir hefur ekki svarað bréfi sem hon- um var sent vegna millifærslu á greiðslu frá Fons inn á banka- reikning hans í júlí 2008. Það var þrotabú Fons sem sendi Jóni Ás- geiri ábyrgðarbréf þess efnis að rifta ætti millifærslunni. Í bréfinu var Jóni Ásgeiri til- kynnt um riftun á greiðslunni, skorað var á hann að greiða hana og honum gefið færi á að gera grein fyrir af hverju greiðslan hefði átt sér stað. Samkvæmt heimild- um DV lét Jón Ásgeir hins vegar ógert að svara kröfunni, hugsan- lega þá hafna því að honum bæri að greiða hana og útskýra hvers vegna. Í stað þess svaraði Jón Ás- geir bréfinu með þögninni. Jóni Ásgeiri var svo stefnt í kjöl- farið þegar fyrir lá að hann myndi ekki svara. Engin samskipti hafa því átt á sér stað á milli þrotabús- ins og Jóns Ásgeirs vegna greiðsl- unnar. Engar skýringar á greiðslunni Engar útskýringar á milljarðs- greiðslunni til Jóns Ásgeirs er að finna í bókhaldi Fons. Þar er ein- ungis að finna innleggsnótur þar sem kemur fram að millifæra eigi upphæðina inn á einka- reikning hans sam- kvæmt beiðni. Ekki hafa fengist upplýs- ingar um hvar reikn- ingur Jóns Ásgeirs er sem lagt var inn á, hvort hann er hér á landi eða erlendis. Pálmi Haralds- son hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann útskýr- ir greiðsluna með þeim hætti að um sé að ræða fjárfesting- arsamning á milli félags í eigu Jóns Ásgeirs, Þú Blásól, og Fons. Þetta er hins vegar, af einhverjum ástæðum, ekki tekið fram í bók- haldi Fons. Pálmi útskýrði heldur ekki í yfirlýsingunni af hverju fjár- festingarsamningurinn hefði ver- ið gerður. Vegna fjárfestingar í Williams Pálmi segir hins vegar, aðspurður í samtali við DV, að samningurinn sem hann ræddi um í yfirlýsing- unni hafi verið vegna fjárfestingar sem hann og Jón Ásgeir hafi lagt í saman í Williams-formúluliðinu árið 2008. Milljarðurinn hafi verið lagður inn á reikning Jóns Ásgeirs vegna þessarar fjárfestingar. Jón Ásgeir mun hafa samið við eig- anda kapp- akstursliðs- ins, Frank Williams, í byrjun árs 2008 um að kaupa 10 pró- senta hlut í liðinu. Jón Ásgeir mun hafa verið í per- sónuleg- um ábyrgðum gagnvart Willi- ams-liðinu en Glitnir ábyrgðist fjárfestinguna. Fjárfestingin fór út um þúfur og vegna þessa gerði Williams-lið- ið tveggja milljarða króna kröfu í þrotabú Glitnis og hefur komið fram að líklegt sé að um 30 pró- sent fáist upp í kröfuna, eða um 600 milljónir. Eftir því sem næst verður komist gæti Williams-liðið því krafið Jón Ásgeir persónulega um eftirstöðvar kröfunnar eða sem nemur 1,4 milljörðum króna. Hugsanlegt er því að í þessum tveimur tengdu málum verði Jón krafinn um að greiða samtals 2,4 milljarða króna en báðar kröfurn- ar verður þá hægt að rekja til Willi- ams-fjárfestingarinnar. Jón Ásgeir getur svarað Pálmi segist hins vegar ekki get- að farið nánar út í samninginn því hann muni ekki nákvæmlega hvað átti sér stað og hann vilji að Jón Ás- geir svari því. „Ég vil bara að hann svari því. Hann átti hugmyndina að þessari fjárfestingu. Hann ger- ir það þá ef hann vill,“ segir Pálmi. DV hefur ekki náð í Jón Ás- geir til að spyrja hann út í málið og hvort hann ætli sér að greiða milljarðinn sem þrotabúið krefur hann um. Því hefur DV ekki fengið nánari svör við því hvernig millj- arðsgreiðslan út úr Fons til Jóns Ásgeirs tengist Williams-fjárfest- ingunni. Jóni Ásgeiri verður stefnt persónulega fyrir héraðs- dómi til að greiða kröf- una. Stefnan gegn Jóni Ásgeiri verð- ur þingfest þann 25. febrúar næst- komandi ásamt um tíu öðrum stefnum frá þrotabúinu. Jóni Ásgeiri Jóhannessyni verður stefnt af þrotabúi Fons vegna milljarðs króna sem ekki er gerð grein fyrir í bókhaldi félagsins. Jón Ásgeir svaraði ekki erindi þrotabús Fons um að gera grein fyrir greiðslunni. JÓN FÉKK MILLJARÐINN VEGNA FORMÚLULIÐS Ég vil bara að hann svari því. Hann átti hugmyndina að þessari fjárfestingu. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Fjárfestu í Williams Jón Ásgeir og Pálmi fjárfestu í 10 prósenta hlut í Williams- liðinu árið 2008. Jón Ásgeir er krafinn um greiðslu á einum milljarði króna. Fjárfesting tengd Williams-liðinu Pálmi segir að samningurinn við Jón Ásgeir hafi verið vegna fjárfestingar í Williams-for- múluliðinu. Hann segist telja að Jón Ásgeir eigi að svara fyrir greiðsluna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.