Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Page 13
hverja þúsundkalla með því að fara
með dúkana heim sjálf og þvo þá,“
segir viðmælandi blaðsins.
Akkeri í Sjálfstæðisflokknum
Þarna kemur viðmælandi DV inn á
mikilvægt atriði í persónusögu Guð-
bjargar: Tengsl hennar við Sjálfstæð-
isflokkinn. „Hún er akkeri ákveðins
kjarna í Sjálfstæðisflokknum,“ seg-
ir einn af viðmælendum blaðsins en
þessi hópur manna er oft kenndur
við heimastjórnararminn í flokknum,
mennina í kringum Davíð Oddsson,
fyrrverandi forsætisráðherra og nú-
verandi Morgunblaðsritstjóra.
Þetta akkerishlutverk Guðbjarg-
ar lýsir sér meðal annars í því að hún
hefur í gegnum árin komið að mörg-
um viðskiptum með þekktum sjálf-
stæðismönnum og virðist eins og leit-
að sé til hennar eftir stuðningi.
Guðbjörg er, eins og áður seg-
ir, stærsti hluthafi Morgunblaðsins
eftir sölu blaðsins í fyrra og var það
án nokkurs vafa meðal annars með
hennar vilja og samþykki sem Dav-
íð var ráðinn ritstjóri þess. Útgefandi
Morgunblaðsins, Óskar Magnússon,
hefur sömuleiðis lengi fylgt Guð-
björgu, meðal annars þegar hún var
stór hluthafi í Tryggingamiðstöðinni
og náin tengsl Gunnlaugs Sævars og
Davíðs hafa löngum verið kunn.
Eftir kaup Guðbjargar og félaga á
blaðinu hefur ritstjórnarstefna þess
tekið mikla hægribeygju frá Evrópu-
sambandinu og frá gagnrýni á kvóta-
kerfið yfir í að vera andstætt aðild að
sambandinu og fylgni við kvótakerfið.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Guðbjörg kemur að kaupum á blaði
þar sem þetta gerist í kjölfarið. Árið
2001 stofnuðu Óli Björn Kárason, Ág-
úst Einarsson, bróðir Sigurðar heit-
ins og mágur Guðbjargar, og Einar
Sigurðsson, sonur Guðbjargar, félag
um rekstur gamla DV. Blaðið undir
stjórn Óla Björns varð að hörðu mál-
gagni ákveðinna skoðana innan Sjálf-
stæðisflokksins. Blaðið lifði hins veg-
ar ekki lengi og varð gjaldþrota 2003.
Eins mun Guðbjörg hafa lagt Við-
skiptablaðinu til fjármuni á meðan
Óli Björn ritstýrði því á sínum tíma.
Baráttan um
Tryggingamiðstöðina
Guðbjörg hefur því tekið þátt í ýms-
um þekktum gerningum í þjóð-
og viðskiptalífinu en sem fyrr seg-
ir er óvíst hversu mikil bein aðkoma
hennar hefur verið í þessum tilfell-
um.
Leiðir Guðbjargar og Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar lágu til að mynda
saman í valdabaráttu um Trygg-
ingamiðstöðina árið 2002. Baráttan
stóð á milli þeirra sem stóðu nærri
Guðbjörgu annars vegar og Jóni Ás-
geiri Jóhannessyni hins vegar. Agnes
Bragadóttir fjallaði um þessa valda-
baráttu í Morgunblaðinu 2003.
Þessi barátta er svo aftur lýsandi
fyrir þá pólaríseringu í íslensku sam-
félagi sem átti sér stað á þessum
árum - og gerir líklega enn - á milli
Sjálfstæðisflokksins og Baugs; bar-
áttu sem náði hámarki í fjölmiðla-
málinu árið 2004.
Til þess að ná yfirráðum í Trygg-
ingamiðstöðinni þurfti Jón Ásgeir að
komast yfir hlut fjárfestingabankans
Straums í tryggingafélaginu. Kjart-
an Gunnarsson, þáverandi varafor-
maður bankaráðs Landsbankans og
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, beitti sér fyrir því að Landsbank-
inn keypti hlutinn af Straumi. Keypti
Landsbankinn bréfin á 1.700 milljón-
ir króna og seldi þau áfram til Guð-
bjargar Matthíasdóttur. Í mars 2002
hætti Hreinn Loftsson, einn nánasti
samstarfsmaður Jóns Ásgeirs í gegn-
um tíðina og núverandi útgefandi
DV, sem stjórnarformaður Trygg-
ingamiðstöðvarinnar og tók Gunn-
laugur Sævar, fjárhaldsmaður Guð-
bjargar, við af honum. Í desember
2002 fóru Hreinn og Jón Ásgeir svo
úr stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar.
Fékk 15 milljarða
Jón Ásgeir komst ekki yfir Trygginga-
miðstöðina fyrr en nærri fimm árum
síðar, eða í september 2007. Þá keypti
FL Group, sem Jón Ásgeir stýrði,
þriðjungshlut Guðbjargar Matthí-
asdóttur í Tryggingamiðstöðinni og
borgaði henni 18 milljarða króna fyr-
ir. Ellefu milljarðar af kaupverðinu
voru í reiðufé og sjö milljarðar voru í
hlutabréfum í Glitni.
Frá hruninu 2008 hefur nafn Guð-
bjargar hvað helst ratað í fréttirn-
ar vegna þessara viðskipta þar sem
hluti af samkomulaginu við FL Group
gekk út á að Glitnir sölutryggði helm-
ing þeirra hlutabréfa í bankanum
sem Guðbjörg fékk. Þetta þýddi að á
tilteknum degi, einu ári eftir að við-
skiptin áttu sér stað, gat Guðbjörg
selt bankanum helminginn af nærri
3,5 prósenta eign sinni í bankanum á
ákveðnu gengi.
Svo vildi til að Guðbjörg hafði
þennan sölurétt á bréfunum dagana
fyrir yfirtöku ríkisins á Glitni en þann
26. september 2008 seldi hún 1,71
prósents hlut sinn í bankanum fyr-
ir 4,1 milljarð króna. Að frádregnum
arðgreiðslum og þóknun fékk Guð-
björg um 3,5 milljarða króna í sinn
hlut fyrir bréfin. Þremur dögum síð-
ar tók íslenska ríkið yfir 75 prósenta
hlut í bankanum og hluthafar hans
töpuðu hlutafjáreign sinni. Þar tapaði
Guðbjörg hinum helmingi hlutabréfa
sinna í bankanum. Guðbjörg fékk því
samtals um 15 milljarða króna fyrir
hlutabréf sín í Tryggingamiðstöðinni.
Því má segja að tilviljunin ein hafi
ráðið því að Guðbjörg seldi bréfin svo
skömmu fyrir hrun bankans og er
þetta ástæðan fyrir því að Guðbjörg
er ekki til rannsóknar hjá sérstökum
saksóknara út af málinu.
Ísfélagið í erfiðleikum
Þetta er eitt af þeim atriðum í hruninu
sem komið hefur sér illa fyrir Guð-
björgu. Og þó að fjárhagsleg staða
hennar sé góð miðað við svo margra
annarra hefur hún vissulega tekið á
sig högg að öðru leyti líka.
Ísfélagið í Vestmannaeyjum hefur
þannig ekki farið varhluta af gengis-
hruni íslensku krónunnar. Í byrjun
mars 2009 sagði Gunnlaugur Sæv-
ar Gunnlaugsson, stjórnarformaður
Ísfélagsins, upp framkvæmdastjór-
anum Ægi Páli Friðbertssyni og fjár-
reiðustjóranum Baldvini Johnsen.
Var ástæða uppsagnarinnar sögð tap
félagsins á afleiðusamningum við ís-
lenska banka. Taldi stjórnin að Ægir
Páll og Baldvin hefðu farið út fyrir
heimildir sínar við gerð afleiðusamn-
inga.
Samkvæmt ársreikningi Ísfélags-
ins fyrir árið 2008 nam tap félags-
ins 6,3 milljörðum króna þrátt fyrir
2,2 milljarða króna rekstrarhagnað.
Skýrist það aðallega af níu milljarða
króna tapi vegna gengisbreytinga. Fé-
lagið skuldar 15 milljarða króna í er-
lendum gjaldmiðlum en einungis 300
milljónir í íslenskum krónum.
Félagið á þó dágóðar eignir sem
nema 16,4 milljörðum króna. 6,3
milljarða króna í aflaheimildum, einn
milljarð í fasteignum, 3,5 milljarða
króna í fiskiskipum,1.300 milljón-
ir króna í vélum og framleiðslutækj-
um auk 3,8 milljarða króna í veltu-
fjármunum. Þrátt fyrir þessar eignir
var eigið fé félagsins neikvætt um 2,7
milljarða í árslok 2008.
Þó má segja að miðað við stöðu
margra íslenskra fyrirtækja í dag sé
staða Ísfélagsins - flaggskips Guð-
bjargar - alls ekki slæm. Ef fyrirtæk-
ið fengi 25 prósenta afskrift af er-
lendum lánum, líkt og Íslandsbanki
er sem dæmi að bjóða fyrirtækjum,
færi eiginfjárhlutfallið í nærri 30 pró-
sent.
Ríkasta kona hrunsins
Þegar litið er á þessa stöðu Guð-
bjargar eftir hrunið, og þær fjár-
festingar sem hún hefur ráðist í
eftir það, sést að fáir fjárfestar í ís-
lensku viðskiptalífi standa betur
en hún um þessar mundir. Hugs-
anlega má nefna menn eins og Jón
Helga Guðmundsson í Krónunni
sem einnig hefur staðið hremm-
ingarnar vel af sér eftir atvikum en
hann tapaði stórum hluta í Kaup-
þingi í hruninu.
Alveg ljóst er að Guðbjörg hlýt-
ur að minnsta kosti að vera ríkasta
kona landsins og sennilega einn
ríkasti einstaklingurinn og má bú-
ast við því að hún haldi áfram að
sýna fjárhagslegan styrk sinn á
næstunni með frekari fjárfesting-
um. Meðal annars verður spenn-
andi að fylgjast með því hvort
Guðbjörg fær að kaupa 49 pró-
senta hlut Glitnis í Skeljungi þegar
gengið verður frá sölunni á hlutn-
um á næstu mánuðum.
Guðbjörg er því ekki aðeins
heppnasta kona hrunsins, líkt og
sagt hefur verið um hana vegna
sölunnar á Glitnisbréfunum
skömmu fyrir hrun, hún er senni-
lega líka ríkasta kona íslensku
kreppunnar.
FRÉTTIR 29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 13
RÍKASTA KONA KREPPUNNAR
Hún veltir millj-örðum á hverju
ári en samt vildi hún
spara Sjálfstæðisfélag-
inu einhverja þúsund-
kalla með því að fara
með dúkana heim sjálf
og þvo þá.
Lágstemmd og vel látin Guðbjörg
er lágstemmd og alþýðleg kona, segja
viðmælendur DV. Staða hennar eftir
hrunið er mjög sterk eftir atvikum.
n Kristinn ehf.
Verðbréf 18,3 milljarðar
Skuldir 8,4 milljarðar
Eigið fé 11,5 milljarðar
Félagið heldur meðal annars utan um
eignina í Ísfélaginu.
Heimild: Ársreikningur 2008
n Ísfélag Vestmannaeyja
Tap 6,3 milljarðar
Rekstrarhagnaður 2,2 milljarðar
Skuldir 15,0 milljarðar
Eignir* 16,4 milljarðar
Eigið fé -2,7 milljarðar
*Meðal annars 6,3 milljarðar í afla-
heimildum, 3,5 milljarðar í fiskiskipum, 1,3
milljarðar í vélum og framleiðslutækjum,
3,8 milljarðar í veltufjármunum.
Heimild: Ársreikningur 2008
Stærstu félögin
Eignir Guðbjargar
Hlutur í Árvakri
(Morgunblaðið)
og Lýsi
Eignir sem tengjast ekki sjávarútvegi:
Skeljungur Eign
sem Guðbjörg
falast eftir.