Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 FRÉTTIR
Arion banki glímir við yfirmanna-
vanda því tveir af yfirmönnum
bankans hafa fengið sálfræðiráð-
gjöf, yfirmenn fjármálasviðs og
tölvudeildar. Starfsmenn deildanna
hafa einnig sótt viðtöl hjá sálfræð-
ingi, ýmist í einstaklings- eða hóp-
meðferð, en nú er svo komið að
nokkrir af átta starfsmönnum fjár-
málasviðsins hafa annaðhvort sagt
upp störfum eða óskað eftir flutn-
ingi.
Mikið hefur gengið á hjá fjár-
málasviði Arion banka undanfarið
ár. Samkvæmt heimildum DV eru
starfsmenn þess óánægðir með yfir-
mann deildarinnar en allur hópur-
inn, yfirmaður og undirmenn, sótti
tvívegis fundi með sálfræðingi sem
fór yfir mannleg samskipti á vinnu-
stað. Eftir því sem DV kemst næst
áttu fundirnir sér stað síðastliðið
sumar og um haustið var yfirmað-
urinn síðan kallaður sérstaklega til
viðtals hjá sálfræðingnum.
Falleinkunn í könnun
Síðustu mánuði hefur yfirstjórn
bankans einnig þurft að glíma við
óánægju innan tölvudeildarinnar
og hefur utanaðkomandi sálfræð-
ingur verið fenginn til að vinna með
deildinni. Starfsmenn deildarinn-
ar eru, líkt og starfsmenn fjármála-
sviðsins, óánægðir með yfirmann
sinn en flestir þeirra gáfu honum
falleinkunn í nýlegri starfsmanna-
könnun innan fyrirtæksins.
Starfsmennirnir óánægðu, sem
samkvæmt upplýsingum frá bank-
anum eru níu talsins, voru sendir í
sálfræðiviðtöl, einn og einn í einu,
og talsmaður bankans, Berghild-
ur Erla Bernharðsdóttir, fullyrðir að
yfir maður deildinnar hafi einnig
verið tekinn í viðtal hjá sálfræðingn-
um. Hún segir að áfram verði unnið
að farsælli lausn innan deildarinnar
í samstarfi við umræddan yfirmann
og undirmenn hans.
Nokkrir hættir
Aðspurð staðfestir Berghildur Erla
að samskiptavandi hafi komið upp
á fjármálasviðinu og segir hún að
þrír starfsmenn hafi hætt á svið-
inu frá því vandinn kom upp. Hún
leggur áherslu á að Arion banki sé
stór vinnustaður og því séu hin-
ir óánægðu starfsmenn deildanna
tveggja lítið brot af heildinni. „Það
var eitthvað smávægilegt sem kom
upp á síðastliðið sumar en í dag
gengur þar mjög vel. Deildin var
átta manna og það eru tveir farnir
og þriðji maðurinn fer í önnur störf
innan bankans. Ég get hins vegar
ekki tjáð mig um það hverjir fá sál-
fræðiráðgjöf eða eitthvað slíkt,“ segir
Berghildur Erla.
„Við reynum yfir höfuð að taka
faglega á þeim málum sem upp
koma, það er markmið okkar númer
eitt, tvö og þrjú. Í hverju tilviki fyrir
sig er það metið hvort það er starfs-
mannaþjónusta okkar sem tekur
á málinu eða utanaðkomandi sér-
fræðingur. Það er ekkert óeðlilegt
á stórum vinnustað að ágreining-
ur komi upp, sérstaklega í hinu erf-
iða umhverfi sem bankastarfsmenn
hafa þurft að starfa í undanfarin
misseri.“
Yfirmanni fjármálasviðs Arion banka hefur verið gert að hitta sálfræðing í kjölfar þess að nokkrir undir-
menn hans hafa ýmist sagt upp störfum eða óskað eftir flutningi undanfarna mánuði. Hann er annar í röð
yfirmanna bankans sem nú fær aðstoð sálfræðings.
YFIRMENN TIL
SÁLFRÆÐINGS
n Hver og einn eyðir miklum tíma í vinnunni og því er mikilvægi starfsánægju
augljóst. Oft á tíðum vinnur fólk mjög náið og þarf að eiga góð samskipti. Þá
reynir mjög á færni yfirmanna þannig að vinnufélagar geti rætt málin sín á milli
og aðstoðað hver annan þegar við á. Oft koma upp erfið mál á vinnustöðum en
ákaflega mikilvægt er að stjórnendur taki rétt á málum og grípi tafarlaust inn í.
Einelti má skilgreina á þann veg að það sé endurtekin framkoma eða hegðun
sem er til þess fallin að særa, niðurlægja, lítilsvirða, móðga, mismuna, ógna eða
valda vanlíðan hjá þeim einstaklingi sem fyrir því verður og hann upplifir þessar
athafnir þannig.
Einelti er ekki bara bundið við skóla heldur finnst það á vinnustöðum líka.
Skýringar á einelti eru taldar tengjast stjórnunarháttum í fyrirtækjum, starfsanda
sem einkennist af samkeppni, öfund og virðingarleysi. Einelti getur verið
tengt sjálfu starfinu í gegnum vinnuálag, takmörkuðu frjálsræði í starfi, eða óvissu
um hlutverk. Í rauninni hefur fyrirtækjamenningin mikið um það að segja hvort
einelti þrífst eða ekki.
EINELTI Í VINNUNI*
n 1. Starfstengt einelti
Upplýsingum haldið leyndum fyrir starfsmanni, starfsreglum breytt án samráðs
n 2. Persónulegar árásir
Til þess gerðar að draga úr sjálfstrausti starfsmanns og niðurlægja í viðurvist
annarra
n 3. Félagsleg einangrun
Starfsmaðurinn er skilinn út undan, er ekki boðinn í vinnustaðateiti o.fl. í þessum
dúr
n 4. Hótanir og andlegt ofbeldi
n 5. Stríðni og rógburður
n 6. Líkamlegt ofbeldi
ÁHRIF EINELTIS
– Sálræn líðan þess sem fyrir einelti verður versnar, t.d. með kvíða, þunglyndi,
skertu sjálfstrausti eða tilfinningadeyfð
– Líkamleg heilsa þolanda skaðast - áhrifin birtast í streitueinkennum svo sem
tíðum höfuðverkjum, magaverkjum, lystarleysi o.fl.
– Starfsánægja og geta þolanda til þess að sinna starfi sínu minnkar
– Eineltið veldur vanlíðan allra á vinnustaðnum, hvort sem þeir eru þolendur,
gerendur eða verða einfaldlega varir við það
– Afkastageta starfsmanna fer dvínandi sem og almenn starfsánægja
*Heimild: velvakandi.is
Lærðu að þekkja einelti í vinnunni
n Virðing
n Traust
n Jákvæðni
n Heiðarleiki
n Kurteisi
n Tillitssemi
n Hjálpsemi
Af vefsvæði velvakanda.is
Góð samskipti og tengsl milli starfsmanna nást fram með því að fyrirtæki skapi
gott starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á ábyrgð stjórnenda til að móta sam-
skipti, sýna fordæmi og viðhalda góðum starfsanda. Góð samskipti starfsmanna
eru undirstaða þess að fólk geti unnið saman í hópum og að upplýsingar innan
fyrirtækis berist manna í millum.
Stuðningur við vinnufélaga, hrós og hvatning til góðra verka eru liðir í jákvæðum
samskiptum á vinnustað. Fýluköst, óþarfa reiði, orðbragð, þrúgandi þögn, baktal
og einelti eru aftur á móti dæmi um neikvæða þætti sem geta brotið niður
starfsanda.
Lykilatriði í samskiptum
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Það var eitthvað smávægilegt
sem kom upp á síðast-
liðið sumar en í dag
gengur þar mjög vel.
Fá hjálp Yfirstjórn Arion banka
hefur tvívegis þurft að kalla
til sálfræðing vegna óánægju
starfsmanna með yfirmenn deilda.